Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.03.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ sýnd með íslensKu og ensKu talı FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SEARCHLIGHT PICTURES PRESENTS A HIGHWAYMAN HEAR/SAY COR CORDIUM PRODUCTION "NOMADLAND" DAVID STRATHAIRN LINDA MAY SWANKIEFRANCES MCDORMAND TAYLOR AVA SHUNG EMILY JADE FOLEY GEOFF LINVILLECO-PRODUCERS JOSHUA JAMES RICHARDSDIRECTOR OFPHOTOGRAPHY FRANCES MCDORMAND PETER SPEARS MOLLYE ASHER DAN JANVEY CHLOÉ ZHAOPRODUCEDBY JESSICA BRUDERBASED ON THEBOOK BY CHLOÉ ZHAOWRITTEN FOR THE SCREEN,DIRECTED, AND EDITED BY SIGURVERARI EVENING STANDARDTHE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUTEMPIRE 7 TILNEFNINGAR TIL BAFTA VERÐLAUNA M.A. BESTA MYND ÁRSINS 94% 95% 72% L eikhópurinn Hamfarir frumsýndi í Tjarnarbíói í liðinni viku The last kvöld- máltíð eftir Kolfinnu Nikulásdóttur í leikstjórn Önnu Maríu Tómasdóttur. Leikritið var útskriftarverkefni Kolfinnu af sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands 2016, en var endurskrifað í fyrra. Það er alltaf spennandi að sjá ný íslensk leikrit rata á svið og hlusta eftir því hvað ferskar raddir hafa að segja. Á leið inn í salinn greip rýnir prentaða leikskrána sem lúkkaði vel með stílfærðum ljósmyndum Mar- grétar Seemu Takyar, sem aftur kallaðist vel á við glæsilega sviðs- umgjörðina. Forvitnilegt var einnig að skoða kynninguna á verkinu í leik- skránni og þær spurningar sem þar var velt upp, þótt þeim hafi verið mjög misvel svarað í framvindu leiksins. Þegar komið var inn í salinn mátti sjá skemmtilega útfærslu Brynju Björnsdóttur á laugarbotni Sund- hallarinnar þar sem leikurinn gerist. Glærir plastrenningar römmuðu inn leikrýmið, tveir hvítir sólbekkir voru staðsettir framarlega á sviðinu, öðrum megin mátti sjá leifar af brotnu sundbretti, hinum megin gat að líta björgunarhring, yfir öllu hékk glæsileg ljósakróna gerð úr plast- flöskum, fyrir miðju tróndi hvítdúkað langborð sem vísaði óneitanlega í frægustu síðustu kvöldmáltíð sögunnar eins og Leonardo da Vinci útfærði hana í veggmynd sinni og aftast var plastbúr fullt af litríkum baðboltum. Inni í þessari tilkomumiklu umgjörð, sem Ólafur Ágúst Stefáns- son lýsir af glæsibrag og studd er góðri tónlist Sölku Valsdóttur, dvelja persónur verksins, sem virðast vera meðal fárra eftirlifandi mannvera landsins eftir heimsendi í kringum árið 2040. Þetta eru pabbinn (Ragnar Ísleifur Bragason), sem liggur í dái á öðrum sólbekknum alla sýninguna, mamman (Helga Braga Jónsdóttir) sem af þvingaðri glaðværð leggur mikið á sig til að undirbúa veisluhöld íslenska þjóðhátíðardagsins sem fagnað er í leikritinu með tilheyrandi blöðrum, fánum og pylsuáti, dóttirin Ló (Ásthildur Úa Sigurðardóttir) sem lætur sér leiðast á milli þess sem hún skríður upp í til pabbans sem hana dreymir um að giftast, sonurinn Beikon (Ólafur Ásgeirsson) sem gremst áhugaleysi annarra fjöl- skyldumeðlima gagnvart þeirri hug- mynd hans að reyna að eiga sam- skipti við mögulega eftirlifendur hamfaranna utan Sundhallarinnar með það fyrir augum að viðhalda mannkyni, en gælir samtímis við þá hugmynd að myrða þá sem honum standa næst og loks tónlistarmað- urinn Hreinn (Albert Halldórsson) sem löngum stundum dvelst í plast- búrinu þar sem hann þykir hættu- legur, þótt aldrei fáist nánari skýr- ingar á því í hverju sú hætta eigi að felast, en utan búrsins er honum gert að vera í hlekkjum gerðum úr sund- kútum. Vald og valdaleysi er áber- andi leiðarstef í verkinu, en í leiknum er ekki unnið nægilega vel með inn- byrðis status persóna. Framtíðarsýnin sem Kolfinna dregur upp í verki sínu er nöturleg og aðstæður persóna fáránlegar. Þegar strúktúr samfélagsins er á bak og burt og tilveran ein endalaus bið eftir engu í níhílískum heimi virðist einu tilbreytinguna að fá í holdlegum fýsnum, sem veita samt enga fró. Hér eru ekki sex persónur að leita höfundar heldur fimm að leita til- gangs í tilgangslausum heimi þar sem sjálfsvitundin flöktir stefnulaust og tungumálið er í upplausn, en per- sónur verksins tala meira á ensku en íslensku auk þess að bregða fyrir sig bæði dönsku og frönsku. Meðal setn- inga sem heyra mátti voru: „Why are you spending so much time on stupid stuff like your games when við gæt- um verið að I don’t know maybe bjarga mannkyninu.“ Þessi talsmáti persóna vakti iðulega kátínu leik- húsgesta og leikarar reyndu sitt besta til að gæða efniviðinn lífi. En með sama hætti og persónur náðu engum tengslum hver við aðra á svið- inu var vandasamt fyrir rýni að ná einhverjum tengslum við verkið. Þrátt fyrir nöturlegar aðstæður var engin leið að hafa samúð með per- sónum og á þeim tveimur klukkutím- um sem leikurinn tekur breyttist lítið sem ekkert í eintóna heimi verksins. Hafi tilgangur höfundar verið að undirstrika fáranleika tilverunnar, hæðast að dýrkun reðursins, minna á hversu þrúgandi það getur reynst að vera innilokaður, benda á að konur geta líka verið kúgarar, gera grín að þjóðernishyggju og sýna hversu var- hugaverð skautun getur verið þegar fólki er skipt í við og þið þá er óhætt að segja að höfundi hafi tekist ætlun- arverk sitt. Hafi ætlunin verið að fá áhorfendur til að spegla sig í verkinu og velta fyrir sér hvort þeir hugsi nógu vel um fólk og framtíðina þá tókst það ekki, að minnsta kosti ekki hjá þeim sem hér skrifar. Í níhílískum heimi Ljósmynd/Margrét Seema Takyar Nöturlegt „Framtíðarsýnin sem Kolfinna dregur upp í verki sínu er nöturleg og aðstæður persóna fáránlegar.“ Tjarnarbíó The last kvöldmáltíð bbmnn Eftir Kolfinnu Nikulásdóttur. Leikstjórn: Anna María Tómasdóttir. Leikmynd: Brynja Björnsdóttir. Búningar: Brynja Skjaldardóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Tónlist: Salka Valsdóttir. Leikarar: Albert Halldórsson, Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Helga Braga Jóns- dóttir, Ólafur Ásgeirsson og Ragnar Ísleifur Bragason. Leikhópurinn Hamfarir frumsýndi í Tjarnarbíói fimmtudaginn 11. mars 2021. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Avatar aftur tekju- hæsta kvikmyndin Avatar, geimævintýri James Came- rons frá árinu 2009, er aftur orðin sú kvikmynd sögunnar sem mestum miðasölutekjum hefur skilað en Avengers: Endgame átti metið. Ástæðan er endurútgáfa Avatar í Kína, að því er fram kemur í frétt á vef Deadline. Segir þar að Avatar hafi skilað jafnvirði 8,9 milljóna dollara í miðasölu frá því sýningar hófust á ný en um 7,8 milljónir doll- ara skildu að myndirnar tvær. Endgame sló met Avatar í júlí ár- ið 2019 en nú hefur Avatar í heild- ina skilað um 2,8 milljörðum doll- ara í miðasölu. Eru það um 368 milljarðar króna. James Cameron hefur tilkynnt að fjórar framhaldsmyndir Avatar verði gerðar og frumsýndar á næstu árum. Bláverur Úr hinni ógnarvinsælu Avatar. Erfingjar Hergés, höfundar sagn- anna um hinn hug- prúða Tinna, hafa höfðað mál gegn franska myndlist- armanninum Xav- ier Marabout vegna málverka þar sem hann fellir Tinna inn í myndheima mál- arans Edwards Hoppers, þar sem Tinni sést daðra við fáklæddar kon- ur. Saka erfingjar Hergés Mara- bout um að nýta sér frægð persón- unnar og fella inn í erótískan heim, sem sé ámælisvert þar sem Hergé hafi kosið að gera ekki grín að kon- um en konur sjást varla í Tinnasög- unum. Verjandi Marabout segir hann hafa fullt listrænt frelsi til að velta fyrir sér kynlífslöngun hinnar frægu persónu. Verja heiður Tinna fyrir dómstólum Tinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.