Fréttablaðið - 17.06.2021, Blaðsíða 3
f r e t t a b l a d i d . i sf r e t t a b l a d i d . i s
F I M M T U D A G U R 1 7 . J Ú N Í 2 0 2 11 1 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R
Hæ hó
og jibbý
...
OPIÐ Í DAG
í öllum verslunum!
17. JÚNÍ
Reykjavíkurborg er komin í hátíðarbúninginn í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga í dag. Eftir hógvær fagnaðarlæti síðasta árs má búast við að Íslendingar hópist saman og efni til fagnaðarláta í hinum
ýmsu sveitarfélögum í dag. Veðurstofan býst við að það verði skýjað um land allt og gæti dropað á nokkrum stöðum og því er gott að hafa regnhlíf innan seilingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tilboð eignarhaldsfélaga
og fjársterkra einstaklinga
í útboði Íslandsbanka voru
skert niður í eina milljón
króna. Utanþingsviðskipti
með bréf bankans áttu sér
stað eftir að útboðinu lauk og
var gengið í viðskiptunum 15
prósentum hærra en útboðs-
gengið.
hordur@frettabladid.is
thorsteinn@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Öll eignarhaldsfélög og
fjársterkir einstaklingar, sem skráðu
sig fyrir meira en 75 milljónum
króna í hlutafjárútboði Íslands-
banka, fengu einungis úthlutun upp
á eina milljón króna. Fréttablaðið
hefur staðfestar upplýsingar um
að úthlutunin hafi verið skert með
þessum hætti.
Í nýafstöðnu hlutafjárútboði
Íslandsbanka var níföld umfram-
eftirspurn eftir bréfum bankans
og því ljóst að skerða þurfti tilboð
fjárfesta töluvert. Tilboð undir einni
milljón króna voru hins vegar ekki
skert.
Í tilboðsbók A, sem ætluð er
almennum fjárfestum, var tekið við
áskriftum að fjárhæð 50 þúsund til
75 milljóna króna, en áskriftir sem
námu meira en 75 milljónum fóru í
tilboðsbók B. Stórir einkafjárfestar,
sem höfðu lagt fram tilboð í tilboðs-
bók B þurftu að sæta skerðingum
niður í eina milljón, óháð því hversu
hátt tilboðið var.
Lífeyrissjóðir, verðbréfasjóðir
og tryggingafélög þurftu einnig að
sæta töluverðum skerðingum, en
fengu þó talsvert stærri skerf en
einkafjárfestar og sömuleiðis gír-
aðir fjárfestingasjóðir.
Þá hefur Markaðurinn heimildir
fyrir því að eftir að útboðinu lauk
á hádegi í fyrradag hafi átt sér stað
utanþingsviðskipti upp á hundruð
milljóna króna, þar sem fjárfestar
afsöluðu sér bréfum sem þeim var
úthlutað í útboðinu. Gengi bréf-
anna í þessum viðskiptum var yfir
90 krónur á hlut, sem er um 15 pró-
sentum hærra en útboðsgengið sem
nam 79 krónum. Áætlað er að fyrsti
dagur viðskipta með bréf í bank-
anum í Kauphöllinni verði 22. júní
næstkomandi.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir í samtali
við Fréttablaðið að ríkissjóður hafi
fengið gott verð fyrir eignarhlutinn
í Íslandsbanka en við verðlagning-
una hafi einnig verið horft til þess
að fá fjárfesta að borðinu.
„Það er útilokað að við hefðum
fengið sama verð fyrir ári síðan,“
segir Bjarni, spurður hvort verðið
hafi verið ásættanlegt fyrir ríkissjóð.
„Það er vandasamt verk að stilla
verðbilið. Það var ákveðið eftir langt
ferli og speglast í verði fjármála-
fyrirtækja innanlands sem erlendis.
En verðlagningin er líka hugsuð til
þess að vekja áhuga og fá menn að
borðinu, og mér finnst það hafa
tekist vel.“
Fjöldi hluthafa eftir útboðið er
um 24 þúsund talsins, sem er mesti
fjöldi hluthafa allra skráðra fyrir-
tækja á Íslandi. ■ –SJÁ SÍÐU 12
Skerða fjársterka niður í milljón
birnadrofn@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Samkvæmt bráða-
birgðatölum Embættis landlæknis
fyrir árið 2020 frömdu fleiri konur
sjálfsvíg á síðasta ári en á nokkru af
þeim 25 árum sem tölfræði hefur
verið haldið til haga um málefnið.
Alls voru 47 sjálfsvíg á Íslandi á
síðasta ári, þar af 15 konur og 32
karlar .
Síðastliðinn áratug hafa að með-
altali verið 39 sjálfsvíg framin hér
á landi árlega, en þegar litið er til
einstakra ára hefur fjöldinn verið á
bilinu 27-49. Flest sjálfsvíg áttu sér
stað árið 2013.
Kristín Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri Píeta samtakanna, segir sím-
tölum til samtakanna hafa fjölgað
gríðarlega á síðasta ári, en samtökin
sinna forvarnarstarfi gegn sjálfs-
vígum og sjálfsskaða og styðja við
aðstandendur. ■ -SJÁ SÍÐU 4
Sjálfsvíg kvenna
fleiri en áður
Verðlagningin er líka
hugsuð til þess að
vekja áhuga og fá
menn að borðinu, og
mér finnst það hafa
tekist vel.
Bjarni Benediktsson, fjármála-
ráðherra.