Morgunblaðið - 19.03.2021, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 9. M A R S 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 66. tölublað . 109. árgangur .
ÞJAKAÐUR AF
ÓSTJÓRNLEGRI
VEIÐIDELLU YNGRI OG REYNSLUMINNI
MJÖG PERSÓNU-
LEG MYND
HJÁ DÖGG
ÖÐRUVÍSI LIÐ EN ÁRIÐ 2011 35 AFTUR HEIMA? SÝND 36KJARTAN FIMMTUGUR 32
Þór Steinarsson
Guðni Einarsson
Rekstrarhalli Þjóðkirkjunnar var
654 milljónir króna á síðasta ári.
Helgast það fyrst og fremst af ein-
skiptis fjárhagsaðgerðum í efna-
hagsreikningi.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari við fyrirspurn Morgunblaðs-
ins. Ársreikningur Þjóðkirkjunnar
var samþykktur af Kirkjuráði 12.
mars sl.
„Viðamikil endurskipulagning á
rekstri kirkjunnar er ein helsta
skýring þessarar niðurstöðu árs-
reikningsins. Sala eigna sem voru
of hátt bókfærðar mynda sölutap
sem einnig er meginástæða stöð-
unnar,“ segir í svarinu.
Hrein eign kirkjunnar var ríflega
4,2 milljarðar króna í lok árs 2020.
Hallarekstur síðasta árs mun ekki
hafa áhrif á þjónustu kirkjunnar við
íbúa landsins en ljóst þykir að
draga verður úr rekstrarkostnaði.
Áætlað er að ná jafnvægi í rekstri
árið 2023.
Launahækkanir presta og starfs-
fólks kirkjunnar árið 2020 urðu
samtals um 6,5%. Telur kirkjan að
það vanti á annað hundrað milljónir
króna frá ríkinu vegna hækkana
ársins 2020 og að líklega muni einn-
ig skorta upp á fjármagn vegna
hugsanlegra hækkana á yfirstand-
andi ári.
Kirkjan ætlar að óska eftir fundi
með stjórnvöldum vegna uppgjörs-
ins. Hefur forseta og framkvæmda-
stjóra kirkjuráðs og skrifstofustjóra
Biskupsstofu ásamt formanni fjár-
hagsnefndar kirkjuþings verið falið
að fylgja málinu eftir.
Tapið nam 654 milljónum
- Viðamikil endurskipulagning á rekstri kirkjunnar sögð skýring - Hrein eign
kirkjunnar um 4,2 milljarðar - Vantar hátt í 200 milljónir vegna launahækkana
Sumarblíða lék við Austfirðinga í gær, stillt var í veðri og
hitamet marsmánaðar voru slegin á nokkrum stöðvum. Á
Dalatanga fór hitinn í 20,4 stig, 20,2 stig í Neskaupstað,
19,6 stig á Eskifirði og á Kollaleiru í Reyðarfirði og 19,3
stig í Bakkagerði í Borgarfirði eystra. Á myndinni sést
ungur veiðimaður kasta fyrir fisk í veðurblíðunni yst á
Mjóeyri í Eskifirði.
Trausti Jónsson veðurfræðingur segir þetta óvenjulegt
svo snemma árs. Hiti fari sárasjaldan svona hátt á landinu í
marsmánuði. Hitinn á Dalatanga í gær var aðeins sjónar-
mun eða 0,1 stigi frá landsmetinu fyrir marsmánuð. Það er
20,5 stig, sett á Kvískerjum í Öræfum þann 29. mars 2012
eða 11 dögum síðar í mánuðinum. Þar til í gær var það í
eina skiptið sem 20 stiga hita hafði verið náð í mars hér á
landi.
Trausti segir einnig athyglisvert að hitamet fyrir mán-
uðinn hafi verið slegin í háloftunum. Ekki hafi mælst hærri
hiti í þriggja og fimm kílómetra hæð yfir Keflavíkurflug-
velli í mars heldur en í gær.
Hitann í þessu tilviki skýrir Trausti með óvenju hlýju
lofti langt sunnan úr höfum yfir landinu, en vindur og brött
fjöll hafi síðan séð um að blanda því niður til jarðar. Hann
segist reikna með að eftir óvenju hlýja daga eystra um
miðja vikuna kólni aðeins í veðri. aij@mbl.is
Sjaldgæf hlýindi á Austfjörðum og stutt var í hitametið
Ljósmynd/Gungör Tamzok
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Gert er ráð fyrir því að ríkisstjórn
Íslands afgreiði í dag tillögu um að
börn frá löndum utan Schengen-
svæðisins, verði skimuð einu sinni
við komu til landsins. Það er gert að
tillögu Þórólfs Guðnasonar sótt-
varnalæknis.
Börn hafa til þessa ekki verið
bólusett og geta því ekki fengið slík
vottorð. Hins vegar eru þau talin
næmari fyrir nýjum afbrigðum veir-
unnar og rétt að hafa gætur á þeim.
Gildistöku nýrrar reglugerðar um
viðurkenningu bólusetningarvott-
orða utan Schengen hefur verið
frestað fram í næstu viku til þess að
ljúka breytingu á lögum um flugrek-
endur. Þeir þurfa þá að ganga úr
skugga um að fólk hafi tilskilin vott-
orð áður en það fer í flug til Íslands.
Vonir standa til þess að það geti
orðið ferðaþjónustu lyftistöng að
bólusettir Bandaríkjamenn og Bret-
ar geti komið til landsins. Þeir eru
tvær helstu ferðamannaþjóðir, sem
sótt hafa Ísland heim, en þar hefur
bólusetning einnig gengið vel. »10
Börn utan Schengen
skimuð við komu
_ Spánn, Þýskaland, Frakkland,
Ítalía og Holland eru meðal þjóða
sem ætla að hefja bólusetningar
með bóluefni AstraZeneca að nýju
eftir að Lyfjastofnun Evrópu
(EMA) tilkynnti í gær að óhætt
væri að nota efnið. Ákvörðun um
að hefja bólusetningar með efninu
að nýju hér á landi hefur ekki verið
tekin.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir gaf ekki kost á viðtali vegna
þessa í gærkvöldi. Hvorki náðist í
Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðis-
ráðherra né Katrínu Jakobsdóttur
forsætisráðherra vegna málsins. »
10 og 14
Fjölmörg lönd hefja
bólusetningar á ný
Verslunin Eldhaf, sem einnig rekur
netverslunina eldhaf.is, og flytur inn
og selur vörur frá tæknirisanum
Apple, mun frá og með deginum í
dag bjóða fólki að kaupa Apple vörur
í vefverslun með rafmyntinni Bit-
coin.
Kjartan Ragnars, framkvæmda-
stjóri rafmyntaráðs Íslands, segir í
samtali við Morgunblaðið að Eldhaf
sé með þessari ákvörðun fyrsta
fyrirtækið á Íslandi til að bjóða
vörur til sölu fyrir Bitcoin í hefð-
bundnum viðskiptum. „Ég geri ráð
fyrir að kaupa mér Apple-vörur fyrir
Bitcoin hjá Eldhafi fyrst það býðst
nú í fyrsta skipti,“ segir Kjartan.
Hann segir að líklega eigi um 3-4%
Íslendinga Bitcon. „Það verður
spennandi að sjá hvort þetta opni
dyr fyrir frekari notkun á Bitcoin í
greiðslumiðlun.“
Spurður um ástæðu þess að þetta
skref sé tekið segir Guðmundur Óm-
arsson, framkvæmdastjóri og eig-
andi Eldhafs, að tilgangurinn sé að
ná í aukin viðskipti og koma Bitcoin í
umferð inn í íslenska hagkerfið.
Hann kveðst nokkuð viss um að önn-
ur fyrirtæki fylgi í kjölfarið. »12
Apple keypt fyrir Bitcoin
- Íslensk verslun ríður á vaðið og býður vörur fyrir rafmynt
Nýjung Eldhaf er til húsa á Gler-
ártorgi á Akureyri og á netinu.