Fréttablaðið - 15.07.2021, Page 2
Þeyttu bílflautur til stuðnings mótmælum á Kúbu
Einn af stuðningsmönnum
Ítala á Wembley á úrslita
leik EM klæddist íslensku
landsliðstreyjunni innan um
blátt haf stuðningsmanna
Ítalíu. Michele Cavicchi er frá
bænum Pieve di Cento, sem
heldur upp á Ara Frey Skúla
son og er treyjan lukkugripur.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Ég vildi klæðast þessari
treyju á úrslitaleiknum þar sem í
mínum heimabæ er orðið Skúla
son tengt við tilfinninguna að gera
eitthvað fallegt eða ótrúlegt,“ segir
Michele Cavicchi, Ítali sem klædd
ist íslenskri landsliðstreyju af Ara
Frey Skúlasyni á úrslitaleik Evrópu
mótsins um helgina.
Kannski má segja að treyjan af
Ara Frey hafi fært Ítölum lukku, þar
sem lið þeirra varð Evrópumeistari
í annað sinn í sögunni eftir sigur á
Englendingum í vítaspyrnukeppni,
53 árum á eftir síðasta Evrópu
meistaratitli, eftir að Ítalir höfðu
tapað tveimur úrslitaleikjum í röð.
Blái liturinn á íslensku treyjunni
féll vel inn í hóp ítalskra stuðnings
manna á leiknum í blárri treyju
Ítalanna.
Í tengslum við Evrópumótið árið
2016 tók ítalski bærinn Pieve di
Cento í úthverfi Bologna ástfóstri
við íslenska landsliðsbakvörðinn
Ara Frey. Sérstök hátíð honum til
heiðurs var haldin á haustdögum
árið 2016 og var skorað á bæjaryfir
völd að gera Ara að heiðursborgara
í bænum.
Þá eru 3.500 manns í hóp á
Facebook sem samtvinnar Ara Frey
og bæjarfélagið. Þar geta bæjarbúar
nálgast reglulegar upplýsingar um
afrek Ara innan knattspyrnuvallar
ins.
„Ég vildi mæta í þessari treyju
á úrslitaleikinn á Wembley og
klæddist henni stoltur. Ég átti ekki
von á því að þetta myndi rata í fjöl
miðla en það gleður mig að heyra
að Íslendingar tóku eftir þessu,“
segir Michele léttur.
„Við skulum segja það, að þessi
treyja sé lukkugripur,“ svarar Mic
hele, spurður að því hvort treyjan
væri orðin hálfgerð happatreyja að
hætti hjátrúarfullra, enda átti Ari
Freyr frábæran dag síðast þegar
Englendingar féllu úr leik á Evr
ópumóti, þá eftir tap gegn Íslend
ingum.
Sjálfur komst Ari Freyr ekki á
hátíðahöldin þegar hann var heiðr
aður eftir Evrópumótið 2016 með
bæjarhátíð í ítalska bænum.
„Það eru fjölmargir í bænum
mínum, Pieve di Cento sem eiga
treyju af Ara og við studdum öll
við bakið á Íslandi árið 2016 þegar
Ísland keppti á Evrópumótinu í
fyrsta sinn,“ segir Michele. n
Klæddist treyju af Ara Frey
Ítölum til lukku á Wembley
Michele tók undir að kannski boðaði treyjan lukku þegar kæmi að andstæð-
ingum enska landsliðsins á Evrópumóti karla. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ég vildi mæta í þessari
treyju á úrslitaleikinn á
Wembley og klæddist
henni stoltur.
Michele Cavicchi.
Best Benalmádena 4*
Hálft fæði
COSTA DEL SOL°
16. - 27. júlí
Flug og gisting og hálft fæði innifalið
www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400
verð frá 138.900 kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
Innifalið flug, gisting, fullt fæði, innritaður farangur og handfarangur
gar@frettabladid.is
ELDGOS „Lífshættulegt er að stíga
út á hraunið. Farið því aldrei út á
hraunið,“ ítrekar Lögreglan á Suður
nesjum í tilkynningu í gær.
„Gossvæðið er hættulegt og þá
ekki síst vegna lélegra loftgæða.
Lögregla getur án fyrirvara lokað
fyrir alla umferð inn að gosstöðv
unum,“ undirstrikar lögreglan og
varar fólk við að fara með börn
yngri en sjö ára að gosstöðvunum
ef hætta er á gasmengun. „Ekki er
ráðlegt að börn dvelji lengur en 15
mínútur á stað þar sem loftmengun
er yfir heilsuverndarmörkum.“
Þá er meðal annars bent á svo
kallaða gönguleið C inn Nátthaga
að hraunf læðinu. Það sé auðveld
gönguleið sem taki eina klukku
stund. „Frá Nátthaga má ganga
áfram upp á Langahrygg og fá yfir
sýn yfir gíg og gosvirkni síðustu
mánaða,“ segir áfram. Það taki eina
til tvær klukkustundir í viðbót. n
Lögreglan varar
gosfara við hættu
Mikil hætta getur stafað af gosinu í
Geldingadölum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
thorgrimur@frettabladid.is
FASTEIGNIR „Þessar sögur eru allar
ljótar sem fólkið hefur verið að
segja, því miður,“ segir Þorsteinn
Sæmundsson, þingmaður Mið
flokksins, um fund sem hann hélt á
þriðjudaginn um eignir Íbúðalána
sjóðs eftir hrun. „Þarna komu fram
nokkrir af viðskiptavinum Íbúða
lánasjóðs og sögðu hreinskilnislega
frá því hvernig farið var með þau.“
Þorsteini telst svo til að tíu þús
und manns hafi misst heimili sín
til Íbúða lánasjóðs eftir hrun. Hann
telur að ákvæði stjórnsýslulaga um
leiðbeiningu og meðalhóf hafi ekki
verið virt við íbúðakaup sjóðsins.
„Margt bendir til þess að upp
boðslög hafi verið brotin í mörgum
tilfellum og ef svo er verður að finna
einhvern sem ber ábyrgð,“ segir Þor
steinn. Sér finnist öfugsnúið að fólk
sem tapar nánast aleigunni horfi
upp á að þeir sem hafi verið áberandi
fyrir hrunið komi til baka og kaupi
þessar eignir á hrakvirði.
„Mér finnst vanta upp á að við
skoðum eftirköst hrunsins á sama
hátt og við skoðuðum aðdragandann
og hrunið sjálft,“ segir Þorsteinn. „
Við Miðflokksmenn höfum kallað
eftir því að gerð verði skýrsla um
áhrif hrunsins á íslensk heimili en
henni hefur ekki verið skilað enn
þá.“ n
Nánar á frettabladid.is
Íbúðakaup ÍLS hafi verið brot á lögum
Þorsteinn Sæmundsson á fundi um
íbúðamissi á þriðjudaginn.
Kúbverjar óku um götur miðborgarinnar í Reykjavík í gærkvöldi og flautuðu til að vekja athygli á mótmælum sem verið hafa á eyjunni undanfarið. Þar hefur
fólk krafist þess að Kommúnistaflokkurinn, sem farið hefur með völd þar í áratugi, láti af völdum og lýðræði verði komið á. Bandaríkjamenn settu viðskipta-
bann á Kúbu árið 1962 sem hefur leikið efnahag landsins grátt og vilja margir að því verði aflétt. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
2 Fréttir 15. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ