Fréttablaðið - 27.08.2021, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þjóðleikhúsið býður ung-
mennum á fyrstu sýningar á
Rómeó og Júlíu. Sigurbjartur
Sturla og Ebba Katrín fara
með titilhlutverkin. Þau
segjast vona að verkið skapi
umræðu um þá einangrun og
vanlíðan sem ungt fólk hefur
þurft að upplifa í faraldrinum.
steingerdur@frettabladid.is
Eitt af þeim verkum sem stóð til að
frumsýna í Þjóðleikhúsinu í byrjun
árs var Rómeó og Júlía í leikstjórn
Þorleifs Arnar Arnarssonar. Farald-
urinn setti sitt strik í reikninginn og
verður verkið loks frumsýnt þann
4. september. Þjóðleikhúsið vildi
koma sérstaklega til móts við ungt
fólk sem hefur þurft að aðlaga sig
breyttu lífi með takmörkunum og
bjóða ungmennum sem fædd eru
á árunum 2001 til 2005 á sýning-
una dagana 4. til 10. september.
Sigurbjartur Sturla Atlason og Ebba
Katrín Finnsdóttir fara með titil-
hlutverkin.
Skapar vonandi umræðu
„Þessi hugmynd kom fyrir þó
nokkrum tíma. Flestir sem koma
að sýningunni eiga börn, systkini
eða frændfólk sem er í mennta-
skóla núna. Þetta er búið að vera
svolítið dapurlegt að vera í mennta-
skóla undanfarið. Þetta er kannski
sá aldurshópur sem minnst hefur
verið talað til í leikhúsi undanfarin
ár, svo það var auðvitað líka þörf að
því leyti,“ segir Sigurbjartur Sturla.
„Þetta er aldurshópurinn sem
hefur hvað helst þörf til að spegla
sig í þessari vanlíðan sem fyrir-
finnst kannski í verkinu, þetta er
auðvitað tragískt verk. Það getur
líka verið ákveðin þerapía að fara í
leikhús og fylgjast með einhverjum
fara í gegnum einhverjar tilfinn-
ingar sem eru að bærast í manni
sjálfum. Auðvitað er þetta tragedía
en við erum að reyna að tala til
þeirra, vonandi ná að skapa samtal.
Einhvern veginn taka þessa van-
líðan bara í fangið, umvefja hana
og skapa umræðu. Finna einhvern
farveg,“ segir Ebba Katrín.
Samfélagið að breytast
Sigurbjartur segir að í grófum
dráttum hafi verkinu ekki verið
breytt mikið. „Þetta er þessi saga
sem maður þekkir og við erum
með okkar bara „take“ á hana. Sem
er eflaust það mikilvægasta sem þú
þarft að hafa í huga ef þú ert að setja
upp eitthvert klassískt verk sem
hefur verið sýnt milljón sinnum út
um allan heim í mörg hundruð ár,“
bætir hann við.
„Við erum alveg fylgin textanum,
en á móti kemur að þetta er alveg ný
þýðing sem Jón Magnús Arnarsson
og Harpa Rún Kristjánsdóttir gerðu.
Shakespeare-textinn fær alveg að
njóta sín. Við erum líka komin með
önnur gleraugu, farin að sjá söguna í
aðeins öðru ljósi eftir þær hræringar
sem hafa verið í samfélaginu á síð-
ustu árum. Ég las þetta verk fyrir
löngu og svo las ég það aftur núna
þegar við fengum þessi hlutverk í
hendurnar. Mér leið eins og ég væri
að lesa það í fyrsta skipti. Ég held
að samfélagið sé að breytast og það
er svo miklu meira í þessari sögu
heldur en bara þessi ást. Þetta er
líka fullt af ógeði og ofbeldi en líka
fegurð,“ segir Ebba Katrín.
Tónlistin gefur sögunni vídd
Mikil vinna hefur verið lögð í tón-
listina og henni er ætlað að skapa
ákveðna stemningu.
„Það sem tónlistin hefur gert er að
gefa meiri vídd í karaktera Rómeós
og Júlíu. Mér finnst við geta litið á
þetta sem eins konar kór eins og
í grískum harmleikjum, þar sem
þau eru raun alvitur en samt eru þau
partur af okkur. Þannig að þetta er
nokkurs konar samsuða en þetta
gefur karakterunum og sögunni
meiri vídd,“ segir Ebba Katrín.
Sigurbjartur og Ebba Katrín hafa
þekkst í nokkurn tíma. Þau eru
fædd sama árið og þau sóttu um
í leiklist í Listaháskólanum sama
árið. „Við komust bæði í lokaþrepið
þar og lékum á móti hvort öðru í
senu úr kvikmyndinni Festen. Svo
komumst við hvorugt inn í skólann í
fyrstu atrennu. En „look at us now“,“
segir Sigurbjartur léttur í bragði,
enda leika þau nú stærstu drauma-
hlutverk f lestra sem numið hafa
listina. „Svona eru örlögin og lífið,“
bætir Ebba Katrín við.
Ungmenni fædd á árunum 2001
til 2005 geta pantað miða á miða-
pöntunarvef Þjóleikhússins. Tak-
markað magn er í boði. ■
Svo miklu meira en bara ást
Fíleflt leikár í vændum
arnartomas@frettabladid.is
„Við erum bæði glöð og full tilhlökkunar að fá
að draga tjöldin frá við upphaf nýs leikárs fyrir
fullum sal eða því sem næst. Við finnum líka
fyrir mikilli tilhlökkun meðal áhorfenda,“ segir
Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri um
áhrif væntanlegra tilslakana á leikhúslífið á
Íslandi. „Okkur hefur tekist að bjóða upp á fjöl-
breytta starfsemi á síðustu 18 mánuðum en hún
hefur verið með miklum takmörkunum. Þessi
áfangi nú er því gríðarlega stór og mikilvægur.“
Frá og með laugardeginum verður starfsemi Þjóðleikhússins
aftur opin án mikilla takmarkana þar sem hvert sæti verður nýtt
og veitingasala verður heimil á nýjan leik. „Við erum að nálgast það
að komast í eðlilegt ástand og erum óskaplega þakklát fyrir þann
stuðning og skilning sem stjórnvöld sýna með þessum aðgerðum,“
segir Magnús. „Við mætum bæði tvíefld og fílefld inn í nýtt leikár og
vonum að þess verði ekki langt að bíða að allar takmarkanir heyri
sögunni til.“
Magnús segir að listafólk og menningarstofnanir um allt land hafi
í faraldrinum fundið leiðir til að nýta tímann vel og segir Þjóðleik-
húsið einstaklega undirbúið fyrir nýtt leikár sem er í þann mund
að hefjast. „Fram undan er metnaðarfullt og kraftmikið leikár, fullt
af spennandi nýjum sýningum í bland við rómaðar eldri sýningar.“
Leikárið í heild má kynna sér betur á heimasíðu Þjóðleikhússins.
Þótt flestir
þekki verkið
þá talar það ef
til vill sjaldan
betur til fólks en
einmitt núna.
MYND/
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Magnús Geir
Þórðarson þjóð-
leikhússtjóri.
Það getur líka verið
ákveðin þerapía að
fara í leikhús og fylgjast
með einhverjum fara í
gegnum einhverjar
tilfinningar sem eru að
bærast í manni sjálf-
um.
Ebba Katrín.
18 Lífið 27. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGA
KL. 19.00
MATUR OG HEIMILI
MEÐ SJÖFN ÞÓRÐAR
Lifandi þáttur um matargerð
í bland við innanhússarkitektúr,
hönnun og fjölbreyttan lífsstíl.
Þátturinn er á dagskrá alla
þriðjudaga kl. 19.00