Morgunblaðið - 19.03.2021, Side 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021
✝
Sigurður Jó-
hann Rui
Helgason fæddist
18. október 2002.
Hann lést 7. mars
2021.
Foreldrar Sig-
urðar Jóhanns eru
Anna María Sig-
urðardóttir og
Helgi Jóhannes-
son. Stjúpmóðir
Sigurðar Jóhanns
er Þórný Jónsdóttir, sambýlis-
kona Helga.
Systkini Sigurðar Jóhanns
eru Anna Lucia Helgadóttir, f.
4. júní 1999, unnusti hennar er
Aakash Gurung, f. 13. október
myndun. Hann hefði lokið ljós-
myndanáminu nú í vor og orðið
stúdent að auki. Hugur hans
stóð til að hefja nám í flug-
virkjun eftir stúdentsprófið.
Sigurður Jóhann var mikill
íþrótta- og útivistarmaður.
Hann var virkur félagi í björg-
unarsveitinni Ársæli, fyrst í
unglingadeild en var nú í þann
mund að ljúka nýliðaþjálfun 1
hjá sveitinni.
Sigurður Jóhann stundaði
brasilískt jiu jitsu í Mjölni og
aðstoðaði við þjálfun yngri
flokka þar.
Útförin fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 19.
mars 2021, klukkan 13. Vegna
sóttvarnareglna er sætafram-
boð í kirkjunni takmarkað við
nánustu ættingja og vini.
Stytt slóð á streymi:
https://tinyurl.com/4ebmae8w
Hlekk á streymi má finna á
https://www.mbl.is/andlat
1997, og Jóhannes
L. L. Helgason, f.
11. október 2004,
unnusta hans er
Sóley Agnarsdótt-
ir, f. 9. september
2004.
Sigurður Jó-
hann hóf skóla-
göngu sína í Ísaks-
skóla en fluttist
eftir eitt skólaár
þar yfir í Hlíða-
skóla þar sem hann lauk
grunnskólaprófi. Eftir grunn-
skólanám hóf Sigurður Jóhann
nám í Tækniskólanum, fyrst á
náttúrufræðibraut-raftækni en
flutti sig svo yfir í nám í ljós-
Elsku vinur, ég vissi það þegar
ég sá þig fyrst að við ættum sam-
leið, eins og tvær gamlar sálir
sem hittast og laðast hvor að ann-
arri. Þú varst sjö ára gömul
strákastelpa með svart sítt hár,
lítil en samt svo stór, fínleg en
samt svo sterk. Þú varst Jóhanna
Lilja.
Eins og með alla nálgaðist þú
mig af varfærni en af miklum
áhuga og við fundum báðar að á
milli okkar var að myndast
strengur sem fljótt varð órjúfan-
legur. Það þurfti ekki alltaf orð
eða aðgerðir, okkur leið bara vel
saman og áður en ég vissi af varst
þú orðin mikilvægasta manneskj-
an í mínu lífi, ert enn og verður
alltaf.
Minningarnar hrannast upp
og myndirnar svo margar. Þú
gafst svo endalaust af þér og
hreifst svo marga með. Brosið
þitt bjarta svo einlægt og skín-
andi, framkoma þín og fas svo
yfirlætislaust.
Ég sé þig þroskast úr barni í
ungan mann. Þú ert Sigurður Jó-
hann og þú fékkst allan þann
stuðning frá fjölskyldunni sem
hugsast gat og einhvern veginn
fannst okkur þetta svo eðlilegt og
mörg okkar hissa að hafa ekki
séð þetta fyrir. Það þurfti djörf-
ung og dug til að stíga þetta skref
en þú gerðir það af æðruleysi og
yfirvegun. Þroski þinn var miklu
meiri en árin gáfu til kynna og
það sem þú áorkaðir á þinni
stuttu ævi var meira en margur
gerði á löngu lífshlaupi.
Þú varst mikill fjölskyldumað-
ur og naust þín hvergi betur en
innan um þitt fólk.
Söknuðurinn er mikill og níst-
andi sár í hjörtum okkar allra.
Elsku vinur, ég kveð þig með
síðasta erindinu í ljóði sem þú
samdir til okkar allra og er svo
einkennandi fyrir þig:
Hugsaðu alltaf það bjarta
gerðu það fyrir mig
og ég meina það með öllu mínu hjarta
að ég elska þig.
Þín
Þórný (Ninna).
Það var mikil gleði og eftir-
vænting sem greip um sig í okkar
litlu fjölskyldu þegar við fréttum
að von væri á Jóhönnu Lilju.
Strax frá upphafi fundum við að
þar fór einstök lítil manneskja
sem var staðföst, dugleg og vissi
hvað hún vildi. Í æsku kærði hún
sig lítt um dúkkur og tjullpils –
fann sig betur í boltaleikjum og
„strákafötum“. Átti jafnan fleiri
stráka að vinum en stelpur, var
góð í öllum íþróttum og alltaf val-
in fyrst í liðið í frímínútum. Undir
lok grunnskóla hreyfði hún því
við foreldra sína að hún skynjaði
sig í röngum líkama og vildi leið-
rétta það. Enginn sem ekki hefur
upplifað það sjálfur getur ímynd-
að sér hvers konar djörfung og
þor þarf til að standa með sjálfum
sér og ákveða slíkt. Að sjálfsögðu
stóð öll fjölskyldan með henni og
studdi við bakið á henni og Sig-
urður Jóhann Rui innritaðist í
Tækniskólann.
Sigurður Jóhann var einstakur
ungur maður. Góður námsmaður
sem bjó yfir mikilli þrautseigju
og seiglu og lagði rækt við hæfi-
leika sína án þess þó að skyggja á
aðra. Þvert á móti lagði hann sig
fram um að hvetja og hjálpa öðr-
um að ná markmiði sínu og veitti
öðrum pláss til að láta ljós sitt
skína. Samkennd var honum í
brjóst borin, hann var nærgætinn
og uppörvandi – fas hans allt og
framkoma falleg og kærleiksrík.
Jóhann var mikið náttúrubarn
og gekk oft á fjöll. Því áhugamáli
deildi hann með föður sínum og í
fjallamennskunni voru þeir ekki
aðeins feðgar heldur félagar og
nánir vinir sem reiddu sig hvor á
annan. Styrkti það og dýpkaði
traust og fallegt samband þeirra
enn frekar. Fjallamennskan sam-
einaði allt það sem Jóhann brann
fyrir, útsjónarsemi, glímu við
fjallið sem honum var í mun að
sigrast á, líkamlegt erfiði og sam-
veru með öðrum í náttúru Íslands
þar sem hann veitti samferða-
mönnum uppörvun og stuðning
alla leið. 16 ára gamall fann hann
að hann treysti sér eftir nokkurn
undirbúning til að takast á hend-
ur þriggja daga Laugavegsgöngu
ásamt jafnaldra sínum. Af stað
fóru þeir – með allt á bakinu.
Ferðalagið reyndi auðvitað á
ungu mennina, þeir voru þreytt-
ir, blautir og þrekaðir. Engu að
síður lögðu þeir lykkju á leið sína
til að koma ferðamanni sem hafði
villst af leið til hjálpar og vísa
honum á réttan veg. Þetta ferða-
lag hafði mikil og jákvæð áhrif á
Jóhann. Þeir félagar náðu mark-
miði sínu. Tókst það sem lagt var
upp með.
Sigurður Jóhann hreyfði við
fólki og snerti hjarta þess. Elsk-
aður sonur, bróðir, ömmubarn,
frændi og vinur. Björgunarsveit-
armaður sem bar virðingu fyrir
öðrum, var alltaf til taks og allir
gátu reitt sig á. Jiu-jitsu-glímu-
maður og farsæll leiðbeinandi í
barnastarfinu hjá Mjölni – iðk-
andi sem aðrir litu til. Þá var Jó-
hann efnilegur ljósmyndari sem
fangaði augnablikið af næmi og
listfengi og góður ræðumaður
sem heillaði jafnt lærða sem leika
með framkomu sinni, kímni og á
stundum heimspekilegri orð-
ræðu. Er hér aðeins fátt eitt talið.
Á sinni stuttu ævi hafði hann
margt unnið sem mörgum lánast
ekki á löngum tíma. Fyrst og síð-
ast var hann þó fjölskyldumaður.
Samband hans við móður sína og
systkini var náið og afar gott. Í
Hörgshlíðinni var mikið spjallað.
Þar ríkti traust, ástúð og vinátta
og stuðningur var vís.
Síðustu ár bjó Jóhann alfarið
hjá Helga bróður mínum og Þór-
nýju á Flókagötu. Heima fyrir
var Jóhann sjálfstæður, snyrti-
legur og agaður í allri umgengni.
Hann vildi hafa fáa hluti en vand-
aða í kringum sig, var sjálfum sér
nógur þegar hann vildi það við-
hafa en hafði einnig ánægju af
góðum félagsskap og samræðum
og lagði þar jafnan gott til mála.
Hundunum Kötlu og Sámi sinnti
enginn eins og hann. Samband
hans við Þórnýju stjúpmóður
sína var einkar fallegt og náið og
einkenndist af mikilli væntum-
þykju, kærleik, virðingu og hlýju.
Vörðu þau miklum tíma saman.
Daglega gaf hann sér tíma til að
hringja í ömmu sína bara rétt til
að heyra í henni hljóðið, fór til
hennar og heilsaði upp á hana eða
kom með hana í kvöldmat til okk-
ar á Freyjugötuna. Alltaf hrósaði
hann matnum og sýndi matreiðsl-
unni áhuga en sjálfur var hann
fyrirtaks kokkur og eldaði sér
iðulega mat heima fyrir þegar
þannig stóð á. Milli okkar Jó-
hanns var einstakt samband. Við
heyrðumst mjög oft í síma og
hittumst oft. Stundum kom hann
við í vinnunni hjá mér bara rétt
eins og hann vildi líta til með mér
– vildi að ég vissi af honum. Vissi
að hann var þar. Hann var næm-
ur og skynjaði umhverfi sitt og
líðan annarra á annan hátt en
vanalegt er um fólk. Oft fannst
mér hann vera eins og gömul sál
full af visku og ró.
Það var okkar lán, gleði og
hamingja að fá að fylgjast með
Jóhanni vaxa upp og þroskast svo
fallega. Hófsemi hans, reglusemi
og hjálpsemi hafa alltaf vakið að-
dáun og það var lærdómsríkt fyr-
ir okkur öll að reyna á eigin skinni
hve umhyggjusamur hann var við
aðra, réttsýnn og sanngjarn –
grunngildi sem voru honum eðli-
leg allt frá barnæsku. Jóhann var
ræktarsamur með eindæmum, las
vel í allar aðstæður og sá fegurð
jafnt í hinu smáa sem stóra.
Ógleymanlegt bros hans var svo
blítt, fas hans svo létt, hvert
faðmlag svo þétt. Sigurður Jó-
hann Rui var einstakur mann-
kostamaður sem brá ljóma á um-
hverfi sitt. Harmur, sorg og sár
söknuður fyllir hug og hjarta.
Kristín Jóhannesdóttir.
Það er þungbært að kveðja
unga manneskju sem á framtíðina
fyrir sér. Sigurður Jóhann vinur
okkar og frændi var mikill mann-
kostamaður og einstaklega góður
drengur. Hann var brosmildur,
hvetjandi, hugrakkur og fallegur.
Hann var afar stoltur af fjöl-
skyldu sinni og fjölskylda hans
var ekki síður stolt af honum.
Hann var líka frábær bróðir og
elskaður sonur.
Þessi einstaka manneskja kom
næstum eins langa leið og mögu-
legt er til foreldra sinna. Það var
afar gefandi að sjá hana svo
þroskast og eflast og verða að
þeirri heilsteyptu manneskju sem
Sigurður Jóhann var. Íþróttir og
útivist áttu hug hans allan og nut-
um við skemmtilegra stunda sam-
an síðustu ár á skíðum og í fjall-
göngum. Á skíðunum í Austurríki
voru þeir feðgar auðvitað fyrstir
af stað á morgnana og síðastir
heim. Það var ekki verið að sól-
unda of löngum tíma í mat enda
voru þeir komnir til að njóta
fjallanna.
Við kveðjum Sigurð Jóhann
með miklu þakklæti. Þrátt fyrir
ungan aldur skilur hann mikið
eftir sig. Við sem vorum svo lán-
söm að þekkja hann erum auðugri
því hann kenndi okkur svo margt.
Við sendum okkar kæru vinum
Helga og Þórnýju, Önnu Maríu,
systkinunum Önnu Luciu og Jó-
hannesi og fjölskyldunni allri okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Minningin um einstakan dreng lif-
ir.
Halldóra og Þór.
Jóhann var eins og sólargeisli,
hlýr og nærandi. Þetta skynjuðu
allir sem honum kynntust. Allt
frá því að við hittum hann fyrst,
þá barn að aldri, vorum við sam-
mála um að þar færi mun þrosk-
aðri einstaklingur en aldur hans
sagði til um. Jóhann var ekki að-
eins yfirvegaður og góðviljaður
heldur líka hjálpsamur og iðinn
svo eftir var tekið. Sérstaklega er
eftirminnileg ferð á Hornstrandir
en þá var hann um 10 ára gamall.
Þar gaf hann fullorðna fólkinu
ekkert eftir og naut hvers augna-
bliks í glímu við fjöllin, veiðar og
við vinnu. Greinilegt var að þar
fór barn sem naut sín vel í
óspilltri náttúrunni.
Jóhann varð líka fyrirmyndar-
unglingur, næstum of góður til að
geta talist raunverulegur. Það
virtist lítið raska ró hans. Síðar
bættist við staðfesta og hugrekki
sem snerti okkur öll. Svo sann-
arlega var hann elskaður af sín-
um nánustu, sem studdu hann af
heilum hug á vegferð hans og um-
vöfðu hann kærleik. Það þótti öll-
um sem kynntust þessum ljúfa
dreng vænt um hann.
En hvað erum við manneskj-
urnar nema hylki utan um sál
okkar og hjarta? Þótt maður elski
einhvern meira en orð fá lýst og
strengurinn sem tengir sé sterk-
ur getur maður aldrei séð þangað
inn. Það bera svo sannarlega ekki
allir tilfinningarnar utan á sér.
Við erum sannfærð um að Jóhann
elskaði lífið, það gerir sá sem gef-
ur af sér eins og hann gerði. Hann
treysti sér hins vegar ekki til að
lifa því áfram. Sú staðreynd er
sársaukafull. Eftir sitja minning-
ar um hann, hlýjar og nærandi.
Kæra fjölskylda við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð. Meg-
ið þið finna styrk í sorg ykkar.
Valtýr og
Sigríður (Níní).
Eins og allir vita sem elt hafa
föður hans á fjöll var Sigurður Jó-
hann sjaldan langt undan þegar
Helgi var annars vegar svo hænd-
ur sem hann var að föður sínum
og þeim Ninnu báðum. Fimm-
vörðuháls var líklega fyrsta gang-
an sem við fórum í með þeim feðg-
um en þær urðu miklu fleiri og
margar minnisstæðar. Hvanna-
dalshnúkur var þeirra á meðal, en
líka dýrleg ferð á Hornstrandir,
Heljardalsheiði, Víknaslóðir og
Vöðlavík svo einhverjar séu
nefndar. Jóhann var sporléttur og
brosmildur, skrafhreifinn þegar
svo bar undir og áhugasamur um
allt sem fyrir augu bar, bæði mó-
tífin og náttúruna sem slíka, enda
hafði hann bæði næmt auga fyrir
ljósmyndun og bar náttúruvernd
meira fyrir brjósti en títt er um
fólk á hans aldri. Sem fjallgöngu-
garpur þekkti hann vel þá áskor-
un sem felst í að sigra tindinn en
vissi þó jafn vel að hann er aðeins
áfangi á lengri leið og gangan
áfram eftir að á hólminn er komið
er oft ekki síður erfið viðureignar
en leiðin upp.
Þegar Helgi tilkynnti á FB
fyrir tæpum þremur árum um
tímamótin í lífi Sigurðar Jóhanns
fylltumst við stolti yfir að hann
hefði tekið þetta skref. Eins og
faðir hans sagði sjálfur virtist það
rökrétt framhald á tilveru hans
fram að því og eins og hann
treystum við engum betur en Jó-
hanni til að höndla þær áskoranir
sem framtíðin bæri í skauti sér.
Það veit þó enginn fyrr en reynt
hefur hverjar þær eru og jafnvel
þótt hann ætti stuðning vísan alls
staðar í umhverfinu vitum við nú
að stærstu glímuna hefur hann
háð við sig sjálfan.
Um leið og við fögnum fjöl-
breytileikanum og auknu um-
burðarlyndi í þjóðfélaginu í dag
skulum við muna að því fylgir
ákveðin áskorun fyrir hvern þann
sem ekki nær að spegla sig í sam-
félaginu að takast á við sjálfan sig
og finna sér sinn farveg í lífinu.
Oft tengjum við fjölbreytileikann
við gleðigönguna og glaum og
glys sem henni fylgir. Gleðigang-
an og almenn þátttaka í henni er
sannarlega fagnaðarefni en við
skulum þó ekki gleyma því að
hún er líka uppskeruhátíð ein-
staklinga sem hafa þurft að gera
upp við sig erfiðar spurningar í
lífinu, oft á ungum aldri. Mest um
vert er að við höldum áfram að
styðja við þessa einstaklinga, hlú-
um að og lítum til með þeim, bæði
sem samfélag og hvert okkar um
sig. Þannig höldum við minning-
unni um Sigurð Jóhann hæst á
lofti. Hugrakkan strák sem hljóp
með okkur á fjöll frá unga aldri,
náði að sigra svo marga tinda og
stóð með sjálfum sér í lífinu.
Sigurður Jóhann átti trausta
bakhjarla í báðum foreldrum sín-
um, Þórnýju, systkinum sínum
og ömmu, og bjó frá fyrstu tíð að
kærleiksríku uppeldi og góðu at-
læti þeirra og stórfjölskyldunnar
allrar. Hjá þeim öllum er hugur
okkar í dag og með þeim munum
við minnast hans um ókomna tíð.
Davíð Samúelsson og
Kristján Andri Stefánsson.
Það var mikil gæfa þegar Anna
María og Helgi fóru til Kína til að
ættleiða Sigurð Jóhann. Frá
fyrstu tíð var bjart yfir Sigurði Jó-
hanni og hann var einstaklega
skemmtilegt og þægilegt barn
með góða nærveru. Þegar hann óx
úr grasi komu í ljós þeir miklu
mannkostir sem Sigurður Jóhann
bjó yfir. Hann var yfirvegaður,
skynsamur og lífsglaður með
mikla kímnigáfu. Einnig lét hann
sig miklu varða líðan og hagi ann-
arra. Þannig var hann alltaf til-
tækur fyrir aðra en var sjálfur
ekki að óska eftir einhverju fyrir
sig.
Á sinni stuttu ævi stóð Sigurð-
ur Jóhann frammi fyrir margvís-
legum og miklum áskorunum.
Allt hans umhverfi tók þeim for-
dómalaust og af miklum stuðn-
ingi. Hann sjálfur tókst á við þær
svo eftir var tekið og vakti að-
dáun. Framtíðin blasti því við
honum og lífið allt fram undan.
Því komu tíðindin um fráfall hans
eins og þruma úr heiðskíru lofti.
Minningin um góðan dreng mun
hins vegar lifa. Þótt sorgin sé
mikil og sár erum við þakklát
fyrir samferðina með honum.
Við öll fjölskyldan á Freyju-
götu 37 vottum fjölskyldu Sigurð-
ar Jóhanns og ættingjum hans
okkar dýpstu samúð. Megi allt
gott í þessum heimi styrkja ykk-
ur og styðja.
Benedikt og Úlla.
Það gefur hlýju í hjartað að
hugsa til barnæskunnar, sem
voru bestu árin mín hingað til, og
sjá hvað Jóhanna Lilja var stór
hluti af mörgum minningum
hennar. Uppáhaldsminningin
mín um Jóhönnu er frá því við
vorum saman í skíðabrekkunum
á Ítalíu. Við vorum tíu ára gaml-
ar. Það kemur kannski fáum á
óvart að Jóhanna gat skíðað nið-
ur bröttustu brekkurnar eins og
hún hefði aldrei gert annað. Samt
sem áður taldi Jóhanna það ekki
eftir sér að bíða eftir mér þegar
ég var komin eftir á og skíða á
mínum hraða niður. Þetta lýsir
því hvernig manneskja hún var,
þolinmæðin, góðmennskan,
traustið og réttlætið í fyrirrúmi.
En það er aðeins brot af þeim
einstöku mannkostum sem hún
var gædd.
Þrátt fyrir að samband okkar
hafi aðeins fjarað út þegar Sig-
urður Jóhann kom til sögunnar
vissi ég að hann var alltaf sami
duglegi, góðhjartaði og hæfi-
leikaríki einstaklingurinn. Allt
sem hann gerði á þessum átján
árum er mikið afrek og ég tek
hatt minn ofan fyrir honum fyrir
að hafa hugmyndaflug, hugrekki
og kjark í að ná sínum markmið-
um. Ég var alltaf með þá trú að í
framtíðinni myndi ég hafa hann
til staðar, ég ætlaði að nýta mér
ljósmyndahæfileika hans og ein-
hvern tímann fara aftur með hon-
um á skíði. Ég er ennþá að átta
mig á þeim skrítna raunveruleika
að það er ekki að fara að gerast.
Ég mun samt klárlega taka hann
mér til fyrirmyndar og lifa lífinu
lifandi eins og hann gerði alltaf!
Ég þakka fyrir þau sextán ár sem
við þekktumst og vináttu sem
aldrei bar skugga á. Þrátt fyrir
að sársaukinn sé óbærilegur ætla
ég að trúa því að Sigurður Jó-
hann sé kominn á betri stað núna.
Og minningu hans mun ég alltaf
geyma í hjarta mér.
Sigrún Ásta Halldórsdóttir.
Stórt skarð hefur verið höggv-
ið í hópinn okkar. Við vorum sjö
sem komum heim til Íslands frá
Kína með foreldrum okkar fyrir
18 árum. Við köllum okkur Kína-
hópinn eða Kínafjölskylduna og
höfum haldið hópinn í gegnum
tíðina, hist til að leika, spjalla, eða
fara í bústað og gistiheimsóknir.
Þannig tengdumst við frá upphafi
böndum sem eru okkur dýrmæt,
við eigum sameiginlega sögu um
uppruna okkar í öðru landi og
enn meiri sögu um margvíslegar
gefandi samvistir hér á landi.
Sigurður Jóhann Rui var einn
af okkur. Síðast þegar við hitt-
umst öll til að eiga saman helgi í
Reykjanesbæ hjá Hjördísi kom
hann og gisti með okkur. Hann
var léttur og brosandi, afslapp-
aður og rólegur. Hann bauð okk-
ur að spyrja allra þeirra spurn-
inga sem við vildum um
transferilinn sinn sem þá var ný-
hafinn, og við fögnuðum því að nú
ættum við bróður. Það var frá-
bært að fylgjast með Sigurði Jó-
hanni, svo flottur, alltaf á fjöllum
á skíðum, í björgunarsveitinni, að
æfa í Mjölni, og með ljósmynda-
vélina. Alltaf með sitt ljúfa bros
og kankvísa augnaráð. Við sökn-
Sigurður Jóhann
Rui Helgason
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar
í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru
eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn.
Minningargreinar