Morgunblaðið - 19.03.2021, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021
✝
Sigurjón Ari
Sigurjónsson
kaupmaður fæddist
á Seltjarnarnesi 4.
september 1937.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi 9.
mars 2021.
Foreldrar hans
voru Sigurjón Jó-
hannsson, f. 30.8.
1898 í Flatey á
Breiðafirði, yfirvélstj., d. 28.11.
1994, og Jóna Guðrún Þórð-
ardóttir, f. 3.9. 1904 í Reykjavík,
húsm., d. 27.10. 1985.
Systkini hans: Jóhann Val-
berg, f. 23.1. 1925; Sigríður
Þóra, f. 3.11. 1926; Ólafur, f. 7.6.
1928; Guðmundur Valberg, f.
20.8. 1930; Jón Valberg, f. 9.8.
1932: Erla Sigurjónsdóttir, f.
16.1. 1942. Þau eru öll látin.
Sigurjón Ari kvæntist Þóru
Gunnarsdóttur 19.11. 1960. Þóra
fæddist 12.2. 1943. Hún er dóttir
hjónanna Gunnars Sigurjóns-
sonar, f. 2.2. 1908, d. 24.8. 1993
og Helgu Ágústu Einarsdóttur,
f. 16.8. 1909, d. 18.10. 1997.
Börn Sigurjóns Ara og Þóru
eru: 1) Gunnar sóknarprestur, f.
24.12. 1960, kvæntur Þóru Mar-
gréti Þórarinsdóttur, f. 2.11.
1959. Börn þeirra eru Anna
Margrét og Ari Þór. 2) Helga
Ágústa læknir, f. 20.1. 1964, gift
arhverfið í Reykjavík þegar það
var að byggjast upp. Hann var
formaður Framfarafélags Ár-
bæjar og með góðu fólki varð líf-
legt starf í húsi Framfarafélags-
ins. Dansskóli Heiðars
Ástvaldssonar var þar með
danskennslu, bíó var sýnt um
helgar. Skátar, KFUM & K voru
með æskulýðsstarf sitt þar.
Stofnuð var lúðrasveit Árbæjar
og Seláss, kvenfélag og Knatt-
spyrnufélag Seláss og Árbæjar
(KSÁ), sem síðar tók nafnið
Fylkir. Ari var aldrei mikill fót-
boltamaður en þetta er lýsandi
fyrir áhuga hans á öllu æsku-
lýðs- og felagsstarfi.
Síðar fluttist fjölskyldan í
Seljahverfið og loks þau hjónin á
efri árum í Grafarholtið í
Reykjavík þar sem hann var
fyrsti meðhjálpari Guðríð-
arkirkju.
Hann var um árabil í sókn-
arnefndum Árbæjarsóknar,
Seljasóknar og Grafarholts-
sóknar og kom að byggingu
kirkna þessara safnaða.
Árið 1970 keyptu þau hjónin
Stekkjarból í Unadal í Skaga-
firði með vinahjónum og nutu
sveitalífsins í ríflega 40 ár í frí-
tíma sínum.
Ari var afkastamikið ljóð-
skáld. Eftir hann liggja tvær út-
gefnar ljóðabækur, Ljóðstafir
og Ljóðstraumar.
Útför hans fer fram frá
Digraneskirkju í Kópavogi í
dag, 19. mars 2021, klukkan 13.
Skráning í kirkjuna og upp-
lýsingar um streymi er að finna
á heimasíðu Digraneskirkju:
https://www.digraneskirkja.is/
Gunnari Stef-
ánssyni, f. 20.4.
1963. Börn þeirra
eru Íris Björk, Stef-
án Rafn og Agnes
Ösp. 3) Einar Þór
flugstjóri, f. 29.4.
1976, kvæntur
Rögnu Lilju Garð-
arsdóttur, f. 20.6.
1972. Börn þeirra
eru Carlos Garðar,
Snorri Dagur, Arn-
ór Egill og Ásta Þórey.
Ari hafði djúp tengsl við Flat-
ey og Borgarfjörð, uppeldisstaði
foreldra sinna. Það varðveittist í
frændgarði hans og ættmenn-
um. Hann var kaupmaður mest-
alla starfsævi sína og lengi sölu-
maður hjá LH Muller,
verslunarstjóri Kaupfélagsins á
Akranesi, auglýsingastjóri Al-
þýðublaðsins, rak eigin fast-
eignasölu, Eignaval, síðar heild-
verslun, SASigurjónsson hf., og
verslanir með Þóru eiginkonu
sinni, þar með talið NN boutique
og Parísarbúðina í Austurstræti.
Hann lauk starfsferli sínum
sem lagerstjóri hjá Kópavogs-
bæ.
Ari hafði alla tíð mikinn
áhuga á félagsstarfi. Á Akranesi
stofnaði hann Verslunarmanna-
félag Akraness og var formaður
þess.
Ari og Þóra fluttust í Árbæj-
Í dag minnumst við elsku Ara
frænda sem kvaddi þessa jarðvist
hinn 10. mars.
Ástkær móðurbróðir okkar
Sigurjón Ari Sigurjónsson er
horfinn á vit nýrra ævintýra en ég
veit að mamma og þau hin sem á
undan eru farin umvefja hann í
annarri vídd. Nú hefur heil kyn-
slóð kvatt.
Margar yndislegar minningar
sækja fram um Sigurjón afa, Jónu
ömmu og börn þeirra sjö: Jóhann,
Siggu, Óla, Mumma, Nonna, Ara
og Erlu.
Við systur urðum þess aðnjót-
andi að fæðast inn í stórfjöl-
skyldu að ítalskri fyrirmynd þar
sem stórar hugsjónir, átök og
sorgir til jafns við glaðværð,
sögusagnir, kveðskap og umfram
allt háværð voru í heiðri höfð - já,
Ari tilheyrði sko Valbergsgjall-
andanum.
Minningar um útskriftir, ætt-
armót og afmæli streyma fram.
„Göngum við í kringum Ara
fjanda minn“ heyrðist oft seint á
aðfangadagskvöld er við fjöl-
skyldan höfðum arkað nokkrar
götur niður í Stuðlasel í miðnæt-
urgleði.
Aðeins fimm ár skildu þau Ara
og mömmu okkar að. Þau voru
yngst sinna systkina og mjög ná-
in. Við systur fengum því að njóta
athygli, uppfræðslu og aðstoðar
Ara frænda, sem ásamt Þóru,
Gunna, Helgu og Einari voru hluti
af okkar innsta hring.
Ari var vísindamaður í eðli sínu
og hafði sterkar skoðanir á flestu.
Hann var hrókur alls fagnaðar og
honum var tungan töm því vel
mælta viskuna setti hann oftast
fram í bundnu máli.
Ekki þarf að fara mörgum orð-
um um hinn mikla orðasmið því
ljóðin hans Ara verða okkur öllum
til gleði á góðum dögum og ljós er
göngum dökka dali.
Er við minnumst Ara frænda,
með tár saknaðar á hvörmum og
gleði góðra minninga í hjarta,
sendum við um leið hlýjar hugs-
anir og bænir til Þóru, Gunna,
Helgu og Einars og allra þeirra
fjölskyldna.
Oft hann hefur kætt sá er kveður
og hverfur til funda við sína feður.
Eftir situr þá þitt hjarta meyrt og kalt
- hafðu þökk fyrir allt og allt.
(JGG)
Jóna Guðrún og Þórunn
Guðmundsdætur.
Fyrir um 20 árum var Grafar-
holtið óbyggt hverfi. Á örfáum
misserum risu húsin og þau fyllt-
ust af fólki. Við hjónin fengum lóð
á svæði upp af Leirdalnum,
skammt vestan við Reynisvatn, og
fluttum inn í janúar 2002. Bláber
steinsnar frá húsinu og lóan átti
sér hreiður við lóðarmörkin. Í
þessu nýja hverfi var þjónustan
lítil og allt félagsstarf ómótað.
Haustið 2003 fékk ég boð um að
koma á stofnfund sérstaks safn-
aðar innan þjóðkirkjunnar í Graf-
arvogi, sem síðar varð prestakall
Grafarvogs og Úlfarsárdals. Ég
hafði aldrei hugleitt hvernig krist-
inn söfnuður yrði til, þar sem ég
hafði búið var safnaðarstarf kirkj-
unnar jafn sjálfsagt og rótgróið
starf fjölda félaga og samtaka –
„sem bara voru þarna“. Ég hafði
verið formaður Snartarstaðasókn-
ar fyrir norðan og síðar í sóknar-
nefnd Víðistaðasóknar en stofnun
nýs safnaðar var nýtt fyrir mér. Á
stofnfundinum voru bæði ég og
Sigurjón Ari, sem hér er kvaddur,
kosnir í sóknarnefnd og fyrir lágu
mörg og spennandi verkefni. Mál
þróuðust þannig að ég tók fljót-
lega við formennsku sóknarnefnd-
arinnar og því starfi hef ég gegnt
síðan að fjórum árum undanskild-
um er ég tók mér hlé.
Það var mikill fengur að fá Sig-
urjón í sóknarnefndina. Ég skynj-
aði fljótt að hann þekkti kirkju-
starfið, hafði á því ákveðnar skoð-
anir, skýrmæltur og rökfastur.
Þáttur hans í kirkjustarfinu í upp-
hafi var mikill og dýrmætur og átti
hann hugmyndina um hátíðahöld-
in í Grafarholti á sumardaginn
fyrsta. Hann gekk óhikað að
hverju því verki sem ákveðið var
og vildi kirkjunni allt það besta
sem hann gat veitt. Ég gat reitt
mig á hann.
Aðstaða til kirkjuhalds var eng-
in en fljótlega fékk söfnuðurinn
inni í sal fjölbýlishúss við Þórðar-
sveig, þar sem flestir íbúarnir
voru aldrað heiðursfólk. Og hvílíkt
lán! Ekki aðeins að fá húsnæðið
heldur að njóta samvista við
íbúana sem áttu veigamikinn þátt
í safnaðarstarfinu; voru kjarninn
sem aldrei brást. Gæfan var og
hefur verið söfnuðinum hliðholl á
alla vegu. Fyrsti sóknarprestur
kirkjunnar, dr. Sigríður Guðmars-
dóttir, mótaði starfið, leiðbeindi og
kallaði fólk til aðstoðar, þ.á m. Sig-
urjón til meðhjálparastarfa; hann
sýndi starfinu virðingu, aðstoðaði
prestinn og fór með ritningar-
lestra og bænir við messur, tók á
móti kirkjugestum og fylgdist
með að allt færi vel fram. Engin
var greiðslan fyrir þetta verk en
ég sá og heyrði að Sigurjón naut
sín í þessu veigamikla embætti,
kirkju sinni til framdráttar. Við
vígslu Guðríðarkirkju – sem reis
fullbúin á 17 mánuðum – færði
Sigurjón kirkjunni fallegan sálm.
Honum var bundið mál auðvelt
viðureignar, hafði gaman af að
ljúka upp þeim kistli íslenskrar
tungu og gaf út ljóðabókina
„Ljóðstafi“.
Eftir að hann hætti í sóknar-
nefnd lágu leiðir stundum saman
er hann var á göngu í hverfinu
með Þóru konu sína sér við hlið.
Viðmótið alltaf jafn hressilegt og
stutt í brosið.
Fyrir hönd Grafarholts- og
Úlfarsárdalssóknar vil ég færa
fjölskyldunni innilegustu samúð-
arkveðjur. Sömuleiðis vil ég
þakka Sigurjóni Ara allt hans
góða starf í þágu safnaðarins og
bið honum blessunar Guðs.
Níels Árni Lund,
formaður sóknarnefndar.
Skaparinn er sem betur fer svo
rausnarlegur að setja annað slag-
ið á meðal okkar einstaklinga sem
sýna okkur hinum hvert við get-
um reynt að stefna með lífi okkar.
Fólk sem gengur á undan með
góðu fordæmi og bendir okkur á
með breytni sinni hvernig reyna
má að verða skárri einstaklingur.
Sigurjón Ari var þannig maður.
Framkoma hans, glaðværð og al-
menn notalegheit létu fáa ósnerta
og samvera við hann skilaði öllum
bjarsýnni og reiðubúnari út í
hvunndaginn.
Ég kynntist Sigurjóni Ara
seint á síðustu öld. Við hjónin vor-
um heimagangar hjá Gunna og
Þóru í Hrauntungunni og hittum
hann oft hjá þeim. Leiðir okkar
Sigurjóns Ara lágu einnig saman í
Frímúrarastúkunni Eddu þar
sem hann var fyrir þegar ég knúði
þar dyra. Hann tók vel á móti, bar
okkur yngri stúkubræður á hönd-
um sér og leyfði okkur að njóta
leiðsagnar sinnar. Sigurjón Ari
gat miðlað, að því er virtist fyr-
irhafnarlaust, lífsgildum og fróð-
leik. Það kristallaðist ekki síst í
ljóðlist hans sem hann af rausn-
arskap leyfði stúkunni og Frímúr-
arareglunni í heild, að njóta ríku-
lega. Það munu margir þar sakna
þessa góða manns og stúkubróður
og minnast þess hvernig hann
heilsaði brosandi með þéttu hand-
taki fyrir fundi og sagði: Velkom-
inn til starfa bróðir minn!
Fyrir hönd frímúrarastúkunn-
ar Eddu votta ég aðstandendum
Sigurjóns Ara samúð og hluttekn-
ingu og bið hinn hæsta að varð-
veita fjölskylduna og blessa.
Eiríkur Hreinn Helgason,
stólmeistari St. Jóh.st. Eddu.
Þess vegna við látum lifa
lífsins gleði áfram tifa
eigum saman margar stundir
við sanna gleði brjóstin bifa
saumaklúbbsins góðu stundir.
(Sigurjón Ari)
Nú er hagyrðingur sauma-
klúbbsins fallinn frá. Hann var
alla tíð tengdur nafni konu sinnar
og þekktur sem Ari hennar Þóru.
Við „stelpurnar“ í saumaklúbb
sem erum í dag „aðeins“ 78 ára
gamlar kynntumst í Meló fyrir
rúmum sjö áratugum. Í gegnum
tíðina höfum við vinkonurnar
haldið hópinn og treyst vinabönd-
in ásamt eiginmönnum okkar.
Hér á árum áður gátum við
skemmt okkur fram á rauða nótt.
Fyrir utan fasta mánaðarlega
saumaklúbba var haldið upp á alla
tiltæka viðburði, jólaboð, þorra-
blót, sumargleði, útilegur og sum-
arbústaðaferðir. Það voru góðra
vina fundir er glóði vín á skál. Á
þessum stundum var Ari hrókur
alls fagnaðar og átti stóran þátt í
stemningunni sem ríkti. Hann
orti ógrynni ljóða til sauma-
klúbbsins og við gátum endalaust
sungið og dillað okkur við undir-
leik píanós eða gítarspils. Ari var
fjölhæfur maður, vinamargur og
kunni að gleðjast með glöðum.
Eftirfarandi ljóð er eitt af
mörgum perlum úr síðustu ljóða-
bók Ara, „Ljóðstraumar“:
Þó höndin sé gömul og gáski farinn úr
sinni,
er gott að sitja hér einn hjá myndinni
þinni,
og finna hve ljúfar í minningu myndirnar
líða,
úr myndabók tímans og eyða burt trega
og kvíða.
(Sigurjón Ari)
Elsku Þóra og fjölskylda. Vina-
hópurinn okkar á ekkert nema
ljúfar minningar „úr myndabók
tímans“ með ykkur Ara.
Fyrir hönd saumaklúbbsins,
Guðrún Sverrisdóttir.
Það eru aðeins nokkrir dagar
síðan við töluðum síðast saman í
síma. Við töluðum alloft saman
síðustu vikurnar. Það mátti ekki
heimsækja hann svo síminn varð
að duga. Og því urðu símtölin
þeim mun fleiri.
Sigurjón Ari var vinur minn í
yfir 30 ár. Ávallt glaður í bragði,
gerði að gamni sínu, lýsti ljósi í
kringum sig. Hann var innilega
trúaður og miðlaði trú sinni óbeint
hvert sem hann fór. Skáldagáfa
hans var rómuð og liggja mörg
fögur og dýr kvæði eftir hann.
Sigurjón kveið ekki dauðanum.
Hann talaði opinskátt við mig um
ferðina yfir móðuna miklu sem
hann átti í vændum. Hann kveið
hennar ekki, vonaði reyndar að
hún hæfist brátt, þannig að hann
losnaði undan þjáningum þessa
lífs. Hann hafði meiri áhyggjur af
eftirlifendum, konu sinni, börnum
og barnabörnum. Nú gætu þau
ekki lengur notið handleiðslu
hans.
Síðasta samtalið okkar var viku
áður en hann lést. Hann átti orðið
erfitt um mál. Við vissum báðir að
þetta yrði síðasta skiptið sem við
heyrðumst. Við skiptumst á guðs-
blessun. Meira var það ekki.
Þeir sem trúa eins og ég á líf
eftir dauðann, geta verið þess full-
vissir um að nú er Sigurjón í öðr-
um og betri heimi, laus við þján-
ingar þessa lífs. Vonandi tók hann
skáldagáfu sína með sér.
Far vel, góði vinur. Einn dag
sjáumst við hinum megin.
Björn Matthíasson.
Sigurjón Ari
Sigurjónsson
Kankvís, klár úr-
ræðagóður. Bros-
viprurnar féllu vel að
glettnisglampanum
og dálitlum aldurs-
dráttum við augun. Svo leit hann
ofan í fundarborðið en sleppti því
að hrista höfuðið yfir því sem fram
fór. Reyndi þá oft á þolrif hins vísa
manns.
Á Hagkaupsárum mínum hafði
Helgi V. Jónsson gjarnan vit fyrir
okkur yngri mönnunum sem þótti
flest mögulegt og fátt fjarstæðu-
kennt. Ekki leiddist okkur mjög í
Helgi Vilhelm
Jónsson
✝
Helgi Vilhelm
Jónsson fædd-
ist í Reykjavík 30.
maí 1936. Hann lést
2. mars 2021. Útför
Helga fór fram 18.
mars 2021.
vinnunni en oft kom
okkur á óvart þegar
Helgi las skynsam-
lega bókun og niður-
stöðu sem hann hafði
samið á meðan við
töldum okkur vera
að bjarga heiminum.
Má nærri geta
hversu mikilvæg slík
samferð hefur verið
á tímum þegar allir
þykjastkunna allt.
Helgi V. var með lagnari, ljúf-
ari, flinkari og farsælli mönnum
sem ég hef átt samferð með. Af
honum og Ingibjörgu stafar fal-
legt og vandað ævistarf, í leik og
starfi, meðal fjölskyldu og vina.
Svo mun ég minnast Helga V.
Jónssonar.
Í Guðs friði.
Óskar Magnússon.
Í dag kveð ég þig elsku
amma mín,
mikið sem ég mun
sakna þín,
nú englarnir yfir þér vaka.
Með hlýju í hjarta ert þú kvödd,
ég veit á betri stað þú ert nú stödd,
þar sem afi á móti þér mun taka.
Þú kenndir mér ótal margt,
halda áfram þótt mótlæti sé hart,
Arnfríður
Snorradóttir
✝
Arnfríður
Snorradóttir
fæddist 26. febrúar
1925. Hún lést 3.
mars 2021.
Útför Arnfríðar
fór fram 12. mars
2021.
góð heillaorð í huga
bera.
Klifra í trjám og fá hjá
þér graut,
taka brosandi á móti
lífsins þraut,
gott var hjá þér að
vera.
Góður guð leiddu
ömmu mína,
í draumaheimana sína
þar henni og afa er aftur
allt fært.
Kærleik og hlýju ég í huga ber,
þegar hugurinn reikar að þér,
ljós minninga þinna skín skært.
Lilja Ósk
Snorradóttir.
• Er komið að húsnæðis-
skiptum eða vantar þig
stuðning og ráðgjöf við
erfðaskrá, kaupmála
eða dánarbússkipti?
• Vilt þú fá lögmann
þér við hlið við sölu
fasteignar án þess að
greiða aukalega fyrir
þá þjónustu?
Elín Sigrún, lögmaður
sími 783 8600
elin@buumvel.is
www.buumvel.is
Sérhæfð
lögfræðiþjónusta
við búsetuskipti
með áherslu á 60+
• BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu.
Kynntu þér málið.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR BLÓMKVIST JÓNSSON,
lést á heimili sínu föstudaginn 12. mars
í faðmi fjölskyldunnar.
Útför fer fram frá Blönduóskirkju
þriðjudaginn 23. mars klukkan 14. Vegna aðstæðna verða
einungis nánasta fjölskylda og vinir viðstödd en hægt verður að
nálgast streymi frá athöfn á facebooksíðu Blönduóskirkju.
Jóna Anna Stefánsdóttir
Óskar Eyvindur Ólafsson Herdís Jakobsdóttir
Eydís Ólafsdóttir Dan Öhman
Stefán Þórarinn Ólafsson Erla Ísafold Sigurðardóttir
Ragnheiður Rósa Ólafsdóttir Claes Jansson
barnabörn og barnabarnabörn