Morgunblaðið - 26.03.2021, Page 28
Himnesk páskaegg
Sænska vörumerkið Mrs. Mighetto leit dags-
ins ljós árið 2014. Hægt er að kaupa alls kon-
ar fallegan varning frá þeim, allt frá myndum
á vegg yfir í páskaegg. Það getur verið gam-
an að teikna fallegar myndir á hvít egg fyrir
páskana. Eggin frá Mrs. Mighetto eru augna-
konfekt fyrir fólk á öllum aldri.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
A
llt frá því ég hóf störf á spítalanum á fjórða ári
mínu í læknisfræði hef ég haft áhuga á því að
starfa á bráðamóttökunni. Fyrstu þrjú árin í
læknisfræðinni eru byggð á bóklegu námi,
næstu þrjú árin eru svo bóklegt nám ásamt
vinnu á spítala.“
Guðrún Ingibjörg segir vaktalífsstílinn henta henni vel
þótt kostulegt sé hversu oft hún og unnusti hennar Hauk-
ur Smári Hlynsson sem er hjúkrunarfræðingur eru yfir
hátíðardaga á sitthvorri vaktinni.
„Um jólin var ég að vinna og hann í vaktarfríi, síðan á
páskunum í fyrra var hann að vinna og ég í fríi. Þess vegna
hlakka ég mikið til páskanna, þar sem við erum bæði í
fyrsta skipulagða vaktafríinu okkar saman.“
Það sem hún kann hvað mest að meta við bráðadeild-
inda er að þar fær hún að vera fyrsta manneskjan til að
hitta sjúklinginn og það er bráðateymisins að komast að
því hvað er að.
„Á öðrum deildum sjúkrahússins er oftast vitað nokk-
urn veginn hvað er að þeim sem eru að koma á deildina.
Frumgreining og fyrsta meðferð er alltaf ákveðin ráðgáta
sem heillar mig.“
Konur eiga erindi í læknisfræðina
Guðrún Ingibjörg segir mikilvægt að samfélagið átti sig
á að læknar eru eins og annað fólk, með langanir og vænt-
ingar og líf utan vinnunnar.
„Ég held meira að segja að ótti margra lækna sé að
veikjast sjálfir enda hafa læknar löngum verið talið erf-
iðustu sjúklingarnir.“
Hana langar sérstaklega að hvetja ungar konur til að
skoða það að fara í læknisfræðina. Enda eiga konur jafn-
góða möguleika á því að verða góðir læknar og eignast
fjölskyldu, maka og börn eins og karlmenn, ef löngunin
fyrir það er til staðar.
„Staðalímyndin af læknum var áður svolítið þannig að
læknar væru dag sem nótt á spítalanum og sinntu varla
fjölskyldu eða áhugamálum. Vissulega koma tímabil þar
sem maður vinnur langar tarnir en almennt séð ætti eng-
inn að þurfa að fórna einkalífinu til að vera góður læknir.
Ég held að flestum, séstaklega yngra fólki, finnist gott aðs
já að læknar og heilbrigðisstarfsfólk eigi sér líf utan
læknisfræðinnar líka.“
Þó Guðrún Ingibjörg sé spennt fyrir páskunum þá er
hrekkjavaka uppáhaldshátíðin hennar.
Þá klæðir hún sig upp, gerir alls konar ógeðslegar veit-
ingar og hræðir sjálfa sig og aðra með alls konar uppá-
tækjum.
Á Instagram-síðunni má sjá fallegan texta við ljós-
myndirnar. Hvaðan kemur áhugi þinn á að skrifa?
„Ég hef haft ástríðu fyrir því að skrifa svo lengi sem ég
man eftir mér. Ég vann einmitt á Morgunblaðinu um tíma,
á sunnudagsblaðinu, með námi mínu í læknisfræði fyrstu
árin. Þá fékk ég útrás fyrir að skrifa og kunni einstaklega
vel við það. Mér finnst mjög gaman að segja sögur og
finnst þægilegt að tjá mig í rituðu máli. Ég er frekar róleg
í eigin persónu en þegar ég skrifa þá get ég látið gamminn
geysa!“
Hún trúir því að hið mannlega sameini okkur öll og
fyrst þegar maður hittir lækninn sinn á spítalanum sé
mikilvægt að vita að maður er í góðum höndum, en einnig
að læknirinn skilji að þótt verkefnið sé auðvelt fyrir fag-
Saman í
vaktafríi
umpáskana
Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir,
læknir á bráðamóttökunni er með
áhugaverða síðu á Instagram sem
heitir Dr. Lady Reykjavík og segir
hún ástæðuna fyrir því meðal ann-
ars vera til að breyta staðalímynd
samfélagsins um lækna.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Það er alltaf huggulega
skreytt fyrir páskana á
heimilinu.
Guðrún Ingibjörg er
læknir á bráðamóttöku
Landspítalans.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2021