Morgunblaðið - 19.03.2021, Síða 33

Morgunblaðið - 19.03.2021, Síða 33
sem leiddi það af sér að 2014 útskrif- aðist ég sem veiðihundadómari eftir tveggja ára nám. Það er sama hvort um skot- eða stangveiði er að ræða, mér finnst ég alltaf vera á réttum stað þegar ég glími við náttúruna á veiðislóð. Það er í rauninni undar- legt að ég búi á mölinni.“ Fjölskylda Eiginkona Kjartans er Ingibjörg Svansdóttir, f. 23.5. 1975, þroska- þjálfi frá Háskóla Íslands. Þau eru búsett í Árbænum. Foreldrar Ingi- bjargar: Svanur Bragason, f. 19.2. 1945, d. 3.8. 2018, trésmiður og Alda Jónsdóttir, f. 8.5. 1950, verslunar- kona, búsett í Reykjavík. Dætur Kjartans og Ingibjargar eru 1) Sunneva Líf Lorange, f. 29.12. 1996 í sambúð með Guðjóni Reyni Guðjónssyni, f. 29.4. 1994, og eiga þau eina dóttur, Móeiði Marín, f. 15.1. 2021; 2) Sylvía Lorange, f. 23.8. 2003, í sambandi með Arnari Frey Böðvarssyni, f. 27.8. 2003. Alsystir Kjartans er er Linda Lorange, f. 3.11. 1965, hundasnyrtir, búsett í Danmörku, Hálfsystkini Kjartans: Birgir Lorange, f. 26.6. 1951, d. 28.8. 2003. Magnús Jón Sig- urðsson, f. 2.7. 1957, kerfisfræð- ingur, búsettur í Kópavogi; Alda Björk Sigurðardóttir, f. 8.9. 1959, bókari, búsett í Reykjavík; Ásta Kristín Lorange, f. 23.2. 1961, offset- prentari, búsett í Kópavogi. Foreldrar Kjartans voru hjónin Elsa Sigurðardóttir Lorange, f. 10.12. 1935, d. 24.10. 2017, hár- greiðslukona og verslunarkona í Reykjavík, og Kjartan Lorange, f. 25.10. 1926, d. 12.4. 2009, flugvirki og verslunarmaður í Reykjavík. Kjartan Ingi Lorange Aage Reinhold Lorange apótekari í Stykkishólmi Caroline Emelie Lorange kennari í Stykkishólmi og Reykjavík Kai Emil Lorange verslunarmaður í Reykjavík Guðbjörg Guðjónsdóttir verkakona í Reykjavík Kjartan Lorange flugvirki og verslunarmaður í Reykjavík Guðjón Jónsson bóndi og trésmiður á Litlu-Brekku Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja á Litlu-Brekku í Geiradal, A-Barð. Þuríður Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Ólafur Jónatansson verkamaður í Reykjavík Sigurður Jón Ólafsson söngvari í Reykjavík Alda Valborg Jónsdóttir Polaski húsfreyja í Kaliforníu Jón Hjörleifsson bóndi í Hellukoti Margrét Ólafía Runólfsdóttir húsfreyja í Hellukoti á Vatnsleysuströnd Úr frændgarði Kjartans Inga Lorange Elsa Sigurðardóttir Lorange hárgreiðslukona og verslunarkona í Reykjavík DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021 Slökun eftir langan dag! Hefur þú settmagnesíum flögur í heita pottinn? Það er einstaklega slakandi og róandi fyrir líkama og sál. Magnesíumbað getur dregið úr þreytu og lúa og undirbúið okkur betur undir svefninn. Settu magnesíum flögurnar frá BetterYou út í vatnið og njóttu kærkominnar slökunar. Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. „ÞAÐ EINA SEM ÞÚ TALAR UM ER VEÐRIÐ. VIÐ EIGUM AÐ HRÆÐA FUGLANA, EKKI DREPA ÞÁ ÚR LEIÐINDUM.“ „HANN LANGAR TIL AÐ SEGJA ÞÉR AÐ LYFIN VIRKI EKKI.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að ganga veg hamingjunnar saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LEIÐIST SVO MIKIÐ ÞETTA HJÁLPAR SMÁ EINN ÚR LIÐINU LÆDDIST INN Í KASTALANN. HANN MUN KVEIKJA Á KYNDLI ÞEGAR VÖRÐURINN SOFNAR! HVER FÓR? KÁRI „KLAUFABÁRÐUR“! Eyjólfur Ó. Eyjólfsson skrifaðifyrir viku rúmri í Boðnar- mjöð: „Uppi eru hugmyndir í borg- arstjórn um að friðlýsa Grafarvog- inn og leirurnar í honum. Þetta er þröngsýnt fólk sem hugsar skammt og sér ekki sólina fyrir fuglum og öðru náttúrurugli. Því legg ég fram vel ígrundaða hug- mynd sem ekki er á draumórum byggð“: Nú aukum við íbúagæði og stöðvum allt stórsjávarflæði en flestir menn sjá að við fyllingu þá fæst fyrirtaks sportbílastæði. Jón Gissurarson skrifaði á dög- unum: „Eftir blíðviðri undanfarna daga og vikur er nú komin norð- austan hríðarjagandi með strekk- ingsvindi. Meðalvindhraði er nú um 15 m sek. Hefur mest farið í 22 m sek. síðasta sólarhring“: Hrellir tíðin mann og mey magnast hríðin getur. Eftir blíðu yl og þey að mér kvíða setur. Hólmfríður Bjartmarsdóttir gef- ur ráð við kvefi: Mitt er ráðið meira en falt mín er reynsla það er satt. Að brennivínið bætir allt bara það sé drukkið hratt. Enn yrkir Hólmfríður: Mikið var Málfríður ríka málug og karlskrattinn líka. Heima hjá þeim var oft heilmikið geim og baneitruð kjaftaklíka. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Sigríður Ólafsdóttir yrkir: Framtíðin verður ljúf og létt um lífsins beinan veg því bæði erum bólusett bóndinn minn og ég. „Nostalgía“, – Páll Jónasson í Hlíð orti: „Við síladráp áður ég undi,“ sagði værukær aldraður lundi. „Þá hræddist ég fátt og hafið var blátt og gaman á Grímseyjarsundi.“ Á fyrstu blaðsíðu Ljóðmæla Páls Andrés Björnsson orti: Arkipela- yfir –gus öðling sigla náði, fjöllum Káka- fram í –sus fólkorrustu háði. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sportbílastæði og Málfríður ríka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.