Fréttablaðið - 27.08.2021, Page 10

Fréttablaðið - 27.08.2021, Page 10
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær eiginmaður minn og faðir, Bjarni Hólm Valgeirsson Aðalstræti 5, Akureyri, lést 19. ágúst. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 1. september kl. 13.00. Sigfríð Ingólfsdóttir Arnar Hólm Bjarnason Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Magdalena S. Ingimundardóttir lést 12. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóhanna Hermannsdóttir Jean-Pascal Pouyet Auður Hermannsdóttir Þórir Kristinsson Birgir Hermannsson Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Anna Hermannsdóttir Ingólfur Klausen og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir frá Skálholti í Vestmannaeyjum, lést á Hraunbúðum 15. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir hlýja og góða umönnun. Þóra H. Egilsdóttir Arngrímur Magnússon Kristján Egilsson Pála B. Pálsdóttir Guðjón Egilsson Sigurbjörn Egilsson Svanfríður Jóhannsdóttir Björg Egilsdóttir Sæmundur Ingvarsson barnabörn og barnabarnabörn. Sölvi Sveinsson, rithöfundur og fyrrverandi skólameistari, fylgir nýrri bók úr hlaði í dag: Eyþór Stefánsson tónskáld – Ævisaga. Hún kemur út í tilefni 120 ára fæðingarafmælis tónskáldsins. gun@frettabladid.is Sölvi Sveinsson svarar símanum í Skaga- firði, enda er þar útgáfuhóf í dag hjá Sögufélagi Skagfirðinga vegna nýrrar bókar Sölva um Eyþór Stefánsson tón- skáld sem hann kynntist sjálfur í upp- vextinum. „Eyþór og Sissa leigðu hjá foreldrum mínum fyrstu búskaparár sín. Það var áður en ég fæddist en það var alltaf samgangur milli heimilanna, skipst á jólaboðum og hist til að spila.“ – Og syngja væntanlega? „Ja, ekki ég, ég er laglaus en Eyþór var viðloðandi kirkju- kór í 60 ár, byrjaði þar ellefu ára gamall, söng þá altrödd en svo tenór þegar hann eltist.“ Eyþór Stefánsson lifði næstum alla 20. öldina, fæddist 1901 og dó 1999. „Hann samdi músík frá 1920 fram yfir 1970 – líklega um 70 lög,“ segir Sölvi. „Milli 30 og 40 hafa verið gefin út en fjögur til fimm þeirra eru oftast sungin, það eru Lindin, Mánaskin, Bikarinn og Nóttin með lokkinn ljósa. Eyþór var hrifinn af nýrómantískri ljóðlist og alls kyns dulúð lá honum nær hjarta. Hann var líka mikilvirkur í Leikfélagi Sauðár- króks, leikstýrði þar 32 sýningum og um 20 fyrir önnur félög í bænum. Auk þess lék hann 118 hlutverk, eitt í Reykjavík en hin á Króknum.“ Ekki hefur hann lifað á þessu? „Hann vann lengi sem skrifstofu- og verslunar- maður og var svo ráðinn til skólanna sem söngkennari og félagsmálafulltrúi. En sá illa og við krakkarnir gátum gert allan andsk … hjá honum, hann sá það ekki!“ En var ekki mikið verk að skrifa um hann bók? „Jú, ég ætlaði að skrifa um hann æviþátt í tímaritið Skagfirðinga- bók en sá strax að ég myndi sprengja þann ramma eins og skot og hef verið að dunda við bókina, með öðru, í sex ár. Á síðasta sprettinum var ég líka að endur- skrifa smásögur sem Sæmundur var að gefa út eftir mig og það var svo gott að hoppa á milli. Þegar maður skrifar ævi- sögu ráða heimildirnar ferðinni en þá var fínt að fara yfir í smásögurnar þar sem ég gat skrifað það sem mér sýnd- ist!“ ■ Eyþór Stefánsson samdi líklega um sjötíu lög – og söng og lék Sölvi í blíðunni í Skagafirði í gær, nýbúinn að gæða sér á bláberjum hjá vinum sínum. MYND/KARITAS SIGURÐARDÓTTIR Eyþór var hrifinn af nýrómantískri ljóðlist og alls kyns dulúð lá honum nær hjarta. gun@frettabladid.is Sviðslistahópurinn Trigger Warning stendur fyrir verkinu Brum í náttúru- perlunni Heiðmörk um helgina milli klukkan 11 og 16.30 og aftur á sviðs- listahátíðinni Plöntutíð, 5. og 6. sept- ember. Höfundar eru Kara Hergils, Andrea Elín Vilhjálmsdóttir, Gunnur Martinsdóttir Schlüter, Harpa Arnar- dóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir sem lýsa því svo: Brum er hljóðganga í skógi. Þátttak- endur hlusta sig inn í skóginn og upplifa tengsl trjánna hvers við annað og mann- eskjuna. Trén í skóginum eru flytjendur verksins og leiða áhorfendur í gegnum ferðalag þar sem þau miðla djúpri vitn- eskju tilvistar sinnar sem á ævintýra- legan hátt endurspegla samfélag manna. En hvar skal byrja – hvar skal standa? Kara Hergils verður fyrir svörum: „Áhorfendur panta miða á tix.is og þeir mega velja sér förunauta í ferðalagið en greiða aðeins einn miða. Þeir mæta svo á Borgarstjóraplanið í Heiðmörk þar sem einhver úr okkar hópi verður. Þeir fá kort af leiðinni og leggja af stað í hljóðgönguna á eigin hraða. Hér er aftur vitnað í lýsingu höfunda á verkinu: Í Brum gefst áhorfandanum tækifæri á að hverfa tímabundið úr mannmiðjaðri hugsun og njóta augna- bliksins sem skógurinn hefur upp á að bjóða í hvers kyns veðráttu sem ríkir. Trén hafa áhrif á skynjun áhorfand- ans í skóginum, mótandi og stýrandi, til dæmis með því að láta hann leika, snerta, tala, syngja, liggja og upplifa. ■ Upplifa tengsl trjánna hvers við annað Fólk má velja sér förunauta og greiða aðeins fyrir einn miða að sögn Köru Hergils. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR gun@frettabladid.is Lína okkar tíma nefnist haustsöfnun Barnaheilla í ár. Hún hófst í gær og fer fram með sölu armbands. Allur ágóði af sölu þess rennur beint til þróunarverkefnis samtakanna í Síerra Leóne þar sem lögð er áhersla á vernd stúlkna gegn ofbeldi. Najmo Fyasko, f lóttakona frá Sómalíu, keypti fyrsta armbandið í gær. Þrátt fyrir að vera bara 23 ára gömul hefur hún upplifað mikið ofbeldi, var neydd í hjónaband 11 ára að aldri með 32 ára gömlum manni, en náði að flýja aðstæður tveimur árum síðar. Í dag berst hún fyrir réttindum stúlkna og kvenna. ■ Haustsöfnun Barnaheilla Najmo og Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla. MYND/AÐSEND TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 27. ágúst 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.