Fréttablaðið - 31.07.2021, Page 20

Fréttablaðið - 31.07.2021, Page 20
Ég veit allavegana að ég get sagt að síðustu árin fékk hann stuðn- ing frá mér. Skilning, ást og kærleik alveg þangað til hann fór. 20 Helgin 31. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ pabbi. Ég veit að þetta segja allir sem eiga góða pabba en hann var bara besti pabbi í heimi. Hann var alltaf virkilega að passa upp á að maður hefði alltaf gaman og að manni liði eins og það væri hlustað á mann. Hann hlustaði mikið, ólíkt mörgum fullorðnum sem hlusta ekki á börn. Hann lét mann alveg finna það að hann hlustaði, skildi og hafði áhuga á því sem maður var að segja. Þótt maður væri bara krakki að segja einhverja vitleysu.“ Róbert segir þá feðga hafa verið mjög nána. Sérstaklega síðustu árin. „Við áttum okkur alls konar sögu. Sérstaklega frá því að ég byrjaði í neyslu og þá voru samskiptaörðug- leikarnir augljóslega ekki honum að kenna,“ segir Róbert og bætir við að hann hafi þá ekki kunnað, frekar en fíklar í neyslu almennt, að eiga í eðlilegum eða heilbrigðum sam- skiptum. Skilningur, ást og kærleikur „Þannig að við stönguðumst svolítið á en ég er mjög þakklátur fyrir að hafa öðlast ákveðinn skilning fyrir honum, sem ég hafði ekki áður, og virðist hafa fengið á þessari edrú- göngu minni þegar ég byrjaði að vinna í sjálfum mér. Eins og bara að fatta af hverju hann var eins og hann var. Þú veist, þetta voru einhverjir hlutir, ákveðin hegðun og hitt og þetta sem fór í taugarnar á mér. Bara vegna þess að ég vildi ekkert skilja þetta og hafði núll þolinmæði gagn- vart þessu. Þetta var ekkert hræði- legt og svo fór þessi skilningur að koma hægt og rólega upp úr tvítugu. Þegar ég er eitthvað í kringum 24 ára fer ég fyrst fyrir alvöru að finna einhvern veginn fullkomið æðru- leysi og skilning gagnvart honum og ég er svo þakklátur fyrir það. Vegna þess að ég veit allavegana að ég get sagt að síðustu árin fékk hann stuðning frá mér. Skilning, ást og kærleik alveg þangað til hann fór. Hvorki reiður né sár Ég er ekki reiður út í pabba. Ég er ekki sár út í hann en mér líður mjög oft illa yfir því að hugsa um það hvað honum leið illa í alvörunni. Vegna þess að ég veit honum leið svo virkilega, óhuggulega illa. Þú veist, við erum að tala um mann sem fann einhvern veginn fyrir tilfinningum og upplifði til- finningar á svo dramatískan og gígantískan hátt, bara miðað við venjulegan mann. Það er óhuggu- legt að hugsa til þess þegar honum leið illa. Hversu slæmt þetta var, hversu oft og mikið. Ég vil líka taka það sérstaklega fram að þótt ég skilji pabba þá er einhvern veginn alveg skýrt að þetta er aldrei svarið. Það er svo 100% skýrt fyrir mér núna sem aðstandanda og það er svo gott að sjá skýrt að svarið er aldrei að fara bara og skilja alla eftir.“ Áleitnar spurningar Róbert segir áleitnar og erfiðar spurningar um hvort þau hefðu getað gert eitthvað öðruvísi eða komið í veg fyrir sjálfsvígið leita óhjákvæmilega á þá sem sitja eftir með söknuðinn og sorgina. „Auðvitað kemur það upp í hugann. Sérstaklega fyrst. Alveg allra fyrst. Þá varð það bara að þráhyggju lúppu hjá mér. Kannski bara fullkomlega eðlilega. Oft heldur maður að það hefði kannski gert eitthvað ef maður hefði breytt einhverju einu orði. Í einhverri setningu. Sagt eitthvað öðruvísi og að það hefði kannski breytt því hvernig honum leið í tugi ára.“ Ómannlegar kröfur Gísli Rúnar var eins og hann var. Hugmyndaríkur, frjór, ofvirkur, ofurnákvæmur, ósérhlífinn og ör og Róbert segir þannig fólk óhjá- kvæmilega geta verið erfitt í sam- skiptum. „Heldur betur. Algjörlega og það er alveg svoleiðis. Hann var mikill, rosalega stór karakter. Ég held ég hvorki viti um né hafi komist nálægt stærri persónuleika nokkurs staðar í lífinu. Hann var bara svo mikið stór karakter.“ Róbert bætir við að ofan á allt annað hafi pabbi hans verið með fullkomnunaráráttu á hástigi. „Og hafi ég einhvern tímann hitt vinnu- alka þá var það hann. Og hann gerði einmitt sömu kröfur á fólk og hann gerði á sjálfan sig og þær kröfur voru náttúrlega óraunhæfar. Ómann- legar eiginlega. Algjörlega óraun- hæfar og beinlínis óhollar og bara hættulegar.“ Róbert segir þennan þátt í fari föður síns vera eitt af því sem hann finni hjá sjálfum sér og að fullkomn- unaráráttan hafi oft staðið honum fyrir þrifum og stöðvað hann í miðjum verkefnum. „Þá var ég svo gjörsamlega fastur í að eitthvað þyrfti að vera fullkomið og komst þar af leiðandi ekki lengra með það verkefni,“ segir Róbert sem hefur á þessu erfiða ári fallið og risið upp. Fallið „Ég gleymdi algjörlega að hugsa um það að hlúa að sjálfum mér í marga mánuði og það leiddi bara til þess að ég tók enn eina dýfuna og ofan í svartnættið. Það entist, Guði sé lof, stutt,“ segir Róbert sem byrjaði aftur í neyslu í kjölfar áfallsins. „Ég var búinn að vera í góðri edrú- vinnu í dágóðan tíma og búinn að ná mjög langt í þessari andlegu vinnu og svo auðvitað hristir þetta allt upp,“ segir Róbert sem var stað- ráðinn í því að láta sviplegan föður- missinn ekki fella sig. „Það var alveg á hreinu. Ég ætlaði svoleiðis gjörsamlega bara að sjá um þetta og helst vera Súpermann. En þú veist hvernig þetta er. Þegar maður hugsar ekkert um sjálfan sig og hlúir ekki að sér eftir svona stórt áfall þá er bara rosalega lítið hægt að gera fyrir mann. Fyrir mann sem vill ekkert gera fyrir sjálfan sig og annað hvort vill ekki eða er ekki fær um að skoða vandamálið. Það á bara við um svo margt og það á svo sannarlega við um þetta.“ Eins og öll sem glímt hafa við fíknsjúkdóma vita eru stór áföll og mikil sorg alveg hreint kjörin ástæða, eða réttlæting öllu heldur, fyrir því að byrja aftur í neyslu og Róbert endaði á því að grípa í það hála haldreipi. Frípassi sjálfsvorkunnarinnar „Heldur betur! Ertu að grínast? Sko, ég skal segja þér það að mánuðinn áður en ég tók þessa dýfu þá náttúr- lega hugsaði ég að ég væri náttúrlega með svarta Mastercardið. Þetta sem er úr stáli eða platínu eða eitthvað. Ég er með það núna. Ekki bara deyr pabbi minn, heldur sviptir hann sig lífi. Það er rosalegt áfall og ég lendi í því að ég finn hann. Ég fann pabba. Ég kem að honum, ef það er ekki fríspil. Bæði í fullkom- lega eðlilegum skilningi og eðlilegri samkennd, að ég tali ekki um fyrir fíkil sem er að díla við fíkni sjúkdóm; vorkunn, sjálfsvorkunn. Bara sjálfsvorkunn algjörlega á hæsta leveli. Ég hefði getað drukkið út á þetta og notað út á þetta örugg- lega næstu tíu árin að lágmarki. Ef ég myndi lifa það af sem er bara ekki raunin. Ég er bara á þeim stað að ég veit 100% að ég lifi ekki af að vera þarna úti í meira en mánuð. Þá er ég kominn bara að dauðans dyrum.“ Róbert segist eiga of boðslega góða vini og kærustu sem hafi stað- ið við bakið á honum í gegnum súrt og sætt. „Þau komu til mín eftir að ég var búinn að vera týndur og bara í einhverju mjög alvarlega óhuggu- legu ástandi í smá tíma. Þau björg- uðu mér bara. Komu mér aftur inn á Vog og ég fór aftur í meðferð og kláraði það. Ég komst, Guði sé lof, aftur inn, sem er því miður raunin fyrir allt of fáa. Það eru rosa margir sem fara út og komast aldrei aftur inn. Eða bara komast aldrei inn. Punktur.“ Sáluhjálp Róbert heldur áfram og leggur þunga áherslu á að það sé hjálp í boði. Bæði fyrir fólk í sjálfsvígshug- leiðingum og aðstandendur þeirra sem gera hugsanirnar að veruleika. „Það fer einhvern veginn ekki mikið fyrir henni en hún er í boði.“ Róbert segist sjálfur hafa fengið ómetanlega aðstoð hjá Píeta sam- tökunum og Sorgarmiðstöðinni. „Það hjálpaði mér ofboðslega mikið en ég held að ég hefði alls ekki leitað þangað að eigin frumkvæði. Ég var bara mjög heppinn að aðrir í fjöl- skyldunni, mamma og systir mín, höfðu vit á að sækja beint í einhverja hjálp. Það er bara oft svo erfitt að sækja sér hjálp. Sumir eiga oft nógu erfitt bara með að fara fram úr rúm- inu, hvað þá að fara að sækja sér ein- hverja andlega eða geðhjálp.“ Róbert fann einnig, eins og áður segir, sáluhjálp í laginu sem hann gaf út á fimmtudaginn. „Fyrst kom smá texti til mín og laglína sem ég tók upp og fullkláraði svo með aðstoð og snilligáfu Bjarka Ómars- sonar, Bomarz, sem spilar á tromm- ur, gítar og hljómborð. Tekur upp og hljóðblandar. Engir stælar Ég samdi textann og syng en hann gaf mér vinnu sína og hæfileika og gerði lagið sem ég er mjög ánægður með,“ segir Róbert um Gat ekki meira sem er aðgengilegt á Spotify undir listamannsnafninu Royal Gíslason. „Þetta lag er svolítið sérstakt á þann hátt að ég er ekki með neina stæla. Þetta er eins tært og einlægt og ég hef nokkurn tímann þorað að gefa út eða gefa frá mér, eða í raun- inni bara sýna nokkurri manneskju og ég er að gera það fyrir pabba. Þetta er alveg sérstakt verkefni og öðruvísi en ég hef verið að gera. Þetta er bara alveg sér. Bara einstakt fyrir pabba. Þetta er til hans. Þetta er fyrir hann. Þetta er frá honum,“ segir Róbert. „Og ég vona virkilega, innilega að þetta geti mögulega hjálpað einhverjum af því ég veit að það er það sem hann hefði viljað. Alveg 150% og ég veit að hann yrði þakk- látur fyrir það. Þess vegna er ég að gera þetta. Ég vil einfaldlega bara fá skilning fyrir pabba minn. Ég vil það.“ n Róbert er yngsta barn leikaranna Eddu Björgvinsdóttur og Gísla Rúnars og segist hafa verið ofboðs- lega heppinn með foreldra sem hafi stutt hann í öllu sem hann hefur viljað gera og aldrei reynt að ýta honum í ákveðnar áttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR 

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.