Morgunblaðið - 16.03.2021, Qupperneq 13
AFP
Sorgarstund Lundúnabúar og aðrir syrgjendur lögðu blóm og kransa til
minningar um Söruh Everard við hljómskála í Clapham Common í gær.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær að hann bæri
enn fullt traust til Cressidu Dick,
lögreglustjóra Lundúnaborgar,
þrátt fyrir þá gagnrýni sem hún hef-
ur fengið á sig eftir að lögreglan
leysti upp minningarathöfn um
Söruh Everard á laugardaginn
vegna meintra brota á sóttvarna-
reglum.
Boðað hafði verið til athafnarinnar
til þess að vekja athygli á ofbeldi
gegn konum eftir að lík Everard
fannst í síðustu viku. Meintur morð-
ingi hennar er í haldi, en hann er lög-
regluþjónn í Lundúnalögreglunni.
Það þótti því skjóta nokkuð skökku
við þegar karlkyns lögregluþjónar
náðust á myndband í slagsmálum við
mótmælendur, sem nær allir voru
kvenkyns, á laugardagskvöldið.
Johnson sagðist styðja þær kröfur
sem settar hefðu verið fram um
rannsókn á framferði lögreglunnar,
en Priti Patel innanríkisráðherra
hefur þegar skipað eftirlitshóp með
störfum lögreglunnar til að kanna
það. Dick lýsti því yfir í gær að hún
hygðist ekki segja af sér vegna máls-
ins.
Ber enn fullt traust til lögreglustjórans
- Johnson kallar eftir rannsókn á
framferði lögreglunnar á laugardag
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Fjögur af stærstu ríkjum Evrópu-
sambandsins, Þýskaland, Frakk-
land, Spánn og Ítalía, bættust í gær í
hóp þeirra ríkja sem hætt hafa bólu-
setningu tímabundið með bóluefni
Oxford-háskóla og AstraZeneca
gegn kórónuveirunni vegna ótta um
að efnið geti valdið blóðtappa.
Þá var greint frá því í gær að heil-
brigðisstarfsmaður í Noregi hefði
dáið skömmu eftir að hafa fengið
bóluefnið, en norsk yfirvöld sögðust
ekki geta fullyrt um nein tengsl þar á
milli. Þetta er annað dauðsfallið í
Noregi á skömmum tíma sem óttast
er að tengist efninu.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO
sagði í gær að ríki heims ættu að
halda áfram bólusetningum með efn-
inu, og að ekki væri ástæða til að fyll-
ast ofsahræðslu vegna málsins.
Tedros Adhanom Ghebreyesus,
framkvæmdastjóri stofnunarinnar,
sagði í gær að öryggisnefnd WHO
myndi funda í dag, þriðjudag, til þess
að skoða þau nýju gögn sem komin
væru fram um öryggi bóluefnisins.
Sagði Tedros að WHO væri í nánu
sambandi við EMA, lyfjastofnun
Evrópu, um málið, en sú stofnun
lýsti því yfir í gær að boðað yrði til
sérstaks fundar á fimmtudaginn til
þess að fara yfir öryggi efnisins.
Sagði í tilkynningu EMA að þar
yrðu skoðaðar þær tilkynningar sem
borist hefðu um blóðtappa og dauðs-
föll í kjölfar bólusetningar með efn-
inu, og tekin ákvörðun um hvaða að-
gerða þyrfti að grípa til í kjölfarið.
Tók stofnunin sérstaklega fram að
hún teldi enn að kostir bóluefnisins
vægju þyngra en áhættan sem fylgdi
því að veikjast af kórónuveirunni, og
því væri ekki ástæða til að hætta
bólusetningu með efninu.
Ekki fleiri tilfelli en almennt
Meðal þess sem er til skoðunar er
hvort bóluefni AstraZeneca geti
valdið blóðtappa, en þá hefur einnig
verið tilkynnt að óvenjufáar blóð-
flögur, sem leika lykilhlutverk við
storknun blóðs, hafi fundist í blóð-
sýnum nokkurra sem fundið hafa
fyrir aukaverkunum í kjölfar bólu-
setningar.
Bæði EMA og Oxford-háskóli,
sem aðstoðaði við þróun bóluefnis-
ins, hafa sagt efnið öruggt, en And-
rew Pollard, yfirmaður bóluefna-
deildar Oxford, sagði að hlutfall
þeirra sem hefðu fengið blóðtappa
eftir að hafa þegið bóluefnið væri
lægra en það sem gengur og gerist
almennt í samfélaginu. Benti hann á
að ekki hefði orðið vart við neina
fjölgun blóðtappa í Bretlandi, þar
sem u.þ.b. 11 milljón skammtar af
efninu höfðu verið gefnir um helgina.
AFP
Bóluefni Heilbrigðisstarfsmaður undirbýr sprautu af AstraZeneca-efninu.
Fleiri hætta bólusetningum
- Frakkland, Þýskaland, Spánn og Ítalía stöðva notkun AstraZeneca-efnisins
- WHO hyggst funda um öryggi þess í dag - Ekki sögð ástæða til að óttast efnið
Að minnsta kosti ellefu mótmælend-
ur voru myrtir af herforingjastjórn-
inni í Búrma í mótmælum gærdags-
ins. Bættust þeir við mannfall
helgarinnar, en 44 hið minnsta voru
skotnir til bana á sunnudaginn, og
er það blóðugasti dagurinn frá því
að herinn rændi völdum í landinu,
sem einnig er þekkt sem Mjanmar, í
byrjun febrúar.
Nú hafa rúmlega 120 manns fallið
í skærum við her og lögreglulið
Búrma, en ekkert lát hefur verið á
mótmælum gegn valdaráninu þrátt
fyrir að herforingjastjórnin ætli sér
nú að kveða þau niður með valdi.
Megnið af dauðsföllum sunnu-
dagsins kom snemma um daginn
eftir að átök brutust út í einu hverfi
Jangon, stærstu borgar landsins, en
þar höfðu mótmælendur gert aðsúg
að fjölda kínverskra fyrirtækja og
kveikt í húsnæði þeirra. Telja mót-
mælendur að kínversk stjórnvöld
séu helstu bakhjarlar herforingja-
stjórnarinnar.
Fordæmdu kínversk stjórnvöld
árásirnar í gær og sagði Zhao Liji-
an, talsmaður kínverska utanríkis-
ráðuneytisins, þau hafa þungar
áhyggjur af öryggi Kínverja í
Búrma.
Mótmælin í gær urðu til þess að
herforingjastjórnin ákvað eina ferð-
ina enn að loka fyrir netaðgang
landsmanna, sem aftur varð til þess
að fresta þurfti yfirheyrslu yfir
Aung San Suu Kyi, leiðtoga rétt-
kjörinna stjórnvalda, í dómsal, þar
sem þær fara fram yfir netið.
Þá hafa nokkur ríki fordæmt að-
gerðir herforingjastjórnarinnar og
sögðu bresk stjórnvöld að þau væru
hneyksluð yfir valdbeitingu hennar
gegn saklausu fólki. Tom Andrews,
sérstakur fulltrúi Sameinuðu þjóð-
anna, lýsti því yfir að leiðtogar
valdaránsins ættu heima í fangelsi
vegna blóðsúthellinga helgarinnar.
Ellefu myrtir til
viðbótar í Búrma
- Blóðugasta helgi mótmæla að baki
AFP
Jangon Mótmælendur kveiktu m.a.
á kertum í mótmælum helgarinnar.
Íbúar í Peking, höfuðborg Kína,
þurftu að nota gleraugu, grímur og
hárnet til þess að glíma við einn
versta sandstorm sem skollið hefur
á borginni í mörg ár.
Umlukti gul þoka höfuðborgina,
en kínverskir veðurfræðingar
sögðu hana eiga uppruna sinn í
Góbí-eyðimörkinni í Mongólíu.
Borgaryfirvöld skipuðu skólum
að hætta við íþróttakeppnir utan-
húss og sögðu almenningi að halda
sig sem mest innandyra. Þá var
hundruðum flugferða til og frá
borginni aflýst.
KÍNA
AFP
Peking Gul þoka umlukti allt.
Gul þoka umlukti
höfuðborgina
Stjórnarand-
stæðingurinn
Alexei Navalní
sagði í gær að
hann væri kom-
inn í hinar al-
ræmdu „Fanga-
búðir 2“, sem eru
staðsettar í bæn-
um Pokrov, um
100 kílómetrum
frá Moskvu.
Sagðist Navalní í færslu á insta-
gram-síðu sinni ekki hafa rennt í
grun að hægt væri að búa til „al-
vöruútrýmingarbúðir“ svo skammt
frá höfuðborginni, og bætti við að
búið væri að snoða hann. Sagði
Navalní einnig að búðirnar litu út
eins og einhver hefði haft bókina
1984 eftir George Orwell að fyr-
irmynd. Hann sagðist ekki hafa
orðið vitni að ofbeldi gagnvart
föngum, en samfangar sínir væru
þó allir á nálum. Því ætti hann auð-
velt með að trúa frásögnum fyrri
fanga í búðum nr. 2.
RÚSSLAND
Líkir vistinni við
útrýmingarbúðir
Alexei
Navalní