Fréttablaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 18
Mikil gróska er í íslenskri hönnun sem gaman verður að taka þátt í. Elín Albertsdóttir elin @frettabladid.is Jóhanna Vigdís Ragnhildar- dóttir útskrifaðist sem fata- hönnuður frá hinum virta Scandinavian Academy of Fashion Design í Kaup- mannahöfn fyrir nokkrum dögum. Hún á sér framtíðar- drauma í hönnun á Íslandi og stefnir á eigið tískumerki. Jóhanna Vigdís segist alla tíð hafa haft áhuga á hönnun enda alin upp við listræna sköpun. Afi hennar, Hjalti Geir Kristjánsson, er einn af okkar þekktustu húsgagnahönn- uðum. „Þetta er í blóðinu,“ segir hún, en Jóhanna Vigdís teiknaði og saumaði árshátíðarkjóla fyrir vinkonur sínar í menntaskóla. „Það er mikill áhugi á listsköpun í minni fjölskyldu og tískan er þar ekki undanskilin. Mér fannst til dæmis alltaf mjög skemmtilegt að horfa á mömmu klæða sig upp þegar ég var yngri og það kveikti sannarlega áhuga á fatahönnun,“ segir hún, en móðir hennar er Ragnhildur Hjalta- dóttir ráðuneytisstjóri. Skemmtilegt og krefjandi nám „Ég hef lengi dundað mér við að hanna og sauma. Var aðeins við- loðandi fatabransann á Íslandi en langaði að vita meira um efni og vandaðar flíkur. Það má segja að áhuginn sé víðtækur og nái á öll svið fatahönnunar,“ segir Jóhanna Vigdís, þegar hún er spurð hvers vegna leiðin hafi legið í þessa átt. „Ég er mjög ánægð með að hafa komist í skólann í Kaupmannahöfn, því maður fær að vinna náið með kennurunum. Ég fékk mjög góða leiðsögn og svör við öllum þeim spurningum sem brunnu á mér. Það er strangt ferli að komast inn, meðal annars þurfti ég að skila inn nákvæmum teikningum. Þetta er þriggja ára nám og bæði skemmti- legt og krefjandi. Námið byggir á saum, hönnun og nákvæmri rannsóknarvinnu sem mér finnst afar áhugaverð, meðal annars að finna innblástur til verka og teikna skissur,“ segir Jóhanna Vigdís, en hún fékk jafnframt nokkur verkefni sem unnin voru með starfandi hönnuðum í Danmörku. Meðal þeirra var Maja Brix og The Organic Company. „Þá fengum við innsýn inn í veröld hönnuða, hugsunarhátt og markaðssetningu.“ Umhverfisvernd í hávegum höfð Jóhanna Vigdís segir að mikil áhersla hafi verið lögð á umhverfis vernd í náminu. „Á hverju ári skiluðum við lokaverk- efni og þurftum að útskýra hvernig verkefnið félli að umhverfisstefnu og -vernd. Í lokaverkefninu mínu lagði ég áherslu á árin 1950-70. Innblásturinn kom frá fjölda mynda sem ég fann í sumarbústað fjölskyldunnar. Amma mín Sig- Fann innblástur í gömlum myndum Jóhanna Vigdís er nýútskrifuð úr fatahönnun frá Kaupmannahöfn og hlakkar til að koma heim og starfa við íslenskan hönnunarmarkað. MYNDIR/AÐSENDAR Þegar Jóhanna Vigdís er beðin að útskýra þessa mynd, svarar hún: „Dragtin er frá Gala, verkefni sem gekk út á mannslíkamann, þar sem ég skoðaði rifbeinin og hvernig ég gæti hannað dragt sem væri eins og annað lag á konuna í henni.“ Dragt úr útskriftarverkefni sem var innblásið af gömlum „slæds” myndum af fjölskyldu hennar. Þessi klæðnaður er einnig inn- blásinn af gömlum tíma í útskrifar- verkefninu. Hönnun fyrir útskriftarverkefnið. Hönnun Jóhönnu Vigdísar; loka- verkefni á öðru ári í náminu, en hún var innblásin af íslenskri náttúru og útlínum landsins. Náttúra Íslands var sömuleiðis inn- blástur í þessu verkefni. ríður Theodóra Erlendsdóttir var líka stór innblástur að lokaverkefni mínu. Í framhaldinu horfði ég til þessara ára varðandi tísku, hvernig fólki leið á myndunum og ekki síst hvernig gamlar myndir varð- veita augnablikið og frysta það. Ég hannaði nokkrar flíkur, ein þeirra leit út fyrir að vera innrömmuð á meðan önnur virtist frosin. Þannig tengdi ég saman tísku og mynd á filmu. Það var mjög gaman að vinna þetta verkefni og eiginlega skrítið að því sé lokið. Þar sem ég var ekki fædd á þessu tímabili tók það mig langan tíma að setja mig inn í tíðarandann en það var áhuga- vert,“ útskýrir hún. Íslensk hönnun á mikilli uppleið Leiðin liggur nú aftur til Íslands en Jóhanna Vigdís hefur hug á að vinna við hönnun sína hér á landi. „Tískuheimurinn er fjölbreyttur og mörg svið sem hægt er að starfa við. Í fyrstu ætla ég því að grípa það sem gefst og læra meira. Í fram- tíðinni langar mig að vinna sjálf- stætt og skapa mitt eigið merki. Það verður áhugavert að kynnast íslenska hönnunarheiminum, sem er farinn að vekja mikla athygli og eftir er tekið. Ég hef orðið vör við það í Kaupmannahöfn. Ég fór í starfsnám á Íslandi í september hjá hönnuðunum Magneu Einars- dóttur og Anítu Hirlekar, sem gaf mér innsýn inn í þeirra heim. Mikil gróska er í íslenskri hönnun sem gaman verður að taka þátt í og ég hlakka mikið til að fylgjast með Hönnunarmars á næsta ári.“ Mikil gleði í Köben Síðasta ár hefur verið heldur óvenjulegt í alþjóða tískuheim- inum vegna COVID og lítið um sýningar nema á netinu. Jóhanna Vigdís segist hafa fylgst með tísku- vikunni í Kaupmannahöfn í tölv- unni. „Mér fannst það allt í góðu, því hægt var að fylgjast sérstak- lega vel með öllu og jafnvel horfa aftur,“ segir hún. „Annars hefur COVID-tíminn verið skrítinn hér í Danmörku. Kaupmannahöfn er lifandi borg og fólk er vant því að njóta lífsins með vinum. Ég tel að samkomutakmarkanirnar hafi tekið meira á Dani en Íslendinga. Núna er allt að springa út, mikil gleði í loftinu og fólk þakklátt fyrir að fá frelsið aftur.“ Þegar Jóhanna Vigdís er spurð hvort hún eigi sér einhverja uppá- haldshönnuði sem hún líti upp til, svarar hún: „Já, Donna Karan, Stella McCartney og Max Mara eru allt merki sem höfða sterkt til mín. Þessi merki leggja öll áherslu á sterka kvenímynd og falleg snið sem ég heillast af.“ n EYMSLI, STIRÐLEIKI EÐA BRAK Í LIÐUM? Mest selda liðbætiefni á Íslandi 2-3ja mánaða skammtur íhverju glasi 4 kynningarblað A L LT 1. júlí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.