Fréttablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa@ frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Soffía Dögg er mörgum að góðu kunn fyrir sjónvarpsþættina Skreytum hús á Stöð 2, þar sem hún fegrar og frískar upp á hin ýmsu heimili. Hún heldur úti sam- nefndri vefsíðu, Facebook-hópi og Insta gram-reikningi þar sem hún gefur góð ráð og hugmyndir að fal- legri híbýlum, án þess að það kosti hálfan handlegg. Soffía hefur vakið athygli fyrir smekklegan klæðnað, enda hefur hún mikinn áhuga á tísku. „Stíllinn minn einkennist fyrst og fremst af blómakjólum, þeir eru mitt aðalsmerki. Mér finnst líka geggjað að vera stundum í gallabuxum við kjól og dressa hann aðeins niður. Satt að segja er ég með endalaust kjólablæti, sem ekki sér fyrir endann á. Ég er eins og prinsessan sem átti 365 kjóla, nema ég hlæ bara að henni að láta það duga,“ segir hún með bros á vör. Þægindin í fyrirrúmi Soffía kýs helst að klæðast þægilegum fötum og nennir ekki að vera í gallabuxum sem henni finnst þröngar og stífar. „En ef þær eru góðar þá elska ég að vera í þeim. Ég er líka mjög hlynnt því að nota fötin mín og „trúi ekki“ á sparikjóla. Þegar ég er í vinnunni verða blómakjólar oft fyrir valinu, en þegar ég sit fyrir framan tölvuna, sem er þá iðulega seint á kvöldin, er ég gjarnan í kósíbuxum og peysu,“ segir Soffía, sem kaupir sér oft föt fyrir sérstök tilefni. „En þegar því tilefni er lokið þá fer flíkin yfirleitt bara í almenna notkun. Lífið er of stutt til þess að nota ekki fötin sín og njóta þess bara.“ Soffía brosir þegar hún er spurð hvort hún eyði miklum peningum í föt á mánuði. „Ég áskil mér rétt til þess að svara ekki þessari spurningu til þess að vernda hjónabandið,“ svarar hún glettnislega. Eins og krummi Soffía á sér ekki neinn sérstakan uppáhaldshönnuð og er almennt opin fyrir því sem henni þykir Soffía Dögg klæðist gjarnan þægilegum gallabuxum við hina ýmsu kjóla. Með henni á myndinni er hundurinn Moli. MYNDIR/KRISTÍN VALDIMARSDÓTTIR Soffía Dögg segist vera með endalaust kjólablæti, sem ekki sér fyrir endann á. „Ég er eins og prinsessan sem átti 365 kjóla,“ segir hún. „Ég á mikið af skarti, til dæmis undurfagra skartinu hennar Lovísu, hjá ByLovisa.is. Svo eru flott stígvél, belti og töskur alveg þarna líka á listanum,“ segir Soffía Dögg. Sigríður Inga Sigurðardóttir sigriduringa @frettabladid.is Hraðaspurningar Blúnda eða leður? Blúnda. Hef bara ekki hitt blúndu sem mér líkar ekki við. Gull eða silfur? Gull og nóg af því, festar og armbönd. Háir hælar eða flatbotna skór? Hvað eru flatbotna skór? Þröngt eða vítt snið? Þröngt að ofan sem víkkar út. Gloss eða varalitur? Gloss, svona almennt, helst Sensai-glossin. fallegt, óháð hönnuði eða tískumerki. „En ég er nokkuð viss um að Habanera-kjólarnir hennar Andreu í Hafnarfirðinum séu þannig að þær sem fari í þá fíli sig eins og skvísur og það kann ég svo sannarlega að meta. Í gegnum árin hef ég verslað mikið í Vila og Vero Moda. Cocos í Grafarholti er dásamleg og einnig Motivo á Selfossi. Brá verslun er með ofsalega fallega kjóla. Svo kíki ég alltaf rúntinn í Smáralindinni og sér hvað er til.“ Fylgihlutir eru henni að skapi, enda segist Soffía bókstaflega elska bling og skartgripi. „Inni í mér býr svakalegur krummi og ef eitthvað glitrar þá er ég kát. Ég á mikið af skarti, til dæmis undurfagra skartinu hennar Lovísu, hjá ByLovisa.is. Svo eru flott stígvél, belti og töskur alveg þarna líka á listanum,“ segir hún. Brúðarkjól breytt í fermingarkjól Þegar Soffía er spurð hvort hún eigi flík sem hún hafi ekki getað látið frá sér því hún tengist minningum kemur í ljós að svo er. „Já, þær eru nokkrar. Ég er með brúðarkjólinn minn í kassa úti í bílskúr og kem seint til með að geta látið hann frá Ég er með brúðar- kjólinn minn í kassa úti í bílskúr og kem seint með að geta látið hann frá mér. mér. Það getur stundum komið sér vel að geyma föt, sem eiga sér sögu. Sem dæmi geymdi ég brúðarkjólinn hennar mömmu minnar og dóttir mín fermdist í honum í fyrra, næstum sextíu ára gömlum kjól. Svo á ég ómerkilegri hluti sem ég geymi og tek stundum upp og fæ hláturskast, eins og gallapilsið sem ég notaði og er svo stutt að ég myndi eflaust nota það sem belti í dag.“ Flestöll föt sem Soffía er hætt að nota ganga í endurnýjun lífdaga. „Ég byrja á að bjóða fötin á línuna dóttir-frænkur-vinkonur. Eftir það fara fötin beint í Konukot, Rauða krossinn eða á einhverja staði þar sem þau nýtist áfram. Eins er sniðugt að hafa í huga að Konukot og fleiri staðir taka líka við snyrtivörum og öðru slíku,“ segir Soffía. n 2 kynningarblað A L LT 22. júlí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.