Morgunblaðið - 19.03.2021, Page 40
FER
M
IN
G
A
R
TILB
O
Ð
ÍFU
LLU
M
G
A
N
G
I
R
10.000 kr.
AFSLÁTTUR AF
HEILSURÚMUM
25%
AFSLÁTTUR AF
MJÚKVÖRU
VIÐ DÝNUKAUP
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Stórsveit Reykjavíkur heldur upp á aldarafmæli Jóns
Múla Árnasonar í Eldborg á sunnudag og mánudag, 21.
og 22. mars, kl. 20 og er uppselt á fyrri tónleikana.
Flutt verða öll þekktustu lög Jóns í
nýjum útsetningum og gestasöngv-
arar verða Ellen Kristjánsdóttir, Jón
Jónsson, Sigríður Thorlacius og Sig-
urður Guðmundsson og segir á vef
Hörpu að líklegt sé að spennandi
leynigestir skjóti upp kollinum. Sig-
urður Flosason stjórnar hljómsveit-
inni og kynnir. Lög Jóns Múla, oft við
texta Jónasar bróður hans, eru
þjóðþekkt og miklar perlur og má
af þeim nefna „Fröken Reykja-
vík“, „Einu sinni á ágústkvöldi“
og „Augun þín blá“. Jón Múli
fæddist á Kirkjubóli á Kolbeins-
tanga á Vopnafirði 31. mars 1921
og lést 1. apríl árið 2002.
Stórsveit Reykjavíkur fagnar
aldarafmæli Jóns Múla í Eldborg
FÖSTUDAGUR 19. MARS 78. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Þórsarar frá Þorlákshöfn eru komnir í annað sæti Dom-
inos-deildar karla í körfubolta eftir sigur á Stjörnunni í
uppgjöri tveggja af efstu liðum deildarinnar í Þorláks-
höfn í gærkvöld. KR-ingar unnu ævintýralegan sigur
gegn Hetti á Egilsstöðum þar sem Tyler Sabin skoraði
þriggja stiga körfu í blálokin. Haukar tapa enn og sitja
eftir á botninum eftir ósigur gegn Grindavík og Vals-
menn lögðu Tindastól á nokkuð sannfærandi hátt. »34
Stjarnan tapaði í Þorlákshöfn og
ævintýralegan sigur KR fyrir austan
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mikill gestagangur var á Brimils-
völlum í Fróðárhreppi á Snæfells-
nesi í tíð hjónanna Ólafs Bjarnason-
ar, óðalsbónda og hreppstjóra, og
Kristólínu Kristjánsdóttur kennara.
Þau eignuðust sjö börn og lifir Björg
Ólafsdóttir systkini sín. Hún er 100
ára í dag og fagnar áfanganum með
ættingjum sínum. „Það verður partí,
ég geri ekkert en börnin sjá um allt.“
Björg horfir dreymin út um
gluggann á herbergi sínu á hjúkr-
unarheimilinu Seltjörn á Seltjarnar-
nesi, þar sem hún hefur búið í tæp-
lega tvö ár. „Ég lifi lúxuslífi, þarf
hvorki að elda fisk né sjóða kart-
öflur, þótt það hafi ekki verið leiðin-
legt,“ segir hún. „Útsýnið til
fjallanna minnir mig á fjöllin við
Velli og umhverfið hérna nær er eins
og við Trevi-gosbrunninn í Róm.“
Brimilsvellir var stórbýli með
mörgum hjáleigum. „Þetta var eins
og lítið sjávarpláss, yfir 100 manns
lifðu í sátt og samlyndi, áður en mót-
orbátarnir komu til sögunnar og
frystihúsið var byggt í Ólafsvík,“
rifjar Björg upp. Hún segir mjög
skemmtilegt hafa verið að alast
þarna upp. „Feluleikir í hlöðunni í
haustmyrkrinu eru eftirminnilegir
og þegar gestir tóku upp allt svefn-
plássið í kvistunum vorum við börnin
send út í hlöðu, þar sem við sváfum í
nýhirtu heyinu.“ Mikið ævintýri hafi
jafnframt verið að fara kindagötu í
Vallnabergi niður í fjöru. „Mamma
bannaði okkur það ekki, en bað okk-
ur um að fara varlega, beið eftir að
við kæmum til baka og taldi þá haus-
ana. En hún leyfði okkur aldrei að
fara upp á Jökul, því hún var svo
hrædd við sprungur sem hafði fennt
yfir.“
Dagskráin umhugsunarefni
Björg segir að fyrsta útsending
útvarpsins 1930 sé einna ofarlegast í
huga frá æskuárunum. „Fólkið af
hinum bæjunum kom til okkar að
hlusta og þá spurði ein konan hvort
þau í Bakkabæ myndu heyra það
sama og við þegar þau fengju út-
varp.“ Bóndi á hjáleigu á Völlum hafi
verið fyrstur til að kaupa bíl á svæð-
inu. „Við fórum í hestvagni á móti
vörubílnum og fengum að sitja á
pallinum til baka og þegar fyrsta
flugvélin flaug yfir fóru líka allir út
að sjá þetta flikki fljúga fyrir ofan
okkur.“
Eiginmaður Bjargar var Sigurjón
Sigurðsson, sem lést 2013, og eiga
þau þrjú börn, níu barnabörn og 18
barnabarnabörn. Eftir að börnin
fæddust var Björg með þau á Völlum
í um þrjá mánuði á hverju sumri, þar
til móðir hennar dó haustið 1960 en
faðir hennar brá búi í kjölfarið. „Rétt
eins og pabbi vildi að við kynntumst
bæjarlífinu vildi ég að börnin okkar
upplifðu sveitalífið. Þá gat ég líka
hjálpað mömmu við baksturinn.“
Eftir að Björg flutti til Reykjavík-
ur fór hún í Húsmæðraskólann og
sinnti ýmsum störfum. Á seinni
heimsstyrjaldarárunum voru haldn-
ir dansleikir á Hótel Borg fyrir yfir-
mennina í bandaríska setuliðinu og
þegar engin hljómsveit spilaði fyrir
dansi vegna verkfalls hljóðfæraleik-
ara var keyptur plötuspilari og
Björg fengin til að þeyta skífum.
„Böllin voru bara fyrir „officera“ og
íslenskar stúlkur, dyrunum var lok-
að á óbreytta,“ segir hún.
„Ég var í litlu herbergi og setti
plötur á grammófóninn, en fylgdist
svo með á bak við gardínurnar
hvernig „officerarnir“ sveifluðu
stúlkunum í takt við lögin. Ég mátti
ekki fara út á gólfið og dansa, var
bara að vinna mína vinnu og var
ábyggilega fyrsti íslenski plötusnúð-
urinn, sem fékk svolítið launað fyrir
starfið.“
Fyrsti plötusnúðurinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Með sparisvipinn Björg Ólafsdóttir er ánægð með lífið og tilveruna og nýtur hverrar stundar.
- Björg Ólafsdóttir frá Brimilsvöllum á Snæfellsnesi fagn-
ar 100 ára afmælinu - Móðirin taldi hausana eftir fjöruferð