Morgunblaðið - 26.03.2021, Side 4

Morgunblaðið - 26.03.2021, Side 4
É g vil njóta páskanna í róleg- heitum, með vinum og/eða fjöl- skyldu. Ég vil ekki hafa of mik- ið fyrir stafni, frekar safna kröftum eða skipuleggja eitthvað óvænt,“ segir Áslaug þegar hún er spurð hvernig páskatýpa hún sé. Hvað finnst þér mikilvægast við páskana? „Að brjóta upp hversdagsleik- ann.“ Upp á síðkastið hefur Áslaug verið í töluverðu heilsuátaki sem gengur út á að skokka en þess á milli mætir hún á æfingar úti á Granda. Hún vill nú ekki gera mikið úr þessu. „Ég hef bara reynt að halda jafnvægi í því og gæta þess að gleyma ekki að hugsa um sjálfa mig,“ segir hún. Ætlar þú að nýta páskana til að iðka hreyfingu? „Vonandi verður veðrið þannig að það hvetji mig til þess að skella mér gangandi á fjall og á hestbak.“ Eruð þið fjölskyldan með einhverjar sér- stakar páskahefðir? „Nei, engar sérstakar hefðir. Ég hef al- veg gaman af hefðum en ég vil þó gæta þess að þær séu ekki íþyngjandi og allt í lagi að þær breytist milli ára eða taki hlé.“ Áttu einhverja minnisstæða páskaminn- ingu síðan þú varst barn? „Gula páskastellið hennar Áslaugar ömmu minnar er í miklu uppáhaldi og ég svo heppin að eiga í dag. Að fá heitt kakó úr því var toppurinn. Ætli það verði ekki sú hefð sem ég mun halda í hvað mest.“ Hvernig páskaegg dreymir þig um? „Góð spurning! Ætli ég myndi ekki panta mér Daim-páskaegg ef ég gæti látið mig dreyma.“ Hvernig væru hinir fullkomnu páskar í hinum fullkomna heimi? „Gott páskaegg, gott fólk, góður reiðtúr og góður svefn.“ Svona væru hinir full- komnu páskar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra er ekki með neinar sérstakar páskahefðir aðrar en að slaka á og hafa það nota- legt. Ein hennar besta páskaminning er að drekka heitt kakó úr páskastelli Áslaugar ömmu sinnar en í dag er stellið í hennar eigu. MartaMaría | mm@mbl.is Áslaug Arna lifir anna- sömu lífi. Þessi mynd var tekin þegar gosið hófst um síðustu helgi. Áslaug Arna ásamt föður sínum Sigur- birni Magnússyni. Morgunblaðið/Eggert Áslaug Arna ætlar að njóta íslensku náttúr- unnar um páskana. 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 É g er ein þeirra sem á eftir að rölta að gossvæðinu í Geldingadal og það er afar freistandi að kanna hvort það sé gerlegt enda draumur minn að sjá eldgos, í hæfilegri fjarlægð. Annars stefni ég á aðra góða fjallgöngu einn af hátíðisdögunum ásamt eiginmanni og börnum. Það er orðin hefð fyrir þessu og nauðsynlegt að taka eitt páskaegg með til að deila á toppnum. Þetta byrjaði reyndar sem eins konar píslarganga fyrir nokkrum árum því börnin voru ekki öll stemmd fyrir þessu en allt fór vel að lokum og nú bíða börnin eftir þessu með eftirvæntingu og koma með hugmyndir að fjalli til að klífa. Ef ég kemst líka á gönguskíði verð ég alsæl. Auk útivistar er stefnan tekin á sumarbústaða- stemningu heimafyrir með borðspilum og góðum mat.“ Mælirmeð páska- eggi í fjallgöngur Fanney Karlsdóttir, verkefnastjóri í Norræna húsinu og skrifstofustjóri umhverfisverðlauna Norðurlanda- ráðs, ætlar að reyna að sjá gosið um páskana. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Morgunblaðið Fanney Karlsdóttir mælir með því að borða súkku- laði á fjallgöngum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.