Fréttablaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 24
Leikkonan Scarlett Johans-
son markaðssetur snyrti-
vörumerki snemma á næsta
ári. Hún gefur lítið upp um
línuna en undirbúningur
hefur staðið yfir í nokkur ár.
sandragudrun@frettabladid.is
Scarlett Johansson mun gegna
hlutverki stjórnarformanns snyrti-
vörufyrirtækisins. Hún hefur
þegar fengið gamalreyndan tísku-
frumkvöðul, Kate Foster, til að
reka fyrirtækið og gegna hlutverki
framkvæmdastjóra.
Með stofnun fyrirtækisins mun
leikkonan bætast í hóp fjölda
frægra kvenna sem hafa sett
snyrtivörumerki á markað. Má þar
nefna Gwyneth Paltrow, Jessica
Alba, Kylie Jenner, Kim Kardas-
hian og Rihanna, sem allar hafa
byggt upp snyrtivörufyrirtæki
með góðum árangri.
Leikkonan sagði í yfirlýsingu
að nýja merkið hennar, sem er
styrkt af Najafi Companies, sömu
fjárfestum og eru á bak við merki
Tracee Ellis Ross, Pattern Beauty
og merki Millie Bobby Brown,
Florence by Mills og fleiri merkja
í eigu stórstjarna, muni bjóða upp
á hreina og aðgengilega nálgun að
fegurð. Að öðru leyti hafa Scarlett
og Kate Foster ekki gefið mikið
upp um nýju vörulínuna.
Scarlett segist sjálf hafa verið
heilluð af krafti fegurðar frá því
hún var barn. Hvernig hún getur
umbreytt fólki. En móðir hennar
innrætti Scarlett frá unglingsaldri,
mikilvægi þess að hugsa vel um
sjálfa sig.
Fjölhæf fyrirmynd
Scarlett hefur verið eftirtektar-
verð leikkona frá unga aldri og
hún hefur vakið athygli fyrir
fágaðan stíl á rauða teppinu. Hún
klæðist oft kjólum sem minna á
stíl leikkvenna frá gullaldarárum
Hollywood og toppar útlitið með
rauðum varalit.
Fjölhæfni Scarlett Johansson
sem leikkonu hefur haldið henni
á toppnum í Hollywood í mörg
ár. Frá því hún byrjaði að leika tíu
ára gömul hefur hún tekið að sér
hlutverk í alvarlegum myndum
á borð við Lost in Translation, til
rómantískra gamanmynda eins
og He's Just Not That Into You, og
hasarmynda eins og The Avengers.
Hún hefur einnig verið áberandi
í tískuheiminum, en hún hefur
verið andlit herferða fyrir Dolce &
Gabbana og verið á forsíðum fjöl-
margra tískutímarita.
Það virðist vera sem þessi hæfi-
leikaríka kona geti ekki stigið feil-
spor og því má vænta þess að nýja
snyrtivörulínan hennar eigi eftir
að slá í gegn, líkt og flest annað
sem hún gerir. Nýjasta mynd
hennar, Black Widow, verður
frumsýnd í kvikmyndahúsum hér
á landi þann 7. júlí. ■
Ný lína væntanleg frá stórleikkonu
Scarlett Johansson er fjölhæf leikkona sem er núna að undibúa nýja snyrti-
vörulínu. Línan verður sett á markað snemma á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Leikkonan hæfileikaríka hefur vakið
mikla athygli fyrir glæsilegan og fág-
aðan klæðnað á rauða dreglinum.
Scarlett segist alltaf hafa heillast af áhrifamætti fegurðar.
Scarlett var mjög ung þegar hún fór
að vekja athygli á rauða dreglinum.
Hér mætir hún á frumsýningu Ghost
World árið 2001, þá 16 ára.
Fæst hjá N1, OLÍS,
veiðibúðum og veidikortid.is
Frelsi til
að veiða!
Ertu búinn að fá
þér Veiðikortið?
8.900 kr
10 kynningarblað A L LT 1. júlí 2021 FIMMTUDAGUR