Morgunblaðið - 19.03.2021, Page 22

Morgunblaðið - 19.03.2021, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021 ✝ Sigríður Gísla- dóttir fæddist 5. janúar 1941 í Reykjavík þar sem hún ólst upp. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspítalans við Hringbraut 9. mars 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Gísli Hermann Guð- mundsson, f. 1884, d. 1969, og Guðrún Sum- arliðadóttir, f. 1902, d. 1961. Systkini hennar eru Erla Löve, f. 1930, Guðmundur Gíslason, f. 1931, d. 1994, Haukur Pétur Gíslason, f. 1933, d. 1993, Ingi- björg Aðalsteinsdóttir, f. 1936, Hildur Gísladóttir, f. 1938, Guð- laugur B. Gíslason, f. 1939, Petra Gísladóttir, f. 1944. Sigríður giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Vilhjálmi Þór Ólafssyni frá Stórhöfða í Sandgerði, 13. ágúst 1960. Fögnuðu þau 60 ára brúðkaups- afmæli í ágúst 2020. Börn þeirra eru: 1) Ólafur, f. 17.5. 1960, maki Anna Erla Þor- steinsdóttir, f. 16.5. 1962, börn: Vilhjálmur Þór, f. 4.12. 1986, hún fór aftur út á vinnumark- aðinn um 1973 var stutt að leita eftir vinnu í næsta nágrenni. Lengst vann hún hjá Borg- arbókasafni Reykjavíkur í útibúunum og bókabílnum en lengst af vann hún í bókasafn- inu í Bústaðakirkju, sem síðar var fært í Kringluna og vann þar allt þar til hún lét af störf- um árið 2006. Sigríður og Vilhjálmur bjuggu framan af í Álftamýri og fluttu svo í Breiðholt. Fyrst í Vesturberg í Efra-Breiðholti og svo í Seljahverfið 1977, þar sem þau byggðu sér einbýlishús í Stuðlaseli. Þaðan fluttu þau í Hvassaleiti. Nú síðast bjó hún á Sléttuvegi 31 með Vilhjálmi manni sínum. Mestu af frítíma sínum varði Sigríður með fjölskyldu og vin- um. Þau hjónin byggðu sér sum- arhús í landi Villingavatns í Grafningi, við Þingvallavatn, 1975. Þar var sumarfríum eytt við að byggja og bæta og hlúa að gróðri og umhverfi í 40 ár. Sigríður verður jarðsungin frá Grensáskirkju í dag, 19. mars 2021, klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: https://www.skjaskot.is/sigridur/. Virkan hlekk má einnig nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat/. Friðrik, f. 30.8. 1990. 2) Rúnar Þór, f. 9.5. 1961, maki Jóna Rán Ingadótt- ir, f. 4.11. 1966, börn: Ellen Svava, f. 31.3. 1985, móðir hennar er Guðný Soffía Erlingsdótt- ir, f. 24.3. 1962, Fanney Björg, f. 30.6. 1998. 3) Gísli Már, f. 7.10. 1966, maki Þórdís Einarsdóttir, f. 2.10. 1969, börn: Felix Þór, f. 21.1. 1995, Sigríður, f. 28.5. 1998. 4) Eva, f. 22.8. 1975, börn: Karen Lind, f. 5.6. 1996, faðir hennar er Ingólfur Reynisson, f. 31.1. 1972, Róbert Már, f. 19.5. 2003, faðir hans er Gylfi Sævarsson, f. 26.5. 1974. Sigríður ólst upp á Grensás- vegi í Reykjavík með foreldrum sínum og systkinum. Hún gekk í Laugarnesskóla og lauk þaðan grunnskólaprófi. Eftir það vann hún ýmis verslunar- og þjón- ustustörf þar til hún stofnaði fjölskyldu með Vilhjálmi og tím- inn og orkan fór í barnauppeldi og heimilisstörf. Hún bjó alla sína ævi í Reykjavík og þegar Að skrifa minningargrein um manneskju sem hefur fylgt þér alla tíð getur reynst þrautin þyngri. Og þegar sú manneskja er móðir manns getur verið erfitt að finna þann tón sem er manni næstur í anda en kannski næst á prenti þegar á reynir. Frá árunum 60 sem við áttum saman er margs að minnast eins og þegar eldri sonur okkar Önnu var sendur til afa og ömmu í Reykjavík frá Hornafirði. Það var upplifun sem hann gleymir aldrei. Hvað hann var heppinn að eiga þetta unga fólk að sem afa og ömmu. Sem var að mörgu leyti nálægt honum í anda og voru meira vinir en uppalendur í mörgum tilfellum en þannig er minning hans þegar hann rifjar upp þegar þau tóku á móti honum á BSÍ um árið. Eins er mér mjög minnisstætt þegar Anna var að dást að tengdamóður sinni fyrir hvað hún var ung í anda og oft hafði hún orð á því hvað hún væri skemmtileg í tilsvörum og ætti málshátt og orðatiltæki fyrir hvert tilfelli sem upp á gat komið í amstri lífsins. Seint eða aldrei mun sá tími gleymast sem eytt var með henni og pabba, og fleir- um, í bústaðnum í Grafningnum við spjall og skemmtun og fleira sem við gerðum reyndar allt of sjaldan en við höfum þá afsökun að langt var á milli þar sem við bjuggum á Hornafirði á þeim ár- um. Elsku besta Sigga tengda- mamma, þín verður sárt saknað, þú varst einstök kona, hjartahlý og hvers manns hugljúfi og rétt- sýn. Þegar ég hugsa til baka þá áttum við ansi margt sameigin- legt. Hvar skal byrja? Mín fyrstu kynni af Siggu voru þegar ég var að ljúka við Hótel- og veitingaskóla Íslands 1985. Hvað hún var tilbúin, af því að ég þekkti hana eiginlega ekki neitt þá, að hjálpa mér við hitt og þetta, skutla mér hingað og þang- að svo endar næðu saman varð- andi sveinsprófið mitt. Óli var þá fluttur austur á Höfn á undan mér og ætlaði að vera búinn að græja og gera áður en ég kæmi austur aftur. Við Sigga vorum búnar að ákveða að hún myndi ná í mig morguninn eftir, og hjálpa mér að koma mununum til skila sem ég hafði fengið lánaða vegna sveinsprófsins, og koma mér svo í flug til Hafnar. Það gekk nú ekki betur en svo, að ég missti af flug- inu. Sigga hafði þá farið kvöldið áður í starfsmannagleði hjá bóka- safninu og ég í útskriftarveislu. Vorum við því eitthvað seinar af stað þennan morgun eftir gleði kvöldsins áður. Settumst við þá saman niður á flugvellinum og fengum okkur pylsu og kók og þar byrjuðu kynni okkar sem stóðu til síðasta dags. En nú er komið að ferðalokum hjá móður, tengdamóður og besta vini okkar. Kveðjum við hana nú. Ólafur, Anna Erla, Vilhjálmur og Friðrik. Elsku ljúfa mamma mín. Mikið sakna ég þín og hversu yndisleg, ljúf og góðhjörtuð þú varst. Aldr- ei hallmæltir þú nokkrum manni og fórst í gegnum lífið með já- kvæðni, brosi og æðruleysi. Þú varst alltaf í mínu liði og sama hvað ég ákvað að taka mér fyrir hendur þá var ég í þínum augum sú allra klárasta, besta og dug- legasta. Ég steig ekki feilspor í þínum augum og hefur þitt við- horf til lífsins kennt mér svo mik- ið um það hvernig ég vil fara í gegnum lífið, með bros á vör, fal- leg og góð orð til handa öðrum og mér sjálfri. Núna heldur lífið víst áfram án þín en ég var engan veginn tilbú- in í að missa þig svona snögglega en ég fæ því víst ekki breytt. Að hafa náð að spjalla við þig og knúsa í eitt skipti enn mun hjálpa við að lifa með því að þú sért far- in. Ég er svo endalaust þakklát fyrir þig og mun ylja mér við allar minningarnar sem ég á um ókomna tíð. Ég mun sakna þín og þá sérstaklega símtala okkar á kvöldin þegar þú hringdir í mig til að bjóða mér góða nótt og að guð myndi geyma mig, svona áð- ur en þú fórst að sofa. Mamma þú ert hetjan mín. Þú elskar og þú nærir, þú kyssir mig og nærir, ef brotin ég er þú gerir allt gott. Með brosi þú sársaukanum bægir á brott. Mamma ég sakna þín. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Góða nótt elsku hjartans mamma mín og guð geymi þig. Elska þig alltaf. Þín dóttir, Eva. Þegar ég hugsa um mömmu koma tár á hvarma því fallegri og betri kona er ekki til. Það er söknuður, sorg og smá depurð. Hún var svo sterk á sinn veg en líka svo mjúk. Hún hafði áhuga á lífinu, börnunum okkar, vinum okkar, sjálfum okkur og öllu sem við gerðum. Hún elskaði pabba út af lífinu. Hún elskaði fjölskyldu sína. Hún elskaði vini sína. Hún elskaði að búa í Reykjavík. Gott ef hún kaus ekki bara Reykjavíkurlistann. Hún neitaði ójöfnuði. Hún elskaði jafnrétti og kvenréttindi. Hún elskaði að lesa bækur og ljóð. Hún elskaði sumarið. Hún elskaði ferðalög. Hún elskaði líf- ið. Hún elskaði „Ég leitaði blárra blóma“. Hún elskaði meira að segja rigninguna. Úðinn drýpur og sindrar í silfurgljá. Í svona veðri finnst regninu gaman að detta á blómin, sem nú eru upptekin af að spretta og eru fyrir skemmstu komin á stjá. Og upp úr regninu rís hin unga borg, rjóð og tær eins og nýstigin upp af baði. Og sólin brosir á sínu himneska hlaði og horfir með velþóknun yfir stræti og torg. Og léttir geislar glitra um lygnan fjörð eins og glóbjört minning um tunglskinið frá í vetur. Ó, engan ég þekki, sem gæti gert þetta betur en guð, að búa til svona fallega jörð. (Tómas Guðmundsson ) Hún elskaði ekki myrkrið. Hún elskaði París. Hún elskaði Feneyjar. Hún elskaði Róm. Hún elskaði tré. Hún elskaði veiði- ferðir. Hún elskaði pabba sinn og mömmu. Elsku mamma mín, „við erum gestir og hótel okkar jörðin“. Elsku mamma, nú hefur guð almáttugur tekið við sem hús- bóndi í bili, hans verkefni er að lina þjáningar þínar sem þú barst á herðum þínum í alltof langan tíma. Hvíldu í friði – ást að eilífu. Þinn sonur, Gísli Már Vilhjálmsson. Elsku tengdamamma, hér sit ég og hugsa til þín, það er svo margt sem ég get sagt um þig og okkur. Þú hafðir svo góða nær- veru, varst alltaf tilbúin að hlusta, varst alltaf svo áhugasöm um allt sem við gerðum. Guð þig leiði sérhvert sinn sólarvegi alla. Verndarengill varstu minn vissir mína galla. Hvar sem ég um foldu fer finn ég návist þína. Aldrei skal úr minni mér mamma ég þér týna. (Jón Sigfinnsson) Á kveðjustundu vil ég þakka þér fyrir samfylgdina, alla vinátt- una og góðmennskuna. Þá bið ég góðan Guð að styrkja Villa, Óla, Önnu, Rúnar, Jónu, Evu og fjöl- skyldur. Gísla minn, Felix Þór, Siggu og Margréti á erfiðri stundu. Minning þín lifir. Þín Þórdís. Elsku amma Sigga. Þegar ég horfi aftur og hugsa hvaða þýðingu og áhrif hún Sig- ríður amma mín, eða amma Sigga eins og hún var kölluð af okkur barnabörnunum, hafði fyrir mig fæ ég yfir mig tilfinningu sem einkennist af kærleik, ást og um- hyggju. Mér finnst hún amma Sigga hafa verið manneskja sem var mjög dugleg og mjög virk við að gera hina og þessa hluti eins og að fara í sund. Mér fannst það alltaf geggjað að amma nennti að fara í sund því hin amma mín á Höfn gerði lítið annað en að horfa á Glæstar vonir og prjóna lopa- peysur. Ég á ekkert voðalega margar minningar af ömmu sem barn eða alla vega það sem ég man eftir þar sem við bjuggum fyrir austan á Hornafirði og amma og afi fyrir sunnan. Þau voru alveg dugleg að koma í heimsókn til okkar á Höfn en æskuminningar mínar af þeim eru mest byggðar á mjög hlýjum tilfinningum tengdum þessum fáu minningum og hvað það var alltaf spennandi að fá þau í heim- sókn. Það var alltaf mjög spenn- andi að fara að hitta ömmu og afa í borgina sem krakki en það var ekki fyrr en ég varð eldri sem ég kynntist þeim mjög vel eftir að ég flutti í bæinn. Amma og ég náð- um mjög vel saman og hún hafði mjög gaman af ruglinu sem kom upp úr mér. Amma var mikill húmoristi og mér fannst mjög gaman að láta hana hlæja, hún hafði alveg yndislegan hlátur sem ég heyri aftast í kollinum á mér. Ég á alveg haug af minningum þar sem við amma og afi sitjum saman og erum bara að spjalla um hitt og þetta. Ég hafði mjög gaman af því að grínast í honum afa mínum og hann í mér, svo sat amma alltaf á sínum stað við borðið að lesa Morgunblaðið og hlæja að því sem kom upp úr okk- ur. Ég flutti inn til þeirra í nokkra mánuði á framhaldsskóla- árum og það var í raun og veru ekki eins og að búa heima hjá ömmu sinni og afa heldur frekar eins og að búa með góðum vinum sínum sem voru aðeins eldri en maður sjálfur. Friðrik, Annetta, Franklín, Karítas og Kristófer. Allt í einu er elsku amma Sigga farin í sumarlandið, höggið er stórt og engin fyrirvari. Minn- ingar streyma fram og gott er að ylja sér við þær um ókomna framtíð. Frá því við munum eftir okkur var alltaf mikið fjör þegar amma Sigga og afi Villi komu til okkar á Höfn. Þá var oftast sam- eiginleg dagskrá með Óla, Önnu, Villa og Frikka. Margt var brall- að og farið í skemmtilegar ferðir út um allar sveitir og ekki má gleyma fjöruferðunum. Amma Sigga var mikill aðdáandi okkar, hún var mjög áhugasöm um allt sem við tókum okkur fyrir hend- ur. Stoltið leyndi sér ekki. Ætli ég (Sigga) hafi ekki verið svona 13 ára þegar ég var hjá þeim í vikutíma í söngskóla Maríu Bjargar, amma Sigga beið alltaf spennt eftir að heyra afrakstur dagsins. Bæði stunduðum við fót- bolta á yngri árum og fórum í margar ferðir um landið. Ef við vorum í nágrenni Reykjavíkur þá mættu þau til að fylgjast með. Seinna æfðum við bæði blak og þegar ég (Felix Þór) fór á lands- liðsæfingar í blaki gisti ég alltaf hjá þeim, afi Villi var alltaf tilbú- inn að skutla og amma Sigga allt- af tilbúin að koma með. Þau mættu á marga kappleiki hjá okkur báðum. Ömmu Siggu fannst Sigga vera besti söngvari í heimi og Felix heimsfrægur íþróttamaður. Amma Sigga og afi Villi áttu svo fallegt samband, þau sýndu mikla virðingu, voru samstíga og gerðu óspart grín að hvort öðru. Þau byggðu saman sumarbústað- inn Hvol við Villingavatn, en þangað fórum við þegar við höfð- um tækifæri til og áttum dásam- legan tíma, fórum í siglingu með afa Villa á bátnum og amma Sigga töfraði fram veitingar. Við fjölskyldan, Helga frænka, amma Sigga og afi Villi fórum saman í sumarfrí til Króatíu. Það var mjög eftirminnileg ferð. En upp úr stendur samt dagsferðin sem við fórum til Feneyja, þar sigld- um við um á gondóla og virtum fyrir okkur mannlífið á Markús- artorginu, þetta var algjör draumaferð hjá ömmu Siggu. Í veikindunum mínum (Siggu JR) fylgdist hún vel með, þau komu í heimsókn daglega og fóru með mér í dagsferð í Sandgerði til að stytta mér stundirnar, í þeirri ferð fræddist ég heilmikið um báðar ættirnar. Það var yndislegt að kynna Margréti mína (Felix Þór) fyrir ömmu Siggu og afa Villa. Þau voru strax mjög hrifin af henni og náðu þau vel saman. Nú og ekki má gleyma honum Mola en þau amma Sigga áttu al- veg frábært samband, hún laum- aði alltaf einhverju til hans. Amma Sigga og afi Villi buðu allri stórfjölskyldunni á Flúðir í tilefni af 60 ára brúðkaupsafmæli þeirra í ágúst á síðastliðnu ári. Það var svo gaman og þau svo hamingjusöm með allan hópinn sinn, þessi ferð var okkur öllum mjög dýrmæt. Þegar kallið kom fór hún al- gjörlega á sínum forsendum. Passaði að kveðja börnin sín og senda okkur barnabörnunum kveðjur. Nú er komin kveðjustund við elskum þig endalaust amma Sigga, Guð blessi minningu þína, hún mun lifa áfram með okkur. Elsku afi Villi, þið amma Sigga voruð sem eitt og miklar fyrir- myndir. Megi góður guð styrkja þig og okkur öll í sorginni. Felix Þór og Sigríður. Elsku amma. Það er erfiður raunveruleiki að sætta sig við að hafa þig ekki lengur hérna hjá okkur, geta ekki kíkt í heimsókn eða hringt og sagt þér allar nýjustu fréttirnar úr mínu lífi. Oftast var ekkert voðalega áhugavert eða spenn- andi að frétta en það skipti engu máli fyrir þig, því þér fannst allt- af svo gaman að hlusta á það sem ég hafði að segja og heyra af því sem ég var að gera. Ein helsta minningin, sem stendur upp úr þessa dagana, er þegar þú hvattir mig til að taka þátt í Línu Langsokk-teikni- keppni. Ég teiknaði og teiknaði hálfan daginn og svo þegar ég var búin að teikna nokkrar myndir lögðum við þær hlið við hlið og völdum þá sem okkur fannst vera best. Eftir að við völdum bestu myndina þá settir þú hana í um- slag og sendir í keppnina. Okkur til mikillar gleði þá varð ég í öðru sæti og fékk verðlaun sem voru afhent í Kringlunni. Það sem mér fannst skemmtilegast við þetta allt saman var svo þegar við fór- um saman í Kringluna og skoð- uðum myndina þar sem hún hafði verið hengd upp og guð minn góður, hvað ég dró þig oft með mér þangað og alltaf varstu meira en til í að fara með mér til að dást að teikningunni minni. Ég mun aldrei gleyma öllu því sem þú gerðir fyrir mig. Hvað þú varst alltaf til staðar fyrir mig með allt sem þú gast og hvað þú varst yndisleg amma. Alltaf til í að baka með mér pönnsur eða gera nánast hvað sem mér datt í hug. Mæta á allar listsýningarnar mínar í dúkkukofanum uppi í bú- stað og horfa á mig æfa mig í öllu því sem ég hef prófað í gegnum árin. Þarna varstu alltaf stuðn- ingsaðili númer eitt. Eitt það stærsta sem þú hefur gefið mér, sem ég mun taka með mér út í lífið, er endalaus hvatn- ing, styrkur og trú á sjálfri mér. Því sama hvað ég var að gera þá varstu alltaf til staðar til að segja mér: „Þú ert snillingur, Karen Lind, ég hef alltaf sagt það, al- gjör snillingur.“ Og þessum orð- um mun ég aldrei gleyma eða þér. Þú varst snillingur, elsku amma. Þín dótturdóttir, Karen Lind. Sigga frænka kvaddi okkur skyndilega og það er erfitt að skilja að hún sé farin. Þrátt fyrir að Sigga væri næstyngst í systk- inahópnum var hún einna dugleg- ust við að rækta samband sitt við okkur öll sem erum afkomendur þeirra átta systkina sem sváfu til fóta á Þrastargötunni og ærsluð- ust á Grensásveginum síðar. Sigga laðaði okkur öll að sér, systkini sín og okkur frænd- systkinin börnin þeirra. Við syst- urnar höfum notið þess hve nán- ar mamma og Sigga voru og þökkum fyrir það nú þegar leiðir okkar og Siggu skiljast í þessum heimi en hver veit, kannski bíður hún okkar með kaffi og bros á vör þegar við komum yfir seinna. Okkar fyrstu minningar af Siggu eru heimsóknir í Stuðlasel- ið þar sem hún og Villi tóku alltaf öllum fagnandi. Við fórum í ótelj- andi ferðir í Breiðholtið með mömmu. Fyrst á Míníinum, svo á dröppuðu Fiestunni, þá rauð- brúnu Fiestunni og loks á rauðu súkkunni. Seinna á Gulu þrum- unni. Á leiðinni í den sungum við Fyrr var oft í koti kátt og Í skól- anum, í skólanum. Mamma stjórnaði söngnum og sá til þess að okkur leiddist ekki alla leið úr Vesturbænum. En okkur leiddist aldrei því það var alltaf gaman að koma til Siggu. Sigga hafði lag á krökkum og oft voru heimsókn- irnar eins og ævintýri. Við mátt- um fara í leyniferðir upp í móa, hjóla á götunni, hlaupa um í garð- inum (stundum með garðslöngu), troðast í hornsófanum að horfa á sjónvarpið og alltaf fá mjólk og kex. Jólaboð, afmælisveislur, aðr- ar veislur og bara ósköp venju- legar mjólkur- og kaffisopaheim- sóknir eru merki um þann kær- leika sem Sigga var svo rík af – ekki bara gagnvart sinni eigin fjölskyldu heldur okkur öllum, systkinum sínum og systkina- börnum. Sigga heilsaði alltaf með brosi og einskærum áhuga fyrir öðru fólki enda naut hún þess að hafa fólk í kringum sig. Samgangur- inn var mikill þegar við krakk- arnir vorum að vaxa úr grasi en í minningunni var alltaf mesta fjörið hjá Siggu enda hló hún örugglega mest með okkur á meðan hin systkinin létu okkur stundum heyra það. Ein eftir- minnilegasta minningin úr eld- húsinu hennar Siggu er slátur- gerðin en þá vorum við farin að stálpast. Sigga lét okkur finna til okkar og við fengum öll hlutverk við að hræra mörinn, troða í pok- ana eða sauma. Þetta var ekki lít- il manndómsvígsla og alltaf gam- an að rifja upp. Það sem við gerðum örugglega gagnið í þess- ari sláturgerð! Sigga og Villi byggðu sér huggulegan sumarbústað í Grafningi sem við mæðgur eigum líka óteljandi minningar frá. Hvort sem það var brennan um verslunarmannahelgi, berjamór eða rannsóknarferðir um mýrina með mýflugnanet á hausnum, bý- flugnasuð á pallinum eða kletta- klifur á bak við hús þá var Grafn- ingurinn sívinsæll. Þær eru enda ófáar kynslóðirnar, systkini, systkinabörn, börn og barna- börn, sem hafa fengið að njóta lífsins hjá Siggu og Villa í Grafn- ingi – óteljandi minningar sem lifa áfram þótt Sigga sé farin. Sigga er órjúfanlegur hluti af sögu okkar mæðgna og mun lifa áfram í minningum okkar sem sú einstaka og ljúfa kona sem hún var. Hvíldu í friði elsku Sigga. Hildur (Hidda) systir, Sara og Rakel. Sigríður Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.