Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.07.2021, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 31.07.2021, Qupperneq 34
Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Viktor Örn Andrésson og Hinrik Örn Lárusson eru meðal fremstu matreiðslu- manna þjóðarinnar og báðir margverðlaunaðir. Það má segja að samstarf þeirra hafi hafist í Bocuse d’Or árið 2017 þar sem Viktor hreppti 3. sætið í þessari virtustu mat- reiðslukeppni heims og Hin- rik var honum til aðstoðar, halds og trausts. Viktor Örn og Hinrik eiga og reka Sælkerabúðina og Lux veitingar þar sem þeir framreiða girnilega rétti bæði fyrir heimili, veislur og veiðimenn í veiðihúsum landsins. Á dögunum gáfu þeir út grillbók sem ber heitið Grill og hafa viðtök- ur verið góðar. „Nú er liðið rúmt ár síðan við opnuðum Sælkerabúðina og við höfum á þeim tíma veitt fjölmörgum góð grillráð en nær allir sem kaupa hjá okkur á grillið vilja vita hvernig við myndum matreiða viðkomandi hráefni. Það var því nær samstundis sem við sögðum hvor við annan að auð- vitað ættum við að skrifa grillbók og hafa í henni öll okkar góðu ráð og fjölbreyttar uppskriftir að bæði kjöti, grænmeti og fiski,“ segja þeir Hinrik og Viktor sem hafa notið þess að vinna að bókinni saman. Fjölbreytnin höfð að leiðarljósi Þegar bók er sett saman er ávallt ákveðin grunnhugmynd að upp- setningunni og hvaða áherslur eru hafðar að leiðarljósi. Hvernig myndu þið lýsa inni- haldi bókarinnar, eru þetta upp- skriftir og ráð? „Við myndum segja að fjöl- breytnin sé höfð að leiðarljósi í bókinni. Við leggjum mikla áherslu á gott hráefni, fjölbreytta grænmetisrétti sem hægt er að bera fram bæði sem aðalrétt og sem meðlæti og svo að sjálfsögðu geggjaðar steikur. Við erum einn- ig með villibráð, fisk og skelfisk, kafla um útileguna og öll okkar ráð í bókinni. Við segjum frá helstu grill- og eldunaraðferðum sem gott er að hafa á hreinu þegar vel á að takast til á grillinu.“ Allar uppskriftirnar í bókinni eru frá þeim félögum. „Viðskipta- vinir Sælkerabúðarinnar munu kannast við margt sem slegið hefur í gegn hjá okkur en svo er fjölmargt sem er bæði nýtt sem og sígilt og gott sem alltaf á við.“ Fullkomlega elduð steik og rauðvín í uppáhaldi Þegar kemur að því að fá þá Hinrik og Viktor til að ljóstra upp hvaða réttir séu í uppáhaldi hjá þeim þegar góða matarveislu gjöra skal stendur ekki á svörum. „Við eigum báðir mjög erfitt að segja nei við fullkomlega eldaðri steik og góðu rauðvíni með.“ Eigið þið góð ráð fyrir sælkera landsins fyrir grillsumarið mikla? „Við hvetjum alla til að prófa sig áfram í eldamennskunni og hafa í huga að veður er bara hugar- ástand. Það er alltaf hægt að grilla og Íslendingar hafa fyrir löngu sýnt að þeir eru tilbúnir að láta sig hafa ýmislegt til að framreiða góðan grillmat enda grilla þeir bæði í frosti og sumaryl.“ Hvað með grillin, hvort mælið þið með kolagrilli eða gasgrilli? „Ætli við segjum ekki bæði? Kolagrillin hafa mikinn sjarma og ljá matnum einstakt grillbragð en gasgrillin eru hentug þegar tími til undirbúnings er minni.“ Í Sælkerabúðinni eru mat- reiðslumeistararnir ávallt reiðu- búnir til þjónustu og að veita viðskiptavinum sínum aðstoð við eldamennskuna og leiðbeina eftir bestu getu. Þar starfar hópur mat- reiðslumanna sem leggja metnað Ómótstæðilegir grillréttir fyrir helgina Matreiðslu- mennirnir Viktor Örn Andr- ésson og Hinrik Örn Lárusson gefa lesendum hér spennandi uppskriftir fyrir verslunar- mannahelgina. MYNDIR/HEIÐDÍS GUÐBJÖRG GUNN- ARSDÓTTIR Blaðkálssalat með mandarínu- vínegrettu og hunangsristuðum kasjúhnetum. Nauta-tomahawk með chimichurri. sinn í að gera allt það besta svo matarupplifunin verði hin besta. Þar er einnig hægt að fá bókina þeirra Grill og njóta visku þeirra og ráða. Hér kemur sælkerauppskrift um verslunarmannahelgina fyrir grill frá þeim félögum sem á pottþétt eftir að slá í gegn. Nauta-tomahawk með chimichurri 1 tomahawksteik, um 800–1.000 g Salt Pipar Olía Smjör 200 g chimichurri (sjá eftirfarandi uppskrift) Hér notum við lághitaaðferðina því hún hentar vel fyrir stórar steikur. Stillið ofninn á 50–55°C blástur. Setjið steikina í eldfast mót og veltið upp úr olíu. Athugið að salta alls ekki áður en steikin er elduð. Setjið nokkrar smjörklípur ofan á steikina og setjið hana síðan inn í ofninn. Miðið við 90 mínútna eldunartíma fyrir hvert kíló af kjöti. Þegar tíminn er hálfnaður er gott að snúa steikinni við og velta henni upp úr olíunni og smjörinu sem hefur bráðnað í eldfasta mótinu og elda áfram. Hitið svo grillið vel og saltið steikina. Grillið steikina í um 3-4 mínútur á hvorri hlið. Takið steikina af grillinu og leyfið henni að hvíla í 5-6 mínútur. Setjið svo steikina aftur í ofninn á 180°C í 6 mínútur og leyfið henni að hvíla í 5 mínútur áður en hún er skorin og borin fram. Berið steikina fram með chimichurri og grófu salti. Chimichurri Eitt búnt fersk steinselja, hreinsið stilkana frá Eitt búnt ferskt kóríander, hreinsið stilkana frá 50 ml ólífuolía eða meira ef þarf 2 stk. rauður chili-pipar ½ tsk. gróft sjávarsalt Safi úr ½ sítrónu 2-3 stk. hvítlauksgeirar Saxið fínt steinselju, kóríander, chili og hvítlauk. Setjið síðan hráefnin, eitt í einu, í mortél og blandið vel saman áður en þið bætið næsta hráefni við til að ná að brjóta það vel niður. Bætið ólífuolíu, sítrónusafa og salti saman við og hrærið vel. Uppruna- lega aðferðin við að gera chimi- churri er að vinna það vel saman með mortéli. En einnig er hægt að auðvelda sér lífið og nota blandara eða matvinnsluvél. Blaðkálssalat með mandarínu-vínegrettu og hunangsristuðum kasjúhnetum Blaðkál 3 blaðkál (bok choy) 2 mandarínur Olía Salt eftir smekk Skerið blaðkál til helminga og dreifið olíu og salti yfir. Grillið á heitu grilli í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Takið börkinn af mandar- ínunum og skerið þær í báta. Berið fram á fallegu fati. Setjið blaðkál fyrst, stráið kasjúhnetum yfir og dreifið að lokum mandarínu- vínegrettunni yfir (sjá uppskriftir fyrir neðan). Mandarínu-vínegretta ½ bolli mandarínusafi 2 msk. eplaedik 2 tsk. hunang 1 búnt saxað kóríander Salt eftir smekk Setjið eplaedik og hunang í pott og hitið til að leysa upp hun- angið. Blandið mandarínusafa og kóríander saman við og kælið. Smakkið til með salti. Sykraðar kasjúhnetur 100 g kasjúhnetur 3 msk. púðursykur 1 tsk. vatn Þurrristið kasjúhnetur á pönnu eða í ofni við 180°C í 8 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar. Setjið púðursykur í pott með teskeið af vatni, hitið og bætið kasjúhnet- unum út í. Veltið hnetunum með skeið í pottinum, setjið á smjörpappír og látið kólna. ■ Það er alltaf hægt að grilla og Íslend- ingar hafa fyrir löngu sýnt að þeir eru tilbúnir að láta sig hafa ýmislegt til að framreiða góðan grillmat enda grilla þeir bæði í frosti og sumar yl. Viktor Örn. 6 kynningarblað A L LT 31. júlí 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.