Fréttablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 8
Í Mjóafirði var áður blómleg byggð, ekki síst þegar norskir hvalveiðimenn stunduðu þaðan hvalveiðar um 12 ára skeið í byrjun síðustu aldar. Einn fallegasti fjörður á Austurlandi er 18 km langur Mjóifjörður en hann líkt og treður sér inn á milli bræðra sinna, Seyðisfjarðar og Norðfjarðar. Eins og nafnið gefur til kynna er hann ekki ýkja breiður, eða víðast um 2 km að breidd. Í Mjóafirði var áður blómleg byggð, ekki síst þegar norskir hvalveiðimenn stunduðu þaðan hval- veiðar um 12 ára skeið í byrjun síðustu aldar. Á Asknesi við sunnanverðan fjörðinn má sjá leifar norskrar hval- veiðistöðvar sem upp úr 1900 var ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Í dag hafa innan við 20 manns fasta búsetu í Mjóafirði og búa flestir þeirra í Brekku sem er eitt minnsta þorp á Íslandi, en státar þó af kirkju en einnig af gistiheimili og veitingasölu á sumrin. Einn akvegur er ofan í Mjóafjörð og liggur hann yfir sérlega snjóþunga Mjóafjarðarheiði sem vegna snjóa lokast yfir vetrarmánuðina. Eru þá einu samgöngurnar í Brekku áætlunarferðir af sjó frá Norðfirði. Í þröngum Mjóafirði er mikil veðursæld en skjólið sér til þess að birki og annar gróður þrífst þar vel. Af mörgum djásnum fjarðarins eru það fossar af öllum stærðum og gerðum sem stela athyglinni. Klifbrekkufossar innst í firðinum eru þeirra tilkomumestir og teljast með fallegustu fossum landsins. Um er að ræða fossakeðju í Fjarðará sem steypist næstum 100 metra niður í fjörðinn ofan af sjö þrepum. Auðvelt er að komast að Klifbrekkufossum, enda eru þeir steinsnar frá bröttum akveginum ofan í Mjóafjörð. Best er að leggja bílum neðan við neðstu fossana og fylgja síðan stígum upp eftir fossunum norðan megin árinnar. Fara þarf varlega við efstu fossana en þaðan er frábært útsýni út Mjóafjörð. Þessi fallegi fjörður geymir fjölda annarra fossa sem gaman er að rölta að en þéttur birkiskógur getur tafið för. Þó er auðvelt að komast að stórbrotnu Prestagili sunnan megin í firðinum en það hýsir snotran foss. Þar segir þjóðsagan að tröllskessa hafi tælt með sér tvo presta. Áður en haldið er heim úr Mjóafirði er tilvalið að heimsækja veðurathugunarstöðina á Dalatanga. Er þá þræddur mjór slóði sem liggur yfir skriður út eftir firðinum að einu einangraðasta býli landsins og er frábær fjallahjólaleið. Þarna er gaman að skoða tvo rúmlega aldargamla ljósvita með útsýni til allra átta, meðal annars að Glettingi. n Mjór en mikilla fossa vísir Klifbrekkufoss- ar falla sérlega vel að umhverfi sínu sem helst má líkja við fal- legt málverk. MYNDIR/ÓMB Í Prestagili er snotur foss sem umlukinn er stórbrotnu gili. Í Mjóafirði ríkir mikil kyrrð og náttúran er í öndvegi. Ólafur Már Björnsson, augnlæknir og ljósmyndari. Tómas Guðbjartsson, hjartaskurð­ læknir og náttúru­ unnandi. 22. júlí 2021 FIMMTUDAGURFÓKUS Á HJARTA LANDSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.