Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 26.03.2021, Qupperneq 16
Hlutir sem minna á ferðalög og fólk. Sjá má margar tengingar við Asíu í listaverkum heimilisins. mig í Útivist og er núna að fara í fjallgöngur og nátt- úrujóga fram á vorið. Fimmvörðuhálsinn er síðan kom- inn á lista fyrir sumarið.“ Fær ferskan blómvönd að gjöf á páskunum Hvernig skreytir þú heima um páskana? „Þegar stelpan mín, Helena Margrét Jónsdóttir, var lítil þá var ég dugleg að setja upp alls konar páska- skreytingar, með ungum og eggjum, sem eru allar komnar í geymsluna. Núna læt ég duga að skreyta með fallegum ferskum blómum. Mamma mín gefur mér alltaf vönd með hvítum liljum en túlípanar eru líka alveg ómissandi um páskana. Ég hef þá annaðhvort hvíta eða bleika þó flestum finnist kannski guli liturinn vera páskaliturinn.“ Hvað eldarðu á páskunum? „Ég er mjög góð í að njóta matar sem aðrir elda en er lítið fyrir að standa í mikilli eldamennsku sjálf. Mínir hæfileikar liggja á öðrum sviðum þótt ég geti alveg gert góðan mat þegar ég þarf. Ég er góðu vön eftir að hafa unnið með íslenska kokkalandsliðinu fyrir nokkrum ár- um þar sem ég sá hvernig besti maturinn er búinn til. Ætli ég noti ekki páskana til að fara út að borða og bjóða dóttur minni og kærastanum hennar á einhvern góðan veitingastað. Það eru komnir svo margir frábærir veit- ingastaðir en helstu vandræðin núna er að fá borð og verður líklega ennþá erfiðara þegar ferðamenn byrja að streyma aftur til landsins.“ Heimili Margrétar er fallegt og henni líður hvergi jafn vel og heima hjá sér. „Mér finnst heimilið vera griðastaður þar sem allt á að vera eftir manns eigin höfði, þannig að það sé alltaf til- hlökkun að koma heim. Mér finnst gaman að hafa fallega hluti í kringum mig og finn gleði í því að horfa á listaverk og sérstaka muni sem minna mig á eitthvað, hvort sem það eru ferðalög sem ég hef farið í eða fólk sem ég hef hitt á lífsleiðinni. Ég skipti lítið um húsgögn en breyti kannski mottum, púðum og skrautmunum til að fá nýjan svip á heimilið mitt. Ilmkerti finnst mér vera ómissandi enda það fyrsta sem ég geri þegar ég kem heim úr vinnunni er að kveikja á einu slíku. Ég legg líka töluvert upp úr því að hafa góð sængurver og handklæði þótt það sé ekki sýnilegt öðrum en mér. Íslensk hönnun hefur verið að sækja í sig veðrið að undanförnu og ég ætla að fjárfesta meira í henni.“ Margrét Kristín er hrifin af bleikum lit núna. Handmálaður vasi frá Kosta Boda og Iittala-skál úr Casa. Stofan er björt og þægileg. Sófinn er úr Casa. Morgunblaðið/Hari Asíublóm í huggulegum pappapotti sem Margrét keypti í Fjórum árstíðum. 5 SJÁ SÍÐU 18 16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.