Fréttablaðið - 01.07.2021, Síða 2
Hovima La Pinta Beachfront 4*
Costa Adeje
TENERIFE
09. - 20. júlí
www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400
verð frá 139.990 kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
Innifalið flug, gisting, hálft fæði og innritaður farangur
HÁLFT
FÆÐI
11
DAGAR
Þetta er ungt og leikur sér
Fádæma veðurblíða hefur ríkt á norður- og austurlandi undanfarna daga. Ekki aðeins hafa íslenskir og erlendir ferðamenn flykkst norður í land til að sleikja
sólina, heldur kann unga fólkið á landsbyggðinni heldur betur að njóta blíðunnar. Það sýna þessir hressu krakkar sem voru að kæla sig í höfninni á Neskaup-
stað í vikunni, þegar Gunnar Gunnarsson ritstjóra Austurfréttar bar að. Ekkert lát virðist ætla að verða á blíðunni næstu daga. MYND/GUNNAR GUNNARSSON
America to Europe – Reykja-
nes Volcano Ultra fer fram
um helgina, þar sem verður
hlaupið milli heimsálfa og
þeir sem hlaupa lengst hlaupa
fram hjá eldgosinu í Geld-
ingadölum. Eina konan í 100
kílómetra hlaupinu hlakkar
til að takast á við komandi
kílómetra.
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Kosturinn við að hlaupa
100 kílómetra er að það spyr þig
enginn um tímann. Það er meira að
ná að klára,“ segir Andrea Kjartans-
dóttir, sem er eina konan skráð í 100
kílómetra Goshlaup um helgina.
America to Europe – Reykjanes
Volcano Ultra fer fram um helgina,
en í 100 kílómetra hlaupinu verður
hlaupið fram hjá eldgosinu sem og
milli heimsálfa, því farið verður
yfir gjána milli Ameríku og Evr-
ópu. Bjarni Már Svavarsson segir
að fyrirspurnum erlendis frá rigni
inn fyrir næsta ár. Eðlilega eru fáir
erlendir að fara hlaupa þetta árið,
en Bjarni vonast til að næsta ár verði
ansi stórt.
„Það eru einhverjir útlendingar
að fara hlaupa í ár, en það er mikið
af fyrirspurnum fyrir næsta ár.
Grindavík verður upphafs- -og
endapunktur. Gosið breytti svo
leiðinni aðeins, en við höfum unnið
okkur í gegnum það,“ segir hann.
Leiðirnar eru ákaflega skemmti-
legar en hlaupið verður á utanvega-
stígum, fjallvegum, um strandir,
hraun, bæi Suðurnesja og upp að
útsýnisstöðum, en þó er ákaf-
lega lítil hækkun. Í 10 kílómetra
hlaupinu er 116 metra hækkun og
í 100 kílómetrunum er 820 metra
hækkun.
„Það eru auðvitað engin stór fjöll
á Reykjanesinu. Þetta eru rúllandi
upphækkanir en í 50 og 100 kíló-
metrunum er hlaupið milli heims-
álfa, því hlaupið er yfir brúna milli
Ameríkuflekans og Evrópuflekans,“
segir Bjarni.
Andrea bíður spennt eftir helg-
inni enda góð spá og segist hlakka
til að hlaupa fram hjá eldgosinu.
„Ég hef hlaupið 100 kílómetra áður,
en það var í aðeins öðru formi. Nú
langar mig að klára 100 kílómetra
í alvöru hlaupi með engum hléum.
Það getur verið bæði gott og vont
að hafa meiri hækkun, því þá er
hægt að hvíla sig upp brekkurnar,
þannig að ég er aðeins stressuð ef
það eru ekki brekkur. Öll hækkunin
er á fyrri hlutanum og seinni hlut-
inn er á meira flatlendi.
Þetta lítur út fyrir að vera
skemmtilegt hlaup og góð braut.
Betri hlauparar en ég gætu neglt á
þetta og náð góðum tíma. En ég er
ekki á þeim stað. Ég ætla bara að
klára þetta,“ segir hún. ■
Hlaupið um gosstöðvarnar í
miðnætursól og góðu veðri
Trúlega verður ansi magnað að hlaupa í kringum eldsumbrotin við Fagradals-
fjall í glampandi sól um miðja nótt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það eru einhverjir
útlendingar að fara
hlaupa í ár, en það er
mikið af fyrirspurnum
fyrir næsta ár.
Bjarni Már
Svavarsson.
kristinnpall@frettabladid.is
VESTMANNAEYJAR Umhverfis- og
skipulagsráð Vestmannaeyja lagði
til að lundaveiði yrði leyfð með
sama hætti þetta árið og á síðasta
ári og lundaveiðar verði heimilar frá
7.-15. ágúst næstkomandi. Á árum
áður þekktist að veiðitímabilið væri
allt að 46 dagar, en í bókun ráðsins
kemur fram að þá daga sem veiðin
er leyfð er tíminn yfirleitt nýttur til
þess að viðhalda þeirri merkilegu
menningu sem fylgir veiðinni og
úteyjalífi almennt. Um leið er þess
óskað að gengið verði fram af hóf-
semi við veiðarnar.
Náttúrustofa Suðurlands hafði
áður mælt gegn því að lundaveiðar
yrðu heimilaðar þetta árið og vísað
til þess í umsögn og greinargerð
um málefnið. Í skýrslunni kemur
fram að lundastofninn á Íslandi
hafi minnkað um 45 prósent á
sautján árum. Lítil ungaframleiðsla
og fæðuskortur hafi leitt til þess að
stofnvöxtur hafi farið minnkandi
og fyrir vikið telst öll veiði úr lunda-
stofninum stofnvistfræðilega ósjálf-
bær.■
Lundaveiði leyfð í eina viku í ágúst
Áður fyrr var veiðitíminn mun lengri.
adalheidur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Forsvarsmenn Norður-
f lugs hafa ekki sett sig í samband
við landeigendur að Hrauni eða
lögmann þeirra, eftir að sýslumaður
lagði lögbann við lendingum þyrla
félagsins við gosstöðvarnar í Geld-
ingadal, í fyrradag. „Nei það hefur
enginn haft samband af hálfu Norð-
urflugs í dag,“ segir Óskar Sigurðs-
son, lögmaður landeigendanna, en
í viðtali við Fréttablaðið í gær sagði
Óskar að leysa mætti málið með
samningum.
Óskar sagðist ekki hafa rætt við
umbjóðendur sína um viðbrögð
Samtaka ferðaþjónustunnar við lög-
bannið. Samtökin tóku fréttunum
illa og sögðu lögbannið geta skapað
slæmt fordæmi.
Óskar er nú að ganga frá stefnu í
málinu en höfða þarf staðfestingar-
mál um lögbannið innan viku frá
því það var lagt á. Hann segist gera
ráð fyrir að stefnan verði komin til
héraðsdóms fyrir helgi. ■
Norðurflug ekki
óskað eftir fundi
Útsýnisflug með þyrlum hefur verið í
boði við gosstöðvarnar síðan í mars.
2 Fréttir 1. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ