Morgunblaðið - 26.03.2021, Síða 27
FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 MORGUNBLAÐIÐ 27
SKIDAFJÖRÍ
MENNING
og
Skíði, menning, matur, sól
og snjór alla páskana
Fjallabyggð fagnar þér
fjallabyggd.is
stendur andspænis Zürich-vatni. Svo náttúran kallast á
við fegurðina inni í rýminu.
Markmið okkar með þessu sýningarsvæði var að geta
boðið litlum hópum að koma að upplifa fallega myndlist
frá íslensku listafólki í húsnæði sem væri heimilislegt og
fallegt.
Hugmyndin er að bjóða einnig upp á matarupplifun og
einstakan félagsskap svo þannig bý ég til sögusvið sem
ýtir undir einstaka upplifun.
Ég vildi bjóða upp á stað þar sem fólk getur keypt list
utan hins hefðbundna ramma. Þannig að svæðið væri
hvorki eins og listasafn né hefðbundið gallerí.
Staðurinn er barnvænn og fáránlega vinalegur sem
mér finnst heillandi. Það er ekkert þessu sambærilegt til
í Sviss sem sannfærði mig enn þá meira um að fram-
kvæma verkefnið.“
Alltaf haft þörf fyrir að flýja í listina
Fyrsta listasýningin ber nafnið Life in a Day – og er
inntak sýningarinnar fallegur vinskapur þeirra Sig-
tryggs Berg og Steingríms Gauta.
„Ég hef alltaf heillast af því sem getur aðstoðað mann
við að flýja daglega lífið. Þegar ég var barn gat ég gleymt
mér við að horfa á kvikmyndir og var það fyrsta skrefið
mitt inn á listasviðið.
Síðan í mars á síðasta ári greindist ég óvænt með
þriðja stigs krabbamein af óþekktum uppruna, þá ákvað
ég að staldra við og gera hlutina í lífinu mínu öðruvísi. Ég
fann hvað ég vildi vera meira í kringum fjölskylduna
mína og hvað ég vildi fá ánægju og arðsemi, fallega hluti
og gleði á meiri hraða inn í líf mitt.
Mig langaði að gera eitthvað sem ég elskaði að gera og
það sem veitir öðrum hamingju líka. Nú er heilsan mín
orðin góð aftur og í raun eins og engin veikindi hafi verið.
Ég sé mitt líf á einum þegar ég er í kringum verkin þeirra
Sigtryggs og Steingríms.“
Eva María sér ekki skýra línu á milli myndlistar og
kvikmynda.
„Báðir heimar taka þig út úr samhenginu þínu og gefa
þér innsýn inn í nýja heima. Það sem ég upplifði í kvik-
myndagerð upplifi ég einnig í myndlist. Þar sem ástríða
er vinna sem maður verður að næra og veita athygli.“
Hún er án efa snillingur í þessu öllu enda hélt hún
nokkrar listasýningar í Los Angeles þegar hún leiddi
saman myndlistarfólk og kvikmyndaleikara.
„Ég fékk Marisu Tomei og Dakota Johnson meðal ann-
ars til að stýra viðburðunum og voru gestirnir aðallega úr
kvikmyndaheiminum. Þá fann ég svo skýrt hvað þessir
tveir heimar eru í raun og veru einn og hinn sami.“
Hvernig er að búa í Sviss?
„Það er mjög athyglisvert og ég er svona enn þá að átta
mig á því. Svisslendingar elska reglur en við Íslendingar
kannski ekki svo mikið. Ég var sem dæmi stoppuð af lög-
reglunni um daginn og sektuð um 25 þúsund krónur fyrir
að gefa ekki stefnuljós. Það er smá svona Truman Show-
stemning í þessu hérna. Alltaf verið að fylgjast með
manni. En á móti kemur að allt virkar hérna. Vötnin eru
hrein, vegirnir sléttir, menntakerfið er gott og heilbrigð-
iskerfið er algjör lúxus þar sem engin bið er eftir neinni
þjónustu og spítalarnir svipaðir góðum hótelum. Þannig
að ef litið er til lífsgæðanna er erfitt að finna betri stað.
Ekki skemmir fyrir að það er bara þriggja tíma akstur
til Mílanó og fjöggura tíma lestarferð til Parísar.“
Eva María er með svartan húmor og elskar að fram-
leiða kvikmyndir sem hafa tilgang og merkingu.
„Ég vil hreyfa við fólki og hef alltaf haft ástríðu fyrir
því. Sannar sögur af afbrigðilegum fjölskyldum finnst
mér alltaf spennandi efni, sérstaklega ef þær bjóða upp á
að vera sagðar með húmor. Ég er með frekar svartan
húmor sjálf. Því alvarlegri sem hlutirnir verða þeim mun
fyndnari verða þeir stundum. Lífið er stundum svo gott
en stundum svo glatað líka og það er allt í lagi. Það er
hluti af ferðinni.“
Ekki hefðubundin mamma
Hvernig mamma ert þú?
„Ég myndi segja að ég sé góð en kannski óhefðbundin
mamma. Kannski svolítið gamaldags í stílnum mínum
þar sem ég er ekki þyrluforeldri. Sonur minn fær mikla
ást og umhyggju en hann þarf líka að læra að kljást við
vandamál sjálfur frá ungum aldri svo hann geti orðið
sjálfstæður ungur maður. Hann gengur í alþjóðlegan
skóla hér í Sviss þar sem okkur finnst mikilvægt að hann
sé í alþjóðlegu umhverfi með fjölbreyttum hópi af börn-
um frá mörgum mismunandi bakgrunnum.
Við erum með þau plön að fara til Parísar við fyrsta
tækifæri en vitum vel að þau plön gætu fallið niður ef
önnur bylgja fer af stað annaðhvort hér eða í Frakklandi
en það er gaman að geta planað og hlakkað til þótt ein-
hverjar breytingar verði á.“
Eva María hefur náð
langt á ferli sínum
sem kvikmynda-
framleiðandi.
Eva María hannaði húsið að
innan. Hún valdi fiskibeina-
parket á gólfið og skapar
það ákveðinn hlýleika.
Garðurinn fyrir utan húsið er
með hellulagðri verönd og
njóta fallegu útihúsgögnin
sín vel á þessu svæði.