Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 ✝ Sigurður Sig- valdason fædd- ist 28. júní 1926 í Ærlækjarseli í Öx- arfjarðarhreppi, N- Þingeyjarsýslu. Hann lést 28. febr- úar 2021. Foreldrar hans voru Sólveig Jóns- dóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1897 í Ær- lækjarseli, d. 6. des. 1982, og Sigvaldi Jónsson, bóndi á Klifshaga í Öxarfjarð- arhr., f. 2 des. 1886 í Hafra- fellstungu í Öxarfjarðarhr., d. 5. nóv. 1968. Bræður Sigurðar voru Pétur, f. 20. nóvember 1929, d. 1. júní 2017, og Jó- hann, f. 22. júní 1932, d. 12. mars 2017. Sigurður kvæntist árið 1955 Sigrúnu Magnúsdóttur cand mag, framhaldsskólakennara, f. 10. júní 1932 í Reykjavík. Hún lifir mann sinn. Sigurður og Sigrún eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Sigurður, f. 12. júlí 1956, strandverkfræðingur í Sigurður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akur- eyri 1948, fyrrihlutaprófi í verkfræði frá Háskóla Íslands 1952 og prófi í byggingarverk- fræði frá Norges tekniske høg- skole í Þrándheimi 1954. Sigurður starfaði sem verk- fræðingur hjá mælingadeild borgarverkfræðings í Reykja- vík 1954-60, sem umdæmis- verkfræðingur hjá Landnámi ríkisins 1960-83, verkfræðingur hjá Byggingastofnun landbún- aðarins 1983-90 og að lokum verkfræðingur hjá Búnaðar- félagi Íslands 1990-96. Sigurður ólst upp í Klifshaga á heimili foreldra sinn ásamt tveimur yngri bræðrum sínum. Eftir heimkomu frá námi stofn- uðu Sigurður og Sigrún til bú- skapar á Ægisgötu 26 í Reykja- vík en árið 1962 fluttu þau í eigið hús í Hvassaleiti og bjuggu þar alla tíð síðan. Sig- urður hafði sterkar taugar til æskustöðvanna og unni sér vel í Fosshaga, sumarbústað í landi Klifshaga. Útför Sigurðar fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 16. mars 2021, klukkan 15. Slóð á streymi: https://tinyurl.com/52vp74e8 Hlekk á streymi má finna á www.mbl.is/andlat/ Reykjavík, kvænt- ur Hrönn Sævars- dóttur. Börn þeirra eru Brynjar, 1986, Auður Ýr, 1991, og Sigvaldi, f. 7. apríl 1993. 2) Ragnheið- ur, f. 22. mars 1959, barnageð- læknir í Svíþjóð, gift Anders Josep- hsson. Börn þeirra eru Ásdís Dögg, 1985, sonur hennar Freyr Ossi- an, 2019, Sigrún Rut, 1988, Karl Magnús, 1991, Elsa Björk, 1996, og Sigurður, 1999. 3) Sol- veig, f. 8. maí 1963, barnalækn- ir í Reykjavík. Maður hennar er Sigurður Jóhannesson. Synir þeirra eru Magnús, 1992, Sveinn, 1997, og Oddur, 2003. 4) Magnús, f. 27. okt. 1966, myndlistarmaður í Miami í Flórída, kvæntur Jöndu Weth- erington. Synir Magnúsar eru Sölvi, 1991, barnsmóðir Mar- grét Blöndal Haraldsdóttir, og Agnar Franco, barnsmóðir Mariangela Capuzzo. Tengdafaðir minn Sigurður Sigvaldason er nú fallinn frá á 95. aldursári. Á kveðjustund er mér þakklæti efst í huga fyrir kynni í rúmlega 40 ár eða frá því ég kynntist syni hans Sigga. Sigurður var einstaklega traustur, geðgóður og ljúfur maður. Hann var krökkunum okkar góður og hjálplegur afi sem þeim þótti mjög vænt um. Minnisstæðar eru margar góðar gönguferðir með krökkunum okkar litlum í Heiðmörk, sund- ferðir og ferðir norður í Öxar- fjörð. Sigurður fæddist í Öxarfirði og þótt hann hafi ungur yfirgefið heimahagana þá leið honum allt- af vel að koma í sveitina. Í landi Klifshaga byggði hann fallegan lítinn bústað ásamt bróður sín- um en fyrir um 11 árum byggði hann annan bústað sem hentaði fjölskyldunni betur. Þetta lýsir Sigurði vel en þarna var hann fyrst og fremst að hugsa um að vel færi um börnin sín og barna- börn í sveitinni. Sigurður og Sigrún voru lán- söm, eignuðust stóra fjölskyldu og voru alla tíð mjög samstíga. Þau fóru í sund á hverjum degi í mörg ár og eftir að þau hættu að vinna varð spjallið í pottinum og kaffið á eftir ómissandi. Þau voru sannkallaðir listunnendur, voru áskrifendur ár eftir ár á sinfóníutónleika, fóru í leikhús og fylgdust með myndlist bæði ungra og eldri listamanna. Þau höfðu einstaklega gaman af því að ferðast saman og þegar við Siggi bjuggum í Danmörku komu þau á hverju ári í heim- sókn. Við keyrðum með þeim um Evrópu, oftast ókum við á tveim- ur bílum en þetta var fyrir tíma farsímanna og stóð stundum tæpt að verða ekki viðskila á hraðbrautum Þýskalands. Það var virkilega gefandi og skemmtilegt að ferðast með þeim en þau höfðu mikinn áhuga á menningu og sögu þeirra landa sem við heimsóttum. Sigurður fór í framhaldsnám til Þrándheims og eftir dvölina þar fannst honum einstaklega gaman að fylgjast með vetrarí- þróttum. Aðallega þótti honum gaman að gönguskíðum, skíða- skotfimi og stökki og var með á hreinu nöfnin á helstu keppend- um hvort sem um kvenna- eða karlakeppni var að ræða. Alveg fram á síðasta ár fylgdist hann ekki aðeins með íslensku frétt- unum heldur las hann líka norsku blöðin í tölvunni sér til ánægju. Sigurður sat oft við eld- húsborðið og leysti krossgátur og sudokur fram undir það síð- asta. Árið sem Sigurður varð ní- ræður óskaði hann sér þess að fara til Vínarborgar með Sig- rúnu og börnunum sínum en þetta var ein af uppáhaldsborg- unum hans. Þau fóru í vikuferð, leigðu íbúð í miðborg Vínar og nutu þess besta sem borgin hafði upp á að bjóða. Þetta var þeim mikilvæg og ógleymanleg ferð. Blessuð sé minning Sigurðar og takk fyrir allt. Hrönn Sævarsdóttir. Hann Sigurður tengdapabbi minn er farinn frá okkur. Það er sorglegt og afar undarlegt að hann sé ekki lengur á meðal okkar. Ég mun alltaf minnast þess hlýhugar sem ég fann frá verðandi tengdapabba mínum þegar ég, ungur maður, kom til Íslands í fyrsta sinn. Sigurður var hæglátur og fámæltur, en viðmót hans gott. Ég var vel- kominn. Laugardagsmáltíðir voru há- tíðlegar og sérstaklega fínt var þegar Sigurður bauð mér upp á heimabruggaðan bjór. Það var líka spennandi og gaman fyrir mig að ferðast með Sigurði og fjölskyldu norður í sumarbústað. Bústaðurinn er á æskuslóðum Sigurðar, í landi Klifshaga í Öxarfirði. Húsið stendur í vel grónu og fallegu umhverfi, með útsýni til allra átta. Þegar fyrstu börn okkar Ragnheiðar, Ásdís og Sigrún Rut, voru litlar fengum við mik- ilvæga hjálp og aðstoð hjá Sig- rúnu og Sigurði. Tengdapabbi lagði nú rækt við sitt nýja hlut- verk, að vera afi, og brátt fékk hann mun fleiri að hugsa um. Sem ungur maður lærði tengdapabbi byggingarverk- fræðina í Þrándheimi í Noregi. Þar lærði hann líka listina að ganga á gönguskíðum. Hann sýndi skíðagöngunni mikinn áhuga þegar hann var háaldr- aður og gat ekki lengur farið á skíði. Á veturna sat hann oft uppi í stofu og horfði á norsku og sænsku skíðastjörnurnar og þar vorum við tveir með sameig- inlegt áhugamál. Sigurður var vel ern alla sína ævi. Hann fylgdist afar vel með heimsmálunum, í dagblöðum og fyrir framan útvarp og sjónvarp. Hann hafði skýrar skoðanir á stjórnmálum. Hann dáðist að Olof Palme á sínum tíma en kunni ekki að meta Trump. Kominn yfir nírætt stundi hann og furðaði sig á framgangi Trumps. Hann sat oft í eldhús- inu og glímdi við sudoku, kross- gátur og lagði kapal. Honum fannst gaman að kenna barna- börnunum þennan leik. Hann og tengdamamma stunduðu sund- ferðir alla tíð. Í mörg ár var dag- leg morgunrútína að fara í Sund- laug Kópavogs. Í sundinu fundu þau nýja félaga í hópi eldri borg- ara og eignuðust góða vini. Sigurður tengdapabbi var lengi svo til óbreyttur. Hárið hans var dökkt og gránaði seint. Hann hafði gaman af gönguferð- um og útivist. Þrátt fyrir hrak- andi heilsu á síðasta ári hélt hann áfram daglegum göngu- ferðum, en nú með göngugrind. Ferðirnar styttust æ en hann hélt fast við sína venju fram á síðasta dag. Það var mjög gam- an að við fengum tækifæri til að ferðast norður í sumarbústað enn eitt skiptið í fyrrasumar. Veðrið var gott. Sigurður naut vistarinnar vel, kveikti upp í arninum eins alltaf og naut kyrrðarinnar fyrir framan eld- inn. Sigurður kunni vel að meta kveðskap. Eitt skiptið í fyrra- sumar sátum við Sigurður sam- an á nýja pallinum í garðinum í Hvassaleiti. Við drukkum kaffi og spjölluðum um lífið. Þá fór Sigurður með nokkrar ljóðlínur eftir Jón Helgason, sótta úr ljóð- inu Áfangar: Séð hef ég skrautleg suðræn blóm sólvermd í hlýjum garði; áburð og ljós og aðra virkt enginn til þeirra sparði; mér var þó löngum meir í hug melgrasskúfurinn harði, runninn upp þar sem Kaldakvísl kemur úr Vonarskarði. Svo vil ég kveðja Sigurð. Guð geymi minningu hans. Anders Josephsson. Afi sýndi okkur ávallt góðvild og hlýju, hann var ekki maður margra orða en hann sýndi í verkum sínum og með nærveru sinni að honum þótti vænt um okkur. Þegar við vorum krakkar bauð afi okkur á eftirminnileg jólaböll á vinnustaðnum sínum, fékk okkur með sér út í garð að grilla, kveikja upp í arninum með sér og skutlaði okkur á ótal- margar tónlistar- og íþróttaæf- ingar. Afi stóð fyrir byggingu sum- arbústaðar í Öxarfirðinum svo að stórfjölskyldan bæði innan- lands og utan gæti haldið áfram sambandi við æskuslóðir hans. Afi var hógvær og hreykti sér ekki af verkum sínum. Samt var hann svo ótrúlega hlýr og sýndi okkur alltaf áhuga og spurðist fyrir um það hvernig gengi. Eitt af því aðdáunarverðasta við afa var hversu atorkusamur hann var. Það væri eflaust styttra að telja upp það sem afi gerði ekki á efri árum sínum. Afi fór nánast daglega í sund auk þess sem hann og amma mættu á opnanir listasýninga, þau voru árlegir korthafar hjá Sinfóníu- hljómsveit Íslands, í Þjóðleik- húsinu og Borgarleikhúsinu. Afi var fróðleiksfús og fylgdist vel með fréttum alla sína ævi. Hann las ekki bara íslensku fréttirnar heldur þær norsku líka og þar voru niðurstöður vetraríþrótta helsta áhugamálið. Hann sat löngum stundum við að leysa krossgátur og sudoku-þrautir. Afi og amma höfðu gaman af að ferðast til útlanda og sóttu fjölda námskeiða bæði um tónlist og Íslendingasögur. Með allri þess- ari virkni og áhuga fyllir afi í nánast öll box fyrir hina full- komnu öldrun ef svo má að orði komast. Fyrir okkur yngri systkinin sem erum menntuð í sálfræði er þetta skólabókar- dæmi um hvernig hægt er að halda heilastarfseminni góðri og lifa farsælu lífi fram á eldri ár. Við höfum alltaf litið upp til afa og ömmu hvað þetta varðar enda fyrirmyndir um hvernig hægt er að njóta lífsins. Afi og pabbi voru bestu mát- ar. Þeir héldu daglegu sambandi en við munum vel eftir því þegar pabbi sótti okkur í tónlistartíma seinni part dags, þá var hann nánast undantekningarlaust að spjalla við afa í símann. Þegar við heimsóttum afa og ömmu þá settust þeir feðgar gjarnan upp í efri stofu og spjölluðu um dag- inn og veginn eða smökkuðu saman nýja bjóra. Fyrir okkur var samband afa og pabba bæði eftirminnilegt og einstakt. Það sem einkennir síðustu ár afa og ömmu var umhyggja og tryggð. Þegar þau lentu í óhappi árið 2018 og amma þurfti að liggja á spítala þá gekk afi á hverjum degi til ömmu í heim- sókn þótt hann væri orðinn ní- ræður og hægur í hreyfingum. Það fannst okkur sýna hversu traustur og trúr afi var gagnvart lífsförunauti sínum. Afi og amma áttu það til að kýtast en amma sagði okkur einu sinni að afi hefði sagt við hana „það er nú ekki allt sem við erum sammála um Sigrún mín, en eitt getum við verið sammála um og það er hvað við eigum góð börn og barnabörn“. Þetta þótti okkur virkilega vænt um að heyra. Elsku afi, við munum sakna þín og þökkum fyrir góðar stundir saman. Við munum geyma þessar minningar um ókomna tíð. Við hugsum hlýtt til þín elsku amma. Þín barnabörn Auður Ýr, Brynjar og Sigvaldi Sigurðarbörn. Sigurður Sigvaldason var afi sonar míns Sölva og pabbi hans Magga fyrrverandi sambýlis- manns míns. Sigurður var einn af þeim mönnum sem mæla fátt en kunna því betur að hlusta. Hans tjáskipti fóru fram með traustri nærveru, svipmóti og hlýrri kveðju. Ég fann gleði hans þegar vel áraði, hryggð og samkennd þegar á reyndi en ávallt stuðning og velvild. Sig- urður og Sigrún eftirlifandi eig- inkona hans voru samhent hjón sem hlúðu að sínum stóra ætt- boga af örlæti. Á heimili þeirra í Hvassaleitinu er alltaf gott að koma. Þau ræktuðu sál og lík- ama með daglegri hreyfingu og sóttu menningarviðburði innan og utan landsteinanna. Sigurður var ferðbúinn þegar kallið kom. Ég þakka góðum manni sam- fylgd, velvilja og hlýju alla tíð. Sigrúnu, Sigga, Rönku, Sollu, Magga, mökum og afabörnum votta ég samúð mína en sam- gleðst þeim um leið að hafa notið eiginmanns, föður og afa lengi. Margrét H. Blöndal. Sigurður Sigvaldason Stjórn Skóg- ræktarfélags Siglufjarðar vill minnast Antons V. Jóhannssonar fyrir hans miklu störf í þágu skógræktarinnar í Skarðdal. Hann kom í stjórn fé- lagsins 1978 og starfaði við hlið Jóhanns Þorvaldssonar. Anton tók við formennsku 1989 og hélt uppi merki félagsins til 2004 af miklum krafti, en hélt Anton Jóhannsson ✝ Anton Jó- hannsson fæddist 9. október 1930. Hann lést 5. mars 2021. Útför Antons fór fram 13. mars 2021. svo áfram að huga að og passa þessa náttúruperlu sem við eigum. Seinni árin gerði hann sér fallegan reit við hestastein sunnan við gamla Skarð- dalsbæinn, en þar höfðu ættingjar hans átt heima. Kallaði hann reit- inn Skarðdalsreit. Við sendum innilegustu sam- úðarkveðjur til eftirlifandi ætt- ingja. Blessuð sé minning Ant- ons V. Jóhannssonar. F.h. Skógræktarfélags Siglu- fjarðar, Kristrún Halldórsdóttir formaður. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG LILJA ÞORKELSDÓTTIR, Hraunbæ 103, lést föstudaginn 5. mars á Landspítala. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 18. mars klukkan 13. Danilía Guðrún Kristjánsd. Kristbjörg Leósdóttir Tryggvi Friðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR BJÖRN PÉTURSSON hagfræðingur, Smáraflöt 41, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 19. mars klukkan 15.00. Vegna samkomutakmarkana verða aðeins aðstandendur og boðsgestir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á eftirfarandi slóð: https://youtu.be/CZyefw6IVKg Hægt er að nálgast vefslóðina á andlátsvef Morgunblaðsins. Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og hlýhug. Kristín Blöndal Pétur Björn Pétursson Maíza Hélen Teixeira Ólafur Pétursson Hjálmar Blöndal Guðjónsson Elías Blöndal Guðjónsson Kristín Hrund Guðm. Briem Ólafur Orri, Katrín og Jóhann Okkar elskaða eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, BERGLJÓT HERMUNDSDÓTTIR leikskólakennari, Kristnibraut 65, lést fimmtudaginn 11. mars. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram með nánustu ættingjum og vinum í Guðríðarkirkju föstudaginn 19. mars klukkan 15. Munum sóttvarnir og skráningu í kirkju eða hjá aðstandendum. Útförinni verður streymt á netinu. Hlekk á streymi má finna á mbl.is/andlat. Kristmann Grétar Óskarsson Gyða Kristmannsdóttir Jón Ríkharð Kristjánsson Auður Kristmannsdóttir Þórður Pálmason Kristín M. Kristmannsdóttir Jóhann Ölvir Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR ERLENDSDÓTTIR, lést á Hrafnistu Nesvöllum þriðjudaginn 9. mars. Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 19. mars klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Finnur Eyjólfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.