Fréttablaðið - 31.07.2021, Qupperneq 4
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK.
9.202.300 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
kristinnpall@frettabladid.is
COVID-19 Ný bylgja kórónaveiru
faraldursins hefur ekki haft veruleg
áhrif á ferðamannastrauminn til
Íslands en það gæti breyst eftir helgi
þegar Ísland kemst á rauðan lista.
Framkvæmdastjóri hótelkeðj
unnar Íslandshótela sem rekur 17
hótel segir aðeins hafa hægst á bók
unum fram í tímann en það sé enn
sem komið er lítið um afbókanir.
Þar sem smitum hefur fjölgað tals
vert á undanförnum dögum verður
Ísland rautt á korti Sóttvarnastofn
unar Evrópu, ECDC, óháð því hversu
mörg smit greinast á næstu dögum.
„Í stóru myndinni höfum við ekki
fundið fyrir miklum áhrifum. Það
er ein bókun í tengslum við kvik
myndaverkefni úti á landi sem er í
skoðun. Fólk er að hringja, spyrja
spurninga og velta þessu fyrir sér,
sérstaklega með stærri pantanirnar,“
segir Davíð Torfi Ólafsson, fram
kvæmdastjóri Íslandshótela, spurður
hvort afbókanir séu farnar að hrann
ast inn á borð Íslandshótela.
„Það hefur kannski aðeins hægst
á bókunum fram í tímann en það
er ekki mikið um afbókanir,“ segir
Davíð sem á þó von á því að hlut
irnir gætu breyst á næstu dögum
þegar Ísland fer á rauðan lista ECDC.
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri hefur sömu sögu
að segja, ekki sé mikið um af bók
anir en að það geti breyst á næstu
dögum.
„Það er ekki að greina að nýjustu
aðgerðirnar séu að hafa áhrif á
ferðamannastrauminn. Í gær kom
í ljós að Ísland fer á rauðan lista og
það á eftir að koma í ljós hvaða áhrif
það hefur,“ segir Skarphéðinn Berg,
aðspurður um áhrif faraldursins á
ferðamannastrauminn hingað til
lands. ■
Segja lítið um afbókanir ennþá þótt sprenging sé í smitum
Ferðamönnum hefur fjölgað veru-
lega í sumar.
61% 62% 60%
28%
77%
20% 20%
7%
11%
18%
3%
19%
47%
11%
14%
6%
6%
11%
8%
11%
0%
20%
40%
60%
80%
100%
Launþegi í
fullu starfi
Launþegi í
hlutastarfi
Atvinnu-
rekandi/
Sjálfstætt
starfandi
Í námi Á eftir-
launum
✿ Með hvaða flugfélagi er líklegast að þú fljúgir í ár?
0%
20%
40%
60%
80%
100%
18-24 ára 25-34 ára 35-44 ára 45-54 ára 55-64 ára 65 ára
og eldri
■ Icelandair ■ Play ■ Wizz ■ Annað
48% 52% 58% 66% 67% 70%
45% 25%
8%
10%
25%
8%
10%
11%
10%
14%
11%
10%
6%
9%
16% 10%
7%
Þeir Íslendingar sem hyggja
á utanferðir á árinu telja lík
legast að Icelandair verði fyrir
valinu til að koma þeim á
áfangastað. Val á flugfélögum
breytist þó með aldrinum og
Play er vinsælla meðal yngri
kynslóðarinnar.
adalheidur@frettabladid.is
FERÐALÖG Rúm sextíu prósent
þeirra sem hyggja á utanferðir á
árinu segja líklegast að þau f ljúgi
með Icelandair. Þetta kemur fram
í könnun sem Prósent gerði fyrir
Fréttablaðið. Rúm tuttugu prósent
telja flug með Play líklegra.
Þá nefndu 7,6 prósent flugfélagið
Wizz og 11,6 prósent nefndu önnur
f lugfélög. Spurt var: Með hvaða
flugfélagi er líklegast að þú fljúgir
til útlanda á árinu?
Athygli vekur að námsmenn hafa
allt aðra sýn á flugfélögin en aðrir,
en 57 prósent þeirra velja Play en
aðeins 28 prósent Icelandair. Ellefu
prósent þeirra velja Wizz og fjórtán
prósent önnur flugfélög.
Könnunin sýnir einnig nokkuð
skýran mun á vali fólks eftir aldri.
Yngsti aldurshópurinn skiptist
jafnt í tvö lið, 48 prósent segjast lík
lega munu f ljúga með Icelandair
og 45 prósent með Play. Hjá elsta
hópnum hefur Icelandair hins vegar
yfirburði með 70 prósent. Aldurs
hópurinn velur Play aðeins í tíu
prósentum tilvika.
„Það má álykta að námsmenn séu
líklegri til að reyna að velja ódýrt
þar sem oftast er um að ræða fólk
sem hefur minna á milli handanna
og hefur því minni forsendur til að
velja út frá öðru en verði,“ segir Isa
bel Al ej andra Díaz, forseti Stúdenta
ráðs Háskóla Íslands.
Hún segir hins vegar að stúdentar
séu eðli málsins samkvæmt yfir
leitt vel upplýst fólk og reyni líka að
velja skynsamlega og taka prinsipp
afstöðu sem neytendur.
Námsmenn líklegastir til að velja Play
■ Icelandair
■ Play
■ Wizz
■ Annað
flugfélag
60,1%
20,6%
7,6%
11,6%
Það má álykta að
námsmenn séu líklegri
til að reyna að velja
ódýrt þar sem oftast er
um að ræða fólk sem
hefur minna á milli
handanna og hefur því
minni forsendur til að
velja út frá öðru en
verði.
Isa bel Al ej andra
Díaz, forseti
Stúdentaráðs
Háskóla Íslands.
„Þótt það sé auðvitað gott að ungt
fólk hafi valkost við að ferðast, tel
ég einnig mikilvægt, án þess að tala
fyrir alla stúdenta, að líta til þess á
hvaða forsendum flugfélög og fyrir
tæki eru rekin.“
S t j ó r n m á l a s k o ð a n i r h a f a
almennt ekki afgerandi áhrif á val
fólks á f lugfélögum og kjósendur
flestra flokka velja Icelandair yfir
leitt í 55 til 70 prósentum tilvika
en Play í 20 til 30 prósentum til
vika. Samfylkingin sker sig þó úr
en aðeins þrettán prósent kjósenda
flokksins telja líklegt að þau fljúgi
með Play. ■
hjorvaro@frettabladid.is
ELDGOS Líklegt er að einhverjir noti
helgina til þess að skoða gosstöðv
arnar í Geldingadölum. Þorvaldur
Þórðarson, prófessor í eldfjalla
fræði, segir bestu gönguleiðina
þangað hvað útsýni varðar vera að
Langahrygg og StóraHrút.
„Virkni gossins hefur haldist
svipuð síðustu daga en hún liggur
niðri á um það bil sex til þrett
án klukkutíma fresti og svo gýs í
svona á bilinu níu til nítján klukku
tíma. Það tekur svona þrjá til fjóra
klukkutíma fyrir gígana að fyllast
og eftir það er svo mesta sjónar
spilið,“ segir Þorvaldur.
„Gasmengun við gosstöðvarnar
getur alltaf farið yfir hættumörk
en mengunin leggst undan vindi og
því öruggast að horfa til eldgossins
með vindinn í bakið,“ bætir Þor
valdur við.
Í hægviðri getur gas safnast fyrir
í lægðum, þá stjórnast vindafar af
landslagi og gas getur verið yfir
hættumörkum langt upp í hlíðar,
allan hringinn í kringum gosstöðv
arnar. Þá þarf fólk að færa sig upp
á fjöll og hryggi en ekki halda sig í
brekkunum fyrir ofan. ■
Besta útsýnið er
frá Langahrygg
Göngufólk á Langahrygg.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Allir
4 Fréttir 31. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ