Fréttablaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 44
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Merkisatburðir
Börn frá sjö til þrettán ára eiga
kost á ókeypis námskeiðum í
ritlist í Fjölskyldumiðstöðinni í
Gerðubergi í sumar. Kennari er
Markús Már Efraím rithöfundur.
gun@frettabladid.is
„Þátttaka barna í dýrum frístundum er
minni í Breiðholti en í öðrum hverfum
og þar er hátt hlutfall barna sem ekki
hafa íslensku að móðurmáli,“ segir
Markús Már Efraím, sem kennir börn-
um skapandi skrif í Gerðubergi í sumar
á vegum Fjölskyldumiðstöðvarinnar
og f leiri. Hann segir börnin skrifa allt
á íslensku á námskeiðinu, þó ekki af
því að hann neyði þau til þess. „Ég ætti
samt erfitt með að hjálpa þeim með
annað tungumál, nema ensku. Þau hafa
hingað til unnið á íslensku, ég tala við
þau íslensku og reyni að auka orðaforða
þeirra. Því þó börn tali skýrt og skilji
margt vantar stundum ákveðna dýpt í
málið. Ritlist er góð leið til að bæta úr
því.“
Markús Már kveðst hafa námskeiðið
frjálslegt. „Ég hef lengi hjálpað börnum
og veit að maður verður að spila eftir
eyranu. Er með góða aðstöðu í Fjöl-
skyldumiðstöðinni í Gerðubergi og
við förum á bókasafnið og í Okið sem
er skapandi rými fyrir börn. Líka á úti-
leiksvæðin í kring og niður að Elliðaám.
Ég vil leyfa börnunum að hreyfa sig og
taka inn umhverfishljóð og lykt. Það
dýpkar það sem þau skrifa ef þau nota
öll skilningarvitin. Á þessu námskeiði
blanda ég líka ljósmyndun inn í. Er með
þrjár Polaroid-vélar sem framkalla jafn-
óðum og börnin skiptast á að nota þær.
Þeim finnst spennandi að para saman
mynd og sögu. Ýmist smella þau af ein-
hverju sem þau sjá úti við og skrifa um
það á eftir eða þau mæta með mótaða
hugmynd og leita svo að myndefni sem
passar við.“
Hann er spurður hvort börnin megi
vera með síma í tímum. „Ég er afslapp-
aður kennari og sit við sama borð og
börnin, ef þau eiga að skrifa er mikilvægt
að þau nái að opna fyrir tjáninguna. Allt
eru þetta flottir krakkar og ég hef aldrei
þurft að biðja neinn að setja niður sím-
ann. Þeir hafa bara svo gaman af því sem
er í gangi.“
Markús segir hvert námskeið standa
í viku. „Það er eiginlega hámarkstala
svo allir fái þá aðstoð sem þeir þurfa,“
segir hann og upplýsir að enn séu laus
pláss fyrstu vikurnar í ágúst. „Ég tel að
öll börn þurfi aðgengi að frístundastarfi,
óháð uppruna og félagslegri stöðu for-
eldra.“ ■
Mikilvægt að börn nái
að opna fyrir tjáninguna
Markús Már vekur áhuga barna á lestri og ritlist á námskeiðunum og styður við íslenskunám þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Það er gaman að skreppa niður að Elliðaánum á góðum degi. MYND/AÐSEND
Ég vil leyfa börnunum að
hreyfa sig og taka inn
umhverfishljóð og lykt.
Það dýpkar það sem þau
skrifa ef þau nota öll
skilningarvitin.
1224 Eiríkur hinn smámælti og halti er
krýndur konungur Svíþjóðar.
1927 Erlingur Pálsson sundkappi syndir
úr Drangey til lands, svokallað Grettis-
sund. Ekki er vitað til að nokkur maður
hafi leikið þetta eftir Gretti fyrr. Sund hans
tekur fjórar klukkustundir og tuttugu og
fimm mínútur.
1948 Fossvogskirkja í Reykjavík er
vígð.
1971 Áhöfn Appollo 15 prófar
í fyrsta sinn tunglbifreið á
mánanum.
1991 Börn náttúrunnar, kvik-
mynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar er frumsýnd í Stjörnubíói.
2009 Seint um kvöld er allt tiltækt
slökkvilið í Reykjavík kallað út
vegna bruna á Vatnsstíg 4.
28 Tímamót 31. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐTÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 31. júlí 2021 LAUGARDAGUR