Fréttablaðið - 15.07.2021, Page 30

Fréttablaðið - 15.07.2021, Page 30
Hugsunin með þessu er að styðja við tíma- bundna myndlist í opinberu rými. Laglínurnar voru smekklega mótaðar, raddirnar himneskar, píanóleikurinn tær og í prýðilegu jafnvægi. Nýtt sýningarrými var nýlega opnað í höfuðborginni, Gall- erí Undirgöng við Hverfis- götu 76. Anna Hallin er fyrsti myndlistarmaðurinn sem sýnir þar. kolbrunb@frettabladid.is Listrýmið er staðsett í undirgöngum við Hverfisgötuna, sem er ein fjöl- farnasta gata miðborgarinnar. Sýn- ingarveggir undirganganna sjást vel frá götunni. „Við Olga Bergmann stöndum fyrir þessu sýningarrými sem er í upplýstum undirgöngum við hús okkar. Hugsunin með þessu er að styðja við tímabundna mynd- list í opinberu rými,“ segir Anna. „Rýmið hér við Hverfisgötuna er mjög skemmtilegt og lifandi.“ Verk Önnu, Loftmynd, er tólf metrar á breidd og unnið beint á veggi rýmisins. Það byggir á blek- teikningum Önnu sem sækja inn- blástur í loftmyndir af mannvirkj- um og þar eru línur og form sem skapa hreyfingu og dýpt. Verkið er unnið með bleki, úða og húsa- málningu. „Listakona frá Ástralíu, sem gerir blek úr granateplum, gaf mér mismunandi liti. Mér fannst mjög gaman að nota blekið því það flæðir svo skemmtilega. Þegar maður notar það verður maður að vera vak- andi og í núinu. Svo keypti ég mér úða eins og þann sem er notaður í graffití og málaði aftur yfir sumt með málningu.“ Hringir eru áberandi í þessu verki Önnu. „Þegar ég gerði þá var ég líka að einhverju leyti að hugsa út í geim,“ segir hún. Hún segir markmiðið með þessu nýja galleríi vera að stofna til vett- vangs fyrir tímabundin útilistaverk í borginni, auka sýnileika samtíma- listar í borgarrýminu og skapa vett- vang þar sem myndlistarmönnum gefst tækifæri til að takast á við óhefðbundið rými og nýjar aðstæð- ur til sýningarhalds í almannarými. „Við Olga ætlum í framhaldinu að halda málþing um listaverk í opinberu rými. Okkur finnst vanta samtal milli listamanna um slík verkefni og hver birtingarmynd þeirra getur verið, og viljum að bæði ríkisstjórn og borg setji betri fókus á list í opinberu rými,“ segir Anna. Sýning Önnu stendur í tvo mán- uði. Þá verður málað yfir verk henn- ar og nýtt verk eftir Einar Garibaldi Eiríksson fer í rýmið og síðan kemur að Eygló Harðardóttur sem sýnir í byrjun næsta árs. Stjórn félags um Gallerí Undir- göng skipa: Olga Bergmann, Anna Hallin, Dore Bowen og Þórdís Aðal- steinsdóttir. n Loftmynd við Hverfisgötu „Rýmið er mjög skemmtilegt og lifandi,“ segir Anna. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR TÓNLIST Sönghátíð í Hafnarborg Tónlist eftir: Beethoven, Mozart, Verdi, Nicolai, Saint-Saens og Donizetti. Fram komu Sigrún Pálmadóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Gissur Páll Gissurarson, Oddur Arnþór Jónsson, Kristinn Sigmundsson, Alexander Jarl Þorsteinsson og Guðrún Dalía Salómonsdóttir. Hafnarborg: sunnudaginn 4. júlí. Jónas Sen Beethoven dáði Mozart en sagði samt í bréfi að hann væri stór- hneykslaður á hve margt í óperun- um hans væri dónalegt. Í þeim er oft sungið um uppáferðir, framhjá- hald, kvennabúr og sving. Í Cosi fan tutti er til dæmis veðjað á að dyggar eigin konur verði lauslátar þegar eig- inmenn þeirra þykjast vera kallaðir í herinn. Þetta svífur yfir vötnunum í tríóinu Soave sia il vento. Það var eitt af atriðunum á dagskránni á lokatónleikum Sönghátíðar í Hafn- arborg á sunnudaginn. Beethoven var uppsigað við svona atriði, honum fannst að verið væri að draga tónana niður á lágt plan, breyta tónum í dóna. Tónlistin hér var svo sannarlega stórfengleg, hún var svo háleit og fögur að það stakk vissulega í stúf við umfjöllunarefn- ið. Kannski var Mozart að meina að finna má guðsneistann í öllum hlut- um, líka þar sem losti og sviksemi eru við völd. Guð býr í gaddavírnum og galeiðunni, eins og Megas orti. Í prýðilegu jafnvægi Óumræðileg fegurð var að minnsta kosti auðmerkjanleg í söng þeirra Sigrúnar Pálmadóttur sópran, Hönnu Dóru Sturludóttur mezzó- sópran og Odds Arnþórs Jónssonar baríton. Einnig í píanóleik Guð- rúnar Dalíu Salómonsdóttur. Lag- línurnar voru smekklega mótaðar, raddirnar himneskar, píanóleikur- inn tær og í prýðilegu jafnvægi, bæði innbyrðis og í takt við söngradd- irnar. Þetta var frábært. Meira hneyksli var á dagskránni. Óperuna Rigoletto eftir Verdi varð að ritskoða áður en hún taldist gjaldgeng, eins og Gissur Páll Giss- urarson tenór rakti fyrir hlátur- mildum áheyrendum. Ekki þótti við hæfi að aðallinn, hvað þá kóng- urinn, væri sýndur í vafasömu ljósi. Óperan var byggð á leikriti eftir Vic- tor Hugo sem fjallar um hinn fjöl- þreifna konung Francis I. Leikritið var bannað, en með strangri rit- skoðun mátti semja við það óperu. Gissur Páll sagði á undan kvartett- inum Bella figlia dell‘amore að hægt væri að greina þar kynferðislegan takt. Fyrir bragðið tókst honum að eyðileggja upplifunina, því maður heyrði náttúrlega ekkert annað. Desíbel við hættumörkin Í alvöru talað þá voru þetta bráð- skemmtilegir tónleikar. Eitt magn- aðasta atriðið var sérlega langur og efnismikill dúett úr Don Carlo eftir Verdi. Hann var í höndunum á Kristni Sigmundssyni bassa og Oddi Arnþóri. Mikið drama var í frásögn- inni og hápunktarnir brjálæðislegir. Píanóleikurinn var líka pottþéttur, en Guðrún Dalía klikkaði ekki hér frekar en annars staðar. Leikur hennar var líflegur og fjölbreyttur, einkar litríkur og spennandi, en aldrei á kostnað nákvæmninnar. Ég sagði frá því í dómi nýlega að ég væri með app í úrinu mínu sem mældi hljóðstyrk. Lokaatriðið á tón- leikunum var sextettinn úr Lucia di Lammermoor eftir Donizetti. Þar bættist Alexander Jarl Þorsteins- son tenór í hópinn. Sungið var með þrumuraust. Ég sat heldur aftarlega, en þrátt fyrir það var appið alltaf að vara mig við. Hættulegt heyrninni væri að vera lengi í þessum hljóð- styrk, sem var yfir 90 desíbel. Guðni forseti sat á fremsta bekk; hann virt- ist vera fölur á svipinn. n NIÐURSTAÐA: Bráðskemmtilegir tónleikar með flottri tónlist og dásamlegum söng. Sexið selur … líka í óperunum Kristinn Sigmundsson söng á bráðskemmtilegum tónleikum í Hafnarborg. kolbrunb@frettabladid.is Hrafnhildur Schram listfræðingur ræðir um Nínu Sæmundsson mynd- höggvara (1892–1965) að Kvoslæk í Fljótshlíð, laugardaginn 17. júlí kl. 15.00. Nína fæddist í Nikulásarhúsum, skammt austan við Hlíðarenda í Fljótshlíð. Þar er nú Nínulundur til minningar um hana, fyrstu íslensku konuna sem helgaði sig högg- myndalist. Á liðnum vetri veitti ríkisstjórn Íslands félaginu Af rek shug ur fjórar milljónir króna í styrk til að láta gera afsteypu af verki Nínu, Afrekshug, Spirit of Achievement, táknmynd Waldorf Astoria hótels- ins í New York síðan 1931. Verður afsteypan reist á Hvolsvelli. Hrafnhildur Schram ritaði ævi- sögu Nínu sem Crymogea gaf út árið 2015. n Hrafnhildur segir frá Nínu Listakonan Nína Sæmundsson við vinnu sína. Hrfnhildur Schram, sem skrifaði um hana bók, segir frá henni á laugardag í Fljótshlíð. 10-60% AFSLÁTTUR ÚTSALAN ER Í FULLUM GANGI SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS 22 Menning 15. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 15. júlí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.