Morgunblaðið - 19.03.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021
Töfrar eldhússins byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara herbergi,
heldur upplifun
Hvort sem þú leitar að klassískum retro kæliskáp á heimilið, rómantískri eldavél í sumar-
bústaðinn, litríkum matvinnslutækjum í eldhúsið eða nýrri fallegri innréttingu erum við með
frábæra valkosti fyrir þig. Vöruúrval Eirvíkur er afar fjölbreytt og ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Af hverju að vera eins og allir hinir - þegar maður getur verið
einstakur!
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
BAKSVIÐ
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Lyfjastofnun Evrópu (EMA) kvað
upp úr um það í gær, að bóluefni
AstraZeneca (einnig kennt við Ox-
ford) væri fyllilega öruggt og árang-
ursríkt til bólusetningar. Ekkert gæfi
til kynna að fólki væri hættara við
blóðtappa eftir notkun þess.
Erfitt er að sjá hvernig einstökum
ríkjum er stætt á því að fresta notkun
AstraZeneca lengur, hafi þá nokkur
rök verið fyrir því. Málið allt ber með
sér að hafa frá upphafi verið pólitísk-
ur skollaleikur, að því er virðist
blandinn hefnigirni gagnvart Bretum
fyrir að hafa dirfst að yfirgefa Evr-
ópusambandið. En það er þá líka eitt
magnaðasta sjálfsmark í alþjóðasam-
skiptum síðari tíma, því með því hafa
Evrópuríkin frestað bólusetningu þar
sem hver dagur skiptir máli, bæði
með tilliti til mannslífa og efnahags-
legrar endurreisnar eftir kórónu-
kreppu.
Dýrkeyptur skollaleikur
Margt bendir til þess að ný smit-
bylgja sé tekin að rísa á meginlandi
Evrópu, þar sem aðeins brot af þjóð-
unum hefur enn fengið bólusetningu,
ekki minnsta von til fyrsta vísis að
hjarðónæmi fyrr en í haust og í
Frakklandi virðist nýtt útgöngubann
vera yfirvofandi.
Á sama tíma hefur sterlingspundið
verið að styrkjast og fjármagnsflótti
frá Evrópusambandinu til Bretlands
virðist hafinn. Það má að miklu leyti
rekja til furðulegrar yfirlýsingar Ur-
sulu von der Leyen, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, um að sam-
bandið kynni að virkja neyðarrétt
samkvæmt 122. grein Lissabonsátt-
málans. En í henni felast víðtæk völd
til þess að leggja undir sig lyfjaverk-
smiðjur, stýra vöruflæði (bóluefna)
og svo framvegis. Efast má um að
slíkar ráðstafanir, sem gætu verið
viðeigandi á stríðstímum, kæmu að
gagni, en umfram allt eru þær ekki til
þess fallnar að vekja traust atvinnu-
lífs eða fjárfesta. Þær eru aðeins
hársbreidd frá enn harkalegri að-
gerðum eins og fjármagnshöftum,
sem er rót fyrrgreinds fjármagns-
flótta.
Bresti hann á af fullum þunga
kynni hann að verða efnahagslífi Evr-
ópu óbærilegur. Það var víða veikt
fyrir heimsfaraldurinn og kórónu-
kreppuna og má ekki við neinu.
Falsfréttirnar um AstraZeneca
Það var Emmanuel Macron Frakk-
landsforseti sem hóf falsfréttaher-
ferðina gegn AstraZeneca, sem er
breskt. Hann sagði um áramót að það
nýttist öldruðum illa, og ónafngreind-
ir þýskir ráðherrar tóku í sama
streng. Það gróf mjög undan tiltrú á
bóluefnið og veikti raunar tiltrú á öllu
bóluefni við kórónuveirunni nokkuð.
Tiltrúin á AstraZeneca á meginlandi
Evrópu tók svo kolldýfu, þegar Evr-
ópulöndin frestuðu eitt af öðru (Ís-
land þar með!) notkun á því, að sögn
vegna þess að stöku fólk hefði fengið
blóðtappa eftir að hafa verið gefinn af
því skammtur.
Þær ákvarðanir voru allar pólitísk-
ar, ekki læknisfræðilegar.
Það er ástæðan fyrir því að Lyfja-
stofnun Evrópu sagði frá upphafi að
jafnvel þó svo eitthvað væri hæft í
blóðtappasögunum, þá væri ávinning-
urinn af notkun bóluefnisins marg-
faldur á við áhættuna. Sömuleiðis for-
dæmdi Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin (WHO) þetta tímabundna
bann, af því það stóðst enga skoðun.
Laskaðir leiðtogar
Erfitt er að sjá nokkra ástæðu fyrir
þessum falsfréttaflutningi frá leiðtog-
um Evrópu aðra en tilraun til þess að
varpa sök á aðra í von um að athyglin
beinist frá hinu langvinna og marg-
þætta klúðri þeirra sjálfra.
Það er kannski augljósast í Frakk-
landi, þar sem Macron forseti var að-
þrengdur áður en faraldurinn dundi
yfir, en ástandið í Þýskalandi er engu
skárra. Þar er Angela Merkel Þýska-
landskanslari á síðustu metrunum, en
flokkur hennar, Kristilegir demó-
kratar (CDU), hefur nýlega hlotið
slæma útreið í kosningum í Baden-
Würtemberg og Rínarlöndum og
fylgið á landsvísu hrunið.
Samt virðist Merkel enn sitja föst
við sinn keip um AstraZeneca, þó þar
í landi hafi 1,6 milljónir manna verið
bólusettar með því, en aðeins sjö
þeirra fengið blóðtappa, sem er alveg
eins og mætti búast við ef þeir hefðu
ekki farið í bólusetningu.
Í gervallri Evrópu hafa borist
fregnir af þremur dauðsföllum vegna
blóðtappa hjá fólki sem hafði fengið
AstraZeneca. Gera má ráð fyrir að
nokkur hundruð Evrópubúum fleiri
deyi af völdum kórónuveirunnar fyrir
hverja viku, sem notkun þess er frest-
að. Og margfalt fleiri ef þriðja bylgj-
an dynur yfir.
Háðir AstraZeneca
Til þess að gera illt verra er bólu-
setningarátakið í Evrópu miklu háð-
ara AstraZeneca en öðrum bóluefn-
um. Öfugt við Pfizer eða Moderna er
það nægilega einfalt í meðförum til
þess að heimilislæknar geta gefið það
og því getur frestun á notkun þess
tafið fyrir ráðgerðri bólusetningu í
álfunni um marga mánuði.
Einstök lönd Evrópu eru misvið-
kvæm fyrir því eftir aðstæðum, lýð-
mengi, heilbrigðiskerfi og birgðum.
Þýskaland er viðkvæmt en bólusetn-
ing í Ítalíu er í stórhættu fyrir vikið.
Samt játaði Nicola Magrini, forstjóri
lyfjaeftirlitsins, það í viðtali við La
Repubblica, að ástæðan væri einung-
is pólitísk. Mario Draghi, hinn nýi for-
sætisráðherra Ítalíu, virðist aðeins
hafa gert það til þess að gleðja fólk í
Brussel, en Ítalir eru varla kátari.
Hvað þá Ástralir, en Draghi lét
stöðva útflutning á AstraZeneca
þangað, sama bóluefni og hann bann-
ar að sé notað á Ítalíu! Draghi er orð-
lagður fyrir vitsmuni, en þarna er
engu líkara en hann hafi tapað vitinu
og ávinningurinn öllum óljós.
Ýmis merki eru um að samstaðan í
Evrópu sé að bresta í þessum efnum,
en það er sennilega um seinan ef þar
vill enginn lengur láta sprauta sig
með bóluefni AstraZeneca. Hvort
hinir lélegu leiðtogar Evrópu verði
nokkru sinni látnir sæta ábyrgð fyrir
er svo önnur saga.
Ringulreið í bóluefnamálum ESB
- AstraZeneca hættulaust og árangursríkt - Flest Evrópuríki enn hikandi og tiltrú almenings sáralítil
- Gæti tafið bólusetningu í álfunni í marga mánuði - Fjármagnsflótti hafinn frá Evrópu til Bretlands
AFP
ESB Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar, tekur niður grímuna.