Fréttablaðið - 01.07.2021, Page 34
Sif Sigmarsdóttir
rithöfundur
„Sumarið 1997
dvaldi ég í Mont-
pellier í Frakk-
landi og þóttist
l æ r a f r ön sk u .
Hinn 31. ágúst
átti ég bókað flug
heim til Íslands,“
segir Sif Sigmars-
dóttir, sem þá var grunlaus um
örlagaríkt og ógleymanlegt bílslysið
í höfuðborginni. „Ég eyddi deginum
í rútu og þegar ég mætti á flugvöllinn
í París hafði ég ekki hugmynd um að
heimsbyggðin stæði á öndinni yfir
harmleik sem átti sér stað skammt
frá – þetta var löngu fyrir snjallsíma-
væðinguna og fréttir gátu farið svona
svakalega fram hjá manni. Þar sem
ég ráfaði um flugvöllinn þefaði ég
uppi Íslending (við virðumst gefa
frá okkur einhvers konar þjóðernis-
ferómón, við finnum alltaf hvert
annað).
Hann sagði mér fréttirnar og við
sátum saman og veltum okkur upp
úr þessari sammannlegu tragedíu
þar til gengið var um borð.“
Heimir Már Pétursson
fréttamaður
„ A l þ j ó ð l e g u
f rét t astof u r nar
voru til þess að
gera nýkomnar
til Íslands þegar
Díana dó,“ segir
Heimir Már.
„Ég var nýkom-
inn heim til mín
af næturbrölti og kveikti á Sky News
eins og fréttamönnum er tamt. Þá
var verið að greina frá því að Dína
hefði lent í bílslysi í París. Hún væri
slösuð á sjúkrahúsi, en Dodi og bíl-
stjórinn væru látnir. Ég fylgdist
síðan með fram eftir nóttu þar til
staðfest var að Díana væri látin. Það
var mjög undarlegt að fylgjast með
þessu nánast um leið og það gerðist
og sjá myndir frá vettvangi. Ég man
ég hugsaði hvernig þetta gæti gerst
fyrir manneskju sem væri svona vel
gætt en síðar kom auðvitað í ljós að
hennar var alls ekki gætt fyrir utan
starfsfólk Dodis. Strax þarna um
nóttina varð mér ljóst að heimsvið-
burður hefði átt sér stað þótt mig
óraði ekki fyrir eftirleiknum.“
Erna Ýr Öldudóttir
blaðamaður
„ Aðeins hinir
g ó ð u d e y j a
ungir, allt hið
illa virðist tóra
til eilífðar, söng
Iron Maiden. Ég
bjó á Melunum,
þegar sviplegan
dauða Hjar ta-
drottningarinnar bar að,“ segir
Erna Ýr. „Alþýðlega, hjartagóða en
óhamingjusama tískutáknið, Díana
prinsessa af Wales, var nánast dag-
legt fréttaefni framan af ævi minni.
Vinkona mín hringdi, henni var
mikið niðri fyrir. Ég starði agndofa
út um hálfmánalagaðan risglugg-
ann. Heimurinn yrði ekki samur.
Að baki óhamingju prinsessunnar
lá eitthvað meira. Að gefa sig ríkum,
frægum, meðalgreindum, sjálf-
hverfum og ómyndarlegum manni,
er nefnilega ekki nýtt undir sólinni.
Erfiðar spurningar vöknuðu sem
enn er ósvarað. Heimurinn minn-
ist hennar í dag með söknuði og
hlýju.“ n
Hvar varst þú
þegar þú fréttir
af andláti Díönu
prinsessu?
thorarinn@frettabladid.is
„Auðvitað var ég hissa yfir dauðdaga
Díönu, eins og öll heimsbyggðin.
Það áttu fæstir von á svona ömur-
legum dauðdaga 36 ára konu, sem
átti að njóta bestu öryggisgæslu sem
hugsast gat. Það gerði hún þó ekki.
Konungsfjölskyldan hafði afnumið
öryggisráðstafanir í hennar garð,“
segir Hildur Helga Sigurðardóttir,
sem var nýflutt heim frá Lundúnum,
þar sem hún hafði meðal annars
verið fréttaritari Ríkisútvarpsins í
tæpan áratug.
Aldagamlar hefðir í uppnámi
„Það skrifast síðan á reikning föður
Dodis, Al Fayeds, að hann, kallinn
sem öllu réði, skyldi fela drukknum
og dópuðum bílstjóra að ferja son-
inn og krúnudjásnið, sem Díana
vissulega var,“ segir Hildur Helga
og bætir við að hún hafi f lutt fréttir
af öllu milli himins og jarðar frá
Bretaveldi, en einhvern veginn „sátu
fréttirnar af þessu fólki fastast í fólki
og gera jafnvel enn!
Það var áhugavert að stúdera
hvað gerðist í þessari fjölskyldu
í kringum þetta óvænta andlát
Díönu. Jafnvel drottningin, höfuð
f jölskyldu sem byggir á alda-
gömlum hefðum, virtist ekki hafa
hugmynd um hvernig hún ætti að
bregðast við.“
Grimmileg örlög
Ástandið sem skapaðist eftir dauða
Díönu varð því f ljótt að krísu milli
reiðrar þjóðar, sem var farin að
minna á þýskan uppruna núver-
andi konungsfjölskyldu og heimta:
„Húnana heim“ og vandræðalegrar
konungsfjölskyldu, sem taldi sig
geta sópað þessum heimsviðburði
undir teppið. Það reyndist auðvitað
ekki hægt.
Við Ólafur Sigurðsson frétta-
maður dekkuðum jarðarför Díönu,
þessa lengstu beinu útsendingu
í manna minnum. Mér er þar
minnisstæðust þrumuræðan sem
Spencer jarl f lutti, um hundeltandi
pressuna og ekki síður framkomu
konungsfjölskyldunnar við systur
hans, sem jarlinn minnti á að hefði
verið af margfalt konunglegra blóði
en þessi fjölskylda sem hún var svo
óheppin að giftast inn í og reyndist
henni ekki vel. Þrumuræða, sem ég
man næstum frá orði til orðs.
Það voru grimmileg örlög konu
sem hét eftir veiðigyðjunni sjálfri,
Díönu, að verða hundeltasta mann-
vera jarðarinnar, sagði jarlinn og
gestir þögðu allir sem einn.
Síðan tók við löng ferð með kistu
prinsessunnar til Althorp-kastala
Spencer-fjölskyldunnar, þar sem
hún var jarðsett ein á lítilli eyju á
landareigninni. Svolítið einmana-
legt, en eftir allt sem á undan var
gengið vildi Spencer-fjölskyldan
hafa hana hjá sér.“ n
Hundeltasta manneskjan í heiminum
Hildur Helga
Sigurðardóttir.
Lafði Díana Spencer, leikskólakennarinn sem varð prinsessa fólksins,
skömmu fyrir örlagaríka trúlofun hennar og Karls prins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn
@frettabladid.is
Lafði Díana, prinsessa fólks-
ins, væri sextug í dag hefði
hún lifað. Hún færði konungs-
fjölskylduna nær nútímanum
og mikil áhrif hennar mögn-
uðust gríðarlega við dauða
hennar.
thorarinn@frettabladid.is
Lafði Díana Frances Spencer fædd-
ist þann 1. júlí 1961 og var aðeins 36
ára þegar hún, í sviðsljósi ágengra
fjölmiðla, lenti í hörmulegu bílslysi
í París 31. ágúst 1997. Díana var ger-
vallri heimsbyggðinni harmdauði
og hennar er enn minnst með hlý-
hug sem hinnar einu sönnu prins-
essu fólksins.
Almenningur tók hinni ungu og
frjálslegu Díönu opnum örmum,
þegar hún og ríkisarfinn Karl, prins-
inn af Wales, tóku að stinga saman
nefjum. Þau voru gefin saman í
dómkirkju heilags Páls sumarið
1981 í óumdeildu brúðkaupi síðustu
aldar og örlög hennar réðust í raun
þegar hún dró lengsta brúðarslóða
samtímasögunnar á eftir sér út á
þyrnum stráða örlagabrautina.
Varð voldugri í dauðanum
„Hún náttúrlega deyr þegar hún
er bara 36 ára og mér hefur alltaf
fundist áhugavert hversu mikil
áhrif hún hafði á stuttri ævi. Hún
skilur gífurlega arfleifð eftir sig og
þótt hún hafi nú ekki verið lengi í
konungsfjölskyldunni þá hafði hún
alveg rosalega mikil áhrif og leiðin-
legt að segja það, en það er kannski
í dauðanum sem áhrif hennar verða
enn meiri,“ segir Guðný Ósk Laxdal,
sem fjallaði um nútímavæðingu
konungsfjölskyldunnar í BA-ritgerð
sinni 2016.
„Dauði Díönu er svo stór og þá
neyddist drottningin svolítið til
þess að fara gegn hefðinni og breska
fánanum var þá flaggað í hálfa stöng
við Buckingham-höll í fyrsta skipti í
sögunni, vegna þess að þjóðin bara
krafðist þess að einhverjar tilfinn-
ingar yrðu sýndar.“
Guðný segir þetta hafa verið stór-
merkilegt og þá ekki síst að Elísabet
skuli hafa látið gera þetta. Það eitt
og sér segi mikið um þær miklu
breytingar sem fylgdu Díönu.
Prinsessa fólksins
Díana varð f ljótt „prinsessa fólks-
ins“ enda fram úr hófi alþýðleg og
lagði sig fram um að ala syni sína
Aðeins ein Díana prinsessa
Guðný Ósk
kennir ensku
í Flensborg
og fjallar um
kóngafólk af
innsýn sem
@roylaicelander
á Instagram.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ÓTTAR GEIRSSON
Heimsbyggðin
stóð á öndinni
yfir fegurð og
útgeislun prins-
essunnar þegar
hún gekk að
eiga ríkisarfann
og tók sín
fyrstu skref inn
í háskalegan
heim þar sem
grimmileg örlög
biðu hennar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
upp í heilbrigðari nálægð við eitt-
hvað sem mætti teljast eðlilegt líf.
Guðný rifjar til dæmis upp sögur
af því að Díana hafi átt það til að
fara með Vilhjálm og Harry á næsta
McDonalds í stað þess að snæða í
höllinni.
„Það situr svolítið í þeim í dag að
hafa kynnst svona aðeins eðlilegra
lífi,“ segir Guðný, og víkur að þeim
miklu áhrifum sem dauði móður
þeirra hafði á Vilhjálm og Harry.
„Þjóðin tekur þá svolítið að sér og
það sést enn þann dag í dag hversu
fólki finnst vænt um þá, þótt þeir séu
orðnir fullorðnir menn með sínar
eigin fjölskyldur. Það er alltaf þessi
væntumþykja einhvern veginn af því
að þjóðin og heimurinn áttu Díönu
og hún er náttúrlega heilög í dag.“
Væri alger amma
Guðný bendir einnig á að Díana
hafi kynnt Vilhjálm ungan fyrir
aðstæðum heimilislausra, sem hún
hafi oft heimsótt ásamt litla prins-
inum. Hún var dugleg að minna þá
á að þeir lifðu mjög góðu lífi og Vil-
hjálmur hélt áfram að sinna heim-
ilislausum eftir að móðir hans dó.
„Ég held að stærsta arfleifð hennar
sé strákarnir hennar og hvernig hún
ól þá upp og hvernig þeir hafa tekið
við af henni.
Guðný segir ómögulegt að segja
til um hver staða Díönu væri í dag,
hefði hún lifað. Breyturnar eru
enda margar en eitt er næsta víst:
„Hún væri náttúrlega algjör amma.
Held ég. Barnabörnin eru orðin
fimm núna og Vilhjálmur og Harry
eiga hvor sína dótturina sem heita
báðar Díana að millinafni. Það er í
rauninni of mikið fyrir barn í dag
að heita Díana og eiga eftir að verða
Díana prinsessa,“ segir Guðný, um
þær Karlottu Elísabetu Díönu, dótt-
ur Vilhjálms og Katrínar, og Lilibet
Díönu Mountbatten-Windsor sem
Meghan Markle og Harry eignuðust
í júní.
„Það getur enginn orðið Díana
prinsessa eftir Díönu og þú setur
ekki nýtt barn, sem er líka barna-
barnið hennar, í þessa aðstöðu, en
það skiptir þá greinilega miklu máli
að stelpurnar heiti eftir ömmu sinni
og Harry talar ekki um neitt annað í
dag en mömmu sína.“ n
22 Lífið 1. júlí 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 1. júlí 2021 FIMMTUDAGUR