Morgunblaðið - 16.03.2021, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021
England
Wolves – Liverpool................................... 0:1
Staðan:
Manch. City 30 22 5 3 64:21 71
Manch. Utd 29 16 9 4 56:32 57
Leicester 29 17 5 7 53:32 56
Chelsea 29 14 9 6 44:25 51
West Ham 28 14 6 8 42:32 48
Liverpool 29 13 7 9 48:36 46
Everton 28 14 4 10 40:37 46
Tottenham 28 13 6 9 47:30 45
Aston Villa 27 12 5 10 39:28 41
Arsenal 28 12 5 11 37:29 41
Crystal Palace 29 10 7 12 31:47 37
Leeds 28 11 3 14 43:46 36
Wolves 29 9 8 12 28:38 35
Southampton 29 9 6 14 36:51 33
Burnley 29 8 9 12 22:37 33
Brighton 28 6 11 11 29:36 29
Newcastle 28 7 7 14 28:45 28
Fulham 29 5 11 13 22:36 26
WBA 29 3 9 17 20:57 18
Sheffield Utd 29 4 2 23 16:50 14
Spánn
Barcelona – Huesca.................................. 4:1
Staðan:
Atlético Madrid 27 19 6 2 50:18 63
Barcelona 27 18 5 4 61:23 59
Real Madrid 27 17 6 4 46:22 57
Sevilla 26 16 3 7 36:20 51
Real Sociedad 27 12 9 6 43:22 45
Real Betis 27 13 3 11 36:41 42
Villarreal 27 9 13 5 37:30 40
Granada 27 10 6 11 33:44 36
Levante 27 8 11 8 36:35 35
Athletic Bilbao 27 9 7 11 37:31 34
Celta Vigo 27 8 10 9 34:40 34
Valencia 27 7 9 11 32:37 30
Osasuna 27 7 8 12 23:35 29
Cádiz 27 7 8 12 23:42 29
Getafe 27 7 7 13 21:32 28
Real Valladolid 27 5 11 11 25:37 26
Elche 26 5 9 12 24:39 24
Alavés 27 5 8 14 23:43 23
Eibar 27 4 10 13 21:32 22
Huesca 27 3 11 13 26:44 20
Danmörk
AGF – Randers......................................... 1:1
- Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 69
mínúturnar með AGF.
Staðan:
Brøndby 21 14 2 5 39:23 44
Midtjylland 21 12 4 5 30:20 40
AGF 21 10 7 4 34:21 37
København 21 10 5 6 38:33 35
Randers 21 8 5 8 29:20 29
SønderjyskE 21 8 4 9 29:30 28
AaB 21 7 7 7 24:28 28
Nordsjælland 21 6 8 7 33:29 26
OB 21 6 7 8 23:28 25
Vejle 21 6 6 9 25:32 24
Lyngby 21 4 5 12 23:42 17
Horsens 21 2 6 13 14:35 12
Holland
B-deild:
Jong Utrecht – Jong PSV....................... 1:6
- Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður á 81. mínútu hjá PSV.
50$99(/:+0$
NBA-deildin
Oklahoma City – Memphis .............. 128:122
Golden State – Utah......................... 131:119
Philadelphia – San Antonio ............... 134:99
Orlando – Miami ................................. 97:102
Atlanta – Cleveland............................ 100:82
Houston – Boston ............................. 107:134
Minnesota – Portland....................... 114:112
Chicago – Toronto .............................. 118:95
New Orleans – LA Clippers ............ 135:115
57+36!)49,
Knattspyrnumaðurinn Dagur Dan
Þórhallsson er að ganga til liðs við
uppeldisfélag sitt Fylki samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Dagur
er uppalinn hjá Fylki en hefur einn-
ig leikið með Haukum og Keflavík
hér á landi. Dagur kemur til félags-
ins frá úrvalsdeildarliði Mjöndalen í
Noregi þar sem hann hefur leikið
frá árinu 2019. Sóknarmaðurinn,
sem fæddist árið 2000, á að baki 16
leiki í efstu deild hér á landi með
Keflavík þar sem hann hefur skor-
að eitt mark. Þá á hann að baki 22
landsleiki fyrir yngri landslið Ís-
lands.
Dagur Dan
kominn heim
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hertz-höllin: Grótta – FH ................... 19.30
Ásvellir: Haukar – Stjarnan ..................... 20
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Egilshöll: Fjölnir – SR ......................... 19.45
Í KVÖLD!
Liverpool vann annan útisigur sinn í
röð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta
í gærkvöldi er liðið lagði Wolves, 1:0.
Diogo Jota skoraði sigurmarkið
gegn sínum gömlu félögum. Liver-
pool var nær því að skora fleiri mörk
en Wolves að jafna, en Rui Patricio í
marki Wolves lék vel. Patricio
meiddist undir lokin og var leik-
urinn stoppaður í rúmar tíu mín-
útur, en meiðslin eru ekki eins alvar-
leg og í fyrstu var óttast. Liverpool
er nú í sjötta sæti með 46 stig, fimm
stigum á eftir Chelsea í fjórða sæti.
Wolves er í 13. sæti.
Portúgalinn
hetja Liverpool
AFP
Sigurmark Diogo Jota fagnar sig-
urmarki Liverpool í gærkvöldi.
Arnór Ingvi Traustason landsliðs-
maður í knattspyrnu er kominn til
bandaríska félagsins New England
Revolution frá Malmö í Svíþjóð.
Arnór lék með Malmö í þrjú ár og
átti eitt ár eftir af samningi sínum
við félagið.
Hann er 27 ára gamall og hefur
leikið 37 landsleiki fyrir Ísland.
Hann lék áður með AEK í Grikk-
landi, Rapid Vín í Austurríki, Norr-
köping í Svíþjóð, Sandnes Ulf í Nor-
egi og Keflavík. Liðið leikur á
Gillette-leikvanginum sem tekur
tæplega 69 þúsund áhorfendur.
Kominn til
Bandaríkjanna
Morgunblaðið/Eggert
Bandaríkin Arnór Ingi Traustason
er kominn til New England.
HVERAGERÐI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Hamar úr Hveragerði vann sinn
fyrsta stóra titil í liðsíþrótt í meist-
araflokki um helgina þegar liðið varð
bikarmeistari í blaki í fyrsta sinn í 29
ára sögu félagsins.
Liðið vann 3:0-sigur gegn Aftur-
eldingu úr Mosfellsbæ í úrslitum bik-
arkeppninnar, Kjörísbikarsins, í
Digranesi í Kópavogi, 25:23, 26:24 og
25:21.
Kristján Valdimarsson og tvíbura-
bróðir hans Hafsteinn gengu til liðs
við Hamar síðasta sumar eftir fjölda
ára í atvinnumennsku erlendis en
þeir eru báðir uppaldir í Hveragerði
og lykilmenn í íslenska landsliðinu.
„Það er alveg óhætt að segja að
stemningin í Hveragerði sé mjög góð
eftir sigur helgarinnar,“ sagði hinn 32
ára gamli Kristján í samtali við Morg-
unblaðið.
„Þetta var auðvitað mjög skemmti-
legt fyrir mig og Hafstein bróður að
gera þetta með okkar félagi í okkar
heimabæ með allan þann stuðning
sem við fengum. Við höfum ekki gert
neitt þessu líkt áður með okkar félagi,
sem gerði þennan sigur extra sætan.
Þetta var mjög jafn leikur og við
vissum það fyrir leikinn að þetta yrði
erfitt. Við höfum verið á góðu skriði í
vetur og unnið marga af okkar leikj-
um nokkuð þægilega og það var þess
vegna búið að tala um það í aðdrag-
anda bikarúrslitanna að þetta væri í
raun hálfgerður skyldusigur fyrir
okkur.
Það er hins vegar aldrei þannig í
þessum úrslitaleikjum og við vissum
allan tímann að við ættum von á
hörkuleik, jafnvel þótt Afturelding
hafi spilað langan undanúrslitaleik á
laugardeginum. Það er ekki til neitt
sem heitir að vera þreyttur í bikar-
úrslitaleik og þetta var hörkuleikur
strax frá fyrstu mínútu,“ bætti Krist-
ján við.
Uppörvandi fyrir liðið
Hvergerðingar fjölmenntu í stúk-
una á laugardaginn og hjálpuðu liðinu
að sigla sigrinum heim eftir jafna
keppni.
„Leikirnir um helgina voru fyrstu
leikir vetrarins þar sem áhorfendur
fengu að mæta og horfa á úr stúk-
unni. Við litum þess vegna á þennan
leik sem hálfgerðan heimaleik og það
gaf okkur þvílíkan kraft, farandi inn í
leikinn, að vita til þess að okkar fólk
væri í stúkunni. Maður heyrir það á
götum bæjarins að fólk er að fylgjast
vel með því sem við erum að gera og
það er mjög uppörvandi fyrir bæði
mig og liðið.
Við bræðurnir höfum reglulega
fengið spurninguna um hvenær við
ætluðum að snúa aftur heim í Hvera-
gerði. Við reiknuðum þess vegna með
því að starfið myndi taka smá kipp
þegar það loksins gerðist og þó kór-
ónuveirufaraldurinn hafi sett smá
strik í reikninginn er virkilega gaman
að sjá hversu þétt er staðið við bakið
á okkur í öllu bæjarfélaginu.“
Gengið komið á óvart
Hamarsmenn voru stórhuga síð-
asta sumar, fengu til sín öfluga leik-
menn á borð við Wiktor Mielczarek
og spilandi þjálfarann Radoslaw Ry-
bak, en liðið trónir á toppi úrvals-
deildarinnar og er ósigrað með 30
stig í efsta sæti deildarinnar.
„Við komum ekki beint að því
hvaða erlendu leikmenn voru sóttir
fyrir tímabilið og í þeim tilfellum var
það þjálfarinn Radoslaw sem stjórn-
aði ferðinni. Við áttum hins vegar
okkar þátt í þeim íslensku leik-
mönnum sem komu eða bentum
kannski meira á hvaða og hvernig
leikmenn við vildum sækja. Stjórnin
og þjálfarinn gerðu svo virkilega vel í
að semja við þá leikmenn sem gengu
til liðs við Hamar fyrir tímabilið.
Ég get alveg viðurkennt að það
kom mér aðeins á óvart hversu góður
taktur hefur verið í liðinu strax frá
fyrsta degi. Markmiðið var að setja
saman samkeppnishæft lið sem gæti
unnið titla en ég bjóst ekki við því að
við myndum vinna alla okkar leiki.
Þetta hefur gengið framar vonum ef
svo má segja og núna er bara að
halda áfram að byggja ofan á þann
góða árangur sem hefur náðst.“
Nóg eftir á tankinum
Þrátt fyrir að vera 32 ára gamlir og
eiga nóg eftir ákváðu bræðurnir að
snúa heim úr atvinnumennsku síð-
asta sumar.
„Við höfum alltaf rætt það okkar á
milli að við vildum koma heim einn
daginn og vinna með uppeldisfélag-
inu. Við vildum líka gera það þegar
við ættum nokkur góð ár eftir á ferl-
inum, ekki þegar að við værum á síð-
ustu dropunum. Okkur fannst þetta
þess vegna vera réttur tímapunktur
að koma heim síðasta sumar því við
vildum eiga góð ár inni til þess að
gefa uppeldisfélaginu.
Það var heldur betur gaman að
vakna í morgun [gær] enda gefur það
bæjarfélaginu mjög mikið að hafa
eitthvað til þess að gleðjast yfir.
Hveragerði er og hefur alla tíð verið
mikill körfuboltabær og liðið hefur
staðið sig frábærlega, en ekki náð að
landa þessum stærstu titlum. Von-
andi höfum við gefið bænum eitthvað
til þess að monta sig af á móti körf-
unni í Þorlákshöfn og handboltanum
og fótboltanum á Selfossi.
Það var líka ótrúlega gaman að
kíkja á Facebook í morgun [gær] og
þetta var hálfpartinn eins og að eiga
afmæli þar, því kveðjunum bók-
staflega rigndi yfir mann frá alls kon-
ar fólki sem maður hafði ekki hug-
mynd um að væri að fylgjast með
íþróttum.“
Bikarinn kominn heim
Kristján og Hafsteinn tengjast
fyrirtækinu Kjörís fjölskylduböndum
og því vel við hæfi að Kjörísbikarinn
hafi endað í heimabænum Hvera-
gerði.
„Kjörís var byrjað að styrkja
bikarkeppnina áður en við gengum til
liðs við félagið á nýjan leik en það var
klárt mál, að um leið og við komum
aftur væri þetta bikar sem við þyrft-
um að taka með okkur heim til
Hveragerðis.
Við erum nokkrir sem erum að
vinna hjá fyrirtækinu og ég er ekki
viss um að við værum með vinnu í dag
ef við hefðum ekki skilað bikarnum
heim,“ bætti Kristján við léttur í
bragði í samtali við Morgunblaðið.
Hefði verið erfitt að
mæta í vinnu án bikars
- Kristján og Hafsteinn sneru heim og fyrsti titill í sögu Hveragerðis er í höfn
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
Bikarmeistarar Kristján Valdimarsson, lengst til hægri, fylgist með Hafsteini tvíburabróður sínum lyfta bikarnum
í leikslok eftir sigur Hamars á Aftureldingu. Radoslaw Rybak, spilandi þjálfari Hamars, er lengst til vinstri
Hamar er fyrsta liðið af Suðurlandi í 41 ár til að verða bikarmeistari karla í
blaki. Fyrsta og eina liðið af svæðinu til vinna bikarinn fram að því var
Ungmennafélag Laugdæla sem varð bikarmeistari árið 1980. Laugdælir
urðu einnig Íslandsmeistarar karla það ár, sem og árið 1979.
Hamar var í fjórða sæti 1. deildar karla þegar keppni var hætt 2019-20
og hafði endað í fimmta sæti 1. deildar 2018-19. Liðum í úrvalsdeild karla,
Mizuno-deildinni, var fjölgað fyrir yfirstandandi tímabil úr sex í níu og þá
bættust Fylkir, Hamar og Þróttur úr Vogum við úrvalsdeildina. Nú eru
Hamarsmenn á toppi hennar með tíu sigra í tíu leikjum, og 30 unnar hrinur
af 31, og eru með fjórum stigum meira en næsta lið, HK.
Fyrsti bikar á Suðurland frá 1980