Fréttablaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 2
WWW.PLUSFERDIR.IS | INFO@PLUSFERDIR.IS
Birt með fyrirvara um prentvillur, stafabrengl og önnnur „úps“
BÓKAÐU Á PLUSFER
DIR.IS
FLUG TIL
MALAGA
06. -17. ÁGÚS
T
39.900 KR.
06. - 17. ÁGÚST
12 DAGAR
FLUG & GISTING
VERÐ FRÁ 89.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
Costa de
l Sol
Einn ég sit og prjóna
Guðbjörg Hrönn Sigur-
steinsdóttir, eða Guðbjörg í
bankanum eins og Eyjamenn
þekkja hana, hefur aldrei
misst af Þjóðhátíð.
svavamarin@frettabladid.is
VERSLUNARMANNAHELGIN „Ég er
65 ára og hef aldrei misst úr Þjóð-
hátíð, ég missti ekki einu sinni af
henni árið 1973, þá var hún haldin
einn dag og er ég búin að fara síðan
í vagninum með mömmu og pabba,“
segir Guðbjörg Hrönn Sigursteins-
dóttir.
Annað árið í röð er Þjóðhátíð
blásin af vegna heimsfaraldurs.
„Maður tekur því sem að hönd-
um ber, við höfum upplifað eldgos
og ýmislegt,“ segir Guðbjörg sem
ætlar að njóta hátíðarinnar með
fjölskyldu sinni.
„Á föstudeginum er haldið hátíð-
arkaffi klukkan þrjú eftir setning-
una sem er yfirleitt í dalnum en
verður í garðinum,“ segir Guðbjörg.
„Börn og barnabörn koma og er
ég að skreyta brauðtertu í þessum
töluðu orðum.“
Þau hjónin grilluðu með syni
sínum í gærkvöldi. „Svo látum við
bara ráðast hvernig þetta verður, við
gerum eins gott úr þessu og hægt er,“
segir Guðbjörg.
Aðspurð hvort einhverjar aðrar
hefðir ríki í kringum hátíðina segir
Guðbjörg það ekki vera sérstaklega.
Hún fari í íslenska þjóðbúninginn ef
veðrið er gott.
Áður fyrr var fjölskyldan alltaf
með lunda í hvíta tjaldinu í Herjólfs-
dal en Guðbjörg segir að nú þegar
lundastofninn eigi erfitt uppdráttar
vilji þau ekki veiða hann lengur.
„Þetta er mikil fjölskylduhátíð og
pabbi minn elskaði hana jafn mikið
og við öll,“ segir Guðbjörg.
„Þegar pabbi var níræður heim-
sótti ég hann á dvalarheimili aldr-
aðra. Það var spáð kulda um kvöldið
og ég spurði hann hvort hann vildi
ekki bara vera heima því það væri
svo kalt í dalnum. Hann horfði
stórum augum á mig,“ rifjar Guð-
björg upp. Faðir hennar hafi ekki
tekið í mál að missa af brennunni.
„Hann mætti í dalinn um kvöldið
og var þetta hans síðasta Þjóðhátíð.“
Að sögn Guðbjargar læddist hún
með manninum sínum í dalinn í
fyrra þegar það var kveikt á brenn-
unni. „Ég missti ekki af brennunni
heldur þá,“ segir hún kímin.
„Við erum búin að kaupa streymi
á Brekkusönginn og allt er „reddí“
fyrir það,“ segir Guðbjörg og biður
fyrir góða kveðju og óskar öllum
gleðilegrar helgar. ■
Aldrei misst úr hátíð og fer í
þjóðbúninginn um helgina
Guðbjörg fer í þjóðbúninginn á Þjóð-
hátíð ef veður leyfir. MYND/AÐSEND
Guðbjörg og eiginmaðurinn Halldór Sveinsson voru alltaf með lunda í hvíta
tjaldinu en veiða hann ekki lengur því stofninn er svo veikur. MYND/AÐSEND
Við gerum eins gott úr
þessu og hægt er.
Guðbjörg Hrönn Sigursteins-
dóttir.
Borgarbúar hafa nýtt sólardagana undanfarið af kappi og flykkst út undir bert loft. Þó að maður njóti blíðviðris og útiveru þarf ekki að láta sér falla verk
úr hendi eins og þessi ungi maður sýnir með prjónaskap á Klambratúni. Því miður virðist hins vegar sem geislaflóðið verði stöðvað strax á morgun því að
Veðurstofan gerir ráð fyrir skýjuðu veðri eins langt og augað eygir sem er fram á miðvikudag í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
hjorvaro@frettabladid.is
COVID -19 Gylfi Þór Þorsteinsson,
umsjónarmaður Farsóttarhúsa, segir
í höfn að útvega þeim úrræði sem
þurfa núna um helgina.
Hins vegar hafi orðið fullt í þeim
híbýlum sem Farsóttarhúsin hafi yfir
að ráða undanfarna daga og erfitt sé
að skipuleggja fram í tímann hversu
mörg rými þarf að hafa til reiðu.
„Eins og staðan er núna [í gær-
kvöldi] er ég með 20 pláss laus en
það er fljótt að fara. Af þeim sökum
höfum við tryggt okkur aðgang að
Hótel Stormi þar sem við höfum
pláss fyrir áttatíu," segir Gylfi Þór.
„Álagið á Landspítalanum er mikið
og af þeim sökum höfum við verið að
taka við framlínustarfsmönnum sem
þurfa að fara í einangrun. Þá er stöð-
ugur fjöldi af ferðamönnum að koma
hingað," segir Gylfi Þór enn fremur.
„Það sem er kannski verst núna er
að það er erfitt að hafa yfirsýn yfir
það hversu mörgum ferðamönnum
við þurfum að taka við á hverjum
tímapunkti. Að mínu mati þarf að
fara að taka einhverja ákvörðun um
hvernig eigi að hafa þetta til lengri
tíma litið,“ bætir Gylfi Þór við. ■
Verður að finna
lausn til framtíðar
Gylfi Þór Þorsteins-
son, forstöðumað-
ur farsóttarhúss
Rauða krossins Foss
hóteli.
hjorvaro@frettabladid.is
UMFERÐ Þung umferð var út úr
höfuðborginni í gær.
Á Norðurlandi vestra stigu lög-
reglumenn úr þyrlu Landhelgis-
gæslunnar við umferðareftirlit
nærri Blönduósi. Þar voru ökumenn
sektaðir fyrir of hraðan akstur.
Lögreglan á Akureyri sagði
umferðina þunga í kringum bæinn.
Klukkan 14.00 í gær höfðu 25 verið
stöðvaðir þar fyrir of hraðan akstur
síðasta sólarhringinn.
Um klukkan 20.30 höfðu svo fjórir
verið stöðvaðir frá því klukkan 14.00.
Umferðin hafi þó heilt yfir gengið vel
og engin umferðarslys orðið. ■
Óvænt hraðaeftirlit af himnum ofan
Hraðinn mældur skammt frá Blönduósi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 Fréttir 31. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ