Fréttablaðið - 31.07.2021, Side 20
Ég veit allavegana að
ég get sagt að síðustu
árin fékk hann stuðn-
ing frá mér. Skilning,
ást og kærleik alveg
þangað til hann fór.
20 Helgin 31. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
pabbi. Ég veit að þetta segja allir
sem eiga góða pabba en hann var
bara besti pabbi í heimi.
Hann var alltaf virkilega að passa
upp á að maður hefði alltaf gaman
og að manni liði eins og það væri
hlustað á mann. Hann hlustaði
mikið, ólíkt mörgum fullorðnum
sem hlusta ekki á börn. Hann lét
mann alveg finna það að hann
hlustaði, skildi og hafði áhuga á því
sem maður var að segja. Þótt maður
væri bara krakki að segja einhverja
vitleysu.“
Róbert segir þá feðga hafa verið
mjög nána. Sérstaklega síðustu árin.
„Við áttum okkur alls konar sögu.
Sérstaklega frá því að ég byrjaði í
neyslu og þá voru samskiptaörðug-
leikarnir augljóslega ekki honum að
kenna,“ segir Róbert og bætir við að
hann hafi þá ekki kunnað, frekar
en fíklar í neyslu almennt, að eiga
í eðlilegum eða heilbrigðum sam-
skiptum.
Skilningur, ást og kærleikur
„Þannig að við stönguðumst svolítið
á en ég er mjög þakklátur fyrir að
hafa öðlast ákveðinn skilning fyrir
honum, sem ég hafði ekki áður, og
virðist hafa fengið á þessari edrú-
göngu minni þegar ég byrjaði að
vinna í sjálfum mér. Eins og bara
að fatta af hverju hann var eins og
hann var.
Þú veist, þetta voru einhverjir
hlutir, ákveðin hegðun og hitt og
þetta sem fór í taugarnar á mér. Bara
vegna þess að ég vildi ekkert skilja
þetta og hafði núll þolinmæði gagn-
vart þessu. Þetta var ekkert hræði-
legt og svo fór þessi skilningur að
koma hægt og rólega upp úr tvítugu.
Þegar ég er eitthvað í kringum 24
ára fer ég fyrst fyrir alvöru að finna
einhvern veginn fullkomið æðru-
leysi og skilning gagnvart honum
og ég er svo þakklátur fyrir það.
Vegna þess að ég veit allavegana að
ég get sagt að síðustu árin fékk hann
stuðning frá mér. Skilning, ást og
kærleik alveg þangað til hann fór.
Hvorki reiður né sár
Ég er ekki reiður út í pabba. Ég er
ekki sár út í hann en mér líður mjög
oft illa yfir því að hugsa um það
hvað honum leið illa í alvörunni.
Vegna þess að ég veit honum leið
svo virkilega, óhuggulega illa.
Þú veist, við erum að tala um
mann sem fann einhvern veginn
fyrir tilfinningum og upplifði til-
finningar á svo dramatískan og
gígantískan hátt, bara miðað við
venjulegan mann. Það er óhuggu-
legt að hugsa til þess þegar honum
leið illa. Hversu slæmt þetta var,
hversu oft og mikið.
Ég vil líka taka það sérstaklega
fram að þótt ég skilji pabba þá er
einhvern veginn alveg skýrt að
þetta er aldrei svarið. Það er svo
100% skýrt fyrir mér núna sem
aðstandanda og það er svo gott að
sjá skýrt að svarið er aldrei að fara
bara og skilja alla eftir.“
Áleitnar spurningar
Róbert segir áleitnar og erfiðar
spurningar um hvort þau hefðu
getað gert eitthvað öðruvísi eða
komið í veg fyrir sjálfsvígið leita
óhjákvæmilega á þá sem sitja eftir
með söknuðinn og sorgina.
„Auðvitað kemur það upp í
hugann. Sérstaklega fyrst. Alveg
allra fyrst. Þá varð það bara að
þráhyggju lúppu hjá mér. Kannski
bara fullkomlega eðlilega. Oft
heldur maður að það hefði kannski
gert eitthvað ef maður hefði breytt
einhverju einu orði. Í einhverri
setningu. Sagt eitthvað öðruvísi
og að það hefði kannski breytt því
hvernig honum leið í tugi ára.“
Ómannlegar kröfur
Gísli Rúnar var eins og hann var.
Hugmyndaríkur, frjór, ofvirkur,
ofurnákvæmur, ósérhlífinn og ör
og Róbert segir þannig fólk óhjá-
kvæmilega geta verið erfitt í sam-
skiptum.
„Heldur betur. Algjörlega og það
er alveg svoleiðis. Hann var mikill,
rosalega stór karakter. Ég held ég
hvorki viti um né hafi komist nálægt
stærri persónuleika nokkurs staðar
í lífinu. Hann var bara svo mikið
stór karakter.“
Róbert bætir við að ofan á allt
annað hafi pabbi hans verið með
fullkomnunaráráttu á hástigi. „Og
hafi ég einhvern tímann hitt vinnu-
alka þá var það hann. Og hann gerði
einmitt sömu kröfur á fólk og hann
gerði á sjálfan sig og þær kröfur voru
náttúrlega óraunhæfar. Ómann-
legar eiginlega. Algjörlega óraun-
hæfar og beinlínis óhollar og bara
hættulegar.“
Róbert segir þennan þátt í fari
föður síns vera eitt af því sem hann
finni hjá sjálfum sér og að fullkomn-
unaráráttan hafi oft staðið honum
fyrir þrifum og stöðvað hann í
miðjum verkefnum. „Þá var ég svo
gjörsamlega fastur í að eitthvað
þyrfti að vera fullkomið og komst
þar af leiðandi ekki lengra með það
verkefni,“ segir Róbert sem hefur á
þessu erfiða ári fallið og risið upp.
Fallið
„Ég gleymdi algjörlega að hugsa um
það að hlúa að sjálfum mér í marga
mánuði og það leiddi bara til þess
að ég tók enn eina dýfuna og ofan í
svartnættið. Það entist, Guði sé lof,
stutt,“ segir Róbert sem byrjaði aftur
í neyslu í kjölfar áfallsins.
„Ég var búinn að vera í góðri edrú-
vinnu í dágóðan tíma og búinn að
ná mjög langt í þessari andlegu
vinnu og svo auðvitað hristir þetta
allt upp,“ segir Róbert sem var stað-
ráðinn í því að láta sviplegan föður-
missinn ekki fella sig.
„Það var alveg á hreinu. Ég ætlaði
svoleiðis gjörsamlega bara að sjá
um þetta og helst vera Súpermann.
En þú veist hvernig þetta er. Þegar
maður hugsar ekkert um sjálfan sig
og hlúir ekki að sér eftir svona stórt
áfall þá er bara rosalega lítið hægt
að gera fyrir mann. Fyrir mann
sem vill ekkert gera fyrir sjálfan sig
og annað hvort vill ekki eða er ekki
fær um að skoða vandamálið. Það á
bara við um svo margt og það á svo
sannarlega við um þetta.“
Eins og öll sem glímt hafa við
fíknsjúkdóma vita eru stór áföll
og mikil sorg alveg hreint kjörin
ástæða, eða réttlæting öllu heldur,
fyrir því að byrja aftur í neyslu og
Róbert endaði á því að grípa í það
hála haldreipi.
Frípassi sjálfsvorkunnarinnar
„Heldur betur! Ertu að grínast? Sko,
ég skal segja þér það að mánuðinn
áður en ég tók þessa dýfu þá náttúr-
lega hugsaði ég að ég væri náttúrlega
með svarta Mastercardið. Þetta sem
er úr stáli eða platínu eða eitthvað.
Ég er með það núna.
Ekki bara deyr pabbi minn, heldur
sviptir hann sig lífi. Það er rosalegt
áfall og ég lendi í því að ég finn hann.
Ég fann pabba. Ég kem að honum, ef
það er ekki fríspil. Bæði í fullkom-
lega eðlilegum skilningi og eðlilegri
samkennd, að ég tali ekki um fyrir
fíkil sem er að díla við fíkni sjúkdóm;
vorkunn, sjálfsvorkunn.
Bara sjálfsvorkunn algjörlega á
hæsta leveli. Ég hefði getað drukkið
út á þetta og notað út á þetta örugg-
lega næstu tíu árin að lágmarki. Ef
ég myndi lifa það af sem er bara ekki
raunin. Ég er bara á þeim stað að ég
veit 100% að ég lifi ekki af að vera
þarna úti í meira en mánuð. Þá er ég
kominn bara að dauðans dyrum.“
Róbert segist eiga of boðslega
góða vini og kærustu sem hafi stað-
ið við bakið á honum í gegnum súrt
og sætt. „Þau komu til mín eftir að
ég var búinn að vera týndur og bara
í einhverju mjög alvarlega óhuggu-
legu ástandi í smá tíma. Þau björg-
uðu mér bara. Komu mér aftur inn
á Vog og ég fór aftur í meðferð og
kláraði það. Ég komst, Guði sé lof,
aftur inn, sem er því miður raunin
fyrir allt of fáa. Það eru rosa margir
sem fara út og komast aldrei aftur
inn. Eða bara komast aldrei inn.
Punktur.“
Sáluhjálp
Róbert heldur áfram og leggur
þunga áherslu á að það sé hjálp í
boði. Bæði fyrir fólk í sjálfsvígshug-
leiðingum og aðstandendur þeirra
sem gera hugsanirnar að veruleika.
„Það fer einhvern veginn ekki mikið
fyrir henni en hún er í boði.“
Róbert segist sjálfur hafa fengið
ómetanlega aðstoð hjá Píeta sam-
tökunum og Sorgarmiðstöðinni.
„Það hjálpaði mér ofboðslega mikið
en ég held að ég hefði alls ekki leitað
þangað að eigin frumkvæði. Ég var
bara mjög heppinn að aðrir í fjöl-
skyldunni, mamma og systir mín,
höfðu vit á að sækja beint í einhverja
hjálp. Það er bara oft svo erfitt að
sækja sér hjálp. Sumir eiga oft nógu
erfitt bara með að fara fram úr rúm-
inu, hvað þá að fara að sækja sér ein-
hverja andlega eða geðhjálp.“
Róbert fann einnig, eins og áður
segir, sáluhjálp í laginu sem hann
gaf út á fimmtudaginn. „Fyrst kom
smá texti til mín og laglína sem
ég tók upp og fullkláraði svo með
aðstoð og snilligáfu Bjarka Ómars-
sonar, Bomarz, sem spilar á tromm-
ur, gítar og hljómborð. Tekur upp og
hljóðblandar.
Engir stælar
Ég samdi textann og syng en hann
gaf mér vinnu sína og hæfileika og
gerði lagið sem ég er mjög ánægður
með,“ segir Róbert um Gat ekki
meira sem er aðgengilegt á Spotify
undir listamannsnafninu Royal
Gíslason.
„Þetta lag er svolítið sérstakt á
þann hátt að ég er ekki með neina
stæla. Þetta er eins tært og einlægt
og ég hef nokkurn tímann þorað að
gefa út eða gefa frá mér, eða í raun-
inni bara sýna nokkurri manneskju
og ég er að gera það fyrir pabba.
Þetta er alveg sérstakt verkefni
og öðruvísi en ég hef verið að gera.
Þetta er bara alveg sér. Bara einstakt
fyrir pabba. Þetta er til hans. Þetta
er fyrir hann. Þetta er frá honum,“
segir Róbert.
„Og ég vona virkilega, innilega
að þetta geti mögulega hjálpað
einhverjum af því ég veit að það er
það sem hann hefði viljað. Alveg
150% og ég veit að hann yrði þakk-
látur fyrir það. Þess vegna er ég að
gera þetta. Ég vil einfaldlega bara
fá skilning fyrir pabba minn. Ég vil
það.“ n
Róbert er
yngsta barn
leikaranna Eddu
Björgvinsdóttur
og Gísla Rúnars
og segist hafa
verið ofboðs-
lega heppinn
með foreldra
sem hafi stutt
hann í öllu sem
hann hefur
viljað gera og
aldrei reynt að
ýta honum í
ákveðnar áttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR