Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 2
Róbert Aron væri í matarvagnaleiðangri í Los Angeles um páskana ef hann gæti. Hvað ertu að fást við þessa dagana? „Það er nú ýmislegt. Ég hef verið á ferðinni með fjölda matarvagna um hverfin undir formerkjum Götubitans. Ég opnaði „pop up“-veitingastað undir formerkjum Götumarkaðarins í góðu samstarfi við Just Wing- in It. Nýjasta verkefnið er svo veitingastaðurinn 2Gu- ys sem er verið að opna um þessar mundir á Klapparstíg 38.“ Áttu þér uppáhalds- morgunmat? „Já það er Boozt – 1001 Nótt á Ísey Skyr Bar. Ég sleppi mangó en fæ mér jarð- arber í staðinn.“ Hvar er best að borða úti að þínu mati? „Mér finnst best að borða á Dragon Dim Sum, eða Just Wingin It-götumarkaðnum og svo verð ég að nefna 2Guys. Einnig er ég mjög hrifinn af Himalayan Spice.“ Hvað gerir þú alltaf á páskunum? „Á páskunum slaka ég á með fjölskyld- unni eða fer upp í bústað.“ Hvað gerirðu aldrei? „Ég fer aldrei á skíði.“ Hvernig páskaegg kaupir þú þér fyrir páskana? „Ég kaupi mér vanalega páskaegg með lakkr- ís.“ Hvert er uppáhaldstískumerkið þitt? „Uppáhaldstískumerkið er OFF White. Ég kann að meta það sem Virgil Abloh er að gera þar.“ Ef þú gætir ferðast hvert sem er um heiminn hvert færirðu þá um páskana? „Ég myndi fara til Los Angeles í ein- hvers konar „food truck“-leiðangur eða Tenerife í afslöppun með konunni.“ Hvað finnst þér um nýjasta gosæðið á Íslandi? „Mér finnst það magnað. Á einhver þyrlu?“ Hvað gerir þú til að halda þér í formi? „Ég fér í göngutúra með hundinum og svo í ræktina. Í það minnsta áður en kórónuveiran mætti.“ Hver er besti skemmtistaðurinn að þínu mati? „Vinnustofa Kjarvals.“ Hvert er best að fara í líkamsrækt? „Ég kann að meta World Class á Seltjarnarnesi.“ Hvernig húsgagn keyptirðu þér síðast? „Ég keypti mér hægindastól í Nomad í anda Pierres Jeannerets. Konan mín stjórnar að öðru leyti öllum hús- gagnakaupum inn á heimilið.“ Hver er uppáhaldshljómsveitin þín? „Uppáhaldshljómaveitin er N.W.A. & Public Enemy.“ „Égmyndi fara til Los Angeles“ Robert Aron Magnússon, framkvæmdastjóri Götubitans – Reykjavik Street Food, Götumarkaðarins og meðeigandi 2Guys, ætlar að slaka á um páskana og fara upp í bústað með fjölskyldu sinni. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Colourbox Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ljósmynd/AFP Listræni stjórnandinn Virgil Abloh hefur haft mikil áhrif á tískuheiminn á undanförnum árum. Ljósmynd/Instagram Dragon Dim Sum er í uppáhaldi hjá Róbert Aroni. Instagram Appolo Lakkrís- páskaeggin eru girnileg frá Góu. Róbert Aron Magn- ússon hefur gaman af öllu því sem tengist mat og matargerð. Róbert Aron er hrif- inn af páskaeggj- um með lakkrís. Draumaegg með Freyju-lakkrís. Róbert væri í Los Angeles ef engar hindranir væru á ferða- lögum um þessar mundir. Off White-merkið hans Virgils Ablohs er uppáhalds- tískumerki Róberts Arons. 2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Haraldur Jónasson. Þ að runnu á fólk tvær grímur í vikunni þegar í ljós kom að fólk gæti ekki sleikt hurðarhúna í partíum um páskana. Ekki heldur haldið risastór matarboð og ekki boðið Adda, Palla og Bergþóru í bröns. Við þyrftum að læra að haga okkur í eitt skipti fyrir öll og dusta rykið af hegðunarreglum í samkomubanni. Við ætt- um að vera heima hjá okkur, láta lítið fyrir okkur fara og vera til friðs. Hversu ömurlega glatað er það? Eitt er að það megi bara tíu manneskjur koma saman, en líklega var mesta sjokkið að við værum að ganga í gegnum páska númer tvö þar sem ekki yrði hægt að leika síðustu kvöldmáltíðina eftir í heimahúsi. Við það borð voru nefnilega ellefu lærisveinar plús Jesús. Þegar ég var stelpa var ég sorgmædd yfir örlögum Jesú og skildi eiginlega ekki hvers vegna við værum að fagna pásk- unum með veislumat og súkkulaði. Hver neglir í gegnum lóf- ann á annarri manneskju og hengir hana upp á kross? Um 2.000 árum síðar eru allir búnir að gleyma þessu og líta á páskana sem besta frí ársins. Miklu betra en jólafrí og kannski jafnvel betra en sumarfrí. Í jólafríinu nýtur sín enginn því það kallar á svo mörg boð, svo mikla eldamennsku og stúss að enginn hefur tíma til að vera hann sjálfur. Sumarfrí er náttúr- lega snilld en fólk sem á mikið af börnum kemur oft þreyttara úr sumarfríi því það er svo krefjandi að vera með sínum nán- ustu allan sólarhringinn. Ætli páskarnir séu ekki besta fríið því þá leyfist okkur að vera bolirnir, sem við erum, í friði. Getum legið fyrir framan sjónvarpið í marga klukkutíma og borðað súkkulaði í rúminu án þess að einhver geri athugasemd og bendi okkur á að við séum að skrapa botn mannlegrar tilveru. Sagt er að maðurinn finni sér alltaf eitthvað til að líða illa yfir. Ef það væri ekki kórónuveira þá væri bara eitthvað annað sem við værum brjáluð yfir. Við döfnum ekki og vöxum nema við förum í gegnum áföll og krísur. Fólk eflist við hverja raun og eftir þetta leiðindaveirutímabil munum við líklega kunna að meta lífið betur. Ef þú veist ekkert hvað þú átt að gera um páskana mæli ég með því að þú dveljir innra með þér. Gerðu lista yfir það sem lyftir tilveru þinni á hærra plan. Svo skaltu gera lista yfir allt sem dregur þig niður og gerir líf þitt leiðinlegra. Svo skaltu flokka fólkið í kringum þig frá innsta hring til ysta hrings. Átt- aðu þig á því hver myndi raunverulega standa með þér á ögurstundu og hver myndi hugsanlega svíkja þig við fyrsta tækifæri. Ef Jesús hefði verið búinn að greina lærisveinana og flokka þá niður í innsta hring og ysta hring er ekki víst að Júdas hefði brugðist honum. Honum hefði líklega ekki verið boðið til síðustu kvöldmáltíðarinnar því hann hefði verið kom- inn í ysta hring. Spáið í það! Gleðilega páska! Reuters Hefði Júdasi verið boðið? MartaMaría Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.