Morgunblaðið - 26.03.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.03.2021, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021 MORGUNBLAÐIÐ 27 SKIDAFJÖRÍ MENNING og Skíði, menning, matur, sól og snjór alla páskana Fjallabyggð fagnar þér fjallabyggd.is stendur andspænis Zürich-vatni. Svo náttúran kallast á við fegurðina inni í rýminu. Markmið okkar með þessu sýningarsvæði var að geta boðið litlum hópum að koma að upplifa fallega myndlist frá íslensku listafólki í húsnæði sem væri heimilislegt og fallegt. Hugmyndin er að bjóða einnig upp á matarupplifun og einstakan félagsskap svo þannig bý ég til sögusvið sem ýtir undir einstaka upplifun. Ég vildi bjóða upp á stað þar sem fólk getur keypt list utan hins hefðbundna ramma. Þannig að svæðið væri hvorki eins og listasafn né hefðbundið gallerí. Staðurinn er barnvænn og fáránlega vinalegur sem mér finnst heillandi. Það er ekkert þessu sambærilegt til í Sviss sem sannfærði mig enn þá meira um að fram- kvæma verkefnið.“ Alltaf haft þörf fyrir að flýja í listina Fyrsta listasýningin ber nafnið Life in a Day – og er inntak sýningarinnar fallegur vinskapur þeirra Sig- tryggs Berg og Steingríms Gauta. „Ég hef alltaf heillast af því sem getur aðstoðað mann við að flýja daglega lífið. Þegar ég var barn gat ég gleymt mér við að horfa á kvikmyndir og var það fyrsta skrefið mitt inn á listasviðið. Síðan í mars á síðasta ári greindist ég óvænt með þriðja stigs krabbamein af óþekktum uppruna, þá ákvað ég að staldra við og gera hlutina í lífinu mínu öðruvísi. Ég fann hvað ég vildi vera meira í kringum fjölskylduna mína og hvað ég vildi fá ánægju og arðsemi, fallega hluti og gleði á meiri hraða inn í líf mitt. Mig langaði að gera eitthvað sem ég elskaði að gera og það sem veitir öðrum hamingju líka. Nú er heilsan mín orðin góð aftur og í raun eins og engin veikindi hafi verið. Ég sé mitt líf á einum þegar ég er í kringum verkin þeirra Sigtryggs og Steingríms.“ Eva María sér ekki skýra línu á milli myndlistar og kvikmynda. „Báðir heimar taka þig út úr samhenginu þínu og gefa þér innsýn inn í nýja heima. Það sem ég upplifði í kvik- myndagerð upplifi ég einnig í myndlist. Þar sem ástríða er vinna sem maður verður að næra og veita athygli.“ Hún er án efa snillingur í þessu öllu enda hélt hún nokkrar listasýningar í Los Angeles þegar hún leiddi saman myndlistarfólk og kvikmyndaleikara. „Ég fékk Marisu Tomei og Dakota Johnson meðal ann- ars til að stýra viðburðunum og voru gestirnir aðallega úr kvikmyndaheiminum. Þá fann ég svo skýrt hvað þessir tveir heimar eru í raun og veru einn og hinn sami.“ Hvernig er að búa í Sviss? „Það er mjög athyglisvert og ég er svona enn þá að átta mig á því. Svisslendingar elska reglur en við Íslendingar kannski ekki svo mikið. Ég var sem dæmi stoppuð af lög- reglunni um daginn og sektuð um 25 þúsund krónur fyrir að gefa ekki stefnuljós. Það er smá svona Truman Show- stemning í þessu hérna. Alltaf verið að fylgjast með manni. En á móti kemur að allt virkar hérna. Vötnin eru hrein, vegirnir sléttir, menntakerfið er gott og heilbrigð- iskerfið er algjör lúxus þar sem engin bið er eftir neinni þjónustu og spítalarnir svipaðir góðum hótelum. Þannig að ef litið er til lífsgæðanna er erfitt að finna betri stað. Ekki skemmir fyrir að það er bara þriggja tíma akstur til Mílanó og fjöggura tíma lestarferð til Parísar.“ Eva María er með svartan húmor og elskar að fram- leiða kvikmyndir sem hafa tilgang og merkingu. „Ég vil hreyfa við fólki og hef alltaf haft ástríðu fyrir því. Sannar sögur af afbrigðilegum fjölskyldum finnst mér alltaf spennandi efni, sérstaklega ef þær bjóða upp á að vera sagðar með húmor. Ég er með frekar svartan húmor sjálf. Því alvarlegri sem hlutirnir verða þeim mun fyndnari verða þeir stundum. Lífið er stundum svo gott en stundum svo glatað líka og það er allt í lagi. Það er hluti af ferðinni.“ Ekki hefðubundin mamma Hvernig mamma ert þú? „Ég myndi segja að ég sé góð en kannski óhefðbundin mamma. Kannski svolítið gamaldags í stílnum mínum þar sem ég er ekki þyrluforeldri. Sonur minn fær mikla ást og umhyggju en hann þarf líka að læra að kljást við vandamál sjálfur frá ungum aldri svo hann geti orðið sjálfstæður ungur maður. Hann gengur í alþjóðlegan skóla hér í Sviss þar sem okkur finnst mikilvægt að hann sé í alþjóðlegu umhverfi með fjölbreyttum hópi af börn- um frá mörgum mismunandi bakgrunnum. Við erum með þau plön að fara til Parísar við fyrsta tækifæri en vitum vel að þau plön gætu fallið niður ef önnur bylgja fer af stað annaðhvort hér eða í Frakklandi en það er gaman að geta planað og hlakkað til þótt ein- hverjar breytingar verði á.“ Eva María hefur náð langt á ferli sínum sem kvikmynda- framleiðandi. Eva María hannaði húsið að innan. Hún valdi fiskibeina- parket á gólfið og skapar það ákveðinn hlýleika. Garðurinn fyrir utan húsið er með hellulagðri verönd og njóta fallegu útihúsgögnin sín vel á þessu svæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.