Morgunblaðið - 26.03.2021, Blaðsíða 8
Páska bolla-
kökurnar eru
gerðar úr
súkku-
laðiköku með
smjörkremi.
Hreiðrið er úr
Candy-floss.
D
ögg Guðmundsdóttir hefur mikinn áhuga á kökuskreytingum og
deilir kökum sínum og öðru tengdu efni á Instagram undir nafn-
inu Kökudísin. Dögg starfar á skrifstofu ráðuneytisstjóra í utan-
ríkisráðuneytinu og er gift Ólafi Þór Rafnssyni, byggingatækni-
fræðingi hjá Verkís. Þau eiga tvö börn; Guðmund Rafn, sjö ára,
og Heiðdísi Heklu, fjögurra ára. Kökurnar hennar Daggar vekja athygli víða.
Ekki síst fyrir að vera litríkar. „Mér finnst voðalega gaman að baka. Ég vinn
helst með smjörkrem og finnst gaman að leika mér með liti. Ég nota oft litað
súkkulaðidripp og kökuskraut í alls konar litum. Mér finnst líka gaman að
prófa kannski óhefðbundnari leiðir til að skreyta, eins og að nota piparköku-
mót, stensla, skrautkúlur og jafnvel marens til að ná ákveðnu útliti.“
Ástæðan fyrir því að Dögg valdi nafnið kökudísin á Instagram er sú að dóttir
hennar heitir Heiðdís og fannst henni Dísar-nafnið
ævintýralega fallegt og viðeigandi fyrir kökurnar sín-
ar. „Ég deili ekki kökuuppskriftum á samfélags-
miðlum heldur er áherslan meira á skreyt-
ingarnar og ég sýni aðferðir sem ég
nota og deili hugmyndum sem mér finnst
vera sniðugar. Ég föndra líka köku-
toppa og sýni skref fyrir skref hvernig
ég geri þá. Vonandi hefur fólk gaman af
því sem ég geri og fær jafnvel inn-
blástur af því að fylgjast með.“
Dögg ætlar með fjölskyldunni út úr
bænum á páskunum ef veður leyf-
ir. „Eða bara að njóta þess að eiga
langa helgi heima. Við sjáum til
hvernig veðrið verður. Það verður þó
klárlega spilað bingó með krökkunum,
það sló svo rækilega í gegn hjá þeim í
samkomubanninu á páskunum í fyrra,
að við munum endurtaka leikinn í ár.“
Páskakakan verður
flóknari með árunum
Hvernig páskakökur gerir þú vana-
lega? „Ég gerði aldrei sérstakar páska-
kökur fyrr en kökuskreytingarnar urðu
að sérstöku áhugamáli. Síðustu ár hafa
þær verið skreyttar með bleiku og gulu
kremi og litlum súkkulaðieggjum. Ég
hef verið að þróa skreytingarnar og hafa útfærsl-
urnar orðið flóknari með hverri köku.“
Dögg lítur á páskana sem tækifæri til að njóta
samverunnar með fjölskyldunni. „Á
páskunum getur maður dregið sig
aðeins út úr amstri daglega lífsins
og borðað góðan mat og páskaegg, svo
ég tek páskunum fagnandi. Þessi
tími þýðir líka að vorið er á næsta
leiti og ég hlakka alltaf til að fá
lengri daga og hækkandi sól.“ Að
baka og skreyta kökur hefur lengi verið áhugamál Daggar. „Þegar
ég útskrifaðist úr háskólanum bað ég um KitchenAid-hrærivél í gjöf
frá mömmu og pabba sem ég svo flutti með mér yfir hafið út í mast-
ernám. Það var þó ekki fyrr en börnin komu til sögunnar þónokkuð
mörgum árum seinna að ég fór að leika mér meira með kökuskreyt-
ingarnar og að halda barnaafmæli með hinu og þessu þema.
Úr varð þessi áhugi á kökuskreytingum sem hefur svo bara
aukist með árunum. Ég tengi þetta reyndar líka við áhuga
minn á ýmiss konar handavinnu, en að skreyta köku er bara
eitt formið af því að skapa eitthvað með höndum.“
Eiginmaðurinn eldar matinn á páskunum
Ólafur Þór, eiginmaður Daggar, sér um að elda á páskunum og býður hann
vanalega upp á lambakjöt; ljúffengan hrygg eða læri. „Þegar ég var lítil þá var
það hefð hjá mömmu og pabba á páskadag að fela páskaeggið mitt einhvers
staðar heima og ég byrjaði daginn á því að leita að egginu. Ég man hvað
mér þótti þetta alltaf skemmtilegt og þess vegna held ég í þessa hefð
með börnunum mínum. Vonandi munu þau líka seinna eiga góðar páska-
minningar um þetta.“
Morgunblaðið/Eggert
Dögg Guðmunds-
dóttir skreytir fallega
hjá sér á páskunum.
Páskakök-
urnar hennar
Daggar eru
ógleyman-
legar.
Súkkulaði kaka gerð í egglöguðu formi sem
Dögg málar með lituðu súkkulaði.
Páskakaka sem eftir er tekið
Dögg Guðmundsdóttir, stjórnarráðsfulltrúi í utanríkisráðuneytinu, er með einstakan áhuga og
hæfileika til að baka. Hún gerir girnilegar páskakökur sem verða alltaf flottari með árunum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Páska-
eggin
þurfa
ekki að
vera stór
til að
gleðja.
Bleikar fjaðrir í bakgrunni
úr versluninni Purkhús.
Fallegar páskakanínur sem
Dögg bjó til. Kanínurnar eru
ofan á grillpinnum.
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021