Morgunblaðið - 16.03.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 16.03.2021, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Eins og fjallað var um í Morgun- blaðinu í gær er meiriháttar breyt- ing á umhverfi netauglýsinga um all- an heim handan við hornið, en Google tilkynnti fyrr í mánuðinum að hvorki auglýsingakerfi netrisans né vafrinn Chrome muni styðja leng- ur við vafrakökur þriðja aðila. Með þessu fylgir Google í fótspor Apple sem á síðasta ári sendi frá sér iOS 14-vafrann sem lokar á vafrakökur þriðja aðila nema notandinn sam- þykki kökurnar sérstaklega. Tvíeggjað sverð Baldvin Þormóðsson fram- kvæmdastjóri Íslensku auglýsinga- stofunnar segir að breytingin á markaðnum sé tvíeggjað sverð. Vafrakökur geti verið nytsamar til að hámarka upplifun notenda, þar sem þeir sjá það sem þeir hafa mest- an áhuga á. Hins vegar vilji fólk ekki sjá persónuupplýsingar sínar notað- ar sem gjaldmiðil milli stórfyrir- tækja. „Gögn eru orðin auðlind sem stórfyrirtæki bora eftir eins og olíu. Fjöldi netmarkaðsfyrirtækja hefur sprottið upp þar sem einblínt er á að sérsníða auglýsingarnar að fólki, en það bitnar oft á gæðum auglýsing- anna sjálfra. Mér finnst óvirðing gagnvart notendum að birta þeim auglýsingar sem ekki er búið að skrifa og hanna af natni,“ segir Bald- vin. Hann segir gífurlega list fólgna í því að fanga athygli fólks. „Markaðs- setning var svo metnaðarfull hér áð- ur fyrr og þessi breyting gæti orðið jákvæð að því leyti að metnaðurinn gæti aukist aftur. Auglýsingar eiga að vera skemmtilegar líka og ákveð- in tegund af afþreyingu.“ Baldvin vísar til mótmæla Face- book vegna breytinganna en fyrir- tækið telur að breytingin komi sér illa fyrir lítil fyrirtæki. „Ef Facebook er að mótmæla einhverju er það vanalega sigur fyrir fólkið.“ Baldvin segir að breytingin hafi ekki áhrif að neinu marki á störf Ís- lensku auglýsingastofunnar. „Við sérhæfum okkur nú þegar í að gera markaðsefni sem vekur athygli.“ Sandkassinn kemur í staðinn Haukur Jarl Kristjánsson, sviðs- stjóri árangurstengdrar markaðs- setningar hjá netmarkaðsstofnni The Engine, sem hefur meira en tíu ára reynslu af netmarkaðssetningu, segir í samtali við Morgunblaðið að breytingarnar séu fyrst og fremst gerðar til að sporna við því að óprúttnir aðilar geti misnotað gögn frá notendum sem þeir afla sér með vafrakökum frá þriðja aðila. „Þarna er verið að fórna hagsmunum meiri- hluta notenda sem nýta þessar upp- lýsingar heiðarlega og vilja gera hlutina vel, vegna háttsemi fárra,“ segir Haukur. Eins og hann bendir á, og Sigurð- ur Svansson hjá Sahara gerði sömu- leiðis í Morgunblaðinu í gær, þýða breytingarnar meðal annars að erf- iðara verður að sérsníða auglýsingar að notendum í framtíðinni. Haukur tekur undir með Sigurði að Google leysi þetta m.a. með hinum svokall- aða sandkassa sem komi að ein- hverju leyti í staðinn fyrir vafrakök- urnar frá þriðja aðila. „Google hefur lengi boðið auglýsendum upp á svo- kallað „similar audiences“ þar sem notendahegðun markhópsins sem þú hefur verið að safna saman er borin saman við aðra notendur á netinu með það að leiðarljósi að finna fleiri sem passa inn í sama mengi. Með sandkassanum mun Google líklega nýta sambærilega tækni þar sem notendur hætta að vera einstakir og byrja frekar að tilheyra hópi fleiri notenda sem deila sömu hegðun.“ Meirihluti finnur ekki neitt Spurður nánar um áhrif sem breytingin mun hafa á auglýsendur segir Haukur að meirihluti þeirra muni ekki finna neitt fyrir þessu. „Það fullnýta fæstir þá möguleika sem þessi vafrakökusöfnun býður upp á, en við eigum auðvitað eftir að sjá þetta betur þegar það er búið að innleiða breytinguna að fullu.“ Hauk grunar að breytingin muni neyða fyrirtæki sem eru ekki þegar byrjuð að hugsa út í gagnaöflun, gagnavörslu og gagnanýtingu til þess að styrkja innviði sína, hvort sem um ræðir mannauð, tækni eða ferla. Að öðrum kosti gætu þau misst af lestinni. Breytingin gæti aukið metnað í auglýsingum AFP Netrisar Fólk vill ekki sjá persónuupplýsingar sínar notaðar sem gjaldmiðil milli stórfyrirtækja. - Vafrakökur geta verið nytsamar - Hagsmunum meirihluta notenda fórnað Baldvin Þormóðsson Haukur Jarl Kristjánsson Sigurður Ástgeirsson, fram- kvæmdastjóri Ísorku, segir fyrir- hugaða undanþágu dótturfélaga Orkuveitu Reykjavíkur (OR) frá upplýsingalögum munu skerða sam- keppnisstöðu einkafyrirtækja. Tilefnið er að Dagur B. Egg- ertsson borgar- stjóri Reykjavík- ur gerði tillögu um að dóttur- fyrirtæki OR á samkeppnis- markaði fengju undanþágu frá upplýsingalögum. Borgarráð sam- þykkti tillöguna og bíður hún nú samþykkis forsætis- ráðherra. Meðal dótturfyrtækja OR er Orka náttúrunnar (ON) sem er umsvifa- mikið í sölu rafhleðslustöðva og því í samkeppni við Ísorku og fleiri aðila á þessum markaði. Hófu rannsókn á ON Sigurður rifjar upp að fyrir rúm- um tveimur árum hafi Ísorka lagt fram kvörtun vegna framferðis ON á markaðnum. Það hafi svo orðið til- efni þess að Samkeppniseftirlitið ákvað í október síðastliðnum að hefja formlega rannsókn á starfsemi Orku náttúrunnar. En þeirri rannsókn er ekki lokið. Sigurður segir að eitt af mikilvæg- ustu gögnunum í málinu hafi verið samningur ON og Landspítalans. ON hafi synjað Ísorku um afhend- ingu samningsins með þeim rökum að hann innihéldi upplýsingar sem gætu skaðað samkeppni. Sýndi alvarleg brot „Við ákváðum að kæra það svar til kærunefndar upplýsingamála af því að við töldum að þetta væri samn- ingur sem ætti að opinbera. Kæru- nefndin varð við því. Hún tók undir sjónarmið okkar og úrskurðaði að það bæri að birta samninginn. Og þegar hann var birtur komu í ljós mjög alvarleg brot. Og þetta gagn er eitt af lykilgögnum í kvörtun okkar til Samkeppniseftirlitsins. Ef þetta verður niðurstaðan munu einkafyrirtæki ekki hafa neitt tæki- færi til að reyna á háttsemi ON og kalla eftir samningum, af því að þetta er opinbert fyrirtæki. Þetta mun hafa skaðleg áhrif á samkeppni og ég velti fyrir mér hvers vegna er verið að gera þetta,“ segir Sigurður um málið. baldura@mbl.is Leyndarhjúpur skaði samkeppni - Stjórnandi Ísorku gagnrýnir borgina Sigurður Ástgeirsson Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi, rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is HÁTT HITAÞOL 16. mars 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.96 Sterlingspund 179.29 Kanadadalur 102.78 Dönsk króna 20.695 Norsk króna 15.258 Sænsk króna 15.177 Svissn. franki 138.74 Japanskt jen 1.1823 SDR 184.28 Evra 153.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 185.5427 Hrávöruverð Gull 1703.85 ($/únsa) Ál 2139.0 ($/tonn) LME Hráolía 69.59 ($/fatið) Brent « Lífeyrissjóður verslunarmanna, sem er þriðji stærsti hluthafi Arion banka með 8,45% hlut, hefur lagt fram breyt- ingartillögu við fyrirliggjandi tillögur á aðalfundi bankans sem haldinn verður í dag. Leggur sjóðurinn til að stjórnarlaun á vettvangi bankans haldist óbreytt frá síðasta aðalfundi. Þannig verði laun stjórnarmanna 490.900 krónur, mán- aðarlaun varaformanns stjórnar 736.200 krónur og mánaðarlaun stjórnarformanns verði 981.400 krónur. Í fyrrnefndum tillögum, sem núver- andi stjórn bankans leggur fyrir aðal- fund til samþykktar eða synjunar, er gert ráð fyrir talsverðri hækkun stjórn- arlauna. Þannig er tillaga gerð um að stjórnarlaun hækki í 600 þúsund krón- ur, laun varaformanns í 900 þúsund og laun stjórnarformanns verði 1.200 þúsund krónur. Jafngildir það hækkun um ríflega 22%. Til samanburðar má nefna að fyrir aðalfundi Íslandsbanka, sem haldinn verður 18. mars næstkomandi, liggur tillaga stjórnar um að stjórnarlaun skuli verða 450 þúsund krónur á mánuði, laun varaformanns verði 560 þúsund krónur og laun stjórnarformanns 785 þúsund krónur. Leggur til óbreytt stjórnarlaun hjá Arion STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.