Fréttablaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 45
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Vigdís Þorsteinsdóttir
Lækjargötu 10, Hvammstanga,
andaðist laugardaginn 24. júlí
á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Hvammstanga.
Guðrún Þ. Guðmundsdóttir Árni Björn Ingvarsson
Kristín H. Guðmundsdóttir Birgir Ævar Einarsson
Garðar Þ. Guðmundsson Róberta Gunnþórsdóttir
Edda Heiða Guðmundsdóttir
Inga M. Guðmundsdóttir Elvar Hallgrímsson
Anna M. Guðmundsdóttir Þór Oddsson
Davíð E. Guðmundsson Auður S. Jónsdóttir
Elinbjörg Kristjánsdóttir
Kristín Einarsdóttir
og ömmubörnin.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Stefán Már Ingólfsson
kennari,
lést aðfaranótt fimmtudagsins
29. júlí á Hjúkrunarheimilinu Eir.
Maríanna Elísa Franzdóttir
Helga María Stefánsdóttir Edda Stefanía Levy
Stefán Már Levy Helguson
Ástvaldur Þór Levy Helguson
Ástkær systir okkar,
mágkona og frænka,
Elín Hjálmsdóttir
lést á Droplaugarstöðum
þriðjudaginn 20. júlí.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju,
miðvikudaginn 4. ágúst klukkan 15.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna.
Guðbjörg Hjálmsdóttir
Guðrún María Hjálmsdóttir
Ólafína Hjálmsdóttir Guðmundur H. Sigmundsson
systkinabörn og fjölskyldur.
Gunnar Jónas Jónsson
lést 30. maí síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Eir.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Vandamenn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
Flosa Gunnars
Valdimarssonar
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki krabbameins-
deildar Landspítalans fyrir alúð og umhyggju.
Anna Gísladóttir
Mjöll Flosadóttir Þórir Haraldsson
Kjartan Flosason Kristín Eggertsdóttir
Eybjörg Drífa Flosadóttir Svanur Þór Karlsson
Nanna Sjöfn Pétursdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Björgvin Sigurður Sveinsson
Brekkubæ, Ólafsvík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
laugardaginn 24. júlí.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 3. ágúst klukkan 13.
Vigfús Jón Björgvinsson Kristín Ósk Kristinsdóttir
Eðvarð Björgvinsson Ásta Lunddal Friðriksdóttir
Guðný Björgvinsdóttir
Ingibjörg E. Björgvinsdóttir
Björgvin Hólm Björgvinsson Ágústa Hauksdóttir
Ásbjörg Björgvinsdóttir Jón Þórðarson
barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur.
Elskulegi faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Óskar Guðmundsson
fyrrum deildarstjóri
á Skattstofu Reykjavíkur,
áður til heimilis að
Vallartröð 6 í Kópavogi,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sunnudaginn
25. júlí. Útför hans fer fram í Fossvogskirkju þriðjudaginn
3. ágúst kl. 13.00. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Sunnuhlíðar í Kópavogi fyrir alúð og góða umönnun.
Guðrún H. Bjarnadóttir Edward Kiernan
Sigríður Jónsdóttir Halldór Sigurþórsson
Jón Óskar Jónsson Jóhanna Margrét Jóhannesdóttir
og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Elín Þorvarðardóttir
Hringbraut 2b, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi 18. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Jón Elíasson
Steinunn Jónsdóttir
Þorvarður Sigurður Jónsson Tinna Rut Njálsdóttir
og ömmu- og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Philippe Ricart
lést á Landspítalanum 26. júlí.
Jóhanna Hálfdánsdóttir
Martha Ricart Andri Júlíusson
Finnur, Alda og Elmar
Elsku sonur minn, faðir,
bróðir og mágur,
Rúnar Ragnarsson
Sléttahrauni 17, Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 22. júlí.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju fimmtudaginn 5. ágúst kl. 13.00.
Ása Hjálmarsdóttir Ragnar C. Rúnarsson
Aðalbjörg Ragnarsdóttir Konráð Ragnarsson
Sonja Garðarsdóttir Lúðvík S. Georgsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Magnús Theodór
Magnússon – Teddi
myndhöggvari
og fyrrv. brunavörður,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 20. júlí.
Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn
5. ágúst klukkan 13. Gestir velkomnir innan gildandi
samkomutakmarkana.
Ársæll Magnússon
Analisa Montecello
Dóra Magnúsdóttir Guðmundur Jón Guðjónsson
Andri, Atli, Kári, Daði, Lilja,
Lára Guðbjörg, Theodór og Hjalti
Þó að fjölmenn mannamót falli
niður um helgina í ár er smáhá-
tíðin Nábrókin haldin í Trékyllis-
vík eins og strandir.is greinir frá
og Melasystirin Ellen staðfestir.
gun@frettabladid.is
„Við komum hátíðinni á koppinn að
svo miklu leyti sem við gátum innan
leyfilegra marka. En ballið í kvöld er út
úr myndinni,“ segir Ellen Björg Björns-
dóttir, ein þriggja Melasystra sem árlega
hafa haldið samkomur í Trékyllisvík
um verslunarmannahelgar síðan 2013.
Hinar systurnar heita Þorgerður og Árný
en hátíðin nefnist Nábrókin og vísar í
galdrasögu svæðisins.
„Við systur vorum með tónleika í gær-
kveldi og nokkrir fleiri stigu á svið,“ lýsir
Ellen. „Við gerðum það líka í fyrra, þá
komu alls konar lokanir til skjalanna á
fimmtudeginum en við færðum tónleik-
ana inn í fjárhús á Melum, náðum að stía
fólkið og töldum inn og sami háttur var
hafður á nú. Þá máttu vera 100 manns
með tveggja metra millibili en nú 200
með einn metra á milli. Reyndar voru
fimmtán ára og yngri undanþegin regl-
unum í fyrra en nú sex ára og yngri.“
Þær systur búa að reynslu af því að stía
lambfé í fjárhúsunum og léku sér að því
að merkja stíurnar bæjum í hreppnum.
„Við ýttum við fólki og báðum það að
giska á mannfjöldatölur frá hverjum bæ
svo við gætum miðað stíurnar við þær.
Það bókuðu sig yfir sjötíu manns og við
skildum líka hólf eftir fyrir þá sem ekki
létu vita af sér. Það kemur sér vel að fjár-
húsin á Melum eru frekar stór.“
Ellen er ánægð með að í ár er hægt
að halda drulluboltann en hann féll
niður í fyrra. „Það verða bara fimm, sex
lið núna og hafa aldrei verið jafn fá. En
það er gott. Boltinn verður klukkan 13
í dag í Arnarbæli, gömlu túni sem við
erum hætt að nota. Þar er alvöru mýri
frá náttúrunnar hendi og við tættum
hana upp fyrir nokkrum dögum því hún
grær aðeins milli ára.“ Þó ballið í kvöld
falli niður segir Ellen brekkusöng koma í
staðinn þar sem Ragnar Torfason, frændi
þeirra systra, verði með gítarinn.
Titill Ellenar í símaskránni er smali
en aðspurð kveðst hún að aðalstarfi
vera forstöðukona í íbúðakjarna fyrir
fatlaða í borginni. Nú er hún í sumar-
fríi og taugin römm sem dregur hana í
sveitina. ■
Með drullubolta og brekkusöng
Melasystur, þær Árný, Þorgerður og Ellen Björnsdætur, eru driffjaðrirnar bak við smá-
hátíðina í Trékyllisvík. MYND/AÐSEND
Við skildum líka hólf eftir
fyrir þá sem ekki létu vita
af sér. Það kemur sér vel
að fjárhúsin á Melum eru
frekar stór.
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 31. júlí 2021 Tímamót 29