Fréttablaðið - 01.07.2021, Page 29
Skilaboðin í þessum
verkum eru þau að
lífið heldur einfaldlega
áfram.
Halldór Ragnarsson sýnir
verk á sýningunni Tungu-
málið sem ég græt við, í Lista-
mönnum Galleríi á Skúla-
götu.
kolbrunb@frettabladid.is
„Ég er að sýna afrakstur vinnu
minnar á Covid-tímanum,“ segir
Halldór. „Sýningin heitir Tungu-
málið sem ég græt við, en mynd-
listin er tungumálið sem ég vinn
með. Þessi sýning er því óður til
myndlistarinnar, sem fær mig til að
opna mig. Ég er nokkuð innhverfur
í einkalífi en næ að opna mig upp
á gátt í myndlistinni. Í því felst
ákveðin mótsögn sem ég er að fást
við hér.“
Hann segir að þótt verkin hafi
verið unnin í Covid þá fjalli sýn-
ingin ekki um það tímabil. „Skila-
boðin í þessum verkum eru þau að
lífið heldur einfaldlega áfram og ég
held áfram að vera myndlistarmaður
alveg eins og smiður heldur áfram að
vera smiður.“
Lætur allt flakka
Á sýningunni eru fjórtán verk, mál-
verk og tréverk, sem eiga það svo að
segja öll sameiginlegt að í þeim eru
margendurtekin orð og setningar.
„Ég skrifa dagbók á hverjum degi
og þessir textar minna svolítið á
slík skrif þar sem ég læt allt f lakka,“
segir Halldór. Einn textinn sem er
margendurtekinn í einu verkinu er:
„Ég er ekki að leita að neinu.“ Hall-
dór bendir á að í þessum orðum sé
mótsögn. „Bara við að skrifa þessa
setningu hundrað sinnum, þá bend-
ir það einmitt til að ég sé auðvitað
að leita að einhverju.“
Sem dæmi um aðra texta sem
finna má í verkum hans eru: „Bara
svona og ekkert í viðbót“ og „Hvar
varstu? Trúi þér ekki“.
Spurður um umfjöllunarefnið í
verkunum segir Halldór: „Ég er að
fjalla um minn hversdag sem er ekk-
ert merkilegri en þinn. Setningarnar
í verkunum eru eins og abstrakt
málverk, þær vísa ekki í neitt sér-
stakt fyrir áhorfandann en fyrir mig
eru þær auðvitað persónulegar og ég
er að opna á minn heim í þeim.“
Minna á háhýsi
Tréverkin á sýningunni minna
nokkuð á háhýsi. „Það mætti alveg
kalla þau tungumálaborg,“ segir
Halldór. „Við gerð þeirra nota ég við
og mála á hann og skrifa síðan text-
ann. Verkin verða um leið eins og
kraðak af alls konar hugsunum sem
missa sitt vægi með tímanum, alveg
eins og hugsanir gera almennt.“
Tungumálið sem ég græt við er
tólfta einkasýning Halldórs, en
hann hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hér heima og erlendis.
Sýning Halldórs stendur til 11.
júlí. n
Opnar sig upp á gátt í myndlistinni
„Þessi sýning er því óður til myndlistarinnar,“ segir Halldór. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
kolbrunb@frettabladid.is
Í tilefni þess að tónlistarhópurinn
Cauda Collective gefur út sína fyrstu
hljómplötu, Adest Festum, verður
tónlistin af plötunni f lutt í heild
sinni í Mengi þriðjudagskvöldið 6.
júlí 2021 kl. 21.00.
Adest Festum er ný útsetning
og frjáls túlkun á elsta varðveitta
nótnahandriti Íslands, Þorlákstíð-
um. Verkið, sem varð til í Skálholti
sumarið 2020, er í 20 köflum fyrir
fiðlu, víólu, selló og baritónfiðlu.
Í Cauda Collective eru: Sigrún
Harðardóttir fiðluleikari, Þóra Mar-
grét Sveinsdóttir víóluleikari og Þór-
dís Gerður Jónsdóttir sellóleikari. n
Útgáfutónleikar
Cauda Collective
kolbrunb@frettabladid.is
Prinsinn eftir Kára Viðarsson og
Maríu Reyndal, í leikstjórn Maríu
Reyndal, er verk sem nú er í vinnslu.
Í fyllingu tímans verður það frum-
sýnt í Frystiklefanum á Rifi. Verkið
verður einnig sýnt hjá Leikfélagi
Akureyrar og víðar um landið, og
að endingu í Þjóðleikhúsinu. Leik-
ferðin er liður í auknu samstarfi
Þjóðleikhússins við leikhús á lands-
byggðinni.
Átján ára menntaskólastrákur
er staddur á Laugaveginum í leit
að töffaralegum fötum. Síminn
hringir, þetta er sæta stelpan sem
var að vinna á Prinsinum í sumar.
„Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“
Andstæðar tilfinningar sækja að
honum næstu mánuði. Ungi maður-
inn ákveður síðan með sjálfum sér
að verða heimsins besti pabbi. En
þá kemur skyndilega í ljós að hann
er ekki sá eini sem kemur til greina
sem faðir barnsins.
Tuttugu árum síðar, þegar ungi
maðurinn er orðinn leikari og
rekur lítið leikhús á landsbyggð-
inni, sest hann niður með leikstjóra
og þau skoða þetta mál saman. Þau
taka viðtöl við fólkið sem kemur
við sögu. Ýmislegt óvænt kemur í
ljós. n
Víðförull Prins er í vinnslu
María Reyndal og Kári Viðarsson sömdu saman leikritið Prinsinn.
Cauda Collective gefur út plötu.
kolbrunb@frettabladid.is
Á tónleikum sumarjazztónleika-
raðar veitingahússins Jómfrúarinnar
við Lækjargötu, laugardaginn 3.
júlí, kemur fram kvintett saxófón-
leikarans Sigurðar Flosasonar og
trompetleikarans Ara Braga Kára-
sonar. Agnar Már Magnússon leikur
á píanó, Nico Moreaux á kontrabassa
og Einar Scheving á trommur. Fluttur
verður göróttur kokteill jazzstand-
arda frá ýmsum tímum. Tónleik-
arnir fara fram utandyra á Jómfrúar-
torginu. Þeir hefjast kl. 15 og standa
til kl. 17. Aðgangur er ókeypis. n
Siggi Flosa og Ari
Bragi á Jómfrúnni
Sigurður Flosason.
stod2.is
FIMMTUDAGUR 1. júlí 2021 Menning 17FRÉTTABLAÐIÐ