Fréttablaðið - 27.08.2021, Side 32
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Svanborgar
Sigmarsdóttur
n Bakþankar
Úlpufyrirtæki auglýsti í vikunni að
það væri að koma vetur. Ég veit að
jólaauglýsingar fara að koma, strax
og skólaupphafs-, námskeiða- og
hreyfingarauglýsingum lýkur. En
þarna vantar samt heila árstíð inn á
milli. Haustið er ekki byrjað.
Ég hef ekki haft mikinn tíma til
að líta upp úr vinnu að undanförnu.
En ég veit að haustið er ekki komið,
því ég er ekki farin að taka upp
kartöflur. Ég er ekki einu sinni búin
að fara í berjamó. Rifsberin mín eru
rétt að byrja að roðna. Það er ekki
gulnað laufblað að sjá. Og það hafa
borist fréttir af rétt tæplega 30°C á
Norður- og Austurlandi.
Fréttir af vetri eru því stórlega
ýktar og ætti úlpufyrirtækið að
skammast sín fyrir flumbrugang-
inn. Ég býst við heilsíðuauglýsingu
með afsökunarbeiðni til þjóðar-
innar strax eftir helgi.
Ég rekst ótrúlega oft á fólk sem
trúir ekki á íslenskt vor eða haust.
Heldur því fram fullum fetum að
á Íslandi séu bara tvær árstíðir. Að
halda annað sé að lifa í blekkingu.
Á móti segi ég að þetta er eins og að
trúa ekki á frumefni, atóm eða súr-
efni. Vor og haust koma. Hvort sem
fólk trúir á þessar árstíðir eða ekki.
Haustið verður litfagurt og tært.
Með smá rigningu og roki inn á
milli. Vorið kemur svo og dreifir
grænum lit yfir óhreinindi sem
safnast saman undir snjó vetrarins.
Eftir „síðvetrar/snemmvorið“
þegar allt er ljótt. Hvort um sig eru
haustið og vorið ekki langar árs-
tíðir. En við reynum að vera opin
og fordómalaus gagnvart þeim sem
minni eru. Og leyfum öllum að vera
með. Líka litlu árstíðunum. n
Flumbrugangur
og fordómar
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
NÝTT FIMM STJÖRNU LÚXUS HÓTELRÚM
SERTA OCEAN SPLENDID – STILLANLEGT
Fimm stjörnu Hótel-rúmalínan frá Serta er fáanleg í verslunum Betra Baks í Reykjavík, á Akureyri og Ísafirði.
SERTA OCEAN SPLENDID stillanlegt heilsurúm
nú á kynningarverði með 20% afslætti.
SERTA ER OPINBER BIRGIR
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta
er fimm svæða skipt pokagorma dýna
þar sem hreyfingar þínar trufla ekki
rekkjunaut þinn. Góður stuðningur er
við bakið en mýkra gormakerfi er við
axlir og mjaðmasvæðið. Þannig liggur
þú alltaf með beina hryggsúlu og nærð
hámarks hvíld. Hægt er að sérsníða
rúmið að þínum þörfum, velja um 3
mismunandi stífleika sem og fjórar
mismunandi topp dýnur. Áklæðið
utan um dýnuna er mjúkt og slitsterkt
áklæði, ofnæmisfrítt og andar vel.
Kynningarverð 519.920 kr.Verðdæmi: Serta Ocean Splendid 2 x 80 x 200 cm. Fullt verð: 649.900 kr.
Náttborð ekki inni-
falið í verði en selt sér.
Serta Ocean Splendid eru fáanleg í tveimur áklæðisgerðum gráu sléttflaueli og
gráu áklæði. Þau fást í fjórum stærðum; 160/180/200 x 200 cm og 180 x 210 cm
K Y N N I N G A R A F S L ÁT T U R
20%
S E R TA O C E A N S P L E N D I D
NÝTT
S E R TA O C E A N S P L E N D I D
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut