Morgunblaðið - 19.03.2021, Side 21

Morgunblaðið - 19.03.2021, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021 ✝ Halldóra Krist- rún Hjörleifs- dóttir fæddist í Sæ- lingsdalstungu í Dalasýslu 28. júní 1927. Hún lést á hjúkrunar og dval- arheimilinu Lundi á Hellu þann 11. mars 2021. For- eldrar hennar voru Kristmey Þórdís Þorleifsdóttir, f. 19. feb. 1900, d. 2 jan. 1994, frá Þambárvöllum og Hjörleifur Jónsson, f. 5. jan. 1903, d. 17. nóv. 1930, frá Sælingsdals- tungu. Halldóra var elst átta systkina. Albræður Halldóru voru þeir Jón (látinn) og Hjörleifur. Hálf- systkini Halldóru sammæðra voru þau Stefán Gunnar (lát- inn), Katrín Elsa (látin), Krist- ján Eðvald (látinn), Sóley og Sigurbjörg Salla. til hún var 19 ára gömul, en þá fluttist hún ásamt fjölskyldu sinni suður í Árnessýslu fyrir tilstuðlan Magnúsar og Vigdís- ar í Flögu í Villingaholtshreppi. Eftir að hafa verið aðskilin í nokkur ár settist fjölskyldan að á Selfossi. Fyrstu árin eftir að fjölskyldan flutti suður vann Halldóra við kaupamennsku en fór svo að vinna í mötuneyti Kaupfélags Árnesinga, þar sem hún kynnist Ólafi manni sínum. Halldóra fór í Kvennaskólann að Hverabökkum í Hveragerði. Halldóra sinnti störfum hús- móður mestan hluta ævinnar en eftir miðjan aldur fór hún aftur út á vinnumarkaðinn og vann m.a. í harðfiskverkun, hjá póst- inum og sem heimilishjálp. Þau Halldóra og Ólafur byggðu sér heimili á Víðivöllum 14 á Selfossi þar sem þau bjuggu mestalla búskapartíð sína með drengina sína fjóra. Eftir að Ólafur lést keypti Hall- dóra sér íbúð í Grænumörk á Selfossi þar sem hún bjó þangað til hún fór á Lund. Útför Halldóru fer fram frá Selfosskirkju í dag, 19. mars 2021, klukkan 14. Hinn 17. okt. 1951 giftist Hall- dóra Ólafi Krist- björnssyni frá Birnustöðum á Skeiðum. Þau eign- uðust fjóra syni, þeir eru: 1) Unnar, f. 31. okt. 1952, maki María Ósk- arsdóttir, eiga þau tvö börn og fimm barnabörn. 2) Hjör- leifur Þór, f. 13. sept. 1955, maki Sigríður Jónsdóttir, eiga þau fimm börn, átta barnabörn og eitt barnabarnabarn. 3) Kristbjörn, f. 17. júní 1958, sam- býliskona Kristín Jóhanna Andrésdóttir og á hún þrjú upp- komin börn. 4) Valgeir, f. 19. nóv. 1962, maki Sigurlaug Þor- steinsdóttir. Valgeir á tvo syni, þrjú fósturbörn og sjö barna- börn. Halldóra bjó í Dalasýslu þar Amma kom til dyranna eins og hún var klædd. Óhrædd við að hafa skoðanir á hlutunum og sat ekki á þeim við sína nánustu, en var ekki að flíka þeim við hvern sem er. Tilgerð og smeðjuskapur líkaði henni ekki í fari fólks sem gat orðið til þess að hún vildi ekkert með viðkom- andi hafa. Okkar fyrstu minn- ingar snúast um kleinubakstur sem amma var fræg fyrir. Um tíma varð hún sér úti um auka- pening með því að selja kleinur í Fossnesti á Selfossi. Við munum vel eftir því að sitja við eldhús- borðið á Víðivöllunum að borða nýsteiktar kleinur og drekka ískalda mjólk með. Ljúfar minn- ingar sem lifa í huga okkar. Amma hafði einstakt lag á að myndast illa. Þegar myndavélin er með 24 mynda filmu þá gat það verið vandamál. Það væri gaman að safna saman mynd- unum og halda sýningu mynda þar sem hún er að tala, benda, með lokuð augun eða horfa út í loftið meðan aðrir á myndinni brosa og horfa fram. Amma var lítið fyrir að hafa áhyggjur af hlutunum. Líklega var það vegna þess að hún treysti sínu fólki fullkomlega, hvort sem það var að aðstoða við gjafakaup, framkvæmdir heima fyrir eða við skattskýrslu- gerð. Eftir að hafa alið upp fjóra stráka var ekkert sem kom henni úr jafnvægi í samskiptum við okkur barnabörnin. Með aldrinum fór hávaði illa í hana en það var líklega bara út af heyrnartækjunum. Það er engu líkara en amma hafi allt sitt líf verið að undirbúa sig fyrir bráðsmitandi heimsfar- aldur. Hún var ekki mikið fyrir að sækja fjölmennar samkomur og knús og kossa forðaðist hún eftir fremsta megni. Hún var því ein af fáum sem tók ástand síð- ustu mánaða lítið nærri sér. Það er margt sem hægt er að læra af ömmu og því hvernig lífi hún lifði. Amma var nefnilega ein umhverfisvænasta mann- eskja sem til var. Hún var dug- leg að nýta hlutina frekar en kaupa nýtt, prjónaði peysur og vettlinga í gjafir. Hún eyddi ekki peningum í óþarfa og ferð- aðist aðeins einu sinni til út- landa. Sjálf tók hún aldrei bíl- próf heldur fór allra sinna ferða fótgangandi. Gangan var hennar heilsurækt og hélt henni hraustri fram í háa elli. Um tíma hafði hún atvinnu af því að ganga þegar hún bar út póst. Hún var dugleg að sníða sér stakk eftir vexti, samanber þeg- ar hún tók sjálf ákvörðun um að minnka við sig og flytja í ein- staklingsíbúð við Grænumörk eftir að hún varð ekkja. Ef við sem eftir lifum tækjum okkur hana til fyrirmyndar erum við viss um að kolefnisspor okkar yrði margfalt minna en það er. Elsku amma, hvíl í friði, við vitum að þú ert komin á góðan stað, þín barnabörn, Ólafur og Ósk Unnarsbörn. Elsku amma er jarðsett í dag, hún lést á Lundi þann 11. mars síðastliðinn, þar sem hún hafði verið í góðu yfirlæti síðustu rúm tvö árin. Amma á Víðó, eins og við kölluðum hana, er nú farin yfir í sumarlandið og unir sér þar án efa vel með fólkinu sínu sem fór á undan henni. Það eru hlýjar minningar þegar hugsað er til samverustunda með ömmu. Hún lét ekki mikið fyrir sér fara en var þó ávallt rögg- söm, lét verkin tala og mat mik- ils iðjusemi og dugnað. Hún stóð með sjálfri sér og hafði sterkar skoðanir og getum við öll sagt að við höfum tekið hana okkur til fyrirmyndar á einn eða annan hátt og dáðst að þeim styrk sem hún bjó yfir. Amma var kannski ekki mikið fyrir kjass og knús en þó var það alltaf í boði væri þess óskað. Við vorum svo hepp- in að amma var lengst af heima- vinnandi og því var alltaf hægt að koma til hennar og vera þar þegar mamma og pabbi þurftu að vinna. Eftir að við fluttum í sveitina var kannski komið sjaldnar við en alltaf var gott að koma á Víðó þegar leið lá um Selfoss. Þar var yfirleitt hægt að fá jólaköku, brjóstsykur eða jafnvel ís. Nammiskápurinn fyr- ir ofan ísskápinn var vinsæll og í minningunni var auðveldara að plata afa til að gefa manni eitt- hvað úr skápnum heldur en ömmu, nema auðvitað ef hann var sjálfur búinn með það sem var til, þá reddaði amma bara málunum með því að gefa okkur mysing í skeið í staðinn fyrir nammi. Það var ekki slæmt og enn í dag laumast einhverjir til að fá sér mysing í skeið við tækifæri. Víðivellir 14 eru órjúfanlegur hluti af minningum okkar um ömmu, þær eru margar minn- ingarnar þaðan sem við systk- inin eigum og margt var þar brallað. Garðurinn var stór og ýmislegt í honum til dundurs, t.d. drullubúið sem var í skotinu milli bílskúrs og íbúðarhúss þar sem bakaðar voru drullukökur sem voru jafnvel skreyttar með blómum sem voru stolin úr blómabeðinu undir stofuglugg- anum. Rólan í snúrunum var vinsæl. Baðkarið í garðinum, blómstrandi sírenur fyrir fram- an hús, eldliljur undir stofu- glugganum, rifsberjarunnar full- ir af berjum og nýjar kartöflur úr kartöflugarðinum. Amma var mjög lagin í hönd- unum og fengum við systkinin mikið af prjónuðum og saum- uðum flíkum gerðum af henni, flottum fötum eins og voru í tísku á hverjum tíma. Afkom- endur okkar hafa líka grætt á hannyrðunum og eiga flíkur gerðar af ömmu. Í seinni tíð þegar hún var flutt í Grænumörkina var gaman að koma til hennar og spjalla, hún spurði frétta og sagði sögur frá því hún var vinnukona í Þykkvabænum eða þegar forfeð- urnir vitjuðu nafna. Hún skóf ekki utan af því þegar við töl- uðum saman við eldhúsborðið og sagði sína skoðun. Hún upplifði margt á langri ævi og margt var hægt að læra af henni og taka sér til fyrirmyndar. Við munum sakna ömmu sárt og geyma hlýjar minningar í hjörtum okk- ar. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. (Halldór Jónsson frá Gili) Halldóra, Þórunn Björg, Brynja, Bjarni og Einar Ágúst. Halldóra Kristrún Hjörleifsdóttir ✝ Guðrún Jó- hannesdóttir fæddist 29. maí 1930 í Stapaseli, Stafholtstungna- hreppi. Hún and- aðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 24. febr- úar 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jó- hannes Jónsson, bóndi í Stapaseli og síðar á Flóðatanga, f. 24. júní 1895, d. 21. desember 1990, og Ingi- björg Sveinsdóttir, húsfreyja í Stapaseli og á Flóðatanga, f. 8. september 1895, d. 3. nóvember 1989. Systkini Guðrúnar eru: Jón Klemenz, f. 1927, d. 2013, Helga, f. 1928, d. 2017, Sveinn, f. 1931, Eysteinn, f. 1934, d. 2018, Ólafur, f. 1934, d. 2014, og Auður Fanney, f. 1936. Upp- eldisbróðir Guðrúnar er Mar- teinn, f. 1946. Guðrún stundaði nám við Húsmæðraskólann á Varma- landi, Borgarfirði, frá 1947 til 1948. Að námi loknu bjó hún á Flóðatanga og aðstoðaði for- eldra sína við bústörfin allt þar til hún fluttist til Reykjavíkur 23 ára gömul. Fyrstu árin starfaði Guðrún við fatasaum, m.a. hjá Braga Brynjólfs- syni klæðskera á Laugavegi 46. Síð- ar hóf hún störf hjá sælgætisgerð- inni Víkingi á Vatnsstíg þar sem hún naut styrkrar handleiðslu móðursystur sinn- ar, Önnu Sveinsdóttur, sem þar var við stjórnvölinn. Guðrún starfaði síðan um margra ára skeið hjá lyfjafyrirtækinu Pharmaco/Delta, síðar Actavis, allt þar til starfsferli hennar lauk árið 1998. Guðrún var ógift og barn- laus. Fyrstu árin eftir að Guð- rún flutti suður bjó hún hjá móðursystur sinni Þórdísi. Lengst af bjó hún í Hamrahlíð 21 þar sem hún bjó fyrst með foreldrum sínum en síðan ein til ársins 2012 þegar hún flutti á dvalarheimilið Seljahlíð. Þar dvaldi hún síðustu árin. Útförin fer fram frá Selja- kirkju í dag, 19. mars 2021, klukkan 13. Snemma morguns miðviku- daginn 24. febrúar síðastliðinn hljóp ég í síðasta sinn til Gunnu. Eins og svo oft áður þurfti ég nauðsynlega að komast til hennar og finna, gegnum hlýjuna og ör- yggið í hennar návist, að allt yrði í lagi. Allt frá því ég var lítil hef ég verið Gunnustelpa. Ég man eftir því að bíða í myrkrinu, í bílnum með pabba, eftir rútunni sem myndi færa mér Gunnu. Ég var alltaf full tilhlökkunar þar sem Gunnu fylgdi gleði og hlýja og fyrir mér var alltaf hátíð þegar Gunna var komin. Að heimsækja Gunnu í Hamrahlíðina var einnig eitthvað til að hlakka til. Þar vaknaði ég við bílanið, staldraði dreymandi og starði í spegilinn í forstofunni, kúrði í bleika sófan- um og sat við gula eldhúsborðið, þar sem ég gæddi mér á enda- lausum kræsingum sem Gunna hafði alltaf til reiðu. Við þetta eld- húsborð, undir ljósinu með stjörnunum, hef ég oft og lengi setið í gegnum lífið, þar sem við Gunna ræddum lífsins gleði og sorgir, spáð var í bolla og spil og skálað í sérrí, í seinni tíð. Þegar ég hóf menntaskóla- göngu, sextán ára, yfirgaf ég sveitina mína og flutti til Gunnu. Við höfðum gert áætlanir um þennan flutning síðan ég var lítil og það kom aldrei til greina að fara í annan skóla en Menntaskól- ann í Hamrahlíðinni og vera hjá Gunnu. Sú ákvörðun reyndist mér ómetanleg þegar ég þurfti að takast á við nýjar aðstæður og þær áskoranir sem því fylgja að fullorðnast og vera fullorðin. Hjá Gunnu í Hamrahlíðinni varð heimili mitt að heiman og hjá henni upplifði ég hlýju, öryggi og þá tilfinningu að tilheyra ein- hverjum á framandi stað, sem borgin virtist oft vera mér. Ekki var það bara ég sem naut þess að eiga Gunnu frænku að, því Hamrahlíðin var staður gleði og þar hittist fólk. Gegnum Gunnu kynntist ég ættingjum sem ég vissi varla að væru til, því allir komu til Gunnu. Þar var komið saman til að gleðjast, fá fréttir, rifja upp gamla tíð og viðhalda ættartengslum. Gunna var félagsvera og naut þess að hafa fólk í kringum sig og hún var fljót að eignast hlut í fólki með áhuga sínum, hlýju og glað- lyndi. Þess nutu menntaskólavin- konur mínar, en oftar en ekki hittumst við hjá Gunnu sem var ómissandi partur af hópnum. Eins var Gunna mikilægur þáttur í lífi systkinabarna sinna því hún var okkar allra, „Gunna frænka“. Í huga barnanna minna var hún ein af ömmunum enda voru Gunn- uheimsóknir ómissandi partur af lífinu og ekki var haldið upp á við- burði án Gunnu. Nú þegar Gunna hefur kvatt stendur eftir sár söknuður, en einnig margar dásamlegar minn- ingar sem ylja og lifa áfram. Miðvikudaginn 24. febrúar hljóp ég til Gunnu frænku í síð- asta sinn og í þetta sinn til þess að kveðja. Ég fann að ég þurfti kom- ast til hennar sem fyrst og þegar ég hafði kvatt hana kvaddi hún mig. Líkt og svo oft áður náði hún að gefa mér enn eina dýrmæta minningu í lokin. Elsku Gunna mín. Takk fyrir allt og í huganum skála ég við þig í síðasta sinn og segi: „Til lífs og gleði.“ Ingibjörg Ásdís Sveinsdóttir. Elsku Gunna. Þegar ég horfi til baka þá rifja ég upp allar góðu og fallegu minningarnar um okkur saman. Ég er þakklát fyrir að hafa eignast þriðju ömmuna en fyrir mér varst þú svo miklu meira en bara frænka mín. Ég er þakklát fyrir allan þann stuðning sem þú veittir mér í lífinu en þú hvattir mig ávallt til þess að láta drauma mína rætast og fara mín- ar eigin leiðir. Ég mun ekki gleyma öllum þeim danskeppnum sem þú mættir á með systur þinni og ömmu minni, Helgu. Þið mætt- uð alltaf með pönnukökur og það var ekkert betra en að hvíla þreytta dansfætur í fangi ykkar og gæða sér á góðri pönnuköku. Þegar ég bjó í Þýskalandi 2016-2018 hugsaði ég svo oft til þín. Ég var oft svo hrædd um að missa af þér og ná jafnvel ekki að kveðja þig en fallegar hugsanir okkar beggja leiddu til þess að ég átti tvö yndisleg ár með þér eftir að ég flutti heim. Þú ert sú sem allir þyrftu á að halda í lífi sínu því þú varst svo hjartahlý og jákvæð. Þegar ég skrifa þessi orð til þín sit ég við eldhúsgluggann minn, í Hamra- hlíðinni, þar sem mér leið alltaf best þegar ég kom í heimsókn til þín. Fyrir mér ert þú ekki farin því alla daga finn ég fyrir nær- veru þinni hér í Hamrahlíðinni og ég finn og veit að við erum saman alla daga. Ástæðan fyrir því að allir sem koma í heimsókn til mín tala um góðan anda í íbúðinni er vegna þess að þú fylltir hana góð- um anda, ást og kærleik. Ég lofa þér því að ég mun halda áfram að skapa hér góðar minningar og að sjálfsögðu verður boðið upp á Hamrahlíðarbolluna í öllum partí- um. Ég er líka svo þakklát fyrir okkar síðasta samtal þar sem þú spurðir mig hvort mér liði ekki örugglega vel í Hamrahlíðinni og væri hamingjusöm. Við héldumst í hendur og ég fullvissaði þig um að mér liði vel og hefði jafnvel áhyggjur af því að geta aldrei flutt. Við kvöddumst með bros á vör eins og alltaf. Elsku Gunna, þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu, ég sakna þín. Þín Helga Kristín. Guðrún Jóhannesdóttir ✝ Sigríður Er- lendsdóttir fæddist 17. nóv- ember 1931 á Ísa- firði. Hún lést í faðmi fjölskyld- unnar 9. mars 2021 á Hrafnistu í Reykjanesbæ. For- eldrar hennar voru Erlendur Jónsson skósmiður og Gestína Guðmundsdóttir húsfreyja. Sigríður var yngst systkina sinna en hin voru Halldór, Guðmunda, Sigurður, Jón, Guðmundur, Ingimundur og Þóra. Eftirlifandi eiginmaður Sig- ríðar er Finnur Eyjólfsson, f. 15. janúar 1929, fyrrverandi tollvörður. Börn þeirra eru Ragna, Þórunn, d. 26. apríl 1984, Eyjólfur, maki Yvette Lau, Erla, maki Kristján Lars Kristjánsson, og Guðrún, maki Hörður Hilmarsson. Sigríður fæddist og ólst upp á Ísafirði. Þar bjó hún fram að unglingsárum en 15 ára flutt- ist hún til Reykjavíkur. Hún giftist Finni hinn 3. apríl 1954. Þau bjuggu í Reykjavík til nokkurra ára þar til þau fluttu í Hvalfjörð þar sem Finnur gegndi embætti lögreglu- manns. Fjölskyld- an bjó í Hvalfirði til 1968 og fluttist aftur í skamman tíma til Reykjavík- ur áður en þau fluttu búsetu sína alfarið til Reykja- nesbæjar. Sigríður hóf störf sem læknaritari við Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja og átti þar langan og farsælan starfs- feril þar til hún fór á eft- irlaun. Hún naut þess að ferðast erlendis með maka og fjölskyldu og einnig höfðu þau hjónin unað af sumarhúsi sínu sem þau áttu til margra ára í Grímsnesi. Útförin fer fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju 19. mars 2021 klukkan 13. Athöfninni verður streymt á Facebook/ Njarðvíkurkirkjur-Útfarir. Stytt slóð á: streymið: https://tinyurl.com/57zw6vhw/. Virkan hlekk má einni nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat/. Elsku yndislega mamma mín er fallin frá. Nú sit ég og hugsa til þín og rifja upp yndislegu minning- arnar okkar sem eru mjög margar og eru mér afar dýr- mætar. Við mamma brölluðum ým- islegt saman í gegnum tíðina og ég á margar minningar af ferðalögum, jólum sem við vörðum alltaf saman og sam- verustundum í Grímsnesinu. Mamma var stoð mín og stytta í gegnum lífið en alltaf var hægt að treysta á góð ráð frá henni. Þess er helst að minnast þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn ung að aldri hversu vel hún studdi við mig og Kristján, eiginmann minn. Það var ómet- anlegur stuðningur og aðstoð fyrir unga foreldra. Mamma skipaði stórt hlut- verk í lífi fjölskyldu minnar og þykir mér vænt um hversu gott samband hún átti við börnin okkar en þau hafa alltaf getað leitað til hennar. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þín Erla og Kristján. Sigríður Erlendsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.