Fréttablaðið - 17.06.2021, Blaðsíða 4
Forsetinn lætur kuldann ekki bíta
Ungum áhugamönnum um siglingar brá í brún að sjá sjálfan forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson, stinga sér til sunds í Nauthólsvík í gær. Guðni hefur áður
mært ávinninginn sem fæst af þvi að stunda sjósund og var ekki að sjá á Guðna að honum fyndist sjórinn kaldur miðað við árstíma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hveragerði mun bætast við
hóp sveitarfélaga sem ætla
að hafa tíðavörur ókeypis í
grunnskólum og félagsmið-
stöðvum. Frumkvæðið kom
frá Femínistafélagi grunn-
skólans sem safnaði sjálft
styrkjum fyrir dömubindi.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SUÐURLAND Eftir að Femínistafélag
grunnskólans í Hveragerði hóf að
safna tíðavörum fyrir nemendur
ákvað bæjarstjórnin að gera þær
ókeypis í skólanum og félagsmið-
stöðinni næsta haust. Femínista-
félagið mun sjá um að velja vörurnar
og dreifa þeim í skólanum.
„Þetta á að vera svo sjálfsagt. Fyrir
stelpur er þetta jafn mikilvægt og
klósettpappír. Með því að hafa þetta
í boði gerum við blæðingar minna
tabú. Stelpur eiga ekki að þurfa að
fela dömubindin í vasanum á leið-
inni inn á klósett,“ segir Rannveig
Arna Sigurjónsdóttir sem var að
klára 10. bekk. „Síðan eru til stelpur
sem hafa einfaldlega ekki efni á
góðum dömubindum.“
Mikil umræða hefur verið um
kostnað við tíðavörur, það er dömu-
bindi og túrtappa, fyrir ungar stúlk-
ur undanfarið ár. Sérstaklega eftir
að breytingartillaga þingmannsins
Andrésar Inga Jónssonar við fjár-
lög, til að gera tíðavörur ókeypis í
skólum og fyrir tekjulága, var felld
í desember.
Femínistafélagið var stofnað árið
2017 af þremur stúlkum í 10. bekk.
Hlutverk þess er að styðja við jafn-
rétti í skólanum og er það opið fyrir
alla. Ákveðið var að safna tíðavör-
um til að hafa ókeypis í skólanum
og fékk félagið styrk til þess.
Sigrún Árnadóttir, kennari í skól-
anum og fulltrúi Okkar Hveragerðis
í bæjarstjórn, fannst framtakið
gott og ákvað að taka málið upp
hjá bænum. Var á fimmtudag sam-
þykkt á bæjarstjórnarfundi að bær-
inn greiði fyrir tíðavörurnar og að
Femínistafélagið muni koma að vali
og dreifingu. Bætist Hveragerði því
við hóp sveitarfélaga eins og Reykja-
víkur, Ísafjarðar og Skagafjarðar,
þar sem tíðavörur verða ókeypis í
skólum og félagsmiðstöðvum.
„Það er mikilvægt að allar stúlkur
hafi aðgang að góðum tíðavörum,“
segir Sigrún. „Félagið hafði safnað
og fengið gefins stór bindi, sem
henta ekki endilega fyrir ungar
stelpur. Strax í haust mun skólinn
panta inn vörur sem henta, í sam-
ráði við Femínistafélagið.“
Rannveig segist rosalega ánægð
með að bæjarstjórn hafi ákveðið að
hafa ókeypis tíðavörur í skólanum.
„Mér finnst þetta geggjað. Ég vona
að þetta verði svona í öllum skólum
í framtíðinni,“ segir Rannveig sem
sjálf fer í framhaldsskóla í haust. „Ef
dömubindi verða ekki boði þar læt
ég í mér heyra,“ segir hún. ■
Gera tíðavörur ókeypis að
frumkvæði nemenda
Sigrún Árnadóttir kennari og meðlimir Femínistafélags grunnskóla Hvera-
gerðis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fyrir stelpur er þetta
jafn mikilvægt og
klósettpappír.
Rannveig Arna
Sigurjóns-
dóttir, nemi og
femínisti.
Parque Santiago Apartments
Flug og gisting
TENERIFE
30. júní - 7. júlí
www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400
verð frá 89.790 kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
Innifalið flug, gisting, innritaður farangur og handfarangur
kristinnpall@frettabladid.is
VEÐUR Þegar búið er að létta sam-
komutakmörkunum og von er á
hressilegum hátíðahöldum á Þjóð-
hátíðardegi Íslendinga, er ekki víst
að veðrið komi til með að leika við
Íslendinga í dag. Von er á heldur
gráum degi, en sólin gæti brotist
fram þegar líða tekur á daginn. Viss-
ara er þó að hafa regnhlífina innan
handar enda gæti farið að rigna, sér-
staklega á suðurhluta landsins.
„Ég held að það gæti orðið heilla-
skref að hafa regnhlífina að minnsta
kosti í skottinu. Við eigum síður
von á skúrum í Reykjavík en það er
ekki alveg útilokað. Það er helst á
Suðurlandinu sem það gætu komið
einhverjir dropar,“ segir Haraldur
Eiríksson, veðurfræðingur á Veður-
stofu Íslands, aðspurður hvort það
væri heillaskref að taka regnhlíf
með í hátíðahöldin.
„Svo er bara mikilvægt að vera
sæmilega klæddur miðað við veður-
aðstæður. Það verður áfram svalt,“
segir Haraldur, sem á ekki von á því
að þörf sé á sólarvörn. „Sólin gæti
brotið sér leið í gegn á einhverjum
stöðum en heilt yfir verður mikið
skýjað, svo að það ætti ekki að vera
þörf á neinni sólarvörn.“ ■
Hafa regnhlíf innan handar í dag
Það gæti rignt í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lónið í Kópavogi færir út kvíarnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
benediktboas@frettabladid.is
SKIPULAG Bæjarráð Kópavogs sam-
þykkti í gær að lóðunum Vesturvör
38a og 38b verði úthlutað til sömu
aðila og eiga og reka Sky Lagoon.
Lóðirnar áttu fyrst að fara til WOW
Air en eðli málsins samkvæmt
munu engar höfuðstöðvar þess flug-
félags rísa á lóðunum.
Í bréfi Ármanns Kr. Ólafssonar,
bæjarstjóra Kópavogs um málið
kemur fram að hugmyndir félags-
ins séu að búa til hverfi í gömlum
íslenskum stíl þar sem boðið verði
upp á margs konar afþreyingu, söfn
og gistimöguleika, matarupplifun,
listir og menningu. ■
Sky Lagoon fær
Wow lóðina
Baðlón Sky Lagoon
kostaði um fimm
milljarða króna.
2 Fréttir 17. júní 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ