Morgunblaðið - 16.03.2021, Side 32

Morgunblaðið - 16.03.2021, Side 32
Efni í þætti kvöldsins: Dr. Ólöf Guðný Geirsdóttir dósent fjallar um mikilvægi hollustu og næring- ar eldri borgara á Covid-tímanum Halldór S. Björnsson forstöðumaður fjallar um reynslu af dagþjálfun í samanburði við dvöl á hjúkrunarheimili Dr. Björn S. Gunnarsson matvæla- og næringarfræðingur hjá MS talar um Næringu+ fyrir eldri borgara Kristján L. Möller verður í mjög fróðlegu viðtali um samgöngumál og jarðganga- gerð á Íslandi sl. 50 ár Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson Dagskráin á Hringbraut Lífið er lag Fréttir, fólk og menning á Hringbraut og hringbraut.is kl. 20.30 á Hringbraut í kvöld Kristján L. Möller Dr. Ólöf Guðný Geirsdóttir Á tónleikum Jazzklúbbssins Múlans í Flóa í Hörpu annað kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20 leiðir trommuleikarinn Erik Qvick kvintettinn Jazz-sendiboðana og hyggjast fé- lagarnir taka hatta sína ofan fyrir goðsögn „hard-bop“- tímabilsins í djassi, Art Blakey. Auk Eriks skipa kvintett- inn Snorri Sigurðarson á trompet, Ólafur Jónsson á saxófón, Kjartan Valdemarsson á píanó og Þorgrímur Jónsson á bassa. Leikin verða lög sem hljómsveit Blak- eys, The Jazz Messengers, gerði þekkt á sínum tíma eftir m.a. Donald Byrd, Sonny Clark og Wayne Shorter. Jazz-sendiboðarnir leika tónlist Arts Blakeys í Múlanum annað kvöld ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 75. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Markmiðið var að setja saman samkeppnishæft lið sem gæti unnið titla en ég bjóst ekki við því að við myndum vinna alla okkar leiki. Þetta hefur gengið framar vonum ef svo má segja og núna er bara að halda áfram að byggja ofan á þann góða árangur sem hefur náðst,“ segir Kristján Valdimarsson, nýkrýndur bikar- meistari í blaki með liði Hamars í Hveragerði. »27 Þetta hefur gengið framar vonum ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Mótið var spennandi, mótherj- arnir verðugir og úrslitin eins og ég vænti. Háleit markmið náðust með góðu skipulagi, þrotlausum æfing- um, vinnu og yfirlegu. Ég er þó ekki á neinni endastöð því fram undan eru í skákinni fjölmörg mót sem ég hlakka til að taka þátt í,“ segir Hjörvar Steinn Grétarsson stórmeistari í skák. Um helgina var haldin keppni um Íslandsbikarinn í skák sem Hjörvar Steinn vann. Sjö skákmenn tóku þátt í henni, auk Hjörvars þeir Jó- hann Hjartarson, Margeir Péturs- son, Hannes Hlífar Stefánsson, Guðmundur Kjartansson, Helgi Áss Grétarsson, Bragi Þorfinnsson og Vignir Vatnar Stefánsson sem þykir vera einn af efnilegustu skák- mönnum þjóðarinnar. Á mótinu vann Hjörvar Steinn fimm af sex kappskákum sem hann tefldi, þar með talið úrslitaeinvígið við Hannes Hlífar. Sá sigur er að- göngumiði að heimsbikarmótinu í skák sem verður á dagskrá í Sochi í Rússlandi seinnipartinn í sumar. Varð stórmeistari tvítugur „Mótið í Rússlandi er afar ögr- andi, en áður en að því kemur er Ís- landsmeistaramótið nú í lok mars. Þar stefni ég á sigur, en áður hef ég unnið æði marga af þeim meistara- titlum sem á Íslandi bjóðast,“ segir Hjörvar, sem náði stórmeistaratitli í skák árið 2013, aðeins tvítugur. Til þess að ná stórmeistaratitli þurfa skákmenn að ná þremur stór- meistaraáföngum og vera komnir með minnst 2.500 elo-stig. „Ég kynntist skákinni sex eða sjö ára þegar ég var nemandi í Rimaskóla í Reykjavík. Þetta gekk strax vel og ég var snemma á ferlinum farinn að keppa við menn eins og Jóhann og Margeir; menn sem komu upp á stjörnuhimininn á árunum milli 1980 og 1990. Á þeim tíma var gull- öld í skák á Íslandi, tímabil mikilla afreka sem ekki hafa unnist aftur. Því þurfum við nú ljóslega nýja kynslóð afreksmanna,“ segir Hjörvar sem getur þess að skák- kennsla sé í mörgum grunnskólum og rækt lögð við þá sem efnilegir eru. Rökhugsun og að finna fléttur „Árangri í skák ná menn fyrst og síðast með ögun og úthaldi. Slík vinnubrögð hef ég tileinkað mér í öllum mínum viðfangsefnum og farnast vel,“ segir Hjörvar sem er 27 ára að aldri, með meistarapróf í lögfræði við Háskóla Íslands og hefur sérþekkingu í skattarétti og reikningsskilum. Starfar hjá Arion- banka í viðskiptaþróun; deild þar sem hannaðar eru nýjar lausnir í fjármálaþjónustu. „Starf mitt hér í bankanum líkist skákinni að nokkru; finna út fléttur og hugsa minnst tvo leiki fram í tímann. Viðskipti og skák eiga líka margt sameiginlegt; krefjast snerpu, úthalds og svo auðvitað rökhugsunar. Skákin hefur veitt mér mörg tækifæri og mikla ánægju,“ segir Hjörvar að síðustu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Teflt „Hef unnið æði marga af þeim meistaratitlum sem á Íslandi bjóðast,“ segir Hjörvar Steinn um feril sinn. Leikir fram í tímann - Hjörvar Steinn vann Íslandsbikarinn í skák - Næst til Rússlands - Árangur byggist á vinnu, ögun og úthaldi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.