Fréttablaðið - 31.07.2021, Page 8

Fréttablaðið - 31.07.2021, Page 8
Í LOFTINU Sækja frá SÆKTU NÝJA APPIÐ! LAUGARDAGA 16:00-18:30 VEISTU HVER ÉG VAR? urduryrr@frettabladid.is Borgarbúar voru í óðaönn að undirbúa sig fyrir óhefðbundna verslunarmannahelgi í gær, annað árið í röð. Þótt útihátíðir hafi verið blásnar af ruku tjöld og annar úti- legubúnaður úr hillum verslana eins og heitar lummur og harðfiskurinn sömuleiðis. Fréttablaðið hitti fólk sem var að sækja sér vistir í verslunarleið- öngrum víðs vegar um borgina í gær og spurði hvernig þessi óvenju- lega verslunarmannahelgi legðist í það. n Flestir ætla að elta stemninguna Birgitta Inga, kölluð Bitta „Bara vel! Systir mín á afmæli. Við ætluðum að fara norður en svo hættum við bara við. Aðallega af því við fundum ekki bíl. Nennti ekki að húkka.“ Rakel Gróa og Arnór Rafn „Bara mjög vel! Við höfðum planað að fara á Þjóðhátíð en ákváðum að skipta um stefnu og fara á Laugarvatn í sumarbústað og við erum bara ánægð með þetta. Við erum að elta vinina og stemninguna og vera skynsöm líka.“ Kristófer Daði „Ég veit það ekki alveg, ég átti að vera í Eyjum. Ætli hún leggist ekki vel í mig bara. Við erum að fara í útilegu í Hval- firðinum, veit ekki meir. Það á bara eftir að koma í ljós.“ Bríet Mörk „Það er bara mjög óljóst, þannig að ég er bara róleg fyrir helginni. Enda var ég ekki að stefna á að fara á Þjóðhátíð eða neitt þannig. Þetta eru ekkert vonbrigði. En ég held að ég reyni að gera eitthvað svona áður en ég fer að vinna aftur, spurning hvað það er, það er ekkert planað.“ Það var nóg að gera í Bónus í Skeifunni um hálffimmleytið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ ÓTTAR 8 Fréttir 31. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.