Morgunblaðið - 19.03.2021, Page 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2021
_ Þórey Anna Ásgeirsdóttir leikur
ekki meira með handknattleiksliði
Vals á þessu keppnistímabili. Skýrt
var frá því gær á samfélagsmiðlum
félagsins að hún væri barnshafandi en
fyrr í vetur fóru tveir samherjar henn-
ar, Arna Sif Pálsdóttir og Hildur
Björnsdóttir, einnig í barneignarfrí.
Þórey Anna er næstmarkahæsti leik-
maður Vals í vetur en hún hefur skor-
að 56 mörk í 12 leikjum liðsins í Olís-
deild kvenna á tímabilinu.
_ Þórsarar á Akureyri hafa fengið til
sín serbneskan knattspyrnumann,
Peter Planic. Hann er 32 ára mið-
vörður og lék í heimalandinu til 2016,
m.a. með OFK Belgrad, en hefur kom-
ið víða við á undanförnum árum.
Hann spilaði síðast á Maldive-eyjum
en þar á undan í Bangladesh, Bosníu,
Indónesíu, Moldóvu og Líbanon.
_ Hákon Rafn Valdimarsson, mark-
vörður Gróttu, er orðaður við sænska
úrvalsdeildarliðið Elfsborg en
fótbolti.net skýrði frá þessu í gær.
Hákon er 19 ára gamall og er einn
þriggja markvarða 21-árs landsliðsins
sem eru á leið í lokakeppni EM.
_ Ómar Ingi Magnússon og Gísli
Þorgeir Kristjánsson eru komnir með
Magdeburg í annað sæti þýsku 1.
deildarinnar í handknattleik eftir úti-
sigur á Hannover-Burgdorf í gær-
kvöldi, 29:27. Þeir létu mikið að sér
kveða, Ómar skoraði sjö mörk og Gísli
fimm en Magdeburg fór upp fyrir Kiel
og í annað sætið. Þá skoraði Bjarki
Már Elísson átta mörk fyrir Lemgo í
sigri á Leipzig, 28:23, en hann, Ómar
og Viggó Kristjánsson eru þrír af
fimm markahæstu leikmönnum deild-
arinnar.
_ Jón Dagur Þorsteinsson, leik-
maður AGF í Danmörku, verður fyrir-
liði 21-árs landsliðsins í fót-
bolta í úrslitakeppni EM í
Ungverjalandi. Davíð Snorri
Jónasson, þjálfari
liðsins, skýrði
frá
þessu á
frétta-
mannafundi í gær. Jón
Dagur er leikjahæstur
þeirra sem fara á
mótið og var fyrir-
liði í öllum þeim
sjö leikjum sem
hann spilaði
með liðinu í
undan-
keppninni.
Eitt
ogannað
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Höllin Ak: Þór Ak. – ÍR........................ 18.15
Blue-höllin: Keflavík – Njarðvík ......... 20.15
1. deild karla:
Ísafjörður: Vestri – Fjölnir.................. 19.15
Álftanes: Álftanes – Hrunamenn........ 19.15
Smárinn: Breiðablik – Hamar............. 19.15
Borgarnes: Skallagrímur – Sindri ...... 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Kórinn: HK – Vængir Júpíters ........... 19.30
Hleðsluhöll: Selfoss U – Víkingur....... 19.30
Ásvellir: Haukar U – Kría ........................ 20
Dalhús: Fjölnir – Fram U.................... 20.45
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Víkingsv.: Víkingur R. – Keflavík ............ 19
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – ÍBV ........... 18
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – SR..................................... 20
Í KVÖLD!
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik mætir Norður-Makedóníu
í fyrsta leiknum í undankeppni
heimsmeistaramótsins í Skopje í
dag. Þá er leikið við Grikkland á
morgun og Litháen á sunnudag en
tvö efstu lið riðilsins komast áfram í
umspil um sæti í lokakeppninni. Ís-
land og Norður-Makedónía mætt-
ust á sama stigi keppninnar í
Skopje fyrir rúmum tveimur árum
og Ísland beið þá lægri hlut, 21:29.
Liðin tvö fóru bæði áfram en töp-
uðu fyrir Slóveníu og Spáni í um-
spilinu.
Freista þess að
hefna í Skopje
Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir
HM 2021 Íslenska liðið leikur gegn
Norður-Makedóníu í dag.
Kvennalið Þórs/KA í knattspyrnu
hefur fengið liðsauka fyrir kom-
andi keppnistímabil, en þrír erlend-
ir leikmenn hafa samið við Akur-
eyrarfélagið. Það eru Sandra
Nabweteme frá Úganda, Miranda
Smith frá Kanada og Colleen Kenn-
edy frá Bandaríkjunum. Nabwe-
teme er framherji sem hefur skorað
mikið í bandaríska háskólafótbolt-
anum, Kennedy er einnig framherji
og kemur frá Sandviken í sænsku
B-deildinni og Smith, sem leikur á
miðjunni, lék á síðasta ári með TPS
í finnsku úrvalsdeildinni.
Þrjár erlendar
til Akureyrar
Ljósmynd/Swosu
Framherji Sandra Nabweteme leik-
ur með Þór/KA í sumar.
EM U21 ÁRS
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Tíu árum eftir að Ísland komst í
fyrsta skipti í lokakeppni Evrópu-
móts 21-árs landsliða karla í fótbolta,
og náði fimmta sæti EM í Danmörku
sumarið 2011, er íslenska landsliðið í
þessum aldursflokki aftur á leið á
EM.
En óhætt er að segja að himinn og
haf séu á milli hópsins sem Davíð
Snorri Jónasson tilkynnti í gær fyrir
Ungverjalandsferðina í næstu viku,
og hópsins sem Eyjólfur Sverrisson
fór með á EM 2011 og var einu marki
frá því að komast í úrslitaleik um
sæti á Ólympíuleikunum í London
sumarið 2012.
Samanburðurinn á þessum tveim-
ur hópum leiðir eitt og annað áhuga-
vert í ljós.
_ Á EM 2011 fóru fjórtán leik-
menn sem höfðu spilað með A-
landsliði Íslands, samtals 87 lands-
leiki. Á EM 2021 fara átta leikmenn
sem hafa spilað samtals 24 A-lands-
leiki.
Hafði spilað 23 A-landsleiki
_ Á EM 2011 fór leikmaður með
23 A-landsleiki að baki, Aron Einar
Gunnarsson, og þeir Jóhann Berg
Guðmundsson, Rúrik Gíslason og
Arnór Smárason höfðu allir spilað 10
A-landsleiki. Leikjahæstir í A-lands-
liði af þeim sem fara á EM 2021 eru
Mikael Anderson með 7 leiki og Jón
Dagur Þorsteinsson með 6 en hinir
sex hafa leikið einn til þrjá leiki með
A-landsliðinu.
_ Á EM 2011 voru 17 leikmenn af
23 á tveimur eldri árgöngunum og
aðeins sex í hópnum voru gjaldgengir
í næsta 21-árs landslið. Á EM 2021
fara aðeins 10 leikmenn úr tveimur
eldri árgöngunum en hinir þrettán
eru allir gjaldgengir með liðinu í
næstu keppni.
Mun yngra lið núna
_ Af þeim 23 leikmönnum sem
fóru á EM 2011 komu átta frá liðum í
efstu deildum Þýskalands (Gylfi Þór
Sigurðsson), Belgíu (Alfreð Finn-
bogason og Bjarni Þór Viðarsson),
Hollands (Jóhann Berg og Kolbeinn
Sigþórsson), Skotlands (Eggert
Gunnþór Jónsson) og úr tveimur
efstu deildum Englands (Aron Einar
Gunnarsson og Hólmar Örn Eyjólfs-
son). Af þeim 23 sem fara á EM 2021
leikur einn í efstu deild á Ítalíu
(Andri Fannar Baldursson) og einn í
Hvíta-Rússlandi (Willum Þór Will-
umsson) en fjórtán spila með liðum á
Norðurlöndum utan Íslands, fjórir
þeirra í næstefstu deild.
_ Af þeim 23 leikmönnum sem
fóru á EM 2011 léku níu enn með lið-
um í íslensku úrvalsdeildinni en að-
eins fjórir þeirra sem eru á leið á EM
2021 koma úr þeirri deild.
Til viðbótar þessum bláköldu stað-
reyndum er margt fleira sem spilar
inn í samanburðinn á þessum tveim-
ur liðum.
21-árs liðið hafði forgang
Þáverandi þjálfari A-landsliðsins,
Ólafur Jóhannesson, var búinn að
kippa stórum hluta 21-árs liðsins inn
í sinn hóp og margir þeirra höfðu
verið í byrjunarliði Íslands í undan-
keppni EM karla frá haustinu 2010.
Ólafur fékk hins vegar ekki að
nota þessa leikmenn 21-árs liðsins í
heimaleik gegn Portúgal í október
2010. KSÍ ákvað að 21-árs liðið
hefði forgang og í stað þess að
mæta Cristiano Ronaldo og fé-
lögum á Laugardalsvelli fóru þeir í
tvo umspilsleiki gegn Skotum á
sama tíma og tryggðu Íslandi sæti á
EM.
Ákvörðunin var umdeild á sínum
tíma en hún skilaði sér í því að Ísland
vann Skotland í umspilinu, 2:1 á
Laugardalsvelli þar sem Jóhann
Berg Guðmundsson og Almarr Orm-
arsson skoruðu mörkin, og aftur 2:1 í
Edinborg þar sem Gylfi Þór Sigurðs-
son skoraði tvö eftirminnileg mörk.
Annað þeirra af 30 metra færi í
markvinkilinn.
Núna hefur A-landsliðið forgang
og 21-árs liðið verður ekki eins
sterkt í Ungverjalandi og það hefði
mögulega getað verið því mótið
þar er á sama tíma og fyrstu
leikir Íslands í undankeppni
HM.
Og rétt er að taka fram að ein-
ungis átta lið komust í lokakeppni
EM í Danmörku árið 2011, sem und-
irstrikar enn frekar afrek íslenska
liðsins sem skildi Þýskaland eftir
með sárt ennið í þriðja sæti undan-
riðilsins. Á EM 2021 leika sextán lið
því lokakeppnin nú er helmingi
stærri en fyrir tíu árum.
Leiðin er ekki eins greið
Þá er óhætt að segja að leiðin í
A-landsliðið hefi verið mun greiðari
fyrir „gamla gengið“ á árunum 2010
og 2011 en fyrir strákana sem nú
skipa 21-árs landsliðið. Núna er stór
hluti þeirra leikmanna sem léku í
lokakeppni EM í Danmörku árið
2011 enn í A-landsliðinu. Þetta eru
leikmenn sem hafa náð besta árangri
Íslandssögunnar á undanförnum tíu
árum, komist í lokakeppni bæði EM
og HM, og eru smám saman að raða
sér í efstu sætin yfir leikja- og
markahæstu landsliðsmenn Íslands
frá upphafi. Það er hægara sagt en
gert fyrir yngri strákana að slá þá út.
Allt öðruvísi en árið 2011
- Gríðarlega mikill munur á 21-árs liðunum frá EM 2011 til EM 2021 - Mun
óreyndara og yngra lið sem fer í lokakeppnina í Ungverjalandi í næstu viku
Morgunblaðið/Kristinn
EM 2011 Bjarni Þór Viðarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og
Birkir Bjarnason fagna marki í undankeppninni.
MARKVERÐIR:
Patrik Sigurður Gunnarsson (2000), Silkeborg, Danmörku ................ 10 0
Elías Rafn Ólafsson (2000), Fredericia, Danmörku..................................4 0
Hákon Rafn Valdimarsson (2001), Gróttu................................................. 0 0
VARNARMENN:
Ari Leifsson (1998), Strömsgodset, Noregi ............................................ 17 1
Hörður Ingi Gunnarsson (1998), FH........................................................ 15 0
Ísak Óli Ólafsson (2000), SönderjyskE, Danmörku ................................. 8 2
Finnur Tómas Pálmason (2001), Norrköping, Svíþjóð............................ 3 0
Róbert Orri Þorkelsson (2002), Breiðabliki.............................................. 3 0
Valgeir Lunddal Friðriksson (2001), Häcken, Svíþjóð............................ 1 0
MIÐJUMENN:
Jón Dagur Þorsteinsson (1998), AGF, Danmörku ................................. 21 5
Alex Þór Hauksson (1999), Öster, Svíþjóð .............................................. 18 1
Willum Þór Willumsson (1998), BATE Borisov, Hvíta-Rússlandi........ 17 3
Kolbeinn Birgir Finnsson (1999), Dortmund II, Þýskalandi ................ 15 0
Stefán Teitur Þórðarson (1998), Silkeborg ............................................ 14 1
Mikael Neville Anderson (1998), Midtjylland, Danmörku .................... 13 0
Þórir Jóhann Helgason (2000), FH ............................................................ 6 0
Kolbeinn Þórðarson (2000), Lommel, Belgíu ........................................... 6 0
Ísak Bergmann Jóhannesson (2003), Norrköping, Svíþjóð .................... 4 0
Andri Fannar Baldursson (2002), Bologna, Ítalíu.................................... 3 0
SÓKNARMENN:
Sveinn Aron Guðjohnsen (1998), OB, Danmörku................................... 15 6
Brynjólfur Andersen Willumsson (2000), Kristiansund, Noregi ......... 12 1
Valdimar Þór Ingimundarson (1999), Strömsgodset, Noregi................ 8 1
Bjarki Steinn Bjarkason (2000), Venezia, Ítalíu ...................................... 2 0
Hópurinn sem fer á EM
Morgunblaðið/Eggert
EM 2021 Alfons Sampsted, Brynjólfur Willumsson,
Stefán Teitur Þórðarson og Ari Leifsson fagna marki.