Morgunblaðið - 19.03.2021, Side 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021
Evrópudeild karla
16-liða úrslit, seinni leikir:
Molde – Granada...................................... 2:1
- Björn Bergmann Sigurðarson lék fyrstu
63 mínúturnar með Molde.
_ Granada áfram, 3:2 samanlagt.
Arsenal – Olympiacos ............................. 0:1
- Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik-
mannahópi Arsenal.
- Ögmundur Kristinsson var ekki í leik-
mannahópi Olympiacos.
_ Arsenal áfram, 3:2 samanlagt.
Dinamo Zagreb – Tottenham ......... (frl.) 3:0
_ Dinamo áfram, 3:2 samanlagt.
Shakhtar Donetsk – Roma ...................... 1:2
_ Roma áfram, 5:1 samanlagt.
AC Milan – Manchester United.............. 0:1
_ Manch. Utd áfram, 1:0 samanlagt.
Rangers – Slavia Prag ............................. 0:2
_ Slavia áfram, 3:1 samanlagt.
Villarreal – Dynamo Kiev........................ 2:0
_ Villarreal áfram, 4:0 samanlagt.
Young Boys – Ajax ................................... 0:2
_ Ajax áfram, 5:0 samanlagt.
4.$--3795.$
Þýskaland
RN Löwen – Ludwigshafen ............... 31:27
- Ýmir Gíslason skoraði ekki fyrir Löwen.
Hannover-Burgdorf – Magdeburg.... 27:29
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 5.
Lemgo – Leipzig.................................. 28:23
- Bjarki Már Elísson skoraði 8 mörk fyrir
Lemgo.
_ Flensburg 32, Magdeburg 30, Kiel 29,
RN Löwen 28, Füchse Berlín 27, Göppin-
gen 25, Bergischer 24, Melsungen 21,
Wetzlar 21, Leipzig 21, Stuttgart 21,
Lemgo 20, Erlangen 20, Hannover-Burg-
dorf 18, Minden 14, Balingen 11, Lud-
wigshafen 9, Nordhorn 9, Essen 7, Coburg
7.
Pólland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Kielce – Wisla Plock............................ 29:27
- Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 3
mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er
frá keppni vegna meiðsla.
Svíþjóð
8-liða úrslit, fyrsti leikur:
Skövde – Alingsås ............................... 26:24
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði
ekki fyrir Skövde.
- Aron Dagur Pálsson lék ekki með Al-
ingsås.
Sviss
Wacker Thun – Kadetten ................... 27:31
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten
sem er í öðru sæti deildarinnar.
%$.62)0-#
Dominos-deild karla
Þór Þ. – Stjarnan.................................. 92:83
Höttur – KR.......................................... 97:98
Haukar – Grindavík ............................. 76:81
Valur – Tindastóll ................................. 90:79
Staðan:
Keflavík 14 12 2 1289:1119 24
Þór Þ. 15 10 5 1472:1347 20
KR 15 10 5 1366:1373 20
Stjarnan 15 10 5 1403:1327 20
Grindavík 15 8 7 1344:1370 16
Valur 15 7 8 1255:1272 14
ÍR 14 7 7 1240:1226 14
Þór Ak. 14 6 8 1237:1299 12
Tindastóll 15 6 9 1339:1383 12
Njarðvík 14 5 9 1173:1203 10
Höttur 15 4 11 1316:1404 8
Haukar 15 3 12 1244:1355 6
1. deild kvenna
Vestri – Fjölnir b .................................. 47:79
Staðan:
ÍR 11 10 1 741:566 20
Njarðvík 10 9 1 785:544 18
Grindavík 11 7 4 803:705 14
Fjölnir b 10 5 5 684:614 10
Hamar-Þór 11 5 6 690:723 10
Stjarnan 11 4 7 710:737 8
Tindastóll 12 4 8 653:759 8
Vestri 13 3 10 713:983 6
Ármann 9 2 7 527:675 4
NBA-deildin
Detroit – Toronto ............................. 116:112
Indiana – Brooklyn........................... 115:124
Philadelphia – Milwaukee....... (frl.) 105:109
Washington – Sacramento............... 119:121
Cleveland – Boston........................... 117:110
Chicago – San Antonio....................... 99:106
Houston – Golden State..................... 94:108
Memphis – Miami................................. 89:85
Denver – Charlotte........................... 129:104
Dallas – LA Clippers.......................... 105:89
_ Efst í Austurdeild: Philadelphia 28/13,
Brooklyn 28/13, Milwaukee 26/14, Miami
22/19, Charlotte 20/19, Atlanta 20/20.
_ Efst í Vesturdeild: Utah 29/10, Phoenix
26/12, LA Lakers 27/13, LA Clippers 26/16,
Denver 24/16, Portland 23/16, San Antonio
21/16, Dallas 21/18, Golden State 21/20.
4"5'*2)0-#
KÖRFUBOLTINN
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Þór frá Þorlákshöfn tók annað sætið
af Stjörnunni er liðin mættust í 15.
umferð úrvalsdeildar karla í körfu-
knattleik, Dominos-deildinni, í gær-
kvöldi. Eftir tvö töp í röð í síðustu
leikjum unnu Þórsarar sætan 92:83-
heimasigur á Garðbæingum og fóru
fyrir vikið upp í 20 stig og í annað
sætið. Þetta er annar sigur Þórs á
Stjörnunni á tímabilinu, liðið vann
fyrri leikinn 111:100 í Garðabænum,
og þá var þetta annar tapleikur
Stjörnunnar í röð.
Að vísu fóru gestirnir betur af stað
í leiknum og voru með fínt forskot í
hálfleik, 46:33. Það var svo eitthvað
allt annað Þórslið sem mætti til leiks
eftir hlé, með Litháann Adomas
Drungilas í fararbroddi. Sá tók tíu
fráköst og gaf níu stoðsendingar á fé-
laga sína ásamt því að skora tíu stig.
Stigahæstur var Callum Lawson
með 21 stig fyrir heimamenn en
Ægir Þór skoraði 20 fyrir Stjörnuna.
Þrjú lið eru nú með 20 stig í 2.-4.
sæti. Þórsarar eru í öðru sætinu
vegna innbyrðis viðureigna, KR í
öðru og Stjarnan í þriðja. Keflavík er
því áfram með fjögurra stiga forystu
á toppi deildarinnar og á að auki eftir
að spila í þessari umferð, liðið mætir
nágrönnum sínum í Njarðvík í kvöld.
Valur að komast á skrið
Það virðist sem gríðarlega vel
mannað lið Vals sé að komast á skrið
en liðið vann sinn þriðja sigur í röð er
það lagði Tindastól að velli á Hlíðar-
enda, 90:79. Liðin voru jöfn í deild-
inni fyrir leikinn, bæði með 12 stig í
8. og 9. sæti. Valsarar virðast hins
vegar nú á uppleið, eru komnir í 6.
sæti, tveimur stigum á eftir Grinda-
vík. Tindastóll virðist aftur á móti á
leið í öfuga átt, Sauðkrækingar hafa
nú tapað fjórum af síðustu fimm
leikjum sínum og eiga á hættu að
sogast niður í fallbaráttuna.
KR vinnur áfram á útivelli
Mikil dramatík var á Egilsstöðum
þar sem heimamenn í Hetti tóku á
móti KR. Nýliðarnir voru yfir lengst
af og grátlega nálægt fræknum sigri
en Vesturbæingar héldu uppteknum
hætti er þeir unnu enn einn útileik-
inn í vetur, 98:97. KR hefur nú unnið
alla átta útileiki sína á tímabilinu en
stórliðið þurfti heldur betur að hafa
fyrir því í gær. Heimamenn voru yfir
lengi vel, með Michael Mallory í aðal-
hlutverki en hann skoraði 27 stig,
flest allra. Þegar fimm sekúndur
voru til leiksloka skoraði Tyler Sabin
hins vegar þriggja stiga körfu sem
reyndist sú síðasta í leiknum. Sabin
skoraði 26 stig í gær og hefur heldur
betur reynst KR-ingum drjúgur í
vetur. Eftir fimm leikja sigurhrinu
fengu KR-ingar skell í síðustu um-
ferð þegar erkifjendurnir í Val komu
í heimsókn og unnu sinn fyrsta sigur
í Vesturbænum í 22 ár. Það hefði
gert illt verra að tapa gegn nýlið-
unum í gær en KR-ingar sneru aftur
á sigurbraut, með herkjum. Höttur
er hins vegar áfram í fallsæti með
átta stig og hefur nú tapað síðustu
þremur leikjum sínum.
Grindavík lagði botnliðið
Botnlið Hauka mátti þola 81:76-
tap á Ásvöllum gegn Grindavík í
fyrsta leik liðsins eftir að þjálfarinn
Israel Martin var látinn taka poka
sinn í vikunni. Sævaldur Bjarnason,
sem var aðstoðarmaður Martins,
stýrði liðinu af hliðarlínunni í gær en
hafði þó ekki erindi sem erfiði að
þessu sinni. Bandaríkjamaðurinn
Kazembe Abif skoraði 25 stig fyrir
Grindvíkinga sem tylltu sér í 5. sætið
og hafa þar 16 stig. Eru fjórum stig-
um frá næstu liðum og tveimur á
undan ÍR.
Þórsarar
tóku ann-
að sætið
- Valsarar að komast á skrið
- Áttundi útisigurinn í röð hjá KR
Morgunblaðið/Eggert
Innkoma Jordan Roland sækir að körfunni á Hlíðarenda í gærkvöldi. Sá
hefur komið vel inn í Valsliðið og skorað að meðaltali 29 stig í leik.
Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhann Berg
Guðmundsson, Jón Daði Böðvars-
son og Rúnar Alex Rúnarsson mega
koma til Þýskalands vegna leiksins
gegn Þjóðverjum í Duisburg í und-
ankeppni HM næsta fimmtudag.
Heilbrigðisyfirvöld í Nordrhein-
Westfalen, sem Duisburg tilheyrir,
heimiluðu í gær þýska knattspyrnu-
sambandinu að taka á móti leik-
mönnum frá Bretlandseyjum, með
mjög ströngum skilyrðum. Sama
gildir þá um leikmenn þýska lands-
liðsins sem spila með enskum lið-
um.
Mega koma til
Þýskalands
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leyfi Jóhann Berg Guðmundsson
og Gylfi Þór Sigurðsson.
Octavio Páez, 21 árs gamall knatt-
spyrnumaður frá Venesúela, er
genginn til liðs við Reykjavíkur-
félagið Leikni, sem er nýliði í úr-
valsdeildinni í ár, og leikur með því
á komandi tímabili. Páez er miðju-
maður og var í röðum króatíska fé-
lagsins Istra frá árinu 2018. Þar lék
hann aðallega með yngri liðum fé-
lagsins en einnig sjö leiki í efstu
deild, síðast í september 2020, en
hann hefur verið samningslaus síð-
an í október. Páez lék á sínum tíma
fimm leiki með U17-ára landsliði
Venesúela.
Frá Venesúela
í Breiðholtið
Ljósmynd/Leiknir
Mættur Octavio Páez er kominn til
liðs við Leiknismenn.
Manchester United og Arsenal
halda uppi heiðri Englands í átta liða
úrslitum Evrópudeildarinnar í fót-
bolta á meðan Tottenham lauk
keppni með dapurlegri frammistöðu
í Zagreb í gærkvöldi.
Paul Pogba tryggði United sætan
útisigur gegn AC Milan á San Siro,
1:0, og þar með 2:1 samanlagt, með
laglegu marki á annarri mínútu síð-
ari hálfleiks. Honum hafði verið
skipt inn á sem varamanni í hálfleik.
Arsenal tapaði 0:1 á heimavelli
fyrir Olympiacos en var ekki í telj-
andi hættu á að falla úr keppni eftir
að hafa unnið fyrri leikinn í Grikk-
landi, 3:1.
Tottenham fór til Króatíu með 2:0
forskot gegn Dinamo Zagreb en tap-
aði 3:0 eftir framlengingu. Mislav
Orsic var hetja Dinamo og skoraði
þrennu í leiknum.
Björn Bergmann Sigurðarson og
félagar í Molde luku keppni með
sóma. Norska liðið vann Granada frá
Spáni, 2:1, á „heimavelli“ í Búdapest
og tapaði 2:3 samanlagt. Björn var
fremsti maður Molde í rúman
klukkutíma en liðið var með 1:0 for-
ystu í 45 mínútur. vs@mbl.is
AFP
Hetjan Paul Pogba fagnar innilega markinu gegn AC Milan sem reyndist
vera sigurmark Manchester United í einvíginu gegn ítalska félaginu.
Pogba afgreiddi
Milan á San Siro
- Hetjulegri framgöngu Molde lokið