Fréttablaðið - 15.07.2021, Side 16
Mér finnst ég enn þá
eiga eftir að sýna mig
og sanna fyrir liðinu,
því ég fékk aldrei að
sýna hvað ég hef upp á
að bjóða.
Svava Rós Guðmundsdóttir.
16 Íþróttir 15. júlí 2021 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 15. júlí 2021 FIMMTUDAGUR
kristinnpall@frettabladid.is
ÓLYMPÍULEIKAR Þriðju Ólympíu-
leikana í röð verða konur fjölmenn-
ari í Ólympíusveit Bandaríkjanna
en karlar. Ólympíuhópur Banda-
ríkjanna var kynntur í vikunni
og voru 329 konur og 284 karlar
á listanum yfir þá 613 fulltrúa
sem Bandaríkin senda til Tókýó.
Þetta er næstfjölmennasta sveit
sem Bandaríkin hefur tef lt fram á
Ólympíuleikunum á eftir Ólympíu-
leikunum í Atlanta.
Þetta eru um leið þriðju leikarnir
í röð sem fjölgun á sér stað í þátt-
takendahópi bandarískra kvenna,
eftir að 268 konur tóku þátt í Lond-
on og 294 í Ríó, og nýtt met í fjölda
kvenþátttakenda á einum leikum
eftir að fyrra metið var sett í Ríó.
Tæp tvö hundruð af Ólympíuför-
um Bandaríkjanna hafa áður keppt
á Ólympíuleikum og eru 56 fyrrum
gullverðlaunahafar í hópnum. Einn
þeirra, Phillip Dutton, sem er elsti
þátttakandi Bandaríkjanna og
keppir í skotfimi, er að keppa á
sínum sjöundu Ólympíuleikum
eftir að hafa keppt fyrst á Ólympíu-
leikunum árið 1996, þá fyrir hönd
Ástralíu.
Sex fulltrúar Bandaríkjanna eru
að fara á sína fimmtu Ólympíu-
leika, fimmtán á sína fjórðu, 39 í
þriðja sinn og 130 að keppa í annað
sinn. Af 613 fulltrúum Bandaríkj-
anna koma f lestir frá Kaliforníu
(126) og Flórída (51) og er sund-
konan Katie Grimes, sem er nýorð-
in fimmtán ára, yngst í bandaríska
hópnum. n
Konur í meirihluta í Ólympíuhópi Bandaríkjanna
Simone Biles er í hópi Ólympíufara Bandaríkjanna til Tókýó. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Tæplega helmingi f leiri
Bandaríkjamenn fylgdust með
úrslitaleik Englands og Ítalíu um
síðustu helgi en fylgdust með leik
Frakklands og Ítalíu í úrslitum
sömu keppni árið 2016. Þá var
heildaraukning upp á 31 prósent á
Evrópumóti þessa árs, miðað við
mótið sem fór fram í Frakklandi
árið 2016. Þetta kemur fram í nýj-
ustu áhorfendatölum ESPN.
Alls fylgdust tæplega 6,5 millj-
ónir með leik Englands og Ítalíu að
meðaltali, sem er 43 prósenta aukn-
ing frá því fyrir fimm árum síðan.
Þegar mest var voru 8,2 milljónir að
fylgjast með leiknum á Wembley. Er
þetta mesta áhorf sem mælst hefur á
leik á Evrópumóti í Bandaríkjunum
og vinsælasta knattspyrnuútsend-
ing Bandaríkjanna í tvö ár.
Vinsældirnar voru heldur meiri í
Bretlandi þar sem 31 milljón fylgdist
með úrslitaleiknum, örlítið færri en
fylgdust með úrslitaleiknum á HM
1966 þar sem Englendingar léku
síðast til úrslita, og jarðarför Díönu
prinsessu árið 1997. n
Metáhorf á úrslit
Evrópumótsins
Fótboltinn er í sókn í Bandaríkjunum.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Lionel Messi og forráða-
menn komust í gær að samkomulagi
um nýjan fimm ára samning, þar
sem Messi tekur á sig verulega
launalækkun. Argentínumaður-
inn er því ekki á förum frá Barce-
lona eftir tuttugu ár í herbúðum
spænska stórveldisins, eftir að hafa
reynt að komast frá félaginu síðasta
sumar án árangurs. Samkvæmt
heimildum ESPN verður samning-
urinn kynntur á næstu dögum.
Messi var án félags eftir að samn-
ingur hans við Barcelona rann sitt
skeið undir lok júní. Honum var því
heimilt að ræða við önnur félög,
en eftir að Joan Laporta sneri aftur
í forsetastól félagsins og félagið
samdi við góðvin Messi, Sergio Agü-
ero, hugnaðist Messi frekar að semja
við Börsunga.
Börsungar eru þessa dagana að
reyna að létta á skuldum og losna
við leikmenn af launaskrá en forseti
spænsku deildarkeppninnar, Javier
Tebas, hefur hótað Börsungum því
að félagið fái hvorki að skrá Messi
né aðra nýja leikmenn fyrr en búið
er að leysa úr fjárhagsvandræðum
félagsins. n
Messi tekur
tilboði Barcelona
Messi verður 39 ára þegar samn-
ingurinn rennur sitt skeið.
Landsliðskonan Svava Rós
Guðmundsdóttir gat lítið
beitt sér hjá nýju félagi í
byrjun þessa árs vegna þrá-
látra meiðsla í kálfa, en það
horfir til betri vegar. Hún
segist að einhverju leyti vera
komin aftur á byrjunarreit og
þurfa að sanna sig á ný í vetur.
kristinnpall@frettabladid.is
FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Svava
Rós Guðmundsdóttir, sem leikur
með Bordeaux í Frakklandi og
íslenska kvennalandsliðinu, segist
vera búin að ná sér af þrálátum
kálfameiðslum og tekur því fullan
þátt í undirbúningstímabili franska
félagsins þessa dagana. Svava, sem
er uppalin í herbúðum Vals, skipti
yfir til Frakklands í byrjun þessa árs
en erfið meiðsli tóku sig upp strax í
fyrsta leik sem voru að plaga hana
út síðasta tímabil. Fyrir vikið náði
hún aðeins 63 mínútum í treyju
Bordeaux í vor, en vonast til að
sýna sig og sanna í einni af sterkustu
deildum Evrópu í vetur.
Svava er með samning út þetta
tímabil hjá franska félaginu, sem
er þriðja félag hennar á erlendri
grundu. Þar áður lék Svava í tvö ár
með Íslendingaliði Kristianstad í
Svíþjóð og eitt tímabil með Röa í
Noregi, þar sem hún var valin ein
af bestu leikmönnum tímabilsins.
„Eins og staðan er núna er heilsan
bara mjög góð eftir erfiða byrjun í
Frakklandi. Ég kom inn á í fyrsta
leiknum mínum og lék í hálftíma
en reif f ljótlega vöðva í kálfanum,
sem voru ofboðslega erfið meiðsli,“
segir Svava, aðspurð hvort að hún
sé búin að ná fullri heilsu eftir bak-
slagið sem kom upp á fyrstu vikum
hennar í Frakklandi.
„Það voru einhver erf iðustu
meiðsli sem ég hef glímt við á ferl-
inum, bæði líkamlega og andlega.
Til þessa hef ég yfirleitt náð að
hrista af mér meiðsli frekar f ljót-
lega á ferlinum en þessi meiðsli
voru mun erfiðari. Ég þurfti að fara
mjög varlega því þau voru alltaf að
taka sig upp að nýju. Fyrir vikið var
ég daglega í sjúkraþjálfun og náði í
raun lítið að æfa með liðinu.“
Svava fær því annað tækifæri á
þessu tímabili til að stimpla sig inn
í lið Bordeaux, sem endaði í þriðja
sæti deildarinnar á síðasta ári.
„Mér finnst ég enn þá eiga eftir að
sýna mig og sanna fyrir liðinu, því
ég fékk aldrei að sýna hvað ég hef
upp á að bjóða. Ég er að einhverju
leyti aftur á byrjunarreit að sýna
hvernig ég get hjálpað liðinu,“ segir
Svava, sem segir liðsfélagana og
þjálfarann hafa sýnt stöðu hennar
mikinn skilning.
„Þau hafa verið afar skilningsrík
og stutt við bakið á mér. Þegar ein-
staklingur kemur inn á miðju tíma-
bili fyrir lokasprettinn er ekki æski-
legt að vera alltaf meidd en um leið
finn ég fyrir miklum drifkrafti að
geta tekið þátt frá byrjun undirbún-
ingstímabilsins til að sýna mig og
sanna. Það er heilmikil samkeppni
um allar stöður í liðinu og það þarf
að vinna fyrir því á æfingasvæðinu
þar sem það er ekkert gefið eftir,“
segir Svava sem vonast til að spila
æfingaleiki á næstunni.
Tímabilið hefst svo í næsta mán-
uði í undankeppni Meistaradeildar
Evrópu, þar sem Svava gæti mætt
Fær annað tækifæri til að sanna sig
Svava Rós kom þrisvar inn af bekknum á fyrsta tímabili sínu með Bordeaux en meiðsli settu strik í reikninginn.
Svava er þessa
dagana á fyrsta
undirbúnings-
tímabili sínu
með Bordeaux.
MYND/AÐSEND
kunnuglegum andlitum í sænska
félaginu Kristianstad.
„Það yrði mjög gaman ef hlutirnir
myndu atvikast þannig, en bæði
lið eiga eftir að spila annað einvígi
fyrst.“
Svava fékk tíu mínútur í síðasta
landsleiksverkefni og er nú komin
með 25 leiki fyrir Íslands hönd.
„Það var mjög gott að fá þessar
mínútur með landsliðinu um dag-
inn. Það var komið langt frá síðasta
landsliðsverkefni og ég þurfti að
fara varlega, en það var gott að fá
einhverjar mínútur. Það verður svo
gaman að hefja undankeppnina
fyrir HM í haust.“ n