Morgunblaðið - 16.03.2021, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021
–– Meira fyrir lesendur
BÍLA-SÉRBLAÐ
BÍLA
fylgir Morgunblaðinu í dagBLAÐ
Bandaríska tónlistarkonan Beyoncé
var sigursæl á Grammy-verðlauna-
hátíðinni á sunnudagskvöldið en hún
sló met þegar hún tók við fernum
verðlaunum og er hún komin með 28
Grammy-verðlaun, fleiri en nokkur
önnur kona hefur hlotið. Vantar
hana aðeins ein verðlaun til að jafna
met upptökustjórans og útsetjarans
Quincy Jones. Níu ára dóttir
Beyoncé, Blue Ivy Carter, deildi
verðlaunum með móður sinni og
WizKid fyrir besta tónlistar-
myndbandið, við lagið „Brown Skin
Girl“.
Konur hrepptu flest umtöluðustu
verðlaunin að þessu sinni, á hátíð
sem var haldin í skugga heimsfar-
aldurs kórónuveirunnar og hafði
verið frestað um tvo mánuði. Engir
gestir voru í salnum í Los Angeles,
verðlaun afhent á nokkrum sviðum
með tilskildum fjarlægðarmörkum
milli listamannanna en flestir þeirra
fylgdust með herlegheitunum heim-
an frá sér. Rapparinn Megan Thee
Stallion var valin besti nýi listamað-
urinn og var lag hennar, Savage,
sem Beyoncé syngur með í sem
gestur, líka verðlaunað fyrir bestu
rapp-frammistöðuna og var valið
besta rapp-lagið.
Hin 19 ára Billie Eilish sem vann
til nokkurra verðlauna í fyrra
hreppti nú styttu fyrir upptöku árs-
ins, „Everything I Wanted“. Plata
Taylor Swift, Folklore, var valin sú
besta, og þá kom á óvart að nýliðinn
sem kallar sig H.E.R. hreppti verð-
laun fyrir lag ársins, „I Can’t
Breathe“, og sló þar við Beyoncé,
Eilish, Swift og Dua Lipa sem einnig
höfðu verið tilnefndar. Laginu er
lýst sem baráttusöng Black Lives
Matter-herferðarinnar.
Hildur Guðnadóttir var tilnefnd til
tvennra verðlauna og hreppti önnur,
fyrir bestu tónlist í sjónrænum miðl-
um fyrir tónlistina í kvikmyndinni
Jókerinn. Er það annað árið í röð
sem hún hlýtur Grammy-verðlaun
en í fyrra bar hún sigur úr býtum
fyrir tónlist sjónvarpsþáttanna
Chernobyl. Hún var einnig tilnefnd
fyrir besta lag í sjónrænum miðlum,
Bathroom Dance en þar sigruðu
systkinin Billie Eilish og Finneas
Baird O’Connell fyrir titillagið úr
væntanlegri James Bond-kvikmynd
No Time to Die.
Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Daníel Bjarnason stjórnandi voru
tilnefnd fyrir besta flutning sinfóníu-
hljómsveitar og stjórn fyrir plötuna
Concurrence en þar sigraði Gustavo
Dudamel með Fílharmóníuhljóm-
sveit L.A. fyrir Ives: Complete
Symphonies.
Tveir nýlátnir listamenn hrepptu
verðlaun. Þjóðlagasöngvarinn John
Prine sem lést úr Covid-19 hlaut
tvenn fyrir lagið „I Remember
Everything“ og djasspíanistinn
Chick Corea sem lést í síðasta mán-
uði úr krabbameini hlaut einnig
tvenn verðlaun, fyrir bestu djass-
plötu og besta djasssóló ársins.
Konur hirtu öll helstu
Grammy-verðlaunin
- Hildur Guðnadóttir vann til verðlauna annað árið í röð
AFP
Roggnar Beyoncé og Megan Thee Stallion lukkulegar á hátíðinni.
Sýning Taylor Swift sýnir gripinn sem hún hlaut fyrir plötu ársins.
Tvær Íslandstengingar eru á lista
yfir tilnefningar til Óskarsverð-
launa sem tilkynntar voru í gær,
annars vegar lagið „Húsavík“ úr
gamanmyndinni Eurovision Song
Contest: The Story of Fire Saga og
hins vegar Já-fólkið, eða Yes-
People á ensku, teiknuð stuttmynd
leikstjórans og handritshöfundarins
Gísla Darra Halldórssonar sem
sýnd var á RIFF í fyrra og hefur
hlotið ýmsar tilnefningar og verð-
laun. Bætist Gísli þar með í afar fá-
mennan hóp Íslendinga sem til-
nefndir hafa verið til Óskars-
verðlauna.
Myndina framleiddu Gísli og Arn-
ar Gunnarsson fyrir Caoz og er hún
níu mínútur að lengd. Meðal þeirra
sem leika í íslenskri talsetningu
myndarinnar eru Jón Gnarr og
Helga Braga Jónsdóttir en leik-
ararnir segja bara „já“ í myndinni.
Fjöldi neitana til að byrja með
„Ég er algjörlega í losti,“ sagði
Gísli í gær, skömmu eftir að tilkynnt
var um tilnefningarnar en Gísli er
lærður í kvikun (e. animation) og
hefur unnið víða, m.a. fyrir Cartoon
Network og Passion Pictures. Hann
segist ekki vita til þess að íslensk
teiknuð stuttmynd hafi komist á
lokalista yfir tilnefndar myndir á
Óskarnum og eftirgrennslan blaða-
manns staðfestir það.
Myndin var frumsýnd á Mini-
malen kortfilmfestival í Noregi í
janúar í fyrra og segist Gísli hafa
fengið fjölda neitana frá hátíðum
áður en sú tók myndina á dagskrá.
„Allt í einu fékk hún mikinn með-
vind og komst inn á Annecy sem var
eiginlega hápunkturinn fyrir mig,
þá var ég bara orðinn sáttur,“ segir
Gísli en velgengni myndarinnar var
þó langt í frá lokið og hún hlaut
bæði ýmsar tilnefningar og verð-
laun. Gísli segir að í kjölfar þess að
myndin var tekin á dagskrá Annecy
og Palm Springs-stuttmynda-
hátíðarinnar hafi boltinn farið að
rúlla og áhuginn
orðið miklu meiri
fyrir henni. Hann
er spurður um
hvað myndin
fjalli og segist
hann eiga erfitt
með að lýsa því.
Fyrir honum
fjalli hún um svo
margt. „Þetta er
eiginlega port-
rett af rútínu og öllum litbrigðum
hennar,“ segir hann, „og um þessa
hversdagslegu ofurhetju sem þarf
að kljást við hversdaginn, er föst í
vana og alltaf að gera sömu mistök
eða ekki.“ Gísli líkir myndinni við
brauðsneið með smjöri og segir
margar pælingar í gangi. „Það er
svona grínsmjör ofan á henni og
margir sem horfa bara á smjörið en
fyrir mér er brauð undir smjörinu
sem sumir sjá en aðrir ekki.“
Tvær konur meðal leikstjóra
Kvikmynd Davids Finchers,
Mank, hlaut flestar tilnefningar til
Óskarsverðlaunanna 2021 eða tíu
alls og tvær konur hlutu tilnefningu
sem besti leikstjóri sem hefur aldrei
gerst áður í sögu Óskarsins; Chloé
Zhao fyrir Nomadland og Emerald
Fennell fyrir Promising Young
Woman. Aðrir tilnefndir leikstjórar
eru Thomas Vinterberg fyrir Druk,
David Fincher fyrir Mank og Lee
Isaac Chung fyrir Minari. Kvik-
myndir tilnefndar sem þær bestu
eru Mank, Promising Young Wo-
man, The Trial of the Chicago 7,
Sound of Metal, Nomadland, Minari,
Judas and the Black Messiah og The
Father. Tilnefndir sem besti leikari
í aðalhlutverki eru Riz Ahmed,
Chadwick Boseman, Anthony Hopk-
ins, Gary Oldman og Steven Yeun
og sem besta leikkona í aðalhlut-
verki Viola Davis, Andra Day, Van-
essa Kirby, Frances McDormand og
Carey Mulligan.
helgisnaer@mbl.is
Já-fólk Úr stuttmynd Gísla, Já-fólkið, sem tilnefnd er til Óskarsverðlauna.
„Ég er algjör-
lega í losti“
- Stuttmynd Gísla tilnefnd til Óskars
Gísli Darri
Halldórsson
Franska leikkonan Corinne Mas-
iero kom heldur betur á óvart á
frönsku kvikmyndaverðlaununum
César sem afhent voru um helgina.
Masiero mætti á svið í asnabúningi
útötuðum blóði sem hún afklæddist
svo þannig að við blasti nakinn lík-
ami hennar með áletruðum mót-
mælum. Krafðist hún þess að
stjórnvöld styddu betur við listalífið
í landinu nú á tímum veirufarald-
ursins og á baki hennar var mót-
mælum beint að forsætisráðherran-
um Jean Castex. „Færðu okkur
aftur listina, Jean,“ stóð þar skrif-
að. Fleiri listamenn voru í svip-
uðum hugleiðingum og gagnrýndu
stjórnvöld þetta kvöld, þótt ekki
gengju þeir eins langt og Masiero í
mótmælum sínum. En hvað verð-
launin sjálf varðar hlaut verðlaun
sem besta kvikmynd svört komedía
Alberts Dupontels, Adieu Les Cons
eða Bless, bjánar. Myndin hlaut sjö
verðlaun alls og þar á meðal fyrir
leikstjórn.
AFP
Mótmæli Masiero á Sesarnum.
Mótmælti nakin á Sesar-verðlaununum