Morgunblaðið - 19.03.2021, Side 24

Morgunblaðið - 19.03.2021, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021 ✝ Pétur Björn Pétursson fæddist 31. janúar 1946 á Rauðará í Reykjavík þar sem Frímúrarahúsið stendur nú við Skúlagötu 55. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 7. mars 2021. Pétur Björn var sonur hjónanna Þórunnar Kjaran Ólafsson hús- freyju, f. 16. september 1917, d. 12. maí 1966, og Péturs Ólafssonar hagfræðings, f. 8. ágúst 1912, d. 17. febrúar 1987. Systkini Péturs Björns: Magnús, f. 28. maí 1937, d. 2. október 2012, kvæntur Valdísi Björgvinsdóttur, sem nú er lát- in; Ólafur, f. 9. desember 1938, d. 20. febrúar 2016; Soffía, f. 13. apríl 1941, gift Gunnari Erni Ólafssyni; Borghildur, f. 28. janúar 1954, gift Ólafi Hauki Johnson. Pétur Björn kvæntist Krist- ínu Blöndal hjúkrunarfræðingi 30. desember 1994. Hún fædd- ist 23. október 1954. Hún er dóttir hjónanna Ragnheiðar Háskóla Íslands 1974 og starf- aði meðal annars hjá Hag- vangi, Verðlagsstofnun og Jó- hanni J. Ólafssyni & Co. Hann var einnig skólastjóri Útflutn- ings- og markaðsskóla Íslands, starfaði í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti við kennslu og fjár- málastjórn og í Mennta- skólanum í Kópavogi við kennslu. Þá starfaði hann í norrænni nefnd um viðskipta- og hagfræðinám og skrifaði einnig kennslubók um stjórn- un. Pétur Björn var einn eig- enda Sumarskólans. Hann lauk námi frá Ferðamálaskólanum í MK árið 2015 og starfaði sem leiðsögumaður eftir það. Pétur Björn gekk í Frímúr- araregluna 1996 í stúkuna Fjölni í Reykjavík. Hann var síðan einn af stofnendum Njarðar í Garðabæ og Kópa- vogi 1999 og var stólmeistari stúkunnar 2009 til 2014. Pétur Björn og Kristín bjuggu alla sína búskapartíð á Smáraflöt 41 í Garðabæ. Útför Péturs Björns fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 19. mars 2021, klukkan 15. Vegna sam- komutakmarkana verða aðeins aðstandendur og boðsgestir viðstaddir. Slóð á streymi: https://youtu.be/CZyefw6IVKg Hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/. Ingimundardóttur Blöndal húsfreyju og Hjálmars Jó- hanns Blöndal hagsýslustjóra, sem bæði eru látin. Synir Péturs Björns: 1) Pétur Björn, matsveinn, f. 2. maí 1975, í sambúð með Maízu Hélen Teixeira, master í inn- og útflutningsgreiningu, sonur hans er Ólafur Orri. 2) Ólafur, master í alþjóðlegum við- skiptum, f. 15. mars 1979. Móðir þeirra er Inga Steinunn Ólafsdóttir, fyrri kona Péturs Björns. Stjúpsynir Péturs Björns: 1) Hjálmar Blöndal Guðjónsson, guðfræðingur og lögfræð- ingur, f. 1. apríl 1976. 2) Elías Blöndal Guðjónsson lögfræð- ingur, f. 15. nóvember 1983, kvæntur Kristínu Hrund Guð- mundsdóttur Briem lögfræð- ingi. Börn þeirra eru Katrín og Jóhann. Pétur Björn útskrifaðist sem stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1966. Hann lauk embættisprófi í hagfræði frá Skyndilega og allt of snemma hefur verið kallaður frá okkur stjúpfaðir minn, Pétur Björn Pétursson. Hann var umvafinn ást og hlýju frá sínum nánustu til hinstu stundar. Eftir sitja minningar um samverustundir og ferðalög, sorgir og sigra en umfram allt minningar um góð- an og traustan mann. Pétur Björn var maður sinna nánustu. Hann undi hag sínum vel með sínu fólki á Smáraflöt. Eftir að hafa reitt fram einhverja dýr- indismáltíðina, naut hann þess að bjóða til skrafs og ráðagerða í stofunni sem var hans heima- völlur auk eldhússins. Við arineld og ljúfa tóna, var tekið upp létt hjal um hin ýmsu málefni. Enginn kom að tómum kofunum hjá Pétri Birni. Hann tjáði sig með vörum hyggins manns. Hann sagði skemmti- lega frá og það var ávallt glatt á hjalla þegar fjölskyldan kom saman. Við fjölskyldan áttum einnig margar góðar stundir á ferða- lögum innanlands og utan. Sumarbústaðaferðirnar voru margar og utanlandsferðirnar nokkrar. Upp úr stendur heim- sóknin þar sem ég bjó í Vín í Austurríki og einnig ferðalagið til Toskana á Ítalíu. Pétur Björn var heimsmaður og er- lendis var hann fær í allan sjó. Algjörlega óþarft var að skipu- leggja daginn því Pétur Björn var oftar en ekki búinn að nálg- ast allar upplýsingar um áhuga- verða staði. Aldrei mun ég gleyma hvern- ig hann sinnti móður minni í veikindum hennar á síðasta ári. Það var traustur maður sem stóð vaktina dag og nótt. Ég kveð Pétur Björn með söknuði og með virðingu fyrir allt hið góða sem hann skilur eftir sig. Guð varðveiti og blessi góðan mann. Hjálmar Blöndal Guðjónsson. Pétur Björn, stjúpfaðir minn og vinur, er fallinn frá. Með honum er genginn fyrir aldur fram ljúfur og góður maður sem ég mun alltaf sakna. Það er eins og heil veröld kærleika hafi lokast þeim sem eftir sitja. Pétur Björn var gæfumaður í lífinu og naut þess ávallt til fulls. Lífsins lystisemdir voru hans sérgrein og matarboðin á Smáraflöt voru einstök. Góðar minningar mínar af Pétri Birni með svuntuna við gasgrillið mýkja sorgina. Pétur Björn naut þess að eiga samveru- stundir með fjölskyldunni og sérstaklega barnabörnunum. Þau eru lánsöm að hafa fengið að kynnast afa sínum þótt kynnin hafi verið alltof stutt. Sögurnar sem Pétur Björn sagði afabörnum sínum af álfum og jurtum í Garðahrauni eru ei- lífar. Ég er þakklátur Pétri Birni fyrir allt sem hann kenndi mér, fyrir samverustundirnar og uppeldið. Hann naut þess að miðla fróðleik sínum um sögu lands og þjóðar allt fram til síð- asta dags. Síðasta kennslu- stundin fór fram nokkrum dög- um áður en hann kvaddi. Í henni var fjallað um eldgos og hin ýmsu hraun, hvaðan þau runnu, hvert og hvers vegna, flekaskilin og jarðskjálftana. Við horfðum á Keili út um gluggann á sjúkrastofunni, spáðum í spilin og ég vonaði að það færi að gjósa svo hann gæti fengið að sjá bjarmann í myrkr- inu. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að fylgja honum og fylgj- ast með honum. Ég er þakk- látur fyrir að eiga góðar minn- ingar frá okkar samverustundum. Þá verð ég honum ávallt þakklátur fyrir að hafa verið ástríkur og um- hyggjusamur eiginmaður móður minnar. Þegar Pétur Björn hélt upp á 75 ára afmæli sitt í faðmi fjöl- skyldunnar þann 31. janúar sl. grunaði mig ekki að ég ætti eft- ir að þurfa að kveðja hann í hinsta sinn mánuði síðar. Þá var hann glaður og reifur eins og vant var á mannamótum. Þann- ig mun ég ætíð minnast Péturs Björns. Hans veraldarsýn er til eftirbreytni. Pétur Björn kenndi mér margt sem ég mun aldrei gleyma. Hann kenndi mér margt sem ég mun kenna mínum börnum. Góður Guð blessi Pétur Björn og varðveiti. Elías Blöndal Guðjónsson. Elsku besti afi. Ég á alltaf eftir að muna eftir ferðunum okkar í hraunið hjá Smáraflöt. Þar settumst við á bekki en ímynduðum okkur að við værum á kaffihúsi. Þangað kom Alli álfur og við sátum og spjölluðum um alls konar hluti. Við kíktum einnig eftir síli í læknum eða leituðum að dýra- munstrum í hrauninu. Minnisstæðast er þó þegar þú komst í bóndakaffi á leik- skólanum. Þar borðuðum við saman þorramat, ég sýndi þér leikskólann og við skemmtum okkur rosalega vel saman. Uppáhaldsmaturinn minn er „afa hamborgarar“ sem þú bjóst til. Nú kann pabbi að búa til hamborgarana og við ætlum að hafa „afa hamborgara“ einu sinni í mánuði. Ég mun sakna þín mjög mik- ið. Ólafur Orri Pétursson. Jæja, þá er yngsti bróðir minn farinn, og við systurnar orðnar tvær eftir. Það er vont að missa alla þrjá bræður sína á örfáum árum. Pétur Björn eða PB eins og hann var ávallt kallaður var fimm árum yngri en ég. Hann fæddist heima á Rauðará v/ Skúlagötu 31. janúar 1946. Ekki hafði ég hugmynd um að von væri á nýju barni í fjölskylduna, svoleiðis var ekki rætt við 4-5 ára krakka. Mamma mín var bara feit! Þegar mér var sagt að ég hefði eignast lítinn bróður hugsaði ég „æ, af hverju var það ekki stelpa“, mig hafði allt- af langað í systur (en hana fékk ég átta árum seinna). Drengurinn óx og dafnaði og vorum við góðir vinir alla tíð. Minningarnar hrannast upp og þá einkum frá dvöl okkar í sum- arbústað stórfjölskyldunnar á Þingvöllum. Þangað hreinlega fluttum við þegar skóla lauk á vorin þar til skólastarf hófst að hausti. Þar var sko margt brall- að. Bátsferðirnar þegar ég reyndi að kenna honum að róa, rannsóknarleiðangur ofan í gjánum að leita að hreiðrum. Afi setti upp krikket og vor- um við bara orðin nokkuð góð í þeim leik. Eitt sinn eftir að ég varð flugfreyja hjá Loftleiðum og var að fara til New York rétti hann mér langan lista með nöfnum á plötum (vínil) sem hann langaði í og sagði: „Þú þarft ekkert að kaupa þær allar núna, þá bara næst og þar næst.“ En hvað, auðvitað keypti ég þær allar! Mikið varð hann hissa og glaður og ég líka. PB minn fór alltof fljótt og snöggt og sakna ég míns elsku- lega bróður endalaust. Sofðu, sofðu, blundur blíður brosandi að þér réttir hönd. Engla á vængjum önd þín líður inn í sólrík draumalönd. (Þóra Halldórsdóttir) Guð geymi þig elsku PB minn. Soffía systir. Látinn er vinur minn og frændi, Pétur Björn Pétursson. Andlátið bar brátt að í kjölfar erfiðra veikinda. Við vorum systrasynir. Vegna kærleika í fjölskyldunni var sjálfgefið, að við yrðum góðir vinir allt frá barnæsku. Þótt við byggjum hvor í sínum bæjarendanum stóð heimili afa og ömmu á Hólatorgi okkur barnabörnun- um alltaf opið og þar var ávallt gott að vera. Oft dvaldi stór- fjölskyldan saman í sumarhúsi á Þingvöllum og við veiðar á vatn- inu. Eru margar góðar minn- ingar frá þeim tíma. Pétur Björn skaraði fljótt fram úr og varð barnungur afburða knatt- spyrnumaður, skákmaður góður og vann sér inn reiðhjól í rit- gerðarsamkeppni barna. Á námsárunum stóðum við saman í byggingarframkvæmdum af mikilli bjartsýni með tilheyr- andi streði og ánægju. Eins og gengur varð oft hlé á nánum samskiptum okkar, en alla tíð var með okkur mikil vinátta, sem mótast hafði á bernskuár- um. Pétur Björn sótti sér hag- fræðimenntun erlendis og við heimkomu lagði hann fyrir sig kennslu, sem varð hans ævi- starf. Hann var vinmargur og félagslyndur og tók alla tíð mjög virkan þátt í félagsmálum. Hann var einstakt ljúfmenni og gleðigjafi og vinsæll í sínu starfi og hjálplegur nemendum. Þau Kristín og Pétur Björn nutu þess að ferðast, jafnt innan- lands og utan og fóru þau oft fyrirvaralítið í frábærar borgar- ferðir sér til ánægju. Þau voru einstaklega samlynd og sam- stillt í blíðu og stríðu. Er leið að starfslokum Péturs Björns haustið 2014 tókum við þá ákvörðun að fara í Leiðsögu- skólann saman. Settumst við þá á skólabekk „háaldraðir“ og lukum náminu vorið 2015 með bravúr. Reyndist frændi mér þá betri en enginn með kennara- skipulagi sínu. Námið var ekki aðeins hin besta skemmtun heldur varð þetta fullt starf Péturs Björns til hins síðasta. Varð hann eftirsóttur leiðsögu- maður og naut starfsins í hví- vetna. Nokkrum dögum fyrir andlátið heimsótti ég hann á spítalann. Hann var þá orðinn veikur en engan bilbug var á honum að finna, er hann stakk upp á því, að við skelltum okkur fljótlega í framhaldsnám í leið- sögn. Við ákváðum þá að fara innan skamms í ferðalag okkur hjónunum til yndis, þar sem hann myndi enn einu sinni láta okkur njóta hæfileika sinna sem listakokkur. Sú ferð bíður betri tíma. Pétur Björn varð aðeins 75 ára. Vildi sannarlega lifa lengur og átti margt ógert. Því fáum við ekki sjálf ráðið. Að fá að lifa hamingjusamlega með sínum við góða heilsu er víst það dýrmætasta í lífi hvers manns. Þess fékk hann að njóta um sína daga. Að eiga góðan vin og frænda eru lífsgæði. Fyrir það vil ég þakka. Farðu í friði, góði frændi og vinur, og megi Guð blessa þig, Kristínu þína og fjöl- skylduna. Sigurður Sigurjónsson. Sælkerakokkurinn með stóra hjartað, grallarabrosið og bestu brandarana. Já, þetta eru nokkrar ástæður af mörgum fyrir því að PB var uppáhalds- frændi okkar. Hann tryggði sér það sæti snemma og hélt því alla tíð. Þau voru líka ófá skipt- in sem hann settist hjá okkur systkinunum og hvíslaði að okk- ur: „Hver er uppáhaldsfrændi þinn?“ Þar stóð auðvitað aldrei á svari. Það gat verið fullt hús af fólki í jólaboði þar sem hver tal- aði í kapp við annan en alltaf gaf PB sér tíma fyrir okkur systkinin til að spjalla um lífið og tilveruna. Hann hafði ein- stakt lag á að ná til okkar. Sama hvort við vorum þriggja ára eða 33 ára talaði hann við okkur sem jafningja ásamt því auðvitað að lauma að okkur nokkrum góðum ráðum. Í dag erum við þakklát fyrir allar dýrmætu minningarnar sem við eigum um PB frænda. Ferðalögin þar sem við fengum að veltast um í skottinu á græna Pajerónum, jólahátíðirn- ar þar sem löngum stundum var eytt saman við að gera vel við sig í mat og drykk og allar hin- ar samverustundirnar, hvort sem það var heima hjá okkur eða á Smáraflötinni. Við söknum þín meira en orð fá lýst elsku PB. Þú ert og verður alltaf uppáhaldsfrændi okkar. Við munum æfa leyni- handabandið svo þú getur Pétur Björn Pétursson ✝ Hrönn Arn- heiður Björns- dóttir húsmóðir, fæddist á Dalvík þann 18. sept- ember 1931. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri 10. mars 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Sigrún Júlíus- dóttir og Björn Zophonías Arngrímsson. Eftirlifandi bræður Hrannar eru Hörður, f. 1927, og Gylfi, f. 1938. Látn- ar eru tvíburasystir Hrannar, Alda Hildigunnur, d. 1935, og Anna Björg, f. 1938, d. 2011. Einnig er Garðar, tvíbura- bróðir Gylfa, lát- inn (2019). Hinn 3. nóv- ember 1951 giftist Hrönn Mikael Jó- hannessyni, sem fæddist á Akur- eyri 16. júlí 1927. Hann lést 28. júlí 2001. Börn Hrannar og Mikaels eru: 1) Björn, f. 1950. Kona hans er Sveinsína Guðrún Stein- dórsdóttir, f. 1950. Þau eiga fjögur börn og níu barnabörn. 2) Jóhannes, f. 1953. Kona hans er Guðrún Gísladóttir, f. 1951. Þau eiga þrjú börn og tíu barnabörn. 3) Sigurður, f. 1955. Kona hans er Inga Þor- björg Steindórsdóttir, f. 1955. Þau eiga fjögur börn og átta barnabörn. 4) Sigrún Alda, f. 1964. Hún er gift Sigurði Halldórssyni, f. 1959. Þau eiga tvær dætur og eitt barnabarn. Fyrir á Sigurður tvær dætur. Útför Hrannar Arnheiðar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, föstudaginn 19. mars 2021, klukkan 13. Í ljósi að- stæðna í samfélaginu verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir en útförinni verður streymt á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrar- kirkju. Það er komið að kveðjustund. Hrönn er horfin til æðri heima. Þótt oft liðu mörg ár á milli sam- funda okkar Hrannar slitnuðu aldrei tengslin milli okkar og ekkert bil þurfti að brúa þegar fundum bar saman á ný þótt fjar- lægðin væri stór, ég búsett með fjölskyldu minni í Danmörku. Ég hringdi stundum í Hrönn. Mikið fannst mér alltaf gaman að spjalla við hana, og hún varð alltaf glöð að heyra í mér. Hún átti svör við svo mörgum spurn- ingum um fjölskylduna og mundi svo margt og sagði mér frá gamla tímanum. Dýrmætur fjár- sjóður fyrir mig sem alltaf hef haft sterkar taugar til ættingja minna og áhuga fyrir þeim. Fyrstu æviárin mín bjó ég í Eyrarlandsvegi 20 í stóru þriggja hæða reisulegu húsi sem afi Jóhannes byggði. Þar bjuggu pabbi og mamma með okkur börnin, Mikka, Emil, Brynju og mig, í risinu og Mummi móður- bróðir í kvistherberginu, Gunn- laug amma og afi Jóhannes á miðhæðinni og Mikki móður- bróðir og Hrönn með Bjössa, Jóa og Sigga í kjallaranum og seinna eignuðust þau Sigrúnu. Pabbi og mamma fluttu í Hrafnagilsstræti 28 þegar ég var 6 ára og Ragna Stína systir fæddist þar. Það eru margar minningar, góðar og bjartar. Ég man að Hrönn saumaði poka ut- an um herðatré, með mörgum vösum, til að hengja upp, geyma hluti í. Grænan handa mér og bleikan handa Brynju og gaf okkur í jólagjöf. Sterk fjölskyldubönd, jólaboð og samverustundir, trygg og góð æskuár. Teknar voru fjölskyldu- myndir. Jóhannes, afi okkar góði með barnabörnin átta, Mikka, Hrönn, pabba og mömmu. Það vantaði bara Sigrúnu sem ekki var fædd og Gunnlaug amma var látin. Mér þykjir svo vænt um þessar myndir. Ég finn oft fyrir söknuði þeg- ar ég hugsa um móðurbræður mína, föðursystkini og maka þeirra. Mér þótti mjög vænt um þau öll og minningar frá barn- æsku minni og unglingsárunum heima á Akureyri eru mér svo kærar. Nú hefur Hrönn kvatt, hún lifði þau öll og náði að verða 89 ára. Hrönn hafði næmt fegurðar- skyn, var stórglæsileg og falleg kona, alltaf vel klædd og smart. Myndarleg í höndunum, bæði hvað varðar saumaskap og aðrar hannyrðir. Mikil húsmóðir, kök- urnar hennar voru gómsætar og fallega skreyttar. Þau Mikki áttu alla tíð fallegt og smekklegt heimili. Ég sé Hrönn ljóslifandi fyrir mér og heyri hana hlæja og segja „Gulla …,“ og spyrja svo um líf okkar Gísla og drengjanna í Dan- mörku, um tónlist mína og drauma. Og stríða mér á fjólubláa litnum. Alltaf sýndi hún mikinn áhuga, fylgdist með lífi okkar í fjarlægð, fann til ef eitt- hvað bjátaði á og gladdist yfir velferð og gæfu okkar allra. Elsku frændfólk, Bjössi, Jói, Siggi Sigrún Alda, börn ykkar og makar. Við Gísli, börn, Ragna Stína og fjölskylda, sendum samúðar- kveðjur til ykkar allra. Minnumst Hrannar og þökkum fyrir sam- fylgdina og óskum henni góðrar ferðar í ljósaheiminn, þar sem ég veit að ástvinir munu taka á móti henni og fagna. Nú legg ég augun aftur ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Gunnlaug Hanna Ragnarsdóttir. Hrönn Arnheiður Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.