Fréttablaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 12
Ætlar Katrín Jakobs- dóttir að virða vilja stórs hluta kjósenda flokksins að vettugi? ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is n Halldór n Frá degi til dags Þetta er óásættan- leg staða í velferðar- þjóðfélagi og við verðum að gera betur. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Húsbúnaður úr sér genginn, mygluvandi og þrengsli, snjóar inn. Fólk þarf að deila herbergi með ókunn- ugum, allt að sex saman með sturtu og salerni. Aðstaða til útiveru slæm og ekki hægt að hleypa fólki út úr húsi svo dögum skiptir. Svona lýsa tveir geðlæknar, Halldóra Jónsdóttir og Lára Björgvinsdóttir, ástandinu á geðdeildum Landspítala í grein sem birtist í Fréttablaðinu á dögunum. Þær gagn- rýna að stjórnvöld hafi ekki sett fram neinar áætlanir um endurnýjun á húsakosti geðheilbrigðisþjónustunnar og kalla eftir markvissum aðgerðum strax. Þingflokkur Samfylkingarinnar lagði fram þings- ályktunartillögu í fyrra um að hafist yrði handa við uppbyggingu sómasamlegs húsnæðis fyrir geðheil- brigðisþjónustu Landspítala. Markmiðið er að skapa heilnæmt og gott umhverfi fyrir fólk sem glímir við geðrænan vanda, í takti við nútímakröfur um mannúð- lega þjónustu. Tillagan fékk jákvæðar undirtektir frá Læknafélagi Íslands, Landspítalanum og Geðhjálp en einu viðbrögðin úr ranni stjórnarmeirihlutans voru þau að kannski mætti bara skera geðheilbrigðisþjón- ustuna alveg frá Landspítala háskólasjúkrahúsi og fela einkaaðilum reksturinn. Þingmálið var svæft í nefnd. Geðheilbrigðisþjónusta hefur mætt afgangi hjá síðustu ríkisstjórnum. Geðlæknum hefur fækkað á þeim vettvangi sem veikustu sjúklingunum er sinnt og biðtími eftir þjónustu hefur lengst. Samkvæmt nýlegri skýrslu frá heilbrigðisráðuneytinu er meðalbiðtíminn hjá átröskunarteymi Landspítalans 45 vikur. Vel á annað hundrað börn eru á biðlista hjá göngudeild Barna- og unglingageðdeildar og meira en 700 manns bíða viðtals hjá ADHD-teymi spítalans. Þetta er óásættanleg staða í velferðarþjóðfélagi og við verðum að gera betur. Það kallar á breytta forgangsröð- un við landstjórnina. Í haust þarf að taka til starfa sterk, umbótasinnuð ríkisstjórn með pólitískan vilja til að stórefla aðbúnað og umgjörð geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi og vinna gegn mönnunarvandanum í heil- brigðiskerfinu. Það verður aðeins gert með samhentu átaki þvert á ráðuneyti og þar mega deilur um rekstrar- form ekki þvælast fyrir nauðsynlegri uppbyggingu. Sjúklingar og heilbrigðisstarfsfólk eiga betra skilið. n Þau eiga betra skilið Jóhann Páll Jóhannsson þingframbjóðandi Samfylkingarinn- ar í Reykjavík. Stjórnmálamenn eiga ekki að láta skoðanakann-anir koma sér úr jafnvægi. Í skoðanakönnunum felast hins vegar oft skilaboð sem eiga að vekja stjórnmálamenn til umhugsunar. Nýleg skoðanakönnun sem sýnir að rúm sjötíu pró- sent kjósenda Vinstri grænna séu mótfallin áframhald- andi ríkisstjórnarsamstarfi, er skoðanakönnun sem forysta Vinstri grænna getur ekki leitt hjá sér. Innan Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er sterkur vilji til að halda núverandi ríkisstjórnarsam- starfi áfram og vilji forsætisráðherra og formanns Vinstri grænna, Katrínar Jakobsdóttur, virðist einnig hneigjast í þá átt. Nú hefur þessi nýja könnun sett strik í reikninginn. Ætlar Katrín Jakobsdóttir að virða vilja stórs hluta kjósenda flokksins að vettugi? Það er ekkert ólíklegt að hún geri einmitt það. Í aðalatriðum hefur þetta ríkis- stjórnarsamstarf verið farsælt. Ríkisstjórnin hefur ekki verið að skaða þjóðina, eins og fyrri ríkisstjórnir hafa sumar gert. Það væri alls ekki órökrétt að halda ríkis- stjórnarsamstarfinu áfram. En til þess þarf vitanlega umboð kjósenda. Þegar Vinstri græn gengu til samstarfs við Sjálfstæðis flokk dundu yfir flokkinn hrakspár. Hann átti að stórtapa á samstarfinu. Hörmungaspárnar hafa ekki gengið eftir. Þegar fylgi flokksins í skoðana- könnunum er skoðað þá má segja að Vinstri græn hafi sloppið þokkalega frá samstarfinu. Vitanlega er ekki hægt að fullyrða hvernig flokkur- inn muni koma út úr komandi kosningum. Ekkert bendir þó enn til þess að hann muni bíða afhroð. Sem er dálítið skrýtið, því kjósendur hefðu átt að leggja á flótta frá flokknum um leið og samstarfsflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, drápu eins og ekkert væri hið göfuga og góða áherslumál Vinstri grænna: Stofnun hálendisþjóðgarðs. Hin áleitna spurning er hvort kjósendur Vinstri grænna séu svo andsnúnir áframhaldandi ríkis- stjórnarsamstarfi að þeir geti hreinlega ekki hugsað sér að kjósa flokk Katrínar Jakobsdóttur af ótta við að sam- starfinu við Sjálfstæðisflokkinn verði haldið áfram. Eða munu þeir, þrátt fyrir óbeit sína á ríkisstjórnarsam- starfinu, kjósa sinn flokk, þótt með hangandi haus sé? Stjórnmálamenn eiga ekki að taka of mikið mark á skoðanakönnunum, en þessi nýlega skoðanakönnun er óvenju óþægileg fyrir forystu Vinstri grænna. Hún er æpandi áminning um óróa innan flokksins og við- vörunarbjöllur ættu nú að hljóma í eyrum Katrínar Jakobsdóttur. Þetta er einnig skoðanakönnun sem flokkar innan stjórnarandstöðu munu grípa í eins og björgunarbát. Samfylkingin og Viðreisn þrá að komast í ríkisstjórn og munu í kosningabaráttunni veifa niðurstöðunni framan í Vinstri græn og þráspyrja Katrínu Jakobs- dóttur hvort hún ætli ekki að taka mark á vilja flokks- manna. Þegar kemur að Samfylkingunni mun þetta reyndar vera eins og að kasta steinum úr glerhúsi. Alkunna er að Samfylkingin hefur markvisst, og nánast af ofsa, verið að hrekja frá sér fólk sem líklegt væri til að kjósa flokkinn. Formaður Vinstri grænna er því ekki eini formaðurinn sem virðist tregur til að taka mark á kjósendum sínum. n Könnunin ljosid.is ÞINN STUÐNINGUR ER OKKAR ENDURHÆFING toti@frettabladid.is Kappið og forsjáin Stysta og skarpasta ræða sem skrifuð hefur verið á enska tungu er svohljóðandi: „I told you so“ og er víða f lutt á sam- félagsmiðlum eftir að innan- landssmitum tók að fjölga á ný. Enda ekki útilokað að rífandi gangurinn sem verið hefur í bólusetningum hafi þær vara- sömu aukaverkanir að fólk æði um, án þess að vera með fulla virkni, í algeru óttaleysi við síbreytilega veiruna og því ekki hægt að útiloka að landamærin hafi verið opnuð korteri áður en hjarðónæmi hefði mögulega náðst með fullri bólusetningu 80–90% fullorðinna. Delta-tilbrigðið Björn Ingi Hrafnsson, veiru- greinir á Viljanum, gerði fréttir af fimm smitum utan sóttkvíar á einum sólarhring að umtals- efni á Facebook í gær. „Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir staðfestir við Viljann, að nýju smitin sem greinst hafi innan- lands undanfarna daga séu að mestu af hinu indverska Delta- af brigði sem talið er mun meira smitandi en önnur og hefur valdið snarfjölgun tilfella víða um heim að undanförnu,“ skrif- aði Björn Ingi, sem væntanlega mun hafa góðar gætur á Delta og því hvort það hafi hingað komið og fundið óplægðan stökkbreytingaakur. n SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 15. júlí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.