Fréttablaðið - 31.07.2021, Side 27
LÍFEINDAFRÆÐINGUR / LÍFFRÆÐINGUR óskast til starfa
LYRA er öflugt þekkingarfyrirtæki. Starfsemi LYRU felur í sér sérhæfða þjónustu við rannsóknastofur á heilbrigðissviði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Applications – uppsetning, kennsla
og þjónusta á greiningartækjum og
efnagreiningarþáttum.
• Námskeiðahald og kennsla.
• Samskipti við viðskiptavini.
• Öryggismál - Safety officer.
• Svara verðfyrirspurnum.
• Samskipti við erlenda birgja.
• Útboðsvinna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Lífeindafræðingur, líffræðingur eða
önnur sambærileg menntun.
• Reynsla af rannsóknastörfum er skilyrði.
• Góð tölvukunnátta.
• Góð enskukunnátta
• Góð skipulagshæfni
• Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum
samskiptum.
Starfsumgjörð:
• Starfshlutfall er 100% og þarf
umsækjandi að geta hafið störf
fyrir 1.12.2021
• Laun eru samkvæmt samkomulagi.
• Sveigjanlegur vinnutími.
• Frábært vinnuumhverfi.
• Góð vinnuaðstaða.
Umsóknarfrestur er til og með 16.8.2021
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist framkvæmdastjóra, netfang: lyra@lyra.is.
Öllum umsóknum verður svarað.
LYRA ehf.
Hádegismóum 4
110 Reykjavík
www.lyra.is
FORSTÖÐUMAÐUR
SÖLUDEILDAR
Við leitum að kraftmiklum og metnaðarfullum aðila til að leiða sölustarf Póstsins. Mikilvægt er að viðkomandi hafi
reynslu í því að leiða söluteymi, geti sýnt fram á árangur í fyrri störfum og hafi sterka sýn á sóknardrifið sölustarf
og uppbyggingu viðskiptasambanda. Það eru spennandi verkefni framundan og viðkomandi mun starfa þétt með
sterku teymi þvert á fyrirtækið. Viðkomandi kemur að mörgum fjölbreyttum verkefnum innan Póstsins, allt frá
þátttöku í markaðssókn að stefnumótun og sóknarstarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
– Ábyrgð og gerð sölu- og tekjuáætlana
– Greining markaðstækifæra og sóknarverkefna
– Tilboðs- og samningagerð, sókn og viðhald viðskiptasambanda innanlands og utan
– Þátttaka í stefnumótun Póstsins á sviði þjónustu og markaða
– Framsetning og kynning á árangri og markmiðum
– Menntun sem nýtist í starfi og reynsla af sölustjórn
– Greiningarhæfni og góð íslensku- og enskukunnátta
Umóknarfrestur er til og með 15. ágúst. Sótt er um starfið á umsóknarvef Póstsins, www.posturinn.is/atvinna.
Öllum umsækjendum er svarað og farið með umsóknir sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar um starfið veitir
Ósk Heiða Sveinsdóttir, forstöðumaður þjónustu og markaða osks@postur.is
Hjá Póstinum starfar lausnamiðað keppnisfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum hvað
varðar öflugar dreifingarlausnir sem standast kröfur viðskiptavina. Hjá okkur er áhersla á að móta sjálfbæra
leiðtogamenningu þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi eru í forgrunni. Við erum með Jafnlaunavottun
og leggjum áherslu á samfélagslega ábyrgð.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR